Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.03.2014, Blaðsíða 13
16.3. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13
Hjalti Hafþórsson vinnur í mötu-
neyti á Reykhólum þar sem eldað er
ofan í nemendur grunn- og leikskóla,
auk íbúa dvalar- og hjúkrunarheim-
ilisins Barmahlíðar. Öllum frístund-
um ver hann hins vegar við smíðar
tilgátubáta; báta eins og líklegt er
talið að Íslendingar hafi notað fyrr á
tíð.
Sá fyrsti var Vatnsdalsbáturinn,
sem nú er til sýnis á minjasafninu á
Hnjóti en Hjalti getur sér til um að
slíkur bátur hafi verið notaður fljót-
lega eftir landnám. Sá næsti er nán-
ast tilbúinn. Það er Króka-Refur, en
sá var mikill völundur og skipa-
smiður og segir frá honum í Króka-
Refs sögu. Báturinn verður sjósett-
ur í vor.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðu-
neytið veitti Hjalta tvær milljónir
króna í styrk í fyrra og aftur núna
vegna verkefnisins, sem hann kallar
Horfin verkþekking. Fyrir tveimur
árum fékk hann styrk frá mennta-
og meningarmálaráðuneyti.
Þriðji og síðasti báturinn verður
allt öðru vísi en hinir fyrri. „Ég tek
stórt upp í mig með þeim þriðja: á
teikniborðinu er skip eins og mögu-
lega var notað í millilandasiglingum
á miðöldum, 15 metra langt, sem ég
vinn á sömu nótum og hin tvö. Ég
hef reynt að finna bæði teikningar
og ritaðar heimildir til að hægt sé að
leiða að því líkur hvernig slíkur bát-
ur hafi verið. „Ég reyni að tileinka
mér vinnubrögð þessa tíma og það
er gríðarlega skemmtilegt.“
REYKHÓLAR
Hjalti Hafþórsson við Vatnsdalsbát-
inn sem nú er á minjasafninu á Hnjóti.
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Króka-Refur
langt kominn
Hinn daglegi leiðangur Emils Guð-
jónssonar landpósts er 290 kílómetr-
ar. Hann leggur upp í býtið frá Sel-
fossi og hefur viðkomu á nokkrum
stöðum í Flóanum. Fer á hvern bæ á
Skeiðum og Gnúpverjahreppi, alla
leið að Búrfellsvirkjun í Þjórsárdal.
Á bakaleiðinni tekur hann hring um
lágsveitir Flóans.
„Fