Morgunblaðið - 10.01.2014, Blaðsíða 40
AF DJASSI
Vernharður Linnet
linnet@simnet.is
Rúnar Georgsson var nátt-úrubarn í tónlist, hljóðfærinléku í höndum hans og tón-
listin streymdi frá honum fyrirhafn-
arlaust, að því er virtist, oftast blús-
mettaður heitur djass. Djassinn fékk
hann í arf frá móður sinni, sem var
snjöll á nikkuna og dáði Louis Arms-
trong. Sex ára var hann farinn að
koma fram á skemmtunum í Eyjum,
þar sem fjölskyldan bjó um tíma, lék
meira að segja á þjóðhátíð á munn-
hörpu og stundum með hljómsveit
Guðjóns Pálssonar píanista.
Oddgeir Kristjánsson kenndi
honum á trompet í Lúðrasveitinni í
Gagganum, en svo flutti hann upp á
land og fékk sér altósaxófón og síð-
ar tenór. Í Keflavík kynntist hann
Þóri Baldurssyni og Pétri Östlund
og var farinn að leika í hljómsveit
Guðmundar Ingólfssonar, gítarleik-
ara, sextán ára.
Þeir Pétur urðu miklir mátar
og tók trommarinn að kenna saxó-
fónleikaranum unga djassfræðin;
jafnaldra sínum, sem alist hafði upp
við Armstrong og Earl Bostic. Nú
var alvaran á dagskrá og setið var
dagana langa og John Coltrane
krufinn til mergjar. Rúnar skildi
fyrst lítið í þeim saxófónblæstri og
hlustaði á Stan Getz í laumi, en Pét-
ur réði ferð. Um haustið héldu þeir
til Reykjavíkur að leika í Neon
kvartetti Kidda Vilhelms bassaleik-
ara í Vetrargarðinum. Þetta voru
þroskaðir sautján ára peyjar sem
laumuðu djassinum inn á milli dans-
lagnanna hvenær sem færi gafst,
jafnvel þó saxófónleikarinn ætti á
hættu að fá glas í hausinn ef sóló-
arnir urðu of langir, og ekki dró pí-
anisti kvartettsins úr djassgleðinni,
sjálfur Carl Möller.
ÍReykjavík var leikið í óteljandidansböndum, allt frá fínni sjö
manna sveit Björns R. Einarssonar,
fór að sofa og starði hugfanginn á
þetta gyllta undur.
Rúnar hefði náð lengra í djass-
inum hefði hann búið yfir þeirri
þrautsegju og sjálfsaga sem nátt-
úrubarninu var fjarri. Eitt sinn hafði
ég skrifað krítík um Rúnar og hann
hringdi í mig og sagði: ,,Venni minn,
þetta er allt rétt og satt sem þú
skrifaðir, ég veit að ég þyrfti að taka
mér tak, en ég er bara svona. Þetta
er einsog að skvetta vatni á gæs.“
Sem betur fer voru tækifærin ótal-
mörg til að fara fögrum orðum um
djassleik hans en þá sagði hann
gjarnan: ,, Venni minn, ég er ekki
nálægt því svona góður.“
Í samtali er ég átti við Óskar
Guðjónsson, saxófónleikara, eftir að
Rúnar lést, sagði hann: ,,Það er eng-
inn maður fæddur með þá snilligáfu
er Rúnar bjó yfir. Hann hefur þurft
fleiri líf til að þróa hana.“ Þessi orð
hefðu fallið Rúnari í geð.
