Morgunblaðið - 17.03.2014, Page 20

Morgunblaðið - 17.03.2014, Page 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. MARS 2014 ✝ Erlingur Norð-mann Guð- mundsson bóndi fæddist í Reykja- vík 19. febrúar 1932. Hann lést á dvalarheimilinu Silfurtúni í Búð- ardal 8. mars 2014. Hann var sonur Guðmundar Krist- jánssonar mynd- skera, f. 1901, d. 1979, og Beatrice Marie Stocke, f. 1908, d. 1982. Sam- feðra hálfbróðir hans var Páll Guðmundsson, f. 1927, d. 1995, og fóstursystir hans er Una Auður Kristjánsdóttir, f. 1948. Erlingur kvæntist árið 1959 Ragnhildi Hafliðadóttur, f. 1937. Þau skildu 1984. Börn þeirra eru: 1) Ragnhildur Beat- rice, f. 1958. Eiginmaður henn- ar er Sigurjón Hannesson, f. 1955. Börn hennar af fyrra hjónabandi eru: a) Gunnlaugur Már Sigurðsson, f. 1978, kvæntur Sigríði Höllu Steins- dóttur, f. 1980. Börn þeirra eru Jökull Logi, f. 2005, og Freyja Ísold, f. 2008. b) Sandra Rún Sigurðardóttir, f. 1981. Sam- býlismaður hennar er Antonio Costanzo, f. 1979 og barn hjónabandi eru: a) Sighvatur Sveinn Davíðsson, f. 1990. b) Hildur Karen Davíðsdóttir, f. 1991. Unnusti hennar er Lasse Holm Jensen, f. 1990. c) Krist- ján Leó Davíðsson, f. 1999. 5) Guðmundur, f. 1968. Unnusta hans er Ninna Karla Katr- ínardóttir, f. 1985. Barn hans úr fyrra sambandi er Kolbeinn Sturla Guðmunds Heiðuson, f. 1996. Erlingur ólst upp í Reykja- vík en fluttist að Hörðubóli í Dalasýslu ásamt foreldrum sín- um árið 1952. Hann lauk námi við Bændaskólann á Hvanneyri og tók við búi af föður sínum, og starfaði einnig sem frjó- tæknir í Dalasýslu. Á seinni ár- um starfaði hann m.a. hjá Rafha í Hafnarfirði og Húsa- smiðjunni í Reykjavík og innti störf sín af hendi af alúð. Er- lingur tók virkan þátt í fé- lagsstörfum og var virkur í starfi Lionshreyfingarinnar og Breiðfirðingafélagsins. Hann spilaði á gítar á dansleikjum á Nesodda í Dalasýslu og var virkur í starfi Þjóðdansafélags- ins. Útför Erlings er gerð frá Kópavogskirkju í dag, 17. mars 2014, og hefst athöfnin kl. 13. þeirra er Sunna Alba Costanzo, f. 2011. 2) Kristrún Erna, f. 1960. Eig- inmaður hennar er Baldur Kjart- ansson, f. 1958. Börn þeirra eru: a) Kjartan, f. 1982. Sambýliskona hans er Sandra Dögg Pálmadóttir, f. 1989. b) Erling Orri, f. 1984. c) Áslaug, f. 1985. Sambýlismaður hennar er Páll Júlíus Gunnarsson, f. 1975. Börn hennar af fyrri sam- böndum eru: Ingólfur Myrkvi Torfason, f. 2004, Rakel Emma Róbertsdóttir, f. 2006, og Erna Kristín Róbertsdóttir, f. 2008. d) Hafliði, f. 1991. 3) Guðríður. Sambýlismaður hennar er Valdimar Stefán Hólm- steinsson, f. 1958. Börn hennar af fyrra hjónabandi eru: a) Ingiberg Þór Þorsteinsson, f. 1985, sambýliskona hans er Elena Rebekka Götting, f. 1984. b) Helgi Steinar Þor- steinsson, f. 1987, unnusta hans er Hilde Smith, f. 1994. c) Ragnhildur Lind Þorsteins- dóttir, f. 1995. 4) Líneik Dóra, f. 1967. Börn hennar af fyrra Hvernig minnist maður föður síns? Pabbi var afar blíður mað- ur og strauk okkur krökkunum gjarnan um kinn þegar hann var sáttur við eitthvað sem við höfð- um gert vel og brosti hlýja bros- inu sínu. Hann sinnti sínum verkum af alúð og vandvirkni svo eftir var tekið, og fór ekki með hávaða í gegnum lífið. Hann var orðvar og minnti mann alltaf á að þakka fyrir sig og vera kurteis. Sem barn var maður alltaf stolt- ur af honum því hann gerði allt svo vel, og á afmælisdögum skreytti hann alltaf afmælistert- una mjög fallega. Hann var traustur og trúr sínum vinum, en hleypti ekki öllum að sér og það voru viss forréttindi að ná trausti hans. Hann náði góðum tengslum við tengdabörnin sín, en sérstaklega náði Baldur, tengdasonur hans, vel til hans. Hann var heimakær og leið hvergi betur en á Hörðubóli í litla fallega dalnum í Suður-Döl- um og eyddi þar síðustu æviár- unum. Það var honum þó styrkur þegar Rabbý og Sigurjón hófu að byggja sumarbústað í landi Hörðubóls. Pabbi var bóndi og listamaður sem hafði næmt auga og eyru fyrir fegurð og formum. Listir, menning og náttúra er breitt áhugasvið en það voru áhugasvið pabba. Í tónlistinni var það helst jazz og harmonikkutónlist sem vöktu áhuga hans og hann spilaði á gítar sem ungur maður og elskaði að dansa. Mikinn áhuga hafði hann á myndlist og var duglegur að fara á ýmsa menn- ingarviðburði þann tíma sem hann bjó í Reykjavík og Kópa- vogi. Hann hafði mikinn áhuga á kvikmyndum og ljósmyndavélin var alltaf við höndina, eins og ógrynni mynda sem hann skilur eftir sig bera vitni um. Þar var myndefnið skoðað vel sem heild áður en smellt var af. Pabbi teiknaði og málaði listavel og sat stundum með okkur krökkunum að vatnslita og málaði þá gjarnan fjöllin í Hörðudalnum sem hon- um þótti svo vænt um og tók einnig ótal ljósmyndir af. Og oft sat hann á svölunum hjá Rabbý systur og dáðist að útsýninu yfir Elliðavatn og Heiðmörk og lang- aði þá helst til að vera með pensil í hönd. Pabbi kunni að njóta því hann gat gleymt stund og stað við það sem vakti áhuga hans. Pabbi upplifði tíma mikilla breytinga í sögu okkar. Hann var vel lesinn og hafsjór af sög- um. Það var aldrei dauð stund á bílferðum um Dalina og Borg- arfjörðinn, því pabbi virtist kunna sögur um hverja þúfu og hverja laut. Pabbi naut þess sömuleiðis að ganga um gamla miðbæ Reykjavíkur þar sem hann sleit barnsskónum og gönguferðir þar voru sömuleiðis uppspretta líflegra frásagna frá hans yngri árum. Ekki síst voru stríðsárin ofarlega í huga hans og þær breytingar sem urðu í kjölfar þeirra. Hann hafði mik- inn áhuga á ættfræði og þótti vænt um uppruna sinn og var sérstaklega stoltur af norskum rótum sínum. Í hans augum var flest betra ef það reyndist vera norskt að uppruna. Takk fyrir okkur, elsku pabbi. Margt er hér að muna og þakka – mjúklát þögnin geymir allt. Innst og dýpst í okkar vitund áfram heill þú lifa skalt. Vorið kemur – lóuljóðin lifna brátt, þó enn sé kalt. (Jóhannes úr Kötlum) Ragnhildur, Kristrún, Guðríður, Líneik og Guðmundur. Fyrr var oft í koti kátt, krakkar léku saman, þar var löngum hlegið hátt, hent að mörgu gaman. Úti’ um stéttar urðu þar einatt skrítnar sögur, þegar saman safnast var sumarkvöldin fögur. (Þorsteinn Erlingsson) Elsku langafi, nú ertu farinn frá okkur. Það verður tómlegt að koma í heimsókn á Hörðuból í sumar en við vitum að englarnir taka vel á móti þér uppi hjá guði. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni veki þig með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Hvíl í friði elsku langafi. Kveðja frá Nýja-Sjálandi. Jökull Logi og Freyja Ísold. Enginn má við Elli kerlingu þegar hún ber að dyrum með einbeittum vilja. Erling á Hörðu- bóli, kær frændi og vinur, er nú fallinn í valinn eftir stutt stríð í langri og hægfara baráttu við kerlinguna. Það er alltaf erfitt að sjá á bak kærum vinum og nán- um ættingjum, en oft kom upp í hugann á síðastliðnum mánuðum að baráttunni gæti lokið fyrr en varði. Þannig hafði heimurinn og umhverfið smám saman fjar- lægst Erling sem lifði orðið mik- ið í minningum um eldri tíma þegar dægurþrasið var ekki lengur efst á baugi. Eftir ára- tuga búskap á Hörðubóli í Mið- dölum vestur og áralanga þjón- ustu við bændur sem sæðingamaður brá hann búi á ní- unda áratug síðustu aldar og flutti í höfuðstaðinn, þar sem hann leigði lengi hjá okkur á Reynimelnum og starfaði við timbursölu hjá Húsasmiðjunni. Erling vildi hins vegar aldrei láta frá sér Hörðuból, flutti þangað aftur eftir að hann hætti að vinna vegna aldurs og bjó þar síðan uns yfir lauk. Hann vildi ekki heyra það nefnt að flytja þaðan þótt ekki hafi alltaf verið auðvelt að þreyja þorrann og góuna síð- ustu árin einsamall án farartæk- is. Þrjóska, sjálfstæðisþörf og einbeittur vilji liggur í ætt okkar. Þar sem við hjónin bjuggum lengi erlendis voru heimsóknir á Hörðuból ekki alltaf tíðar en þangað var alltaf gaman að koma. Á síðustu árum hittum við Erling einna helst þegar hann átti erindi í höfuðborgina þar sem hann átti alltaf athvarf hjá dætrum sínum. Stundum leit hann inn í kaffi þegar hann var í gönguferðum um gamlar slóðir með myndavél meðferðis og myndaði gömul hús og umhverfi sem tengdist sögu fjölskyldunn- ar. Á þessum samverustundum snerust samtöl okkar oft um sameiginlega fjölskyldu, lífskjör og aðstæður á fjórða og fimmta áratugnum, tímabil og atburði sem hann lifði, en gerðust fyrir mína tíð. Sérstaklega var mér mikils vert að heyra frásagnir hans af afa okkar, sem lést áður en ég leit dagsins ljós. Það er eft- irsjá að þessum samtölum og margs var enn að spyrja. Síðasti fundur okkar var svo á sjúkra- húsinu á Akranesi fyrir fáeinum vikum, en þá virtist nokkuð ljóst að brugðið gæti til beggja vona. Nokkru síðar var svo lífsferð Er- lings lokið. Elsku Rabbý, Krist- rún, Guja, Lína og Guðmundur. Við sendum ykkur og fjölskyld- um ykkar okkar innilegustu sam- úðarkveðjur. Minning um góðan dreng lifir í hjörtum okkar. Hans og Sólveig. Erlingur Norðmann Guðmundsson ✝ Erla Þorvalds-dóttir fæddist í Reykjavík 9. nóv- ember 1931. Hún lést á heimili sínu, Hringbraut 50, Reykjavík, 10. mars 2014. Foreldrar henn- ar voru Þorvaldur R. Helgason, f. 3. okt. 1893, d. 26. nóv. 1974, og Krist- ín Súsanna Elíasdóttir, f. 11. júlí 1896, d. 22. okt. 1985. Systkini Erlu voru Anna Svandís, f. 1919, Helgi, f. 1923, Birgir, f. 1925, og Elías, f.1927. Þau eru