Morgunblaðið - 17.03.2014, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 17.03.2014, Qupperneq 11
Óreglulegt Allur gangur er á því hvernig motturnar eru í laginu, hér má sjá eina útgáfu. bætir við að starfið sé líka ögrandi af því að eðli málsins samkvæmt er ekki hægt að gera hvað sem er með gólf- mottur. „Útlit mottu á teikningu fer ekki alltaf saman við framleiðsluað- ferðina, þetta krefst stundum mikill- ar þolinmæði, að telja hnúta og fleira í þeim dúr, til að finna út hvernig hægt er að færa teikninguna yfir á mottuna sjálfa.“ Vön að standa fyrir sínu Hulda María segir að þessi spennandi vinna hafi komið upp í hendurnar á henni eftir óvæntum leiðum. „Eftir að ég lauk meistara- námi í umbúðahönnun hér í Barse- lóna fyrir ári vissi ég ekki alveg hvað ég vildi gera við líf mitt. Ég ákvað því að fara í annan skóla hér í umbúða- hönnun og við lok þess náms var ég að leita mér að starfsnámi, til að verða mér úti um reynslu, þegar ég rakst á auglýsingu þar sem í boði var starfsnám hjá Nanimarquina, og þar sem ég þekkti merkið vel þá sló ég til og sendi umsókn og ég var ráðin á staðnum. Ég var í starfsnáminu fram að jólum en núna er ég almennur starfsmaður,“ segir Hulda María og bætir við að hún hafi þurft að koma í viðtal með möppu með verkefnum sínum og kynna fyrir þeim. „Maður þarf að sýna það sem maður kann og láta meta sig, en ég var orðin vön því að þurfa að standa fyrir mínu í þessu þriggja ára námi þar sem var stans- laus pressa og gagnrýni. Ég hef ver- ið að aðlagast því núna að lifa venju- legu einkalífi, því það var ekki mikill tími til þess áður.“ Opnar dyr að kunna spænsku Hulda María segist alltaf hafa verið hrifin af Barselóna og hún vissi sem var að þar væri margt í gangi tengt hönnun. „Þess vegna fór ég hingað í nám, en ég vildi líka ná góð- um tökum á spænskunni og núna fer öll mín vinna fram á því tungumáli. Það opnar marga möguleika að kunna annað tungumál en ensku.“ Hún segist ekki vera á leiðinni að flytja heim í bráð, enda sé það stórt tækifæri að vinna hjá svo þekktum hönnuði sem Nani Marquina er. „Svo finn ég bara út úr því hvort ég vil gera eitthvað upp á eigin spýtur eða hvort ég vil vinna hjá öðrum. Ég ætla bara að fikra mig áfram. Mér finnst ég vera á réttri braut hér í þessu fyr- irtæki, af því að ég hef mikinn áhuga á að starfa við það sem kemur inn á textíl í vöruhönnun, að prófa mig áfram með efni og takast á við eitt- hvað óvanalegt.“ Þó að hún sé mjög ánægð og finnist gott að búa í Barse- lóna þá togar gamla góða Ísland allt- af í, þar búa jú fjölskylda og vinir. Ég hef verið að aðlagast því núna að lifa venju- legu einkalífi, því það var ekki mikill tími til þess áður. Ghost Þessi motta með drauganafnið er sú nýjasta hjá Nani Marquina. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. MARS 2014 Það er kannski fullsnemmt að fagna vori hér á landi en í síðustu viku var því fagnað í Nandgaon á Indlandi að vetri væri lokið. Vorhátíðin Holi hófst hinn 10. mars en þá baða menn sig gjarnan upp úr lituðu vatni og eru skreyttir vandlega. Hindúar luku há- tíðarhöldum í gær á síðasta fulla tungli. Ferðamönnum þykir æði skraut- legt að fylgjast með hátíðarhöldum þessum þar sem karlmenn kasta lit- uðu púðri hverjir á aðra og eðli máls- ins samkvæmt er það býsna mynd- rænt og um að gera að njóta þess. Meðan púðurleifar eru enn í loftinu setjast karlmennirnir niður og biðja saman. Konurnar bíða þeirra með prik á lofti, tilbúnar að berja í skildi mannanna þegar þeir koma frá Bars- ana. Á meðfylgjandi mynd má sjá ungan dreng í Siliguri, son götusala, halda á vatnsbyssu en slíkir gripir seljast grimmt á Holi. Þá er ekki verra að vatnsbyssurnar séu skrautlegar í takt við nýja árstíð sem í garð geng- ur. Til að fylgjast með hátíðarhöldum innfæddra leggja ýmsir á sig langt ferðalag og upplifa indverskt vor. Vori fagnað á Indlandi AFP/Siptendu Dutta Hátíð Í Siliguri er vori fagnað með skrautlegum hætti um þessar mundir. Litrík hátíð lokar vetri Hann heitir BMW 320d xDrive GT og er nýjasti bíllinn í hinni nýju og frísklegu GT línu frá BMW. Hærri sæti og meira rými fyrir farþega og farangur eru einkennandi fyrir bílinn en sportlegir eiginleikar eru heldur ekki langt undan því 320d GT er búinn 184 hestafla dísilvél sem skilar 270 Nm í togi við einungis 1.250 sn/mín. xDrive fjórhjóladrifið gefur þessum sportlega bíl forskotið á Íslandi. E N N E M M / S ÍA / N M 6 18 0 5FJÓRHJÓLADRIF OG FALLEG HÖNNUN. BMW 320d xDrive Gran Turismo - 5,1 l/100 km* Verð frá 7.690.000 kr. Hrein akstursgleði BMW www.bmw.is BL Sævarhöfða 2, sími 525 8000*Miðað við uppgefnar viðmiðunartölur framleiðanda um eldsneytisnotkun í blönduðum akstri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.