Morgunblaðið - 06.02.2014, Page 35
MENNING 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2014
Hátíðin Ljósmyndadagar hefst í
kvöld og stendur fram á laugardag.
Er þetta í annað sinn sem hún er
haldin á vegum Ljósmyndasafns
Reykjavíkur, Félags íslenskra sam-
tímaljósmyndara (FÍSL) og Þjóð-
minjasafns Íslands. Á hátíðinni er
athyglinni beint að markverðum
ljósmyndaverkum og ólíkum mögu-
leikum miðilsins.
Ljósmyndadagar eru hluti Vetr-
arhátíðar og er dagskráin metn-
aðarfull; boðið er upp á sýningar,
fyrirlestur og svokallaða ljósmynda-
rýni –„portfolio review“, sem er
þekkt fyrirbæri á ljósmyndahátíðum
víða um lönd.
Sherman og femínismi
Dagskráin hefst í dag, fimmtudag
klukkan 17, í fyrirlestrasal Þjóð-
minjasafns. Þá flytur bandaríski list-
og ljósmyndafræðingurinn Abigail
Solomon-Godeau fyrirlesturinn
„The Coming of Age: Cindy Sher-
man, Feminism and Art History“.
Solomon-Godeau er prófessor em-
eritus við Kaliforníuháskóla og höf-
undur bóka á borð við Photography
at the Dock: Essays on Photograp-
hic History, Institutions and Practi-
ces (1991) og Male Trouble: A Crisis
in Representation (1997). Greinar
hennar hafa birst í tímaritum á borð
við Art in America, ArtForum og
Camera Obscura.
Í kjölfar fyrirlestursins, klukkan
19, verður kynning á nýju sérhefti
norrænu ljósmyndatímaritanna,
Nordic Now!, í verslun Máls &
menningar við Laugaveg.
Virtir rýnendur og sýningar
Klukkan 9 á föstudagsmorgni
hefst ljósmyndarýnin í Ljós-
myndasafni Reykjavíkur og stendur
til klukkan 16. Þar munu erlendir
sem innlendir sérfræðingar, með
ólík sérsvið, skoða möppur þeirra
ljósmyndara sem hafa skráð sig til
þátttöku. Rýnendur eru þau Inga
Lára Baldvinsdóttir, fagstjóri Ljós-
myndasafns Íslands, Inga Jóns-
dóttir, safnstjóri Listasafns Árnes-
inga, Karen McQuaid, sýningar-
stjóri í The Photographers’ Gallery í
London, Katia Reich sem er list-
fræðingur og sýningarstjóri í Berlín,
Julie Saul, eigandi Julie Saul Gallery
í New York, Hannamari Shakya,
myndstjóri Photo Raw Magazine,
Pari Stave, sýningarstjóri og yfir-
stjórnandi nútíma- og samtímalist-
ardeildar Metropolitan-safnsins, og
Hanna Styrmisdóttir, listrænn
stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík.
Rýnin er einnig á laugardag.
Á föstudagskvöld verða opnaðar
sýningar.
Klukkan 18 verður opnuð sýn-
ingin Innra myrkur í SÍM-húsinu,
Hafnarstræti 16. Er það samsýning
Bjargeyjar Ólafsdóttir, Friðgeirs
Helgasonar, Ingu Sólveigar Frið-
jónsdóttur, Sigurðar Marar Hall-
dórssonar, Valdísar Thor, Jónu Þor-
valdsdóttur og Þórdísar Erlu
Ágústsdóttir.
Sýning Kristínar Hauksdóttur,
Var, verður opnuð í Artóteki Borg-
arbókasafns, Tryggvagötu 15,
klukkan 18.30.
Dagskrá kvöldsins lýkur klukkan
20.30 með leiðsögn Katrínar Elvars-
dóttur um sýninguna „Betur sjá
augu, ljósmyndun íslenskra kvenna
1872-2013“, í Ljósmyndasafni
Reykjavíkur.
