Morgunblaðið - 06.02.2014, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2014
Ný sending frá
finnska merkinu
Glæsilegt úrval
Laugavegi 82,
á horni Barónsstígs
sími 551 4473
www.lifstykkjabudin.is
Póstsendum um allt land
Útsölu lýkur á laugardag
Klappastíg 44 - sími 562 3614
Innleggsnótur og gjafakort í fullu gildi á útsölunni
ÚTSALA
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Stormjárn GOTTÚRVAL
Laugavegi 63 • S: 551 4422
NÝTT FRÁ
GERRY WEBER OG TAIFUN
ÚTSÖLUVÖRUR - 50-60% AFSLÁTTUR
www.laxdal.is
VW Touareg v6
Árgerð 2006,
ekinn 124 þ.km
bensín, sjálfskiptur.
Verð 2.790.000
Rnr.124523.
Uppl síma 517-1111 bílinn er á staðnum
TIL SÖLU
Bláu húsin v/Faxafen
Sími 553 7355 • www.selena.is
Opið 11-18 virka daga, 11-15 laugard.
Fylgstu með okkur á Facebook
Útsölulok
8. febrúar
Undirföt • Sundföt
Náttföt • Sloppar
Áki Guðni Gränz, mál-
arameistari og fyrrver-
andi forseti bæjar-
stjórnar Njarðvíkur,
lést í fyrradag, þriðju-
daginn 4. febrúar.
Hann var 88 ára að
aldri. Áki skilur eftir
sig eiginkonu og fimm
börn.
Áki fæddist 26. júní
1925 í Vestmanna-
eyjum. Foreldrar hans
voru Carl Johann
Gränz húsgagnasmiður
og Guðrún Sigríður
Ólafsdóttir. Áki lærði
málaraiðn hjá Engilbert Gíslasyni í
Vestmannaeyjum og lauk sveins-
prófi hjá honum árið 1946. Næstu
þrjú árin starfaði Áki sem málari á
Selfossi, Reykjavík og víðar, áður en
hann fluttist til Ytri-Njarðvíkur árið
1949.
Samhliða aðalstarfi sínu var Áki
listamaður, sem málaði fjölmörg
málverk og mótaði
styttur og brjóstmynd-
ir. Þá hannaði hann
mörg merki fyrir félög
og fyrirtæki, meðal
annars bæjarmerki
Njarðvíkur.
Áki var mjög virkur
í félagslífi Suðurnesja.
Hann sat meðal annars
í stjórn Ungmenna-
félags Njarðvíkur og
gegndi ýmsum störf-
um á vegum þess, auk
þess sem Áki var einn
af meðstofnendum
Lionsklúbbs Njarðvík-
ur. Áki var einn af stofnendum Sjálf-
stæðisfélags Njarðvíkur og fyrsti
gjaldkeri þess. Áki var kjörinn í
hreppsnefnd í Njarðvíkurhreppi ár-
ið 1970 og síðar bæjarfulltrúi fyrir
Sjálfstæðisflokkinn í Njarðvík fram
til ársins 1986. Áki var forseti bæj-
arstjórnar Njarðvíkur frá 1982-
1986.
Andlát
Áki Guðni Gränz
Stella Stefánsdóttir var jarðsungin
frá Akureyrarkirkju í fyrradag.
Hún átti fleiri afkomendur á lífi en
nokkur annar Íslendingur, 190 alls.
Stella eignaðist 14 börn, átti 52
barnabörn, 107 langömmubörn og
17 langalangömmubörn. Yngsta
kynslóðin kvaddi „ömmu Stellu“
sérstaklega um morguninn.
Ljósmsynd/Indíana Margrét Ásmundsdóttir
Stella átti 190 afkomendur
„Ríkasti“ Íslendingurinn jarðsunginn frá Akureyrarkirkju
Í síðustu viku
slösuðust 23 veg-
farendur í tíu
umferðarslysum
á höfuðborg-
arsvæðinu. Slas-
aðir hafa ekki
verið fleiri á
einni viku frá
áramótum. Mun-
ar þar mest um fjögur slys sem
urðu 31. janúar þegar sex vegfar-
endur slösuðust. Þann dag voru
akstursskilyrði slæm, snjókoma og
slydda og víða hálka, að því er segir
í frétt sem Lögreglan á höfuðborg-
arsvæðinu sendi frá sér í gær.
23 slösuðust í tíu
umferðarslysum
Gistinætur á hót-
elum í desember
voru 117.100 sem
er 31% aukning
miðað við desem-
ber 2012. Gisti-
nætur erlendra
gesta voru 84%
af heildarfjölda
gistinátta í mán-
uðinum en þeim
fjölgaði um 43% frá sama tíma í
fyrra en gistinóttum Íslendinga
fækkaði um 5%, segir í frétt á vef
Hagstofu Íslands.
Á höfuðborgarsvæðinu voru
gistinætur á hótelum í desember
93.200, hafði fjölgað um 27% miðað
við desember 2012, en á saman-
lögðu svæði Vesturlands og Vest-
fjarða voru 2.200 gistinætur sem er
fjölgun um 135% miðað við sama
tímabil 2012.
Ferðamaður.
Gistinóttum fjölgaði
um 31% í desember