Morgunblaðið - 17.03.2014, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. MARS 2014
Síðumúla 11, Sími 5686899, netfang vfs@vfs.is, 108 Reykjavík. www.vfs.is
RAFMAGNSVERKFÆRI FAGMANNSINS
FRÉTTASKÝRING
Kristinn Ingi Jónsson
kij@mbl.is
Mikil fagnaðarlæti brutust út á göt-
um Simferopol, höfuðborgar Krím-
skagans, í gærkvöld eftir að í ljós
kom að mikill meirihluti kjósenda á
skaganum, 95,5% samkvæmt fyrstu
tölum, samþykkti að segja sig úr lög-
um við Úkraínu og sameinast Rúss-
landi.
Héraðsstjórnin í Krím hyggst
leggja fram formlega umsókn um að-
ild að rússneska sambandsríkinu í
dag, að sögn Sergiy Aksyonovs, for-
sætisráðherra héraðsins.
„Ég er hamingjusamur. Í hrein-
skilni sagt er ég sextíu ára og hélt að
ég myndi aldrei upplifa þennan gleði-
dag,“ sagði einn íbúi Krímskaga, sem
hélt rússneska fánanum hátt á lofti á
Leníntorgi í Simferopol, við AFP.
Vestrænir leiðtogar fordæmdu at-
kvæðagreiðsluna og sögðust ekki
ætla að viðurkenna niðurstöðurnar. Í
sameiginlegri yfirlýsingu sögðu þeir
Herman van Rompuy, forseti leiðtog-
aráðs Evrópusambandsins (ESB), og
José Manuel Barroso, forseti fram-
kvæmdastjórnar ESB, að atkvæða-
greiðslan væri ólögmæt og bryti
gegn alþjóðalögum. Utanríkisráð-
herrar Evrópuríkja munu koma sam-
an í Brussel í dag og meta stöðuna
eftir atburði gærdagsins. Til greina
kemur að beita refsiaðgerðum, að því
er segir í frétt AP.
John Kerry, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, tók í sama streng en
hann sagði við Sergei Lavrov, utan-
ríkisráðherra Rússlands, að banda-
rísk stjórnvöld myndu ekki viður-
kenna niðurstöðurnar. Þá sagði
William Hague, utanríkisráðherra
Bretlands, að atkvæðagreiðslan væri
„lítilsvirðing“ við lýðræðið.
Vladímír Pútín, forseti Rússlands,
ræddi við Barack Obama, forseta
Bandaríkjanna, símleiðis í gærkvöldi
og sagði að atkvæðagreiðslan hefði
verið í fullu samræmi við alþjóðalög.
Hann lagði jafnframt áherslu á að
Rússar myndu virða vilja Krímverja.
Obama sagði við Pútín að Banda-
ríkin muni aldrei viðurkenna at-
kvæðagreiðsluna í gær. Hvatti hann
Rússa til að fallast á alþjóðlegt eftirlit
með landamærahéröðum.
Fengu Krímskaga að gjöf
Krímskagi var hluti af Rússlandi
frá átjándu öld en Níkíta Krústsjov,
þáverandi leiðtogi Sovétríkjanna, gaf
Úkraínu héraðið í tilefni af því að 300
ár voru liðin frá sameiningu land-
anna. Eftir að Úkraína fékk sjálf-
stæði frá Sovétríkjunum árið 1991
hélt landið yfirráðunum yfir Krím-
skaga en hins vegar var gerður
samningur við Rússa um að þeir
héldu herstöðinni í hafnarborginni
Sevastopol. Samkvæmt manntali frá
árinu 2001 eru Rússar um 58% íbúa
Krímskaga, 24% Úkraínumenn og
12% eru tatarar.
AFP
Fagna Þúsundir íbúa á Krímskaga fjölmenntu á Leníntorg í höfuðborg Krím, Simferopol, í gærkvöld og fögnuðu
þar úrslitum atkvæðagreiðslunnar. Héraðsstjórnin í Krím hyggst leggja fram umsókn um aðild að Rússlandi í dag.
Samþykktu aðskilnað
Mikill meirihluti íbúa Krímskaga samþykkti að segja sig úr
lögum við Úkraínu Sótt verður um aðild að Rússlandi í dag
Kosningar Kjörsóknin var með allra mesta móti í gær, að sögn kjörstjórn-
arinnar. Margir sniðgengu þó kosningarnar, þar á meðal ósáttir tatarar.
Kosið á Krímskaga
» Kjósendur á Krímskaga
greiddu í gær atkvæði um
hvort þeir væru hlynntir sam-
einingu héraðsins við Rússland
eða hvort stjórnskipun frá
árinu 1992 yrði tekin upp.
