Morgunblaðið - 17.03.2014, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. MARS 2014
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir
Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Lyfjaval.is • sími 577 1160
Bílaapótek Hæðasmára
Mjódd Álftamýri
15%
afsláttur
af öllum pakkni
ngum
Afslátturinn gildir í mars.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Flugmenn Flugfélags Íslands settu
tvö hraðamet um helgina, það er í
Kulusuk-ferð og Egilsstaðaflugi.
Jóhann Skírnisson flugstjóri og
Guðmundur Kr. Sigmundsson flug-
maður fóru til Grænlands á laugar-
dagsmorgun á Dash 8-200 og voru
2:45 klst. yfir Grænlandssund með
160 hnúta mótvind. Á heimleiðinni
snérist dæmið við og flugið frá Kulu-
suk til Reykjavíkur í 25 þúsund feta
hæð tók aðeins 1:15 klst. Algengur
tími er 1:45 klst.
„Heimflugið frá Kulusuk er met.
Við fórum þetta á 360 hnúta hraða
við bestu aðstæður, það er með vind-
inn á eftir okkur,“ segir Jóhann um
þennan leiðangur. Hann segir þetta
munu í sínu minni verða sögulegt, en
eftir meira en 25 ára flugmannsferil
eru Grænlandsferðirnar orðnar
mörg hundruð.
Áætlunin var 39 mínútur
Áætlunarferðin á Egilsstaði sl.
laugardag var líka söguleg. Vestlæg-
ar áttir voru yfir landinu og náðu
Elvar Þór Hjaltason flugstjóri og
áhöfn hans á Fokker 50 austur á
land á aðeins 44 mínútum. Alla jafna
er flugtími á þessum legg 55 mín-
útur. Í gærmorgun, sunnudag, fór
svo Dash 8-vélin austur. Georg Han-
sen var í flugstjórasætinu og náði
nákvæmlega sama tíma og Elvar á
laugardaginn. Hins vegar hafði verið
búist við betri byr því flugáætlunin,
þar sem vindátt, þyngd og fleiri
þættir voru teknir með í dæmið, var
aðeins 39 mínútur, segir Jóhann
Skírnisson sem var þjálfunarflug-
stjóri í ferðinni.
Fokkermetið frá 2001
„Það gengur bara betur næst,“
segir Jóhann ennfremur. „Gaman
hefði verið að slá Egilsstaðametið á
Dash 8 frá í maí í fyrra sem var einn-
ig 44 mínútur. Við náðum allt að 403
hnúta hraða í fluginu á sunnudags-
morgun, sem er um það bil 750 km
hraði miðað við jörð – en til saman-
burðar má nefna að hljóðhraðinn er
um 1.000 km. Keppikeflið hjá okkur
flugmönnum FÍ sem erum á Dash 8
er að toppa Fokkermetið frá 2001.
Það er 42 mínútur og verður eigin-
lega að falla, því Dashinn er hrað-
fleygari vél en Fokkerinn.“
Morgunblaðið/Golli
Flugstjóri Jóhann Skírnisson við Dash 8-200 á Reykjavíkurflugvelli. „Tíminn er fugl sem flýgur hratt,“ er oft sagt.
Met í meðvindinum
Voru 1:15 klst. frá Kulusuk á Grænlandi til Reykjavíkur
44 mínútur á Egilsstaði 402 hnútar og 750 km hraði
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Ferðamenn í einni rútu á vegum
Snæland Grímsson hættu við að
skoða Geysi á laugardag eftir að þeir
fengu upplýsingar um að þeim væri
gert að greiða 600 króna aðgangseyri
að svæðinu. Engu að síður greiddu
um 1.000 manns aðgangseyri yfir
daginn að sögn Garðars Eiríkssonar,
talsmanns landeigenda. Ekki fengust
staðfestar tölur yfir fjöldann í gær en
áætlanir gera ráð fyrir álíka fjölda.
Garðar segir að gera megi ráð fyrir
því að laugardagurinn hafi því skilað
landeigendafélaginu um 500 þúsund
krónum. „Nokkrir hópar greiddu
ekki. Við munum ræða það við for-
svarsmenn fyrirtækjanna,“ segir
Garðar.
Ríkið fái ríflega helming
Tíu manns hafa verið ráðnir til að
sinna þrifum, öryggisgæslu og gjald-
töku. „Það er alveg sama hvernig
reiknað er. Ríkið fær alltaf meira en
helming af veltunni. Annaðhvort í
formi skatta eða í gegnum eignar-
hluta,“ segir Garðar. „Vonandi nást
endar saman og það verði einhverjar
milljónir eftir til framkvæmda á
svæðinu,“ segir Garðar. Hann gerir
ekki ráð fyrir því að landeigendur
muni fá nokkuð í sinn vasa. ,,Ekki til
að byrja með,“ segir Garðar.
