Morgunblaðið - 17.03.2014, Qupperneq 32
MÁNUDAGUR 17. MARS 76. DAGUR ÁRSINS 2014
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Rannsaka flughermi flugstjórans
2. Stórsigur Liverpool á Old Trafford
3. „Lífið er ekki alltaf auðvelt“
4. Síðasta verkfall stóð í átta vikur
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Lúðrasveit Hafnarfjarðar heldur
tónleika í Hörpu á morgun, um er að
ræða þá fimmtu og síðustu í tón-
leikaröðinni Lúðraþytur í Hörpu.
Flensborgarkórinn mun syngja nokk-
ur lög með lúðrasveitinni.
Lúðrasveit og
Flensborgarkórinn
Pater Jón
Sveinsson S.J.
Kennimaður með
brostna köllun?
nefnist erindi sem
Gunnar F. Guð-
mundsson heldur
í dag í Aðalbygg-
ingu Háskóla Ís-
lands. Hann ritaði
ævisögu Jóns sem nefnist Nonni. Rit-
höfundurinn Jón Sveinsson er þekkt-
ur bæði hér á landi og víðar um lönd
fyrir bækur sínar um ævintýradreng-
inn Nonna, en þær eru að mestu leyti
byggðar á ævi hans sjálfs.
Kennimaður með
brostna köllun?
Félag viðskiptafræðinga og hag-
fræðinga (FVH) hefur í tólfta sinn
valið viðskiptafræðing eða hagfræð-
ing ársins. FVH valdi Birnu Einars-
dóttur, bankastjóra Íslandsbanka,
sem viðskiptafræðing
ársins 2013. Við valið
horfði dómnefnd
meðal annars til þess
að Birna hefur leitt
uppbyggingu Íslands-
banka frá endur-
reisn bankans í
lok árs 2008.
Birna viðskiptafræð-
ingur ársins 2013
Á þriðjudag Vaxandi austanátt, 8-13 m/s síðdegis en 13-18 m/s
syðst. Fer að snjóa á Suðurlandi en yfirleitt þurrt fyrir norðan.
Frost 0 til 10 stig, kaldast í innsveitum á Norðausturlandi.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðan og norðvestan 5-10 m/s. Dálítil él
fyrir norðan og austan, en bjartviðri á Suður- og Suðvesturlandi.
Frost 0 til 10 stig, kaldast á norðanverðu landinu.
VEÐUR
HK lék sama leik og í fyrra
og varð bikarmeistari bæði í
karla- og kvennaflokki í
blaki. Kópavogsliðið vann
Aftureldingu úr Mosfellsbæ
í úrslitaleik kvenna og Þrótt
úr Reykjavík í úrslita-
leik karla en báðir
leikirnir fóru fram í
Laugardalshöllinni í
gær. Sextán ára strákur
úr HK var valinn besti
leikmaðurinn í karla-
leiknum. »2
HK aftur tvöfald-
ur bikarmeistari
Kristján Arason er kominn til starfa
hjá FH-ingum á nýjan leik og verður í
þjálfarateymi karlaliðs félagsins í
handknattleik það sem eftir lifir Ís-
landsmótsins. „Einar Andri kom að
máli við mig og bar þessa hugmynd
upp við mig
og ég ákvað
að slá til.
Mér rann
blóðið til
skyld-
unnar
enda
hefur
FH
skipað
stóran
sess í
mínu lífi og
fjölskyld-
unni,“ segir
Kristján við
Morgun-
blaðið. »1
Kristján til starfa hjá
FH-ingum á nýjan leik
Skautafélag Akureyrar á alla
möguleika á að tryggja sér Ís-
landsmeistaratitilinn í íshokkí
karla eftir að hafa unnið stórsigur
á Birninum, 6:1, í Egilshöllinni í
gærkvöld. Það var annar úrslita-
leikur liðanna og staðan í einvíg-
inu er 2:0 fyrir norðanmenn sem
þar með geta orðið meistarar á
heimavelli annað kvöld. »8
Titillinn blasir við
Akureyringum
ÍÞRÓTTIR | 8 SÍÐUR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Japönum þóttu íslensku fiskiboll-
urnar frumlegur matur, bragðgóðar,
einfaldar og fljótlegt að útbúa þær.
