Morgunblaðið - 10.01.2014, Blaðsíða 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 2014
Faðirinn, hjólreiðamaðurinn, íþróttaáhugamaðurinn og einnaf elskuðustu sonum Breiðholtsins, Haukur Snær Hauksson,fagnar 35 ára afmælisdegi sínum í dag. Við slík tímamót
dugar ekkert hálfkák og ætlar hann að mála bæinn rauðan eftir að
dagsverki lýkur hjá Umboðsmanni skuldara. Að sögn Hauks gengur
hann undir viðurnefninu „Hagnaðurinn“ og helgast það af því að
hann er einkar laginn við að vega og meta þá kosti sem hann stend-
ur frammi fyrir. Haukur er faðir Kristínar Maríu, sem er sjö ára, og
Sunnu Karenar, fjögurra ára. Foreldrar hans eru þau Kristín Auð-
unsdóttir og Haukur Ágústsson. Haukur var veikur heima þegar
blaðamaður náði tali af honum en eftir að hafa vegið og metið stöð-
una hefur hann ákveðið að vera ekki veikur á afmælisdaginn, enda
sé búið að lofa honum köku í vinnunni. „Ég er mikið afmælisbarn,
eru það ekki allir? Hver hatar afmælið sitt?“ spyr Haukur á heim-
spekilegum nótum. Haukur styður Liverpool, Fram, LA Lakers og
Barcelona. „Nýjasta áhugamálið er bjórbruggun. Svo sem ég líka
tónlist við góð tækifæri,“ segir Haukur. Þá er hann kvikmynda-
áhugamaður og uppáhaldsmyndin í augnablikinu er Wolf of Wall
Street. Hann starfaði líkt og aðalpersónan, Jordan Belfort, á fjár-
málamarkaði en hann er fyrrverandi starfsmaður Landsbankans.
Hann segir að líkindum með þeim ljúki þar með. „Við störfuðum
báðir á fjármálamörkuðum og gerum það hvorugir í dag. En ég
varð aldrei var við fíkniefni og það var enginn úlfur að vinna með
mér,“ segir Haukur í gamansömum tón.
Haukur Snær Hauksson er 35 ára
Afmælisstrákur Haukur Snær Hauksson er 35 ára í dag.
Ætlar að mála bæ-
inn rauðan í kvöld
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Sveinn Páls-
son er 90 ára í
dag,
10. janúar.
Hann er giftur
Eddu Ingi-
björgu Mar-
geirsdóttur.
Börnin eru 5 og barna- og barna-
barnabörnin eru orðin 26.
Sveinn bjó og starfaði fyrri hluta
ævi sinnar í Sandgerði en árið 1968
flutti hann til Reykjvíkur og starfaði
hjá Álverinu í Straumsvík. Alla sína
ævi hefur hann verið mjög virkur
kórfélagi og enn þann dag í dag er
hann syngjandi í 5 kórum.
Afmælisbarnið heldur upp á daginn
í faðmi fjölskyldunnar á heimili
sínu.
Árnað heilla
90 ára
Reykjavík Alexander Leví fæddist
22. apríl kl. 20.12. Hann vó 3510 g og var
50 cm langur. Foreldrar hans eru Karen-
ína Elsudóttir og Bjarni Grétar Bjarna-
son.
Nýir borgarar
Reykjavík Hallgrímur
fæddist 6. júní kl.
19.22. Hann vó 2.760 g
og var 50 cm langur.
Friðrik fæddist 6. júní
kl. 19.44. Hann vó
3.148 g og var 50 cm
langur. Foreldrar
þeirra eru Sólrún
Dröfn Björnsdóttir og
Héðinn Þórðarson.
J
ón G. Stefánsson geð-
læknir fæddist í Reykja-
vík og ólst þar upp í for-
eldrahúsum. Hann gekk í
Laugarnesskóla, lauk
stúdentsprófi frá MR 1959 og
kandidatsprófi í læknisfræði frá
HÍ 1966.
Jón stundaði ýmis læknisstörf
næstu þrjú árin við Landspít-
alann, Kleppsspítala, slysavarðs-
stofu Heilsuverndarstöðvar
Reykjavíkur og á Hvammstanga.
Hann stundaði nám í geðlækn-
ingum við Strong Memorial Ho-
spital, University of Rochester, í
Rochester, New York 1969-74 og
öðlaðist sérfræðingsleyfi í geð-
lækningum 1975.
Jón var aðstoðarlæknir á
Kleppsspítala 1974-76, sérfræð-
ingur á Kleppsspítala og síðan
geðdeild Landspítalans 1976-83 og
Jón Grétar Stefánsson, geðlæknir og fyrrv. yfirlæknir – 75 ára
Ellefu afabörn Hér eru öll afabörnin samankomin, hress og kát, nýkomin úr sundi og búin að næla sér í ís.
Fær stangveiðimaður
Lagt á ráðin Jón, ásamt Helgu, eiginkonu sinni, sem einnig er geðlæknir.
Nýir borgarar
Z-BRAUTIR OG GLUGGATJÖLD
FAXAFENI 14 - 108 REYKJAVÍK - S. 525 8200 - Z.IS
ÚRVA
L - GÆ
ÐI - Þ
JÓNU
STA
MIKIÐ ÚRVAL
AF VEGGFÓÐRI