öll látin. Hinn 18. nóvember 1950 gift- ist Erla eftirlifandi eiginmanni sínum, Bjarna Gíslasyni mál- arameistara, f 17. júlí 1929. For- eldrar hans voru Gísli Ingi- mundarson, f. 1897, d. 5. maí 1976, og kona hans Helga Bjarnadóttir, f. 1905, d. 12. júní 1980. Börn Erlu og Bjarna eru: 1) Helga hárgreiðslumeistari, f. 17. mars 1951, d. 24. júní 2009. Maki Eggert Valur Þorkelsson. Börn Helgu eru: Sigríður Mar- grét Einarsdóttir hár- greiðslumeistari, f. 13. október 17. febrúar 1982. Maki Freyr Al- exandersson knattspyrnuþjálf- ari. Börn þeirra eru Alexandra Ósk, f. 17. september 2008, og Embla Marín, f. 7. september 2010. Fanney Ósk söngkona, f. 25. október 1991, sonur Þórir Jökull, f. 26. mars 2013. 3) Anna Kristín viðskiptafræðingur, f. 18. janúar 1964. Maki Carsten Fröslev kennari. Sonur Önnu er Brynjar Árni Heimisson tónlist- amaður, f. 29. júní 1986, sonur þeirra er Benjamín Fröslev, f. 9. maí 2006. Synir Carstens eru Mattias, Sebastian og Magnus Fröslev. Erla vann sem ung kona í eld- húsi Landspítalans. Einnig starfaði hún sem gangavörður í Garðaskóla um allnokkurt skeið. Í 16 ár starfaði hún í Frí- múrarahúsinu í Reykjavík við ýmis störf. Erla starfaði mikið í félagsmálum. Hún var formaður kvenfélags Karlakórs Reykja- víkur í tvö kjörtímabil. Seinustu ár Erlu bjuggu þau Bjarni á dvalarheimilinu Grund (Litlu- Grund). Útför Erlu verður gerð frá Háteigskirkju í dag, 17. mars 2014, og hefst athöfnin kl. 13. 1972. Maki Einar H. Rögnvaldsson verkfræðingur. Börn: Fjölnir Þór Einarsson, f. 10. janúar 1996, Einar Örn Steinarsson, f. 25. ágúst 1999, Em- ilía Ósk Steinars- dóttir, f. 17. febr- úar 2003. Einar Geir Einarsson bíl- smiður, f. 20. sept- ember 1974. Maki María Ósk Einarsdóttir. Dóttir Einars: Re- bekka Lind, f. 20. júní 2005. Bjarni Þór Einarsson bílamál- ari, f. 20. september 1974. Maki Guðlaug Jóhannsdóttir leik- skólakennari. Börn: Aron Þór, f. 18. febrúar 2008, og Helga, f. 22. nóvember 2010. Erla Rut Egg- ertsdóttir nemi, f. 17. júlí 1994, maki Þórir Már Davíðsson. 2) Þórir bifreiðastjóri, f. 8. júní 1956. Maki Sigrún Gunnlaugs- dóttir matartæknir. Börn Þóris eru: Ása Lára nemi, f. 5. júlí 1978, gift Sigurði Hervinssyni húsasmiði. Börn þeirra: Ólöf Erla, f. 10. desember 2004, og Gabríel Þór, f. 24. desember 2007. Erla Súsanna kennari, f. Elsku mamma. Nú ertu farin frá okkur og orðin láta á sér standa. Við höfum lengi búið hvor í sínu landinu en andlegu tengslin hafa aldrei rofnað. Við höfum talað saman um allt það sem skiptir máli og tjáð hvor annarri hversu mikið við elskum hvor aðra. Það er ég þakklát fyr- ir í dag. Ég er búin að halda nokkrar ræðurnar til þín á þínum merkisdögum. Þar rifjaði ég upp allt það fallega, skemmtilega og góða og þú hlustaðir brosandi á. Þess vegna þarf ég ekki að skrifa það í minningargrein um þig. Það er mér mikilvægast að þú hafir heyrt það frá mér í lifanda lífi. Ég samgleðst þér yfir að vera laus við verkina og að vera komin yfir til þinna sálufélaga sem þú hefur hlakkað til að hitta. Við eigum sameiginlega þá trú að dauðinn í þessu jarðlífi sé aðeins áfangi fyrir sálina. Nú ertu kom- in á vit nýrra ævintýra þar sem þú getur svifið um, laus við hulstrið eða m.ö.o. líkamann sem íþyngdi þér síðustu árin þín. Þu varst ekki hrædd við dauð- ann og þú varst tilbúin að fara. Dauðinn er ekki erfiður þeim sem deyja saddir lífdaga, heldur þeim sem eftir lifa og þurfa að lifa með söknuðinum og sorginni. Ég trúi því að þér líði vel núna og sért glöð. Það gerir það auðveld- ara að missa þig og kveðja. Þú veist líka að það verður passað vel upp á pabba. Takk fyrir að vera mamma mín. Ég veit við hittumst aftur þegar minn tími kemur og ég veit líka að þegar þú ert tilbúin á ég eftir að heyra frá þér. Hvíldu í friði fallega sál. Anna Kristín. Elsku amma Það er ekki að ástæðulausu að margir í fjölskyldunni eru skírðir í höfuðið á þér. Ég er ein af þeim heppnu og ég er handviss um að það eiga fleiri Erlur eftir að fæð- ast inn í fjölskylduna. Ef ég ætti að lýsa þér í þremur orðum væri það hlý, jákvæð og lífsglöð. Þú tókst alltaf á móti mér með opnum örmum og ég sogaðist í faðm þinn eins og bý- fluga sogast að hunangsblómi. Faðmlag þitt var sætt sem hun- ang og ömmuilmurinn svo góður, ég finn lyktina þegar ég hugsa um þitt hlýja faðmlag. Þú sleppt- ir ekki takinu fyrr en ég var tilbúin að sleppa. Eiginlega þurfti ég stundum að slíta mig úr örmum þínum og ég segi þetta með bros á vör. „Komdu og kúrðu hjá ömmu,“ þetta sagðir þú og það skipti engu máli hvort ég væri fullorðin með tvö börn og mann, þú komst fram við öll barnabörnin þín eins og þau hefðu fæðst í gær og þú værir yf- ir þig hugfangin af nýja barna- barninu. Mér leið því alltaf eins og ég væri einstök í þinni návist, ég fékk athygli, þú horfðir í augu mín og kærleikurinn skein í gegn, þú talaðir við mig, þú spurðir mig spurninga um mitt líf og ætlaðist til einskis á móti. Bros þitt einkenndist af hlýju og jákvæðni. Það var yndislegt að hlusta á þig og afa þræta eða eiginlega bara afa þræta og þú að sussa og sveia yfir þessari vit- leysu í honum afa, svo brostir þú til mín og blikkaðir. Hláturinn þinn var yndislega smitandi. Við höfum oft fengið hláturskast saman og það eru góðar minn- ingar. Lífsglaðari manneskju er vart hægt að finna á þessari jörð. Það var alltaf stutt í hláturinn hjá þér, amma mín. Þú varst hrókur alls fagnaðar hvert sem þú fórst og alltaf til í selskap og stuð. Þú varst mesta félagsvera sem ég þekki, vildir helst vera í margmenni allan sólarhringinn. Þú varst líka mikill húmoristi og hreinskilin á góðan og fyndinn hátt. Þegar ég hugsa til baka, hugsa til bernskunnar, þá eru einar af mínum bestu æskuminningum samverustundirnar með ykkur afa. Mig langar til þess að þakka þér fyrir allar yndislegu stund- irnar sem við áttum uppi í sum- arbústaðnum Birkihól. Takk fyr- ir að nenna að spila við mig heilu klukkustundirnar. Birkihóls- stundirnar eru mínar bestu æskuminningar og þær mun ég varðveita að eilífu. Ég vil þakka þér fyrir öll skemmtilegu fjöl- skylduboðin sem þið afi hélduð þar sem við dönsuðum í kringum risastórt jólatré þar sem afi fór hamförum á píanóinu og allan góða