Sömuleiðis kunnu þeir vel að meta ís-
lenska kjötsúpu,“ segir Guðrún
Harðardóttir. Þau Stefán Lárus
Stefánsson, eiginmaður hennar, sem
var sendiherra Íslands í Japan, fluttu
heim frá landi hinnar rísandi sólar
fyrir nokkrum misserum, eftir góðan
og mjög lærdómsríkan tíma eystra.
Í þágu lands og þjóðar
Verkefnin í þágu lands og þjóðar
sem þau hjón sinntu ytra voru marg-
vísleg. Eitt það óvenjulegasta var þó
líklega að Guðrún var fengin í aðal-
hlutverkið þegar japanskt forlag
ákvað að gefa út bók með upp-
skriftum að réttum. Bókin, sem heit-
ir Ambassador’s Table sem í laus-
legri þýðingu gæti útlagst sem
Veisluborð sendiherrans, kom út
2012 og hefur þegar selst í um 20.000
eintökum.
„Það sem fór í bókina er þekking
og kunnátta sem ég hef viðað að mér
frá því að ég byrjaði sem smástelpa
að baka með pabba á Akranesi og
elda með ömmu á Hellissandi. Ís-
lensk matargerð er það sem ég kann
en hef aldrei lært,“ segir Guðrún um
tilurð bókarinnar. Upphaf þess
var að japanska útgáfu-
fyrirtækið Azur var með
Íslandsumfjöllun í tímariti
sínu. Það óskaði atbeina
sendiráðsins við ýmis atriði
og var Guðrún fengin í hlut-
verk gestakokks, sem svo
mætti kalla. Þetta vatt
upp á sig, því umfjöllun í
blaðinu mæltist vel fyr-
ir. Útgáfan ákvað því að
gefa út áðurnefnda bók
með íslenskum upp-
skriftum og aftur var
Guðrún í aðalhlutverki.
Í sendiráði Íslands í Tokyo er
sendiherrann eini útsendi starfsmað-
urinn en auk þess starfar þar við-
skiptafulltrúi, sem er innfæddur
Japani.
Humar, skyr og lambakjöt
„Aukaverkin komu svolítið í minn
hlut, hvort sem það var í eldhúsinu, á
Íslandskynningum eða öðru,“ segir
Guðrún. Gerð bókarinnar segir hún
hafa tekið um einn mánuð en gang-
urinn var sá að hún útbjó matinn yfir
daginn og svo voru herlegheitin
mynduð í framhaldinu.
„Við fengum fisk frá Icelandic, ís-
lenskur humar fékkst í vestrænni
matarbúð og stundum var hægt að fá
íslenskt lambakjöt. Skyr fékkst frá
Skyr-Japan svo þetta varð sitt lítið af
hverju,“ segir Guðrún sem einnig var
með uppskriftir að pönnukökum,
kreppubrauði og ofnsteiktum laxi svo
eitthvað sé nefnt.
Íslensk veisla austur í Japan
Uppskriftir
sendiherrafrúar í
vinsælli matarbók
Morgunblaðið/Golli
Matur Hjónin Guðrún B. Harðardóttir og Stefán L. Stefánsson sendiherra með íslensku uppskriftabókina.
Matarhefð Íslendinga og Japana
segir Guðrún vera mjög ólíka. Gildi
það raunar um alla menningu og
siði þjóðanna. „Matargerð Jap-
ana hefur mótast af alda-
gömlum hefðum þar sem
áhrifa gætir frá gervallri
Asíu. Þegar japanskar
húsmæður matbúa
hugsa þær fyrst
fyrir því að í
matnum séu þau
vítamín sem líkaminn þarf
og síðan verður þetta að líta
fallega út á disknum. Hinn
eiginlegi hversdagsmatur
Japana er til dæmis núðlusúpur,
hrísgrjón, djúpsteiktur matur og
fleira fljótgert. Sushi-réttir sem
við Íslendingar þekkjum vel er hins
vegar nánast bara sparimatur sem
kannski er á borðum fólks einu
sinni í mánuði,“ segir Guðrún sem
í Japan sótti námskeið hjá Hattori
sem er einn fremsti matreiðslu-
skólinn í Tokyo.
„Þar reyndi ég að læra það sem
ég kunni ekki. Ég á eftir að þreifa
mig áfram með þá þekkingu sem
ég aflaði mér á námskeiðinu, en
eitt af mörgu sem ég lærði af Jap-
önum er að sýna hógværð í öllu.“
Vítamín á fallegum diski
ÓLÍKAR HEFÐIR ÞJÓÐANNA Í MAT OG MENNINGU
Japan
Gleði í fjar-
lægu landi