Morgunblaðið - 17.03.2014, Side 1
M Á N U D A G U R 1 7. M A R S 2 0 1 4
Stofnað 1913 64. tölublað 102. árgangur
TEKST Á VIÐ
ÖGRANDI VERK-
EFNI Í HÖNNUN
HJÓN
OPNA
SÝNINGU
ÖRLÖG ALÞÝÐU-
KVENNA Á ÍS-
LANDI HUGLEIKIN
FORM 28 GUÐNÝ HALLGRÍMSDÓTTIR 26STARFAR Í BARCELONA 10
Sími: 661-7000
3. HÆÐ Í KRINGLUNNI
kaupumgull.is
Staðgreiðumallt
gull, silfur demanta
ogvönduðúr!
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Á tíunda tímanum í gærkvöld lá fyrir
að verkfall Félags framhaldsskóla-
kennara og Félags stjórnenda í
framhaldsskólum hæfist á miðnætti.
Um 1.900 kennarar og stjórnendur í
framhaldsskólum og um 20.000 nem-
endur munu því sitja heima í dag.
Enn ber mikið í milli, en aðilar eru
sammála um að halda viðræðum
áfram.
Viðræður hafa staðið yfir síðan í
byrjun desember og snúast um
meira en laun, því einnig hefur verið
rætt um viðamiklar skipulagsbreyt-
ingar í skólastarfinu sem kveðið var
á um í lögum um framhaldsskóla frá
2008 en hafa ekki enn komið til fram-
kvæmda. Þær snúa einkum að leng-
ingu skólaársins um fimm daga og að
fella niður skil milli kennslu- og
prófatíma.
Buðu meira en 2,8% í gærkvöld
Framhaldsskólakennarar hafa
farið fram á 17% launahækkun, sem
þeir segja að sé sá munur sem er á
launum þeirra og sambærilegra
stétta hjá ríkinu. Þar til í gærkvöld
hljóðaði tilboð ríkisins upp á 2,8%, en
í gærkvöldi lagði ríkissáttasemjari
fram drög að samningum. Í þeim
drögum felst m.a. talsvert meiri
hækkun en áður hefur verið boðin og
breytt vinnufyrirkomulag kennara.
Aðalheiður Steingrímsdóttir, for-
maður Félags framhaldsskólakenn-
ara, sagðist ekki geta tjáð sig um
efni samningsdraganna, kennarar
þurfi tíma til að fara yfir þau.
„Nú er það okkar verkefni að fara
yfir þessi drög,“ sagði hún. „Við
höldum viðræðum áfram, það er ekki
búið að slíta þeim þó að svona hafi
farið.“ Gunnar Björnsson, formaður
samninganefndar ríkisins, sagði að í
drögunum fælist talsvert meiri
launahækkun en áður hefur verið
boðin. „En við erum líka að fara fram
á verulegar kerfisbreytingar,“ sagði
hann. Í þeim felst m.a. lenging
kennslutímans og stytting náms til
stúdentsprófs. „Núna höldum við
viðræðum áfram af fullum krafti, hér
verður ekkert slakað á,“ sagði
Gunnar.
Verkfall kennara hafið
Viðræðum verður haldið áfram í dag Ríkið lagði fram samningsdrög í gær-
kvöld 1.900 kennarar og stjórnendur og um 20.000 nemendur sitja heima í dag
MVerkfall hafið en viðræður … »4
14 ár frá síðasta
verkfalli
» Framhaldsskólakennarar
fóru síðast í verkfall árið 2000.
Það stóð í átta vikur.
» Þar áður var verkfall í fram-
haldsskólum landsins árið
1995, það varði í sex vikur.
» Verkfallið sem nú er hafið
nær til allra framhaldsskóla
landsins, nema Verzlunar-
skólans. Kennarar þar eru með
sérstakan kjarasamning sem
rennur út 31. maí.
Morgunblaðið/Golli
Setið við samninga Samninganefndir kennara og ríkisins ásamt ríkissáttasemjara við samningaborðið í gærkvöld eftir að ljóst varð að af verkfalli yrði.