Á laugardagskvöld klukkan 18
verður opnuð sýning Einars Fals
Ingólfssonar, Reykjanesbrautin, í
Gallerí Listamönnum, Skúlagötu 32.
Dagskránni lýkur klukkan 20 á Kex
Hostel, Skúlagötu 28, með skyggnu-
sýningu á verkum norrænna sam-
tímaljósmyndara, Nordic Now!, og
verkum eftir félaga í FÍSL.
Metnaðarfull dagskrá
Ljósmyndadaga
Sýningar opn-
aðar, fyrirlestur
og ljósmyndarýni
Var Eitt verka Kristínar Hauksdóttur á sýningunni Var. Á sýningunni eru
ljósmyndir sem fjalla um hverfulleika lífsins og umhverfisins.
Innra myrkur Verk eftir Jónu Þorvaldsdóttur á sýningunni Innra myrkur.
Ljósmynda-
rýnar Ljós-
myndadag-
anna, sem eru
hópur inn-
lendra og er-
lendra sér-
fræðinga,
velja styrk-
þega úr
Minningarsjóði Magnúsar Ólafs-
sonar (1862-1937). Sjóðurinn er
sá eini sinnar tegundar hér á
landi og er tilgangur hans að
styrkja ljósmyndun á Íslandi
sem listgrein. Er þetta í annað
sinn sem úthlutað er úr sjóðn-
um og er valið úr hópnum sem
sýnir sérfræðingunum verk sín.
Styrkur
Magnúsar
VEITT ÚR MINNINGARSJÓÐI
Magnús Ólafsson
Bandaríski leikarinn Richard Bull
er látinn, 89 að aldri. Þrátt fyrir að
Bull hafi farið með hlutverk í mörg-
um kunnum sjónvarpsþáttum, með-
al annars í þáttum um Perry Mason,
þá er hans einkum minnst sem
kaupmannsins Nels Oleson í Húsinu
á sléttunni. Nutu þættirnir gríð-
arlegra vinsælda hér á landi.
Gerð þáttanna stóð yfir í níu ár
og var Bull með allan tímann. Ali-
son Arngrim, sem lék dótturina
Nellie í þáttunum, helsta andstæð-
ing hetjunnar Lauru Ingalls, sagði í
samtali við fjölmiðla að hún hefði
misst „pabba sinn á skjánum“, góð-
an og hjálpsaman mann sem vildi
öllum vel. „Hann var alveg jafn
greindur og vænn og fólk hefði bú-
ist við af Nels Oleson,“ sagði hún.
Nels í Húsinu á
sléttunni látinn
Oleson-fjölskyldan Bull í hlutverki
Nels í Húsinu á sléttunni, með eiginkon-
unni Harriet og börnunum Willie og Nellie.
Miðasala | 568 8000 | midasala@borgarleikhus.is
Mary Poppins (Stóra sviðið)
Fim 6/2 kl. 19:00 aukas Lau 8/2 kl. 13:00 aukas
Fös 7/2 kl. 19:00 aukas Sun 9/2 kl. 13:00 lokas
Súperkallifragilistikexpíallídósum! Síðustu sýningar!
Hamlet (Stóra sviðið)
Sun 9/2 kl. 20:00 Lau 15/2 kl. 20:00 Lau 22/2 kl. 20:00
Fös 14/2 kl. 20:00 Fös 21/2 kl. 20:00 Fös 28/2 kl. 20:00
Frægasta leikrit allra tíma. Ný kynslóð, nýjir tímar, nýr Hamlet.
