Morgunblaðið - 17.03.2014, Side 23

Morgunblaðið - 17.03.2014, Side 23
ur í Núpsskóla í Dýrafirði, því næst í Kennaraskóla Íslands, þá Íþrótta- kennaraskóla Íslands á Laugarvatni og loks í Idrætshöjskolen í Sönder- borg í Danmörku: „Sundhópurinn Vinir Dóra í Vesturbæjarlauginni þar sem ég er óvirkur meðlimur, og pottavinir í sundlauginni á Hvolsvelli, fullyrða að ég hafi fengið íþrótta- kennararéttindin í Bréfaskóla SÍS og ASÍ. Ég vona að ég hafi sannað það í síð- ustu viku þegar ég synti 6,1 km í Guð- laugssundinu á Hvolsvelli, að prófið er ekta.“ Ísólfur Gylfi kenndi í Grunnskól- anum í Ólafsvík, við Gagnfræðaskól- ann í Mosfellssveit og við Samvinnu- skólann á Bifröst 1981-87. Hann var starfsmannastjóri í KRON og Mikla- garði, sveitarstjóri á Hvolsvelli 1990- 95, alþingismaður Suðurlands fyrir Framsóknarflokinn 1995-2003, sveit- arstjóri Hrunamannahrepps með að- setur á Flúðum 2003-2010 en var þá kjörinn í sveitarstjórn Rangárþings eystra og hefur verið sveitarstjóri þar síðan. Ísólfur Gylfi hefur spilað í hljóm- sveitum, sungið í kórum, setið í fjölda stjórna, m.a. verið formaður Upplýs- ingamiðstöðvar Reykjavíkur, var varaformaður Ferðamálaráðs, for- maður Orkuráðs og Orkusjóðs og hefur setið í stjórn Íslandspósts. Hann var formaður Vestnorræna ráðsins, formaður Íslandsdeildar Norðurlandaráðs og sat þing Samein- uðu þjóðanna í New York svo eitt- hvað sé nefnt. Áhugamál Ísólfs Gylfa snúast um tónlist, útivist, íþróttir og skógrækt, en hann er skógarbóndi í frístundum, ásamt konu sinni, og hefur nýlega snúið sér að hænsnarækt og tekur þátt í varðveislu íslenska landnáms- hænsnastofnsins. Fjölskylda Eiginkona Ísólfs Gylfa er Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir, f. 8.7. 1957, skóg- arbóndi, kennari og verkefnastjóri hjá Fræðslunetinu – símenntun á Suðurlandi. Foreldrar hennar: Jóna Birta Óskarsdóttir, f. 16.10. 1934, d. 1.6. 2008, verslunarmaður í Ólafsvík og Reykjavík, og Kolbeinn Ólafsson, f. 7.12. 1934, d. 17.8. 1976, húsgagna- smiður í Reykjavík. Börn Ísólfs Gylfa og Steinunnar Óskar eru Pálmi Reyr Ísólfsson, f. 8.10. 1979, viðskiptafræðingur en kona hans er Bergrún Björnsdóttir viðskiptafræðingur og dóttir þeirra Kolbrún Myrra Pálmadóttir, f. 2010; Margrét Jóna Ísólfsdóttir, f. 12.9. 1984, viðskiptafræðingur en maður hennar er Þórður Freyr Sigurðsson, viðskiptafræðingur og eru börn þeirra Þórdís Ósk Þórðardóttir, f. 2008, og Þórunn Metta Þórðardóttir, f. 2012; Kolbeinn Ísólfsson, f. 16.4. 1986, vöruhönnuður en kona hans er Berglind Ýr Jónasdóttir, sérfræð- ingur á flugrekstrarsviði WOW air; Birta Ísólfsdóttir, f. 12.7. 1988, fata- hönnuður. Systur Ísólfs Gylfa eru Guðríður Björk Pálmadóttir, f. 5.3. 1945, sölu- maður í Reykjavík; Ingibjörg Pálma- dóttir, f. 18.2. 1949, hjúkrunarfræð- ingur og fyrrv. ráðherra og alþingismaður. Foreldrar: Ísólfs Gylfa: Pálmi Eyj- ólfsson, f. 22.7. 1920, d. 12.10. 2005, sýslufulltrúi á Hvolsvelli, og Margrét Jóna Ísleifsdóttir, f. 8.10. 