Morgunblaðið - 17.03.2014, Side 15
FRÉTTIR 15Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. MARS 2014
Hvernig hefur bíllinn það?
Opið: mánudaga til fimmtudaga kl. 8.00-18.00, föstudaga kl. 8.00-16.30
BJB | Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is
Við hjá BJB erum sérfræðingar í dekkjum, pústi og smurningu
og fleiru sem viðkemur reglubundnu viðhaldi bíla.
Komdu með bílinn í BJB Hafnarfirði
og þú færð góða þjónustu
og vandað vinnu.
2012
Tímapantanir í síma
565 1090
Stjórnvöld í Kína tilkynntu á laugar-
dag um víðari viðskiptaheimildir á
gjaldeyrismarkaði. Breytingin felst í
því að leyft er að kaupa eða selja kín-
verska yuanið á verðbili sem er allt
að 2% hærra eða lægra en daglegt
viðmiðunargengi kínverska seðla-
bankans.
Fyrir þessa tilslökun voru vik-
mörkin í viðskiptum 1%, eftir að hafa
verið hækkuð úr 0,5% í apríl 2012 og
úr 0,3% í maí 2007.
Fréttaveita Bloomberg segir að
með útspili sínu séu ráðamenn í Pek-
ing að standa við fyrirheit um að losa
tökin á gengi kínverska gjaldmiðils-
ins og auka frelsi í fjármagnsflutn-
ingum til og frá Kína. Í tilkynning-
unni sem birt var á laugardag sagði
Seðlabanki Kína að til stæði að halda
áfram að breikka spönnina í gjald-
eyrisviðskiptum með „öguðum“
hætti á þessu ári.
Gegn vaxtamunarviðskiptum
Markaðsvefur Wall Street Journ-
al, MarketWatch, bendir á að stjórn-
völd í Kína hafi verið að stýra
yuaninu hægt og rólega niður á við
síðan í byrjun árs 2013. Markaðs-
greinendur segja þessa veikingu
einkum gerða til að stemma stigu við
vaxtamunarviðskiptum (e. carry
trade) á yuaninu og öðrum gjald-
miðlum, s.s. Bandaríkjadollar. Mikið
innflæði erlends fjármagns verkar
alla jafna til að styrkja yuanið, gera
þar með kínverskar útflutningsvörur
dýrari og, að sögn MarketWatch,
ýtir undir bólumyndun á fasteigna-
markaði og öðrum mörkuðum innan-
lands.
Frá árinu 2005 hefur kínverski
gjaldmiðillinn styrkst um 30% gagn-
vart Bandaríkjadollar en frá byrjun
þessa árs hefur yuanið veikst um
1,6% gagnvart dalnum. ai@mbl.is
Kína eykur svigrúm
á gjaldeyrismarkaði
Vikmörk frá viðmiðunargengi hækkuð upp í 2%
AFP
Framfarir Viðskipti með yuanið eru smám saman að verða frjálsari, en
seðlabankinn ætlar samt ekki að sleppa takinu alveg. Frá undirbúningi kín-
verska landsþingsins sem haldið var fyrr í mánuðinum.
Ónafngreindur milljarðamæringur í
Silíkondal komst í heimsmetabæk-
urnar á dögunum þegar hann keypti
stærstu líftryggingu sem sögur fara
af. Að sögn Forbes mun tryggingin
borga út 201 milljón dala ef auðmað-
urinn skyldi kveðja þennan heim.
Árleg iðgjöld eiga að hlaupa á nokkr-
um milljónum dala, jafnvirði nokk-
urra hundraða milljóna króna.
Að baki líftryggingunni standa
nítján ólík tryggingafélög sem þann-
ig dreifa með sér áhættunni ef eitt-
hvað hendir milljarðamæringinn.
Fyrra met átti David Geffen,
stjórnandi hljómplötufyrirtækisins
Geffen Records, en árið 1990 keypti
hann 100 milljóna dala líftryggingu.
Nafn nýja methafans hefur ekki
verið gefið upp af öryggisástæðum.
Mögulega Musk?
Fyrirtækið sem annaðist sölu líf-
tryggingarinnar hefur aðeins gefið
upp að um sé að ræða vel þekktan
fjárfesti úr tæknigeiranum í Kali-
forníu. Forbes segir þetta ekki
þrengja hópinn mjög en í Kaliforníu
búa núna nákvæmlega 111 milljarða-
mæringar og hefur þriðjungur
þeirra auðgast af tæknigeiranum.
Forbes bendir þó á að upphæðin, 201
milljónir dala, er nákvæmlega sú
sama og miðað var við þegar Elon
Musk skráði fyrirtækið SolarCity á
markað árið 2013.
En af hverju er milljarðamæring-
ur að kaupa svona dýra líftryggingu?
Á hann ekki digran sjóð fyrir erf-
ingjana að hugga sig við ef allt skyldi
fara á versta veg? Að sögn fyrirtæk-
isins sem seldi trygginguna eru mjög
háir erfðaskattar í Kaliforníu, en líf-
tryggingar eru ekki skattlagðar að
sama marki. Ef hinn látni hefur tekið
lán út á eignir sínar þá eru skuld-
irnar innheimtar við andlát og þegar
það fer saman við háa skatta geta
erfingjar átt í hinu mesta basli.
ai@mbl.is
Auðmaður kaupir
stærstu líftrygg-
ingu sögunnar
Meðal annars hugsuð sem vörn gegn
háum erfðasköttum í Kaliforníu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Seðlar Tryggingin er upp á jafn-
virði 23,5 milljarða króna.