matinn sem þú framreiddir. Ég vil þakka þér fyrir að sinna öllum í kringum þig svona vel og sýna öllum einstaklingum fjöl- skyldunnar svona mikla nær- gætni og hlýju eins og þú gerðir. Ég vil þakka þér fyrir að vera mér svona góð fyrirmynd og ég mun eftir fremsta megni reyna að tileinka mér þessa góðu kosti sem ég hef skrifað um í þessari minningargrein. Ég vil að lokum þakka þér fyrir að sýna mér og mínum alltaf skilyrðislausa ást og gefa af þér þessa óendanlegu hlýju. Amma, mig langar svo að kúra hjá þér núna. Ég veit að einn daginn fæ ég að kúra hjá þér aft- ur, en bara ekki núna. Ég elska þig, amma mín, hvíl í friði. Erla Súsanna Þórisdóttir. Elsku amma mín. Kallið er komið. Ég veit að þú varst tilbúin að takast á við ný verkefni á nýjum stað og það huggar mig á þessum erfiða tíma þegar þú hefur kvatt okkur í þessari jarðvist. Það huggar mig líka og ég trúi því að nú hafið þið mamma hist á ný og mikið hlýtur að vera mikil gleði hjá ykkur, þið voruð svo nánar. Æskuminningarnar rifjast upp á tíma sem þessum og er mér efst í huga þegar ég var sex ára gömul og tók strætó í Faxatúnið og við dunduðum svo mikið saman, fór- um á flakk í búðaráp og oftar en ekki fékk ég eitthvert gotterí. Þegar þú varst að vinna í Garða- skóla fékk ég stundum að vera með þér í vinnunni og þótti það nú aldeilis skemmtilegt, þú varst líka elskuð af krökkunum þar. Austur í Biskupstungum eydd- um við fjölskyldan ófáum stund- um saman í sumarbústaðnum ykkar Birkihól, það var einskon- ar hreiður fjölskyldunnar, stund- um kom ég bara ein með rútunni og var sett út uppi á vegi, þetta voru dýrmætar stundir. Jólaboð- in hjá ykkur afa eru ofarlega í huga, þá hittumst við fjölskyldan og afi spilaði jólalög á píanóið og héldum stundum bara lítið jóla- ball fyrir okkur. Þið afi snertuð líf svo margra og fenguð jafnan orð á ykkur sem „mamma og pabbi eða amma og afi“ vina ykk- ar á öllum aldri, svo einlæg og hlý voruð þið. Þið þekktuð svo margt fólk enda mjög dugleg að taka þátt í félagsstörfum. Afi í Karlakór Reykjavíkur í tugi ára og þar lést þú ekki þitt eftir liggja og stjórnaðir kvenfélaginu af krafti og það voru ófáir bas- ararnir og flóamarkaðirnir sem ég fór með þér og fékk að taka þátt í. Þið afi ferðuðust um allan heim og þar á meðal til Kína og ég man hvað mér þótti það merkilegt því það var nú ekkert endilega land sem fólk var að ferðast til fyrir svona mörgum árum. Þú gekkst í gegnum áföll í þínu lífi eins og við flest en æðru- leysið var ávallt það sem ein- kenndi þig gagnvart því, þú misstir unga systur þína og svo eru bræður þínir þrír látnir, þannig að þú varst eina systkinið sem eftir var á lífi. Þegar mamma dó var eins og eitthvað hafið dáið innra með þér enda ekki hægt að setja sig í þau spor að missa og lifa barnið sitt, en nú hafið þið örugglega öll fundið hvort annað á ný. Síðustu ár höf- um við fjölskyldan verið svo heppin að fá að hafa ykkur hjá okkur á jólunum og það var okk- ur mikils virði og það verður skrítið að hafa þig ekki með okk- Erla Þorvaldsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.