1924, fyrrv. tryggingafulltrúi á Hvolsvelli. Úr frændgarði Ísólfs Gylfa Pálmasonar Ísólfur Gylfi Pálmason Bóel Erlendsdóttir húsfr. í Auraseli Kristján Jónsson b. í Auraseli Ingibjörg Kristjánsdóttir húsfr. í Miðkoti Margrét Jóna Ísleifsdóttir húsfr. á Hvolsvelli Ísleifur Sveinsson smiður í Miðkoti í Fljótshlíð Sveinn Jónsson b. í Miðkoti Inveldur Þórðardóttir húsfr. í Efri-Hreppi Magnús Magnússon b. í Efri-Hreppi í Skorradal Guðríður Magnúsdóttir rjómabússtýra Margrét Magnúsdóttir húsfr. í Rvík Þórunn Elfa Magnúsdóttir skáldkona Megas Guðríður Björk Pálmadóttir sölumaður í Reykjavík Ingibjörg Pálmadóttir hjúkrunarfr. og fyrrv. alþm. og ráðherra Eyjólfur Gíslason starfsm. Reykjavíkurborgar Halldór Gíslason bóndi Gísli Halldórsson leikari Pálmi Eyjólfsson sýslufulltrúi á Hvolsvelli Gísli Eyjólfsson b. í Dalbæ í Flóa og járnsm. í Rvík Margrét Guðnadóttir húsfr. í Miðkoti Ísleifur Guðnason b. í Kirkjubæ í Eyjum Matthildur Ísleifsdóttir húsfr. í Eyjum Ísleifur A. Pálsson framkvæmdastj. í Rvík dr. Ólafur Ísleifsson hagfræðingur Sigríður Halldórsdóttir húsfr. í Dalbæ og í Rvík Ragnheiður Halldórsd. húsfr. í Hólmahjáleigu í Landeyjum Katrín Jónasdóttir húsfr. á Núpi í Fljótshlíð Sigurður Guðmundsson forstj. á Selfossi Vigfús Halldórsson í Frambæjarhúsi á Eyrarbakka Kristinn Vigfússon húsasmíðam. á Selfossi Guðmundur Kristinsson rithöfundur á Selfossi ÍSLENDINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. MARS 2014 Arndís Björnsdóttir leikkonafæddist í Reykjavík 17.3.1895. Hún var dóttir Björns Jenssonar kennara, og k.h., Louise H. Svendsen húsfreyju. Arndís útskrifaðist frá Kvenna- skólanum í Reykjavík. Hún var 14 ára er skólinn flutti úr Thorvalds- senstræti 2 (síðar NASA) og í núver- andi húsnæði við Fríkirkjuveg. Hún var þó nátengdari öðru skóla- húsi sem var henni alltaf hugstætt. Það var skólahús MR. Þar var hún fædd og þar ólst hún upp fyrstu árin, en faðir hennar var yfirkennari við skólann. Björn var sonur Jens Sig- urðssonar, rektors við sama skóla, og Ólafar, dóttur Björns Gunnlaugs- sonar stærðfræðings sem einnig var yfirkennari við sama skóla. Bróðir Jens var Jón Sigurðsson forseti sem var alþingismaður er Alþingi var háð í menntaskólahúsinu og þar lét hann hin frægu orð falla er hann mót- mælti fundarsköpum á Þjóðfund- inum 1851. Louise, móðir Arndísar, var dóttir Henriks Svendsen, kaupmanns á Eskifirði, og Ágústu Svendsen sem var fyrsta konan til að stofna og reka verslun í Reykjavík. Arndís hóf ung störf við hann- yrðaverslun ömmu sinnar, Verzlun Augustu Svendsen í Reykjavík, vann við hana í 30 ár, síðast sem eigandi og verslunarstjóri en seldi versl- unina 1950. Auk þess dvaldi hún í Bandaríkjunum um skeið að námi loknu. Arndís hóf leikferil sinn hjá Leik- félagi Reykjavíkur 1922, var einn helsti leikari félagsins fram að stofn- un Þjóðleikhússins, 1950, og lék þar til 1964 er hún lét af störfum fyrir aldurs sakir. Hún var án efa, einn fremsti kvenleikari þjóðarinnar á sínum ferli. Þekktasta hlutverk Arn- dísar sem hún lék reyndar nokkrum sinnum, er kerlingin hans Jóns í Gullna hliðinu. Arndís var heiðursfélagi Félags íslenskra leikara og Leikfélags Reykjavíkur og var sæmd heið- ursmerki Finnska leikarasambands- ins eftir velheppnaða leikferð til Finnlands, árið 1948. Arndís lést 19.5. 