Rúnar nam undirstöðu í saxó-
fónleik hjá fyrsta stórdjassista Ís-
lands, Sveini Ólafssyni. Hann lærði
margt í skapandi spuna með því að
standa við hlið Gunnars Ormslevs í
blíðu og stríðu. Hann lærði und-
irstöðu flautuleiks hjá Manuelu
Wiesler og frægur er flautuleikur
hans í Víkivaka Jóns Múla. Hann
spilaði einn glæsilegasta djasssóló,
sem varðveittur er á íslenskri hljóm-
plötu, á hálfónýtan sópransaxófón í
Lover man með félögum sínum í
Jazzmiðlum, en síðasta áratuginn
tók hann varla upp saxinn nema í
þau fáu skipti er hann blés opin-
berlega og þá urðu hann og hljóð-
færið eitt að nýju.
Rúnar Georgsson –
náttúrubarn Íslandsdjassins
Náttúrubarn Rúnar Georgsson blæs af innlifun í saxófón á Rurek djasshátíðinni árið 1995. Við hlið hans stendur
básúnuleikarinn og söngvarinn Richard Boone og í baksýn sést Þórður Högnason leika á kontrabassa.
til rokkaðs Lúdó sextetts – og all-
staðar var Rúnar með Louis, Bostic,
Getz og Coltrane í farteskinu og
kunni betur á rokksaxinn en nokkur
rokkari - en danstónlistin var bara
salt í grautinn - til að lifa í alvöru
varð að skapa í spunanum: ,,Til þess
að spila djass þarf að gefa allt,“
sagði hann og gerði það svikalaust.
Fyrst á djasskvöldum í Stork-
klúbbnum, seinna Glaumbæ.
Í Tjarnarbúð hélt Þráinn Krist-
jánsson djasskvöld vikulega og bauð
oft frægum bandarískum djassleik-
urum í heimsókn. Þar lék Rúnar
með mögrum heimssnillingnum og
má nefna saxófónleikarana Jimmy
Heath, Clifford Jordan og Booker
Ervin.
Booker, sem hafði leikið með
Mingus, var blúsmettaður Texas-
tenór, sem hafði lært af Dexter
Gordon og John Coltrane. Booker
kom hér fyrst 1966 en síðar 1969. Ég
hafði kynnst honum allvel og spurði
hann eftir tónleikana á Hótel Loft-
leiðum hvernig honum hefði líkað
spilamennska Íslendinganna. Boo-
ker svaraði: ,,Hann er sleipur saxó-
fónstrákurinn!“
Rúnar lék um tíma í Svíþjóð
m.a. með hinni kunnu hljómsveit Bo
Sylven. Þar þurft hann að pæla í
gegnum á annað hundrað útsetn-
inga, sem var honum erfitt, því hann
var frekar stirðlæs, en það hafðist.
Náttúrugáfan kom honum enn einu
sinn til bjargar: ,, Ég kraflaði mig
fram úr þessu einsog venjulega,“
sagði hann seinna.
Kominn heim fór hann að spila
með Ragga Bjarna á Hótel Sögu og
hann hljóðritaði bæði Jazzvöku með
bassaleikaranum Bob Magnusson og
Þennan ófétis jass með Tómasi R. -
tók þátt í stofnun Léttsveitar Rík-
isútvarpsins og var pantaður til
Danmerkur að hljóðrita Come
Sunday Ellingtons með Radioens big
band.
Hér er stiklað á stóru í tónlist-arsögu Rúnars. Hann var
fæddur með þessa óbrigðulu gáfu er
leiddi hann áfram á tónlistarbraut-
inni sem var grýtt og torsótt. Hann
vann fyrir sér í dansmúsíkinni en
fékk ekki haldið lífi án þess að leika
djassinn. Saxafónninn var honum fé-
lagi og vinur og er hann eignaðist
fyrsta Selmerinn, beint frá París,
opnaði hann kassan áður en hann
» Sem betur fer vorutækifærin ótalmörg
til að fara fögrum
orðum um djassleik
hans en þá sagði hann
gjarnan: „Venni minn,
ég er ekki nálægt því
svona góður.“
40 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 2014
–– Meira fyrir lesendur
Þorrinn
SÉRBLAÐ
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, mánudaginn 20. janúar.