» Óbreytt ástand var ekki í
boði.
Kristinn Ingi Jónsson
kij@mbl.is
25 þjóðir taka nú þátt í leitinni að
farþegaþotu Malaysian Airlines sem
hefur verið saknað í níu daga en leit-
in hefur engan árangur borið. His-
hammuddin Hussein, samgöngu- og
varnarmálaráðherra Malasíu, sagði
á blaðamannafundi í gærmorgun að
leitarsvæðið næði nú allt frá Mið-
Asíu suður í Indlandshaf.
Ljóst varð um helgina að slökkt
hefði verið vísvitandi á fjarskipta-
búnaði þotunnar og henni snúið við.
Najib Razak, forsætisráðherra Mal-
asíu, staðfesti á fundi með blaða-
mönnum á laugardaginn að gervi-
hnettir hefðu numið merki frá
þotunni sex og hálfri klukkustund
eftir að hún hvarf af ratsjánum. Nú
þykir sennilegast að henni hafi
annaðhvort verið flogið í norðvestur,
í átt að Kasakstan, eða í suðvestur, í
átt að Suðurskautslandinu.
Leit á Indlandshafi hefur verið
hætt en indversk flugmálayfirvöld
telja útilokað að þotan hafi flogið inn
í indverska lofthelgi áður en hún
hvarf. Hins vegar hafa flugvélar frá
Ástralíu tekið þátt í leitinni á stóru
hafsvæði vestur af Ástralíu.
Lögðu hald á flughermi
Um helgina leitaði lögreglan á
Malasíu á heimilum flugmanna þot-
unnar en meðal annars var lagt hald
á flughermi sem var á heimili flug-
stjórans, Zaharie Ahmad Shah.
Engar fregnir hafa hins vegar borist
af því hvort rannsóknin á flugmönn-
unum hafi varpað nýju ljósi á afdrif
farþegaþotunnar. Til viðbótar við
húsleitirnar hefur lögreglan kannað
fjölskylduaðstæður, andlegt heilsu-
far og aðra persónulega hagi mann-
anna beggja. AFP greindi jafnframt
frá því að á Facebook-síðu flugstjór-
ans kæmi fram að hann væri svarinn
andstæðingur ríkisstjórnarinnar í
landinu, en aðeins nokkrum klukku-
tímum áður en þotan tók á loft var
Anwar Ibrahim, leiðtogi stjórnar-
andstöðunnar, dæmdur í fimm ára
fangelsi fyrir samkynhneigð.
Zaharie og aðstoðarflugmaðurinn,
Fariq Abdul Hamid, höfðu ekki sóst
sérstaklega eftir því að vera saman í
fluginu, að því er sagði í frétt AFP,
og þykir því ólíklegt að þeir hafi
skipulagt samsæri.
25 þjóðir aðstoða
við leit að þotunni
Slökkt var á fjarskiptabúnaðinum
Rannsókn beinist að flugmönnunum
AFP
Leitin Najib Razak, forsætisráð-
herra Malasíu, á blaðamannafundi.
Rupert Murdoch
lætur sér ekki
nægja að fjar-
stýra mesta fjöl-
miðlaveldi heims
heldur er orðinn
virkur þátttak-
andi í um-
ræðunni á netinu
með færslum á
Twitter. Lætur
hann móðan
mása um hvaðeina sem í hug kem-
ur, jafnt fjölskylduhagi sem al-
þjóðamál. Hann gerir m.a. hvarf
farþegaflugvélar Malaysia Airlines
að umræðuefni og telur að um sé að
ræða hryðjuverk herskárra íslam-
ista. Vill hann að atvikið verði til-
efni aukinnar samvinnu stjórnvalda
í Peking og Washington.
FJÖLMIÐLAKÓNGUR Í STUÐI
Murdoch lætur móð-
an mása á Twitter
Murdoch er
kominn á Twitter.
Einhverjum, sem
þóttist vera
Harry Bretaprins
á samskiptamiðl-
inum Facebook,
tókst að svíkja
þúsundir evra út
úr austurrískum
iðnaðarmanni.
Svikahrapp-
urinn bauð iðn-
aðarmanninum að endurnýja park-
etið í Buckingham-höll en sá
böggull fylgdi skammrifi að Austur-
ríkismaðurinn þurfti að leggja jafn-
virði 4,3 milljóna króna inn á
nokkra breska bankareikninga til
að fá leyfi til að starfa í Bretlandi.
Lögregla hefur sagt iðnaðar-
manninum að ólíklegt sé að hann
endurheimti féð.
SVIKAHRAPPUR
Þóttist vera Harry
Bretaprins
Harry Bretaprins.