Morgunblaðið - 17.03.2014, Qupperneq 7
FRÉTTIR 7Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. MARS 2014
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins
(SHS) var kallað út í gær vegna
elds sem logaði í geymsluskúr hjá
badmintonvöllum við Víkingsheim-
ilið í Fossvogi í Reykjavík. Greið-
lega gekk að slökkva eldinn en
skúrinn er ónýtur. Engan sakaði.
Ari Hauksson, varðstjóri hjá
SHS, sagði við mbl.is, að tilkynn-
ing hefði borist kl. 14.18. Hann
sagði að reykkafarar hefðu verið
sendir inn í skúrinn, sem var 14
fermetrar að stærð, til að tryggja
að hann væri mannlaus. Slökkvi-
starfið stóð til rétt rúmlega 15 en
þá tók lögreglan við stjórn á vett-
vanginum.
Það er allt ónýtt þarna; þetta
var gamall timburskúr, segir Ari.
Hann sagði aðspurður að elds-
upptök væru ókunn.
Timbur-
skúr brann
í Fossvogi
Eldsupptök ókunn
Ljósmynd/Árni Karl Harðarson
Alelda Skúrinn er talinn ónýtur.
Tillaga utanríkis-
ráðherra um að
draga til baka
umsókn Íslands
um aðild að Evr-
ópusambandinu
og aðrar tillögur
um sama efni
verða ekki á dag-
skrá Alþingis
næstu tvær vikur
að lágmarki.
Á þingfundi aðfaranótt föstudags
var samþykkt að vísa þremur fyrir-
liggjandi tillögum um málið til um-
fjöllunar í utanríkismálanefnd.
Nefndin kemur saman til fundar á
morgun, þriðjudag. Að sögn Birgis
Ármannssonar, formanns nefndar-
innar, verða tillögurnar sendar til
umsagnar ýmissa aðila utan þings
og munu þeir fá tveggja vikna frest
til að senda inn álitsgerð. Ekki ligg-
ur fyrir hverjir það verða sem beðnir
verða um að segja álit sitt.
Birgir sagðist eiga von á því að til-
lögurnar þrjár yrðu ræddar á nefnd-
arfundum meðan beðið væri eftir
umsögnunum.
gudmundur@mbl.is
ESB ekki rætt
á þingi næstu
tvær vikurnar
Birgir Ármannsson
Málþing
UMKRABBAMEIN
Í BLÖÐRUHÁLSKIRTLI
Ráðgjafarþjónusta Krabba-
meinsfélagsins boðar til
málþings um krabbamein
í blöðruhálskirtli.
Þriðjudaginn 18. mars
kl. 17:00-18:15 í húsi
félagsins að Skógarhlíð 8.
Allir velkomnir.
Ókeypis aðgangur.
17:00— SETNING
Stefán Eiríksson, varaformaður
Krabbameinsfélags Íslands setur málþingið og stýrir því
17:05 — FORVARNIROGEINKENNI
Vilhjálmur Ari Arason, heimilislæknir
17:20—GREININGOGMEÐFERÐ
Baldvin Þ. Kristjánsson, þvagfæraskurðlæknir
17:35 — LÍFSGÆÐIOGHUGSANIR EFTIR GREININGU
Þórdís K. Þorsteinsdóttir, hjúkrunarfræðingur
17:50— STUÐNINGSHÓPURINNGÓÐIRHÁLSAR
Sigurður H. Oddsson
17:55 — FRAMFÖR
Hinrik Greipsson
18:00— FRÍSKIRMENN (VIRKT EFTIRLIT)
Þráinn Þorvaldsson
18:05 — FYRIRSPURNIROGUMRÆÐUR
#MOTTUMARS
— SKRÁÐU ÞIG —
WWW.MOTTUMARS.IS
— EÐA GEFÐU 1000 KRÓNUR —
908 1001
— NETKÓRINN —
SYNGDU „HRAUSTAMENN“
OG SENDU INNMYNDBAND
ARION BANKI STYRKIR HVERJA INNSENDINGU
WWW.MOTTUMARS.IS/NETKORINN
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar vill nýta
Bæjarbíó undir fjölbreyttari starf-
semi samhliða rekstri Kvikmynda-
safns Íslands í húsinu. Hefur verið
auglýst eftir áhugasömum aðila til
að taka að sér rekstur hússins.
Menntamálaráðuneytið, sem Kvik-
myndasafnið heyrir undir, er ósátt
við þau áform og einhliða ákvarð-
anir bæjarstjórnarinnar í málinu.
Hyggst það hætta starfseminni í
Bæjarbíói ef öðrum aðilum verður
leyfð afnot af húsnæðinu. Verða
eigur safnsins fjarlægðar úr hús-
næðinu að lokinni vetrardagskrá
náist ekki samkomulag.
Þetta kemur fram í bréfum sem
farið hafa á milli Illuga Gunnars-
sonar menntamálaráðherra og Guð-
rúnar Ágústu Guðmundsdóttur
bæjarstjóra. Kvikmyndasafnið hef-
ur haft aðstöðu til sýningarhalds í
Bæjarbíói mörg undanfarin ár.
Húsnæðið er í eigu Hafnarfjarðar-
bæjar en Kvikmyndasafnið hefur
farið með umsjón þess og allan
rekstur. Bæjaryfirvöld í Hafnar-
firði telja að húsnæðið sé ekki
nægilega vel nýtt og hafa ýmsir að-
ilar í bænum borið sig eftir aðstöðu
þar. Fram kemur í bréfi bæjar-
stjórans til menntamálaráðherra
13. mars að sýningar Kvikmynda-
safnsins í húsinu hafi aðeins verið
tvisvar til þrisvar í viku. Við það
geti bæjaryfirvöld ekki sætt sig.
Deila um rekstur Bæjarbíós
Hafnfirðingar vilja fjölbreyttari starfsemi í húsinu
Kvikmyndasafnið flytur brott missi það yfirráðin
Bæjarbíó Framtíð Kvikmyndasafns Íslands i Hafnarfirði er í óvissu.
Morgunblaðið/Eggert