Morgunblaðið - 17.03.2014, Side 10

Morgunblaðið - 17.03.2014, Side 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. MARS 2014 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Ég er búin að vinna hér ítæpt ár og ég er enn aðlæra nýja hluti, það er svoótal margt sem kemur upp í þessari vinnu sem þarf að finna út úr og leysa,“ segir Hulda María Gunnarsdóttir vöruhönnuður sem starfar hjá Nani Marquina, þekktum hönnuði í Barselóna. „Nanimarquina er lítið fjölskyldufyrirtæki þar sem eingöngu eru hannaðar gólfmottur, en þetta eru mjög frumlegar mottur og þær eru allar handunnar. Við er- um líka alltaf að prufa okkur áfram með tæknina og gera nýja hluti og öðruvísi en aðrir í þessum bransa. Ég tek þátt í flestum þáttum hönn- unarinnar og það er rosalega gaman. Núna er mikið að gera hjá okkur af því að það eru margar hönnunarsýn- ingar á þessum árstíma, við munum til dæmis kynna nýtt „collection“ í Mílanó á Ítalíu í apríl.“ Hönnuðurinn Nani Marquina er katalónsk og mjög þekkt á Spáni og verður æ þekktari utan landsteinanna, um sextíu pró- sent af mottunum hennar eru seld í löndum utan Spánar. Krefst þolinmæði Hulda María segir að fyrirtækið Nanimarquina leggi mikið upp úr því að vera í samstarfi við þekkta hönn- uði úti um allan heim. „Það virkar þannig að einhver hönnuður kemur með hugmynd til okkar og við vinnum úr henni og komum með til- lögur og svo er þessu kastað á milli. Fyrir vikið er rosalega mikil fjöl- breytni í þessu starfi og motturnar afar ólíkar,“ segir Hulda María og Gaman að takast á við ögrandi verkefni Hulda María Gunnarsdóttir starfar hjá þekktum hönnuði í Barselóna, hinni katalónsku Nani Marquina, sem hefur skapað sér gott orð bæði á Spáni og úti í hinum stóra heimi. Hjá fjölskyldufyrirtækinu Nanimarquina eru hannaðar gólf- mottur sem allar eru handunnar og oft þarf að leysa flókin verkefni. Á Spáni Hulda María (t.v.) á góðum degi ásamt Hildi Ýri Arnardóttur, hér eru þær við munkaklaustrið í Montserrat, en það er rétt hjá Barselóna. Litagleði Sumar motturnar eru mjög litríkar og lífga upp á umhverfið. Nemendur við Menntaskólann í Kópa- vogi selja bolla til styrktar Barnaspít- ala Hringsins. Bollarnir sem um ræðir kosta 2.500 krónur ef keyptur er einn en 4.000 krónur séu keyptir tveir. Allur hagnaður af sölunni rennur til Barnaspítala Hringsins. Á bollanum er skrautleg mynd af húsdýrum sem ung stúlka á spítalanum teiknaði. Myndin á vel að þola uppþvottavél, eins og fram kemur á síðu söfnunar- innar. Ungir frumkvöðlar koma að söfn- uninni en það eru frjáls félagasamtök sem tilheyra alþjóðlegum samtökum sem heita Young enterprise - Junior Achievement. Ungir frumkvöðlar bjóða meðal annars upp á 13 vikna námskeið fyrir framhaldsskólanema sem miðar að því að efla skilning þeirra á fjölbreyttum fyrirtækja- rekstri og undirstöðuatriðum í at- vinnulífi. Vefsíðan www.facebook.com/barnaspitalabollar Söfnun Nemendur við MK selja bolla til styrktar Barnaspítala Hringsins. Nemendur styrkja Barnaspítala Á Háskólatorgi 104 í dag flytur Aly- son Bailes, aðjunkt við stjórnmála- fræðideild Háskóla Íslands, fyrir- lestur um aðdraganda og eftirmál atburðanna á Torgi hins himneska friðar sumarið 1989. Á árunum 1987-1989 var Bailes staðgengill sendiherra, aðalræðismaður og meðlimur kínversk-breska sam- starfshópsins um framtíð Hong Kong í breska sendiráðinu. Erindið verður flutt á ensku og hefst klukkan 12 og stendur í klukkustund. Konfúsíusarstofnunin Norðurljós býður til þessa fyrir- lestrar. Endilega … …njótið hádeg- isfyrirlesturs Morgunblaðið/Kristinn Sjónarhorn Bailes ætlar að segja frá sjónarhorni breska sendiráðsins. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Horft til framtíðar í uppbyggingu raforkuflutningskerfisins Landsnet býður til fundar um stöðu og framtíðaruppbyggingu flutningskerfis raforku á Íslandi. Einnig verður staða jarðstrengjamála rædd og kynnt fyrirkomulag þeirramála í Danmörku ogNoregi. Fundarstaður: Hilton Reykjavík Nordica, 1. hæð, 20. mars 2014 kl. 9:00-11:30. Morgunhressing frá 8:30 og á fundi. Skráning á www.landsnet.is eða í síma 563 9430. Allir velkomnir! Áskoranir næstu ára Geir A. Gunnlaugsson, stjórnarformaður Landsnets.  Grundvöllur bættra lífskjara er aukin verðmætasköpun.  Dreifing raforku um landið í ljósi umræðu um verndun náttúrunnar.  Hvaða breytingar þurfa að verða á rekstrarumhverfi Landsnets til að auka hagkvæmni flutningskerfisins. Þyngri rekstur, ný kynslóðmannvirkja Þórður Guðmundsson, forstjóri Landsnets.  Óviðunandi rekstur raforkukerfisins – aðgengi að öruggri raforku háð búsetu.  Nútímalegri hönnun háspennumastra og tengivirkja. Flutningskerfið þarf að styrkja í sátt við samfélagið Guðmundur I. Ásmundsson, aðstoðarforstjóri Landsnets.  Forgangsröð framkvæmda – Sprengisandslína?  Jarðstrengir – mismunandi útfærslur sem koma til greina á Íslandi. Opinn kynningarfundur Landsnets Dagskrá: StefnaNoregs í jarðstrengjamálum Tanja Midtsian, frá NVE (Orkustofnun Noregs).  Loftlínur á hærri spennustigum.  Skipulagsvald raforkumála á einni hendi. Stefna Danmerkur í jarðstrengjamálum Jens Møller Birkebæk, frá Energinet.dk.  Þéttbýlt land sem gengur hvað lengst í heiminum í lagningu jarðstrengja.  400 kV í loftinu í dag – gætu farið í jörð í framtíðinni. Ávarp Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra. Fyrirspurnir og umræður Fundarstjóri: Þorgeir J. Andrésson, skrifstofustjóri Landsnets. Bein útsending á www.landsnet.is AT H YG LI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.