Óskasteinar (Nýja sviðið)
Lau 8/2 kl. 20:00 aukas Fös 21/2 kl. 20:00 12.k Fim 6/3 kl. 20:00 aukas
Sun 9/2 kl. 20:00 5.k Lau 22/2 kl. 20:00 13.k Fös 7/3 kl. 20:00 aukas
Þri 11/2 kl. 20:00 6.k Sun 23/2 kl. 20:00 14.k Lau 8/3 kl. 20:00 20.k
Mið 12/2 kl. 20:00 aukas Þri 25/2 kl. 20:00 15.k Sun 9/3 kl. 20:00 21.k
Fim 13/2 kl. 20:00 7.k Mið 26/2 kl. 20:00 aukas Fim 13/3 kl. 20:00
Fös 14/2 kl. 20:00 aukas Fim 27/2 kl. 20:00 aukas Fös 14/3 kl. 20:00
Lau 15/2 kl. 20:00 8.k Fös 28/2 kl. 20:00 16.k Lau 15/3 kl. 20:00
Sun 16/2 kl. 20:00 9.k Lau 1/3 kl. 20:00 aukas Sun 16/3 kl. 20:00
Þri 18/2 kl. 20:00 10.k Sun 2/3 kl. 20:00 17.k Mið 19/3 kl. 20:00
Mið 19/2 kl. 20:00 11.k Þri 4/3 kl. 20:00 18.k Fim 20/3 kl. 20:00
Fim 20/2 kl. 20:00 aukas Mið 5/3 kl. 20:00 19.k Fös 21/3 kl. 20:00
Glænýtt verk eftir Ragnar Bragason. Grátt gaman með ógæfufólki á leikskóla
Bláskjár (Litla sviðið)
Lau 8/2 kl. 20:00 frums Sun 16/2 kl. 20:00 3.k Fös 28/2 kl. 20:00
Mið 12/2 kl. 20:00 aukas Fim 20/2 kl. 20:00 4.k Lau 1/3 kl. 20:00
Fim 13/2 kl. 20:00 2.k Sun 23/2 kl. 20:00 5.k
Nýtt íslenskt verk eftir ungskáldið Tyrfing Tyrfingsson
Kynfræðsla Pörupilta (Litla sviðið)
Mið 12/2 kl. 10:00 Fim 13/2 kl. 13:00 Þri 18/2 kl. 11:30
Mið 12/2 kl. 11:30 Mán 17/2 kl. 10:00 Sun 23/2 kl. 20:00
Mið 12/2 kl. 13:00 Mán 17/2 kl. 11:30 Sun 30/3 kl. 20:00
Fim 13/2 kl. 10:00 Mán 17/2 kl. 13:00
Fim 13/2 kl. 11:30 Þri 18/2 kl. 10:00
Fræðandi uppistand Pörupilta um það sem allir eru að spá í
ÍD: Þríleikur (Stóra sviðið)
Lau 8/2 kl. 20:00 frums/2.k Sun 23/2 kl. 20:00 4.k Sun 9/3 kl. 20:00
Sun 16/2 kl. 20:00 3.k Sun 2/3 kl. 20:00 5.k
Íslenski dansflokkurinn sýnir þrjú ný verk á kvöldinu Þríleikur
Vinsælasta sýning Íslandssögunnar kveður!
HVERFISGATA 19551 1200 LEIKHUSID.IS MIDASALA@LEIKHUSID.IS
leikhusid.is ÓVITAR – „Kraftmikil og litskrúðug sýning.“ JVJ Fréttablaðið
Englar alheimsins (Stóra sviðið)
Fim 6/2 kl. 19:30 70.sýn. Fös 14/2 kl. 19:30 73.sýn Lau 1/3 kl. 19:30 75.sýn
Fös 7/2 kl. 19:30 71.sýn. Lau 15/2 kl. 19:30 Aukas. Sun 2/3 kl. 19:30 76.sýn
Fim 13/2 kl. 19:30 72.sýn. Sun 23/2 kl. 19:30 74.sýn Mið 19/3 kl. 19:30 77.sýn
Veilsa aldarinnar - leikrit ársins 2013.