Eitt og annað sem tengist þorranum verður
til umfjöllunar í blaðinu s.s:
Matur, menning,
hefðir, söngur,
bjór, sögur
og viðtöl.
Þann 24. janúar gefur
Morgunblaðið út sérblað
tileinkað Þorranum
Nánari upplýsingar gefur:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
Sendiherra Noregs á Íslandi, Dag
Wernø Holter, opnar í dag kl. 17
sýninguna Approach, eða Nálgun, í
Ráðhúsi Reykjavíkur, samsýningu
þriggja norskra listakvenna: Sol-
veigar Ovanger, Ingridar Larssen
og Cecilie Haaland. Þær vinna með
ólík hráefni í verkum sínum, hafa
starfað saman í rúm tvö ár og sækja
innblástur í mannleg samskipti,
menningu og undur náttúrunnar,
eins og segir í tilkynningu. Lista-
konurnar beri allar sterkar tilfinn-
ingar til hafsins sem endurspeglist í
verkum þeirra. Sýningin hefur áð-
ur verið haldin í Pétursborg og
Arkangelsk í Rússlandi. Ovanger
vinnur með leður og roð í sínum
verkum, Larssen að mestu í textíl
og leitast við að ná fram viðkvæm-
um, gegnsæjum og þyngdarlausum
áhrifum í verkum sínum og Haa-
land hefur unnið með leir og postu-
lín frá árinu 1989 en einnig ljós-
myndir hin síðustu ár, tekur
myndir með kassamyndavél sem
búin er til úr leirkrús.
Nálgun Verk eftir Solveig Ovanger.
Approach í Ráð-
húsi Reykjavíkur
Fyrstu tónleikar Andrýmis, nýrr-
ar tónleikaraðar Íslenska flautu-
kórsins, verða haldnir í hádeginu
í dag, kl. 12.10, í Listasafni Ís-
lands sem stendur að röðinni í
samvinnu við flautukórinn. Tón-
leikarnir eru haldnir í tengslum
við sýningu á verkum Kristínar
Gunnlaugsdóttur, Sköpunarverk.
Petrea Óskarsdóttir þverflautu-
leikari, Lára Sóley Jóhannsdóttir
fiðluleikari og Ásdís Arnarsdóttir
sellóleikari flytja á tónleikunum
verk eftir íslensku kventónskáldin
Guðrúnu Ingimundardóttur og
Hildigunni Rúnarsdóttur og sex
íslensk þjóðlög eftir Þorkel Sig-
urbjörnsson.
Flytjendur Petrea, Lára og Ásdís
leika á Andrými í Listasafni Íslands.
Andrými hefst í
Listasafni Íslands
Fyrstu tónleikar ársins í tónleika-
röðinni Föstudagsfreistingar verða
haldnir kl. 12 í dag í Hömrum í
menningarhúsinu Hofi á Akureyri.
Á þeim leikur ungverski píanóleik-
arinn Zoltán Rostas eina þekktustu
píanósónötu allra tíma, Sónötu í f-
moll op. 57, „Appassionata“, eftir
L.v. Beethoven. Rostas nam við
Franz Liszt-tónlistarháskólann í
Búdapest og hefur leikið víða í Evr-
ópu undanfarin ár. Árið 2006 hlaut
hann fyrstu verðlaun í alþjóðlegu
píanókeppninni í Bekescsaba.
Föstudagsfreistingar eru á veg-
um Tónlistarfélags Akureyrar og
eru orðnar fastur liður í menning-
arlífi bæjarins, tónleikaröð sem
haldin hefur verið til fjölda ára.
Tónleikagestir geta gætt sér á súpu
meðan á tónleikum stendur en hana
matreiðir 1862 Nordic Bistro.
Verðlaunahafi Zoltán Rostas hlaut
1. verðlaun í alþjóðlegu píanókeppn-
inni í Bekescsaba árið 2006.
Zoltán Rostas
leikur Beethoven