Barack Obama
Bandaríkja-
forseti sagði
Vladímír Pútín,
forseta Rúss-
lands, í gærkvöld
að Bandaríkin
væru reiðubúin
að grípa til frek-
ari refsiaðgerða
gegn Rússum í
kjölfar atkvæðagreiðslu, sem fór
fram á Krímskaga í gær. Íbúar þar
samþykktu með yfirgnæfandi meiri-
hluta atkvæða að segja sig úr lögum
við Úkraínu og sameinast Rússlandi.
Pútín sagði Obama hins vegar, að
atkvæðagreiðslan hefði verið full-
komlega lögleg. »14
Refsiaðgerðir und-
irbúnar vegna Krím
Fagnandi íbúar
Krím í gærkvöld.
Flest ung-
menni eru far-
in að huga að
þeim atvinnu-
möguleikum
sem þeim
stendur til
boða í sumar.
Hjá mörgum
stórfyrir-
tækjum er um-
sóknarfrestur um sumarstörf liðinn.
Mörg stærri sveitarfélaganna sjá
fram á að geta útvegað öllum ung-
mennum sumarstörf, sér í lagi nem-
endum efstu bekkja grunnskólanna,
en erfiðara getur reynst að fá vinnu
þegar komið er á framhaldsskóla-
aldurinn.
Slegist er um hverja stöðu hjá ál-
verunum og bönkunum. Um 1.260
umsóknir bárust um auglýst sumar-
störf hjá álverunum í Straumsvík og
á Grundartanga en aðeins 275 stöð-
ur eru í boði. Þá sóttu hátt í 900
manns um sumarstarf hjá Arion
banka, en bankinn kemur til með að
ráða tæplega 130 starfsmenn í sum-
ar, og yfir þúsund manns hjá Lands-
bankanum. »6
Yfir 1.260 sóttu um
sumarstörf hjá
tveimur álverum
Heildareign heimila í hlutabréfa-
sjóðum hefur fimmfaldast á síðustu
tveimur árum. Í lok janúar nam
hún tæpum nítján milljörðum
króna en í lok janúarmánaðar 2012
nam hún tæpum 4 milljörðum
króna.
Á sama tíma hafa innlán heimila
hjá innlánsstofnunum dregist sam-
an um 23 milljarða króna. Því virð-
ist óhætt að draga þá ályktun að
íslensk heimili séu farin að taka
hlutabréf í sátt sem sparnaðarform
á nýjan leik.
Hlutafjáreign almennings hefur
einnig tekið að aukast á ný, en
einstaklingar eiga nú tæplega 6%
af öllu skráðu hlutafé á landinu.
Hlutfallið var um 4,5% fyrir fjór-
um árum, að sögn Magnúsar
Harðarsonar, forstöðumanns við-
skiptasviðs Kauphallarinnar.
Magnús segir hins vegar að enn
sé mikið verk óunnið. Árið 2007
hafi einstaklingar til dæmis átt
um 11-12% af öllu skráðu hlutafé
hér á landi. Fyrir 12 árum var
hlutfallið um 17%. kij@mbl.is »4
Hlutabréf tekin í sátt
Morgunblaðið/Ómar
Kauphöll Áhugi íslenskra heimila á
hlutabréfum hefur aukist.
Vaxandi ásókn almennings í hlutabréfasjóði Eign heim-
ila í sjóðunum hefur fimmfaldast á síðustu tveimur árum
Átta ár eru frá
því að landris
vegna kvikusöfn-
unar í Heklu
varð jafn mikið
og þegar fjallið
gaus árið 2000.
Páll Einarsson,
prófessor í jarð-
vísindum við Há-
skóla Íslands,
segir að Hekla sé
þekkt fyrir að gjósa fyrirvaralaust
en bendir á að þótt kvikusöfnunin
sé meiri nú þýði það ekki endilega
að næsta Heklugos verði stærra en
fyrri gos. »6
Kvikusöfnun meiri í
Heklu en árið 2000
Heklugos Hekla
gaus árið 2000.