Morgunblaðið - 17.03.2014, Side 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. MARS 2014
FRÉTTASKÝRING
Kristinn Ingi Jónsson
kij@mbl.is
Hér á landi eru aðeins tveir landnýt-
ingarkostir til staðar sem hægt er að
segja að skapi sjálfbær heilsársstörf.
Það eru ferðaþjónustan og naut-
griparækt. Hins vegar getur frekari
uppbygging í þessum tveimur grein-
um styrkt búgreinar á borð við skóg-
rækt, garðyrkju og sauðfjárrækt og
bætt afkomuna í þeim, en hún hefur
farið versnandi undanfarin ár.
Þetta er mat Eggerts Þrastar
Þórarinssonar, verkfræðings hjá
Seðlabanka Íslands, en hann fjallaði
um hagfræði mismunandi landnýt-
ingarkosta á árlegri fagráðstefnu
skógræktar, Skógur og skipulag,
sem haldin var á Selfossi í seinustu
viku.
Í samtali við Morgunblaðið segir
Eggert það vera sérstaklega áber-
andi hvað sauðfjárbændur víða um
land eiga erfitt uppdráttar. „Það hef-
ur orðið algjör afkomubrestur í
sauðfjárræktinni eftir fall krónunnar
árið 2008,“ segir hann. „Afkoman var
kannski ekki mjög góð fyrir en hún
hefur verið óviðunandi á undan-
förnum árum.“
Tókst að fækka búunum
Hann segir að búin hafi ekki bol-
magn til að greiða af skuldum sem
geri það að verkum að þau gangi
þess í stað á eignir sínar. Þau séu
einnig of lítil og verði nauðsynlega að
stækka og auka framleiðsluna til að
geta unnið upp tekjutapið. „Eins og
er þá er sauðfjárræktin dýrt áhuga-
mál,“ bendir hann á.
Eggert segir að nautgriparæktin
sé kjölfestan í landbúnaði og land-
nýtingu vítt og breitt um landið og að
svo verði líklegast áfram raunin á
næstu árum. Sem kjarnagrein styðji
hún við aðra landnýtingu, svo sem
með afleiddum störfum, og þá hafi
nautgripabændum tekist – ólíkt
sauðfjárbændum – að fækka búum
sínum.
Þannig hafi fjöldi nautgripabúa
verið 193 árið 2003 en 145 árið 2011.
Á sama tíma fjölgaði sauðfjárbúum
um átta, fóru úr 86 í 94.
Ferðaþjónusta skapar tækifæri
Eins megi nefna ferðaþjónustuna
sem sé orðin ein af þremur grunn-
atvinnugreinum í gjaldeyrissköpun
þjóðarinnar. Eggert bendir á að
mikið verk hafi verið unnið í að efla
heilsársstarfsemi innan greinarinn-
ar seinustu ár og nú sé svo komið að
hún skapi fjölmörg tækifæri í öðrum
greinum. Sauðfjárbændur séu til að
mynda farnir í auknum mæli að afla
tekna utan bús, með annarri land-
nýtingu, svo sem að leigja út eitt til
tvö sumarhús til ferðamanna, til að
tryggja afkomu sína.
Í erindi sínu fjallaði Eggert einnig
um gengi krónunnar og áhrif þess á
hinar ýmsu greinar. Hann segir að
varast beri að taka langtímaákvarð-
anir um til dæmis landnýtingu á
grundvelli skammtímasveiflna í
gengi krónunnar.
„Loðdýraræktin átti til að mynda
mjög erfitt uppdráttar fyrir hrun,
þegar gengið var sterkt, en undan-
farin fimm ár hefur afkoman í grein-
inni verið afar góð. Ef menn hefðu
einungis horft á gengi krónunnar
væru flestir loðdýrabændur löngu
búnir að gefast upp. Það sama má
segja um sauðfjárræktina.“
Fjölbreytnin mikilvæg
Eggert segir að sterkustu sam-
félögin sé byggð upp með mörgum
mismunandi landnýtingarkostum,
jafnvel á einu og sama búinu. Með
þeim hætti hafi samdráttur í einni
grein ekki eins mikil áhrif á aðrar
greinar og afkomuna í heild. Alla
jafna sé mikilvægt að fjölbreyti-
leikinn sé í hávegum hafður.
Nautgriparækt kjöl-
festan í landbúnaði
Aðeins tveir landnýtingarkostir skapa sjálfbær heilsárs-
störf Afkomubrestur í sauðfjárrækt eftir fall krónunnar
Morgunblaðið/Steinunn
Bregða á leik Eggert segir að nautgriparæktin sé kjölfestan í landbúnaði
vítt og breitt um landið og að svo verði áfram raunin á næstu árum.
Skoðaðu úrvalið á Bilaland.is
GERÐU
FRÁBÆR
KAUP
HONDA CIVIC SPORT
Nýskr. 03/13, ekinn 30 þús. km.
bensín, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 3.290 þús.
Rnr. 281523.
TOYOTA AURIS SOL HYBRID
Nýskr. 10/13, ekinn 6 þús. km.
bensín, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 4.220 þús.
Rnr. 131011.
Kletthálsi 11 -110 Reykjavík
Sími 525 8000 - bilaland@bilaland.is
www.bilaland.is
www.facebook.com/bilaland.is
LAND ROVER DISCOVERY 3 S
Nýskr. 06/09, ekinn 94 þús. km.
dísil, sjálfskiptur.
Rnr. 281527.
NISSAN QASHQAI SE
Nýskr. 05/13, ekinn 31 þús km.
dísil, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 5.280 þús.
Rnr. 281339.
SUBARU XV
Nýskr. 02/12, ekinn 23 þús km.
bensín, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 4.190 þús.
Rnr. 281456.
KIA CEEDWAGON
Nýskr. 05/12, ekinn 35 þús. km.
dísil, beinskiptur.
VERÐ kr. 2.870 þús.
Rnr. 141973.
FORD FOCUS TREND
Nýskr. 04/11, ekinn 62 þús. km.
dísil, beinskiptur.
VERÐ kr. 2.190 þús.
Rnr. 141939.
Frábært verð
6.990 þús.
TÖKUMNOTAÐAN
UPPÍ NOTAÐAN!
GERÐU FRÁBÆR KAUP!
ALLT AÐ 80% LÁNAMÖGULEIKAR
Kolvetnaskert,
próteinríkt og fitulaust
Hentar
fyrir LKL
mataræði
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA