Morgunblaðið - 06.02.2014, Síða 11
Ljósmynd/Þröstur Guðlaugsson
Hugrenningar Í verkum Þrastar eru hugrenningar manns í forgrunni sem lætur hugann reika til fortíðarinnar.
skildu fyrirbæra með augum hennar skal segjast eins og
er að sýnin fær töluvert dýpri merkingu.
„Mig langaði til að upphefja íslensku jurtina sem er
svo dugleg og sterk og þessi eyðibýli sem eru heimur sem
er að hverfa. Mig langaði til að blanda þessu saman. Jurt-
irnar finnst mér stundum þurfa að berjast fyrir lífi sínu
allt sumarið þegar vindarnir blása úr öllum áttum og rign-
ingin hellist yfir og svo koma kuldaköstin en einhvern veg-
inn standa þær alltaf þarna keikar og láta ekki bugast.
Mér finnst þær oft vera eins og við, Íslendingar. Dálítið
eins og lífsbarátta okkar,“ segir Christine.
Persónuleg eyðibýli
Á undanförnum árum hafa þónokkrir listamenn, ís-
lenskir sem erlendir, sótt innblástur í eyðibýlin hér á
landi, enda mjög sérstök upplifun oft að koma inn í hús-
næði sem hefur verið yfirgefið og tíminn virðist standa þar
í stað. Eins og íbúarnir hafi farið einn daginn og tíminn
hafi frá þeirri sömu stundu hætt að líða.
„Mig langaði að taka myndir innan úr eyðibýlum á
annan máta en hefur verið gert. Mér finnst oft svo fallegt
að sjá hvað fólk var að gera hérna áður fyrr. Það lagði
kannski hjartað og sál sína í innréttingarnar og þessa hluti
sem oft eru heimasmíðaðir sem maður finnur þarna,“ seg-
ir Christine sem skoðar smáatriðin yfirleitt vandlega í
eyðibýlunum. Bæði inni í þeim og fyrir utan þau.
„Mér finnst þetta segja svo mikla sögu og mér verður
svo oft hugsað til fólksins sem bjó þarna og hversu erfið
lífsskilyrðin voru hér áður fyrr. Veðrið, einangrunin,
myrkrið og allt það sem hefur áhrif. Þetta er dálítill óður
til fólks sem er farið, þessarar kynslóðar sem var.“
Útigangsfólk, virkjanir og krossgötur lífsins
Sem fyrr segir eru viðfangsefni útskriftarnemend-
anna mörg og margvísleg. Ýmsar spurningar kvikna: Er
rokkið svarthvítt? Er fegurð í dauðanum? Á að drekkja
hálendinu? Eiga fósturskimanir rétt á sér? Er kynhvötin
forsenda tilvistar? Hvernig er dagur í lífi blinds manns?
Getur virkjun verið umhverfislistaverk? Hvernig er líf
einbúans eða útigangsmannsins?
Er hægt að túlka tilfinningar með ljósmyndum?
Þetta er á meðal þess sem listamennirnir fimmtán
spyrja sig og margar þessara spurninga eiga rætur að
rekja til afar persónulegra hugrenninga. Að baki verk-
unum liggur mikil vinna, áhugi og metnaður þar sem við-
fangsefninu hefur verið fylgt eftir, listamaðurinn kynnst
því persónulega, traust myndast og að lokum orðið til ein-
stakt safn verka sem áhugavert verður að skoða á Sel-
tjarnarnesinu dagana 15.-25. febrúar.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2014
VELKOMINN Í BATA SMÁRALIND
Skoðið úrvalið á bata.is
Vertu vinur á
21.990,-
21.990,-
24.990,-
24.990,-
22.990,-
21.990,-
„Þetta er galopinn viðburður fyrir alla
og ég hvet fólk til að mæta, því áhorf-
endur geta búist við nokkurn veginn
hverju sem er. Þetta er ungt, sprækt
og hugmyndaríkt fólk frá 14 til 25 ára,
sem fremur einhvers konar ljóðagjörn-
inga, leikur sér að hugmyndinni um
ljóðið sem sviðslist,“ segir Úlfhildur
Dagsdóttir en hún er ein þeirra fimm
sem eru í dómnefnd Ljóðaslammsins
sem verður haldið í sjöunda sinn á
morgun, föstudag, í aðalsafni Borg-
arbókasafnsins. „Þetta gengur hratt
fyrir sig, þetta eru stutt atriði, í mesta
lagi fimm mínútur hvert. Þátttakendur
verða sennilega fjórtán og þetta er
alltaf afar líflegur viðburður. Við leggj-
um áherslu á að opna almennings-
rýmið sem bókasafnið er fyrir skap-
andi ungu fólki.“ Úlfhildur nefnir
nokkur dæmi um skemmtilegt ljóða-
slamm: „Árið 2008 sigraði ung stúlka
sem flutti frumsaminn texta um verð-
bréfadreng við jólalagið um litla
trommuleikarann, og hún reyndist
forspá, því hrunið varð það sama
haust. Þær sem unnu í fyrra voru
stelpurnar í pönkuðu gerninga-
hljómsveitinni Kælan mikla, þær fluttu
ljóðatónlistarbræðing og ætla að
koma fram í hléinu á morgun. Algeng-
asta viðbragðið er að gera eitthvað
með tónlist, en útgáfurnar á því eru
mjög fjölbreyttar. En það hafa líka ver-
ið rosalega flott dansverk, sem er
skemmtileg nálgun á ljóðaflutning.
