Morgunblaðið - 17.03.2014, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 17.03.2014, Qupperneq 22
22 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. MARS 2014 Ég er enn í fullu fjöri og þakka það m.a. útiveru og hreyfingu.Hef ánægju af því að ganga góðan hring hér um bæinnþrisvar til fjórum sinnum í viku. Þetta eru fimm kílómetrar og klukkutímagangur. Hins vegar fer ég fjölfarnar slóðir, kannski af ásettu ráði, til þess að hitta fólk, fræðast og spjalla. Ferðirnar dragast því stundum á langinn,“ segir Grétar H. Jónsson á Selfossi sem er 67 ára í dag. Grétar er Rangæingur að uppruna, fæddur á Brúnum undir Vest- ur-Eyjafjöllum. Þar bjó endur fyrir löngu sá frægi Eiríkur sem tók mormónatrú og flutti til nýrra heimkynna í Saltvatnsdalnum í Utah í Bandaríkjum. „Auðvitað kynntist ég sögunni af Eiríki sem strákur, en annars var ég aðeins nokkurra mánaða þegar foreldrar mínir fluttu út í Flóa og sjö ára kom ég á Selfoss,“ segir Grétar sem er tré- smiður og vann í áratugi hjá Sigfúsi Kristinssyni byggingameistara á Selfossi. Í dag starfar hann á verkfræðistofu, meðal annars við gerð eignaskiptasamninga. „Þátttaka í félagsmálum var þroskatími. Ég var í forystu stéttar- félags og sex ár í bæjarstjórn. Sveitarstjórnarmál gáfu mér nýja sýn á tilveruna. Fólk leitaði til bæjarfulltrúa með mál oft mjög persónu- legs eðlis og af því lærði ég að máltækið um að hver sé sinnar gæfu smiður á ekki alltaf við,“ segir Grétar sem er í sambúð með Jónínu Sigrúnu Bjarnadóttur. sbs@mbl.is Grétar Jónsson er 67 ára í dag Morgunblaðið/Sigurður Bogi Smiður „Af því lærði ég að máltækið um að hver sé sinnar gæfu smiður á ekki alltaf við,“ segir Grétar Jónsson á Selfossi. Félagsmálin voru þroskandi tími Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Reykjavík Ólafur Árni fæddist 19. nóvember kl. 8.32. Hann vó 3.384 g og var 52 cm langur. Foreldrar hans eru Hildur Árnadóttir og Ari Björn Ólafsson. Nýir borgarar Reykjavík Erla Dís fæddist 15. júní kl. 3.31. Hún vó 3.850 g og var 51 cm löng. Foreldrar hennar eru Ásgerður Alda Friðbjarnardóttir og Haraldur Björnsson. Í sólfur Gylfi fæddist í húsi for- eldra sinna á Hvolsvelli 17.3. 1954 en þau voru í hópi frum- byggja kauptúnsins: „Mamma ætlaði fyrst að dvelja á Hvolsvelli í þrjá mánuði. En hún verður níræð í haust og hefur átt heima við sömu götuna hér í 72 ár.“ Ísólfur Gylfi var í sveit á sumrin í Hallgeirsey í Landeyjum hjá Jónu Vigdísi Jónsdóttur og Jóni E. Guð- jónssyni: „Þau hjónin gerðu heiðar- lega tilraun til þess að gera mig að manni og Jón smitaði mig svo af hljómsveitarbakteríunni sem gras- serar enn í okkur báðum. Það er að vísu talsverður aldursmunur á okkur vinunum, en tónlistin hefur þann kost að sameina kynslóðirnar.“ Synti Guðlaugssundið, 6,1 km Síðan tók við brúarvinna í flokki Huga Jóhannessonar í fjögur sumur: „Það var dásamlegur tími. Við sváf- um í tjöldum og þvoðum okkur áður en farið var á sveitaböllin.“ Ísólfur Gylfi stundaði nám í Hvols- skóla á Hvolsvelli, var hann einn vet- Ísólfur Gylfi Pálmason, sveitarstjóri Rangárþings eystra – 60 ára Fríður hópur Hér eru saman komin börn, tegndabörn og barnabörn Ísólfs Gylfa og Steinunnar Óskar. Síkátur Sunnlendingur Á faraldsfæti Ísólfur með konu sinni, Steinunni Ósk Kolbeinsdóttur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is                                   

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.