Ferðaþjónustufyrirtækið Iceland
Excursions Allrahanda hefur til-
kynnt landeigendum að fyrirtækið
muni ekki taka gjald af sínum farþeg-
um áður en þeir koma á svæðið eins
og beðið hafði verið um. Vildu for-
svarsmenn þess fá endanlega niður-
stöðu um lögmæti gjaldtökunnar áð-
ur. „Þessi aðili er sá eini sem er
ósáttur og ég hef sagt að ef forsvars-
menn eru ósáttir við okkur, þá eiga
þeir að tala við okkur í stað þess að
láta það bitna á starfsfólki. Þeir gerðu
það með því að reyna að komast frítt
inn um efra hliðið og við létum það
átölulaust í gær, [laugardag] en gerð-
um það ekki í dag [sunnudag],“ segir
Garðar.
Minnir á ráðstjórnarríki í austri
Aðspurður segir Garðar að land-
eigendur séu ekki andsnúnir fyrir-
huguðum náttúrupassa sem ætlað er
að fjármagna framkvæmdir umhverf-
is náttúruperlur í gegnum sjálfseign-
arstofnun. Þeir séu hins vegar ekki
talsmenn hans heldur. „Ég hef nú séð
meiri kapítalisma heldur en þann sem
ráðherra Sjálfstæðisflokksins er að
bera á borð. Ég vissi ekki að við vær-
um komnir austur í ráðstjórnarríkin.
Svo má ekki horfa framhjá því að við
erum að búa til störf í fámennu sveit-
arfélagi,“ segir Garðar.
Um tvö þúsund
greiddu gjaldið
Ferðamenn hættu við að skoða Geysi
Morgunblaðið/Kristinn
Geysissvæðið Um 2.000 manns
greiddu aðgangseyri um helgina.
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Heil 4,2 kíló af auðnutittlingum
flugu inn í fuglagildru Jóns Magn-
ússonar, fuglamerkingamanns á Ak-
ureyri, í fyrradag. Í ljósi þess að
hver fugl vegur 16-19 grömm, eru
þetta talsvert margir fuglar.
„Ég skaust til vinkonu minnar
sem er með gróinn garð, þar sem
mikið er af fugli og setti þar upp
nýju gildruna mína,“ segir Jón.
„Þegar ég kom aftur eftir klukku-
tíma voru þessi ósköp komin í hana.
Mér féllust einfaldlega hendur.“
Umrædd gildra er ný smíði Jóns
og var hann að reyna hana í fyrsta
skipti. Í gildruna setur hann
fuglafræ og á henni eru tvö lítil op
sem fuglarnir fljúga inn um, en finna
síðan ekki leið til að komast út. Jón
tekur síðan fuglana, einn í einu, vigt-
ar þá, mælir og merkir og sleppir
þeim aftur út í frelsið.
Hafa veitt 1.800 frá áramótum
Jón er meðal afkastamestu fugla-
merkingamanna landsins og hefur
merkt fugla í samstarfi við Náttúru-
fræðistofnun frá árinu 1986. Hann
vinnur gjarnan með Sverri Thor-
stensen á Akureyri að merkingunum
og saman hafa þeir merkt um 1.800
fugla frá áramótum, sem þeir gera í
frítíma sínum í sjálfboðavinnu. Jón
segir athæfi sitt stundum hafa vakið
nokkra furðu fólks og hefur hann
verið vændur um að veiða sér til
matar eða að veiða fyrir kött eða
kyrkislöngu. En hvað skyldu 4,2 kíló
af auðnutittlingum vera margir fugl-
ar? „Þeir eru 211,“ svarar Jón.
Ljósmynd/Jón Magnússon
211 fuglar Jón með 4,2 kíló af auðnutittlingum sem flugu inn í gildru hans.
Veiddi rúm fjögur kíló af
auðnutittlingum á klukkustund
Hefur verið vændur um að veiða smáfugla sér til matar
Að sögn Hallgríms Lárussonar hjá
Snælandi Grímsson voru það
ferðamenn frá Taílandi sem vildu
ekki greiða gjaldið. Aðrir hafi gert
það. „Þetta kemur fólki á óvart því
þetta kemur svo óundirbúið. Fólkið
sem ferðast með okkur bókaði
með 3-4 mánaða fyrirvara. Vanda-
málið er hve þetta gjald er sett á
með stuttum fyrirvara. Við fengum
bara fregnir af því í einhliða bréfi.
Ég hefði talið það heillavænlegast
að vinna þetta
með ferðaþjón-
ustufyrirtækj-
unum í stað
þess að tala
niður til okkar
og segja að við
séum eins og
óþekkir krakkar
sem búið er að
taka af sleiki-
brjóstsykurinn,“ segir Hallgrímur.
Kemur fólki á óvart
GAGNRÝNIR SAMRÁÐSLEYSI OG STUTTAN FYRIRVARA
Hallgrímur
Lárusson