Morgunblaðið - 06.02.2014, Blaðsíða 32
32 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2014
Stangarhyl 4, 110 Reykjavík, Sími: 520 7700
raestivorur.is
Rétt magn af hreinlætisvörum
sparar pening
– láttu okkur sjá um það
Hafðu samband og fáðu tilboð
sími 520 7700 eða sendu línu á
raestivorur@raestivorur.is
Heildarlausnir í hreinlætisvörum
Sjáum um að birgðastaða hreinlætis-
og ræstingarvara sé rétt í þínu fyrirtæki.
Hagræðing og þægindi fyrir stór og lítil
fyrirtæki, skóla og stofnanir.
Hafðu samband og fáðu tilboð
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú ert búin/n að gera allt sem í þínu
valdi stendur til að ná samningum í vinnunni.
Athugaðu hversu mikil alvara fylgir máli og
afgreiddu það svo eftir ástæðum.
20. apríl - 20. maí
Naut Reyndu ekki að hefjast handa fyrr en
þú hefur kynnt þér málið vandlega og velt því
fyrir þér frá öllum hliðum. Ekki vera hissa
þótt vinsældir þínar eigi eftir að stigmagnast.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Að vinna vinnuna alveg eins dag
eftir dag getur gert mann brjálaðan. Ein-
stæðir sem eru að mynda ný sambönd, ættu
að huga að því hversu miklu þeir vilja deila.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú ert eitthvað ómöguleg/ur inni í
þér núna. Gerðu varúðarráðstafanir og sýndu
þolinmæði og samstarfsvilja. Það slaknar á
þér með kvöldinu.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Ýmsar nýjungar eru á döfinni hjá þér og
þú ert ágætlega í stakk búin/n til að fást við
þær. Sýndu hugrekki og skoðaðu fortíðar-
drauginn frá öllum hliðum.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Í dag gætir þú dregið til þín fólk sem
býr ekki yfir andlegum stöðugleika. Gefðu þér
því góðan tíma til að kryfja málin til mergjar
og talaðu við þá sem standa þér næst.
23. sept. - 22. okt.
Vog Settu þína eigin heilsu ofar öllu öðru því
að öðrum kosti áttu margt á hættu sem erfitt
getur verið að finna lausn á. Síðar muntu sjá
að ákvörðunin var öllum fyrir bestu.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Taktu ekki vinnuna með þér
heim því hollara væri að nota þann tíma sem
þú átt aflögu til að rækta sjálfa/n þig og þína
nánustu. En þú ert ekki eigur þínar, þú ert þú
– mundu það.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Láttu ekki einhverja smámuni ná
heljartökum á þér. Farðu þér hægt og berðu
alla kosti vandlega saman áður en þú velur.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Láttu ekki aðfinnslur annarra í
þinn garð hafa of mikil áhrif á þig. Snúðu þér
að þeim sem þú getur treyst hafirðu þörf fyr-
ir það.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú átt erfitt með að standast
freistingar í dag en mundu að hugsa fyrst.
Vertu jákvæð/ur og sjáðu hlutina frá annarra
sjónarhóli.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Vinur er sá er til vamms segir. Gættu
þess þó að það gangi ekki út í öfgar því það
er margur gimsteinninn sem glóir í mann-
sorpinu.
Vísnagáta eftir Pál í Hlíð var hérí horninu á mánudag og munu
svör birtast á laugardag, svo að enn
er tími til að senda inn lausnarvísu.
Karlinn á Laugaveginum fær þessa
kveðju frá Guðmundi Arnfinnssyni:
Laugavegskarlinn lengi á svari
lét ei standa.
Helgargátu hress að vanda
höldur leysti frjór í anda.
Mörg limruskáld hafa haft gam-
an af því að glíma við erfið rímorð,
gjarna sérnöfn eða heiti borga.
Davíð Hjálmar Haraldsson yrkir
um Lundúnasónötuna:
Þá leikin er Lundúnasónatan
á lútu af bónda frá Mó, Natan,
allir hlustendur klappa
og hrópa og stappa;
þeir Kasper og Jesper og Jónatan.
Jóhann S. Hannesson orti:
Einn veiðimann úti í Osló
til óbóta meinfýsið hross sló.
Af ánægju strax
hver urriði og lax
í á, flúðum, læk, hyl og foss hló.
Kristján Karlsson orti:
Það lagði sig maður í Lima,
mjög langur í fáeina tíma
og vaknaði lár
bæði grettur og grár
en gat ekki varist að kíma.
Þetta afbrigði er líka eftir Krist-
ján:
„Já, andartak ef ég hef tíma,“
sagði íslenskumaður í Lima.
Það falaði hann stúlka
sem lá breidd upp á búlka
eða bekk, ef þú kannt ekki að ríma.
Það hafa margir orð á sér fyrir
að vera göngugarpar nú upp á síð-
kastið. Hjálmar Freysteinsson yrk-
ir:
Af göngugörpunum öllum
Gróa var sprækust á fjöllum,
hún gekk á þau flest,
þó gekk henni best
að ganga í augun á köllum.
Hver hefur ekki gaman af þess-
ari gömlu vísu:
Öll er skepnan skemmtigjörn,
skoðið þið litla stýrið.
Malar sinni kjaftakvörn
kringluleita dýrið.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Erfið rímorð og orðaleikir
Í klípu
„ ... OG ÞÁ BYRJAÐI ÉG AÐ HUGSA ÚT
FYRIR KATTASANDSKASSANN.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„TAKTU DUDDUNA ÚT ÚR ÞÉR OG SEGÐU
GÓÐA MANNINUM AF HVERJU ÞÚ VILT
VINNA HJÁ HONUM.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... tvö elskandi hjörtu.
HVERNIG GET
ÉG LOSNAÐ VIÐ
FLÖSUNA, DOKTOR
ZOOK?
ÞAÐ MYNDI NÚ EKKI
SAKA AÐ LÉTTAST
AÐEINS.
AF HVERJU KENNIÐ ÞIÐ
LÆKNAR AUKAKÍLÓUNUM UM ALLAN
SKAPAÐAN HLUT?!
LAUFBLÖÐ ... HRÍFA ... HYLJUM HRÍFUNA
MEÐ LAUFBLÖÐUM.Þá styttist í það að íslenska knatt-spyrnusumarið bresti á. Víkverji
verður að segja eins og er, að hann
getur varla beðið. Veturinn hefur
verið kaldur og grár, og vill Víkverji
skrifa það að miklu leyti á David
Moyes. Jafnvel þó að það sé ósann-
gjarnt.
x x x
Þegar Víkverji var krakki var liðiðhans í enska boltanum aldrei
kallað annað en „Mansteftir Júnæ-
ted?“ enda voru þeir orðnir fáir sem
mundu nokkuð eftir því að það lið
hefði nokkurn tímann unnið neitt.
Víkverji man eftir því þegar „Big
Ron“ var rekinn sem þjálfari og Alex
Ferguson ráðinn. Víkverji man einn-
ig eftir því hvernig smátt og smátt
brandarinn um Mansteftir hætti að
heyrast. Þegar yfir lauk hafði liðið
hans í enska boltanum náð ótrúlegri
sigurgöngu, sem varla á sér neinn
líka.
x x x
En nú er öldin önnur. Víkverji hef-ur sannast sagna sjaldan haft
minni áhuga á enska boltanum.
Sama verður ekki sagt um nágranna
hans á efri hæðinni. Miðað við þau
hljóð sem reglulega berast niður er
viðkomandi æstur stuðningsmaður
Liverpool. Og sá liggur ekki á skoð-
un sinni á dómara leiksins, óháð því
hvort Liverpool er að vinna þægilega
eða tapa naumt. Alltaf er það ein-
hvern veginn dómaranum að kenna
að leikurinn sé ekki að vinnast, eða ef
Liverpool er yfir, að leikurinn sé ekki
að vinnast með meiri mun.
x x x
Nágranninn átti „skemmtilega“innkomu um daginn, þegar
United var að spila við Sunderland í
undanúrslitum deildarbikarsins.
Þegar Ferguson réð ríkjum var
deildarbikarinn varla þess virði að
taka þátt í honum. Að minnsta kosti
stillti hann sjaldnast upp sterkasta
liði United í þeim leikjum. En nú var
þetta eini titillinn sem raunhæft var
fyrir Moyes að vinna. Náði United að
detta út eftir framlengingu og dapra
vítaspyrnukeppni. Víkverji man ekki
eftir því að nágranninn hafi hlegið
svona mikið áður. víkverji@mbl.is
Víkverji
Því að Drottinn er góður, miskunn
hans varir að eilífu og trúfesti hans frá
kyni til kyns. (Sálmarnir 100:5)