1969. Merkir Íslendingar Arndís Björnsdóttir 90 ára Ragnheiður Bjarnason 85 ára Guðbjörg Benediktsdóttir Guðný Magnúsdóttir Gunnar Hjálmar Jónsson Hermann Einarsson 80 ára Helga Ágústsdóttir Hörður Sigtryggsson Valgerður Þorbjarnardóttir 75 ára Andrés Kristinsson Guðrún V. Sigurðardóttir Jóhannes Björnsson Jón Adolf Guðjónsson Sigríður Þórarinsdóttir 70 ára Guðný Pála Rögnvaldsdóttir Lúðvík R. Kemp Nanna Jónsdóttir Þóranna Þórarinsdóttir 60 ára Árni Þór Traustason Ása Gígja Jón Bjartmar Sæmundsson Jón Wayne Wheat Sigríður Ósk Jónsdóttir Þuríður Erna Geirlaugsdóttir 50 ára Aðalsteinn E. Sigurðsson Björgvin Jónsson Björn Arnar Rafnsson Elísabet Halldóra Árnadóttir Gunnar Þór Friðriksson Hulda Hörn Karlsdóttir Indro Indriði Candi Ívar Sigurgíslason Jóna Karen Jensdóttir Kristbjörg Kemp Lene Kristina Grönholm Manuela Gomes Atanaia Soffía Magnúsdóttir Þóra Guðmundsdóttir 40 ára Ásta Björk Hermannsdóttir Elín Sigríður Grétarsdóttir Ester Jóhannsdóttir Fríða Birna Andrésdóttir Gísli Reyr Stefánsson Ísleifur Birgir Þórhallsson Kolbrún Vala Jónsdóttir Kristján Ragnar Þorsteinsson Mariusz Napiorkowski Marzena Wioletta Kapera Sveinn Guðjónsson Valdís Arnardóttir 30 ára Aron Már Albertsson Emilia Bialobrzeska Eygló Björk Pálmarsdóttir Katarzyna Kapszukiewicz Lára Kristín Brynjólfsdóttir Magnús Karl Gylfason Marlena Paulina Wysocka Ragnar Þór Bjarnason Sigurður Ingason Tomasz Marcin Dreksa Til hamingju með daginn 30 ára Þórhallur ólst upp í Sandgerði, er þar bú- settur og er nú að ljúka námi í flugvirkjun. Maki: Brynhildur Ösp Þorsteinsdóttir, f. 1984, húsfreyja. Börn: Gísli Steinn, f. 2004, og María Lilja, f. 2007. Foreldrar: Helga Bylgja Gísladóttir, f. 1964, deild- arstjóri hjá IGS, og Gísli Þór Þórhallsson, f. 1962, flugvirki. Þórhallur Gíslason 40 ára Lilja ólst upp í Neskaupstað, býr þar og er afgreiðslustjóri hjá Íslandspósti. Maki: Hafsteinn Már Þórðarson, f. 1967, starfs- maður Nýherja. Börn: Hjörtur Logi, f. 1996; Heiðar Jökull, f. 2000, og Júlía Björg, f. 2002. Foreldrar: Margrét Björg- vinsdóttir, f. 1944, og Gunnlaugur Sigurðsson, f. 1937, d. 2006. Lilja Salný Gunnlaugsdóttir 30 ára Barbara ólst upp í Hrísey, er nú búsett á Ak- ureyri, vann á leikskóla þar og er að hefja fæðingarorlof. Maki: Erling Tom Erlings- son, f. 1978, vélamaður hjá Akureyrarbæ. Foreldrar: Erna Erlings- dóttir, f. 1955, sjúkraliði við öldrunarheimilið Hlíð, og Hjörtur Gíslason, f. 1952, rafvirki hjá Rafeyri. Þau eru búsett á Akureyri. Barbara Hjartardóttir Hægt er að senda mynd og texta af nýjum borgara eða brúðhjónum af slóðinni mbl.is/islendingar eða á netfangið islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón Kvarnir/Brimrás/Pallar ehf | Akralind 8 | 201 Kópavogur | sími 564 6070 fax 564 6071 | kvarnir@kvarnir.is | www.kvarnir.is | www.pallar.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.