Eitt sinni var flutt ör-leikrit í bundnu
máli, hádramatískt og mjög metn-
aðarfullt. Stundum eru þetta perform-
ansar, eins og vinningsatriði þar sem
hamrað var á gamla ritvél, og ein-
hverju sinni flutti stúlka ljóð á meðan
drengur klæddur í skrímslabúning
makaði framan í hana sultu. Dóm-
nefndin stendur alltaf frammi fyrir
erfiðu vali.“ Ljóðaslammið hefst kl.
20.30. Myndbönd frá fyrri Ljóða-
slömmum má sjá á ljodaslamm.is.
Frumlegir gjörningar á Ljóðaslammi á morgun
Töff Þema Ljóðaslammsins árið 2008 var spenna. Þá fluttu Anna Margrét
Ásbjarnardóttir, Guðrún Selma Sigurjónsdóttir, Inga Huld Hákonardóttir,
Ragnheiður Erlingsdóttir og Steinunn Jónsdóttir dans- og ljóðverkið Týnd.
Alls má vænta af skapandi fólki
Kælan mikla Vann Ljóðaslammið árið 2013. Þær Sólveig, Laufey og Mar-
grét fluttu ljóðatónlistarbræðinginn Ætli það sé óhollt að láta sig dreyma?
Sýning Ljósmyndaskólans verður í húsnæði verð-
andi Lækningaminjasafns við hlið Nesstofu sem
er eitt af elstu steinhúsum landsins. Sjálf Nes-
stofa var reist á árunum 1760-67 sem embætt-
isbústaður fyrir fyrsta landlækni Íslands, Bjarna
Pálsson.
Nemendum þykir mikill heiður að fá að sýna á
þessum stað þar sem verkin munu eflaust fá að
njóta sín. Sýningin verður opin í átta daga, 15. til
25. febrúar, og sýningartíminn er á milli 15:00 og
20:00 virka daga og á milli 13:00 og 18 um helg-
ar.
Sögulegur staður
ÁHUGAVERÐ SÝNING
Krónan
Gildir 6.- 9. feb verð nú áður mælie. verð
Lambalæri ókryddað........................................ 1.198 1.498 1.198 kr. kg
Lambalæri kryddað .......................................... 1.198 1.598 1.198 kr. kg
Lambahryggur ................................................. 1.758 2.198 1.758 kr. kg
Lambalærissneiðar.......................................... 1.978 2.198 1.978 kr. kg
Lambakótilettur............................................... 2.158 2.398 2.158 kr. kg
Lambasúpukjöt 1. fl ........................................ 799 898 799 kr. kg
Fjarðarkaup
Gildir 6.- 8. feb verð nú áður mælie. verð
Svínakótilettur úr kjötborði ............................... 1.298 1.698 1.298 kr. kg
Lambakótilettur úr kjötborði ............................. 2.698 3.498 2.698 kr. kg
Nautahakk 1.fl ................................................ 1.298 1.598 1.298 kr. kg
Hamborgarar 2x115gr m/brauði....................... 420 504 420 kr. pk.
Fjallalambs lambahryggur frosinn ..................... 1.745 2.049 1.745 kr. kg
SS lambalæri frosið ......................................... 1.198 1.498 1.198 kr. kg
Kjarval
Gildir 6.- 9. feb verð nú áður mælie. verð
SS Folaldaframpartur reyktur............................ 699 898 699 kr. kg
Búrfells brauðskinka 250 gr ............................. 398 449 398 kr. pk.
Kjúklingur frosinn ............................................ 799 898 799 kr. kg
Ch.Town Pizza 13 cm 2 teg. .............................. 499 579 499 kr. pk.
Ariel Fljótandi þvottaefni 1,3 ltr......................... 1.199 1.299 1.199 kr. pk.
Lambi WC rúllur 12 stk .................................... 1.149 1.365 1.149 kr. pk.
Nóatún
Gildir 7.- 9. feb verð nú áður mælie. verð
Lambahryggur m/villisv. úr kjötborði.................. 2.289 2.698 2.289 kr. kg
Ungnautafille úr kjötborði ................................. 3.898 4.598 3.898 kr. kg
ÍM Kjúklingalundir ........................................... 2.384 2.649 2.384 kr. kg
A.Mabel Muffins 3 tegundir .............................. 199 259 199 kr. stk.
AB Konfektkassi gull 400gr .............................. 1.897 2.529 1.897 kr. stk.
Myllu Heimilisbrauð 770gr ............................... 275 365 275 kr. stk.
Þín Verslun
Gildir 6.- 9. feb verð nú áður mælie. verð
Svínalundir úr kjötborði .................................... 1.998 2.698 1.998 kr. kg
Svínakótelettur úr kjötborði .............................. 1.498 1.898 1.498 kr. kg
Ísfugl kjúklingalæri/leggir magnpk. ................... 999 1.249 999 kr. kg
Ísfugl BBQ leggir magnpoki .............................. 839 1.049 839 kr. kg
Coca Cola 1 ltr. ............................................... 289 329 289 kr. ltr
Hatting hvítlauksbrauð 525 gr. ......................... 498 649 949 kr. kg
Helgartilboðin