Þingkonurnar (Stóra sviðið)
Lau 8/2 kl. 19:30 lokas.
SPAMALOT (Stóra sviðið)
Fös 21/2 kl. 19:30 Frums. Fös 28/2 kl. 19:30 4.sýn Mið 12/3 kl. 19:30 7.sýn
Lau 22/2 kl. 19:30 2.sýn Fim 6/3 kl. 19:30 5.sýn Fim 13/3 kl. 19:30 8.sýn
Mið 26/2 kl. 19:30 Aukas. Fös 7/3 kl. 19:30 6.sýn Fös 14/3 kl. 19:30 9.sýn
Fim 27/2 kl. 19:30 3.sýn Lau 8/3 kl. 19:30 Aukas. Lau 15/3 kl. 19:30 10.sýn
Dásamleg, fáránleg della - óbærilega fyndinn nýr söngleikur!
ÓVITAR (Stóra sviðið)
Sun 9/2 kl. 13:00 29.sýn Sun 23/2 kl. 13:00 Sun 9/3 kl. 13:00
Sun 16/2 kl. 13:00 30.sýn Sun 2/3 kl. 13:00
Kraftmikil og litskrúðug sýning, þar sem börn á öllum aldri fara á kostum!
Pollock? (Kassinn)
Lau 8/2 kl. 19:30 34.sýn Lau 15/2 kl. 19:30 lokas.
Síðustu sýningar.
Karíus og Baktus (Kúlan)
Sun 9/2 kl. 16:00 Sun 16/2 kl. 16:00
Karíus og Baktus bregða á leik.
Áfram Mið-Ísland (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fim 6/2 kl. 20:00 12.sýn Fös 14/2 kl. 20:00 18.sýn Lau 22/2 kl. 22:30 24.sýn
Fös 7/2 kl. 20:00 13.sýn Fös 14/2 kl. 22:30 19.sýn Mið 26/2 kl. 20:00 25.sýn
Fös 7/2 kl. 22:30 14.sýn Lau 15/2 kl. 20:00 20.sýn Fim 27/2 kl. 20:00 26.sýn
Lau 8/2 kl. 20:00 15.sýn Lau 15/2 kl. 22:30 21.sýn Fös 28/2 kl. 20:00 27.sýn
Lau 8/2 kl. 22:30 16.sýn Fim 20/2 kl. 20:00 22.sýn Fös 28/2 kl. 22:30 28.sýn
Fim 13/2 kl. 20:00 17.sýn Lau 22/2 kl. 20:00 23.sýn Mið 5/3 kl. 20:00 29.sýn
Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika!
★★★★ – SGV, Mblamlet
Tjarnargötu 12 | 101 Reykjavík | sími 527 2100 | tjarnarbio.is
Lúkas (Aðalsalur)
Fös 7/2 kl. 20:00 Síðustu
sýningar
Lau 8/2 kl. 20:00 Síðustu
sýningar
SÍÐUSTU SÝNINGAR!
Horn á höfði (Aðalsalur)
Sun 9/2 kl. 14:00 Sun 23/2 kl. 13:00
Sun 16/2 kl. 14:00 Sun 23/2 kl. 15:00
Eldklerkurinn (Aðalsalur)
Sun 9/2 kl. 20:00 Lau 15/2 kl. 20:00
Ástarsaga úr fjöllunum (Aðalsalur)
Lau 22/2 kl. 14:00 Lau 1/3 kl. 14:00
Fyrirgefðu ehf. (Aðalsalur)
Fös 14/2 kl. 20:00 Frumsýning Fös 21/2 kl. 20:00 Fös 28/2 kl. 20:00
Sun 16/2 kl. 20:00 Lau 22/2 kl. 20:00
Dansaðu fyrir mig (Aðalsalur)
Fim 20/2 kl. 20:00 Lau 1/3 kl. 20:00
Sun 23/2 kl. 20:00 Sun 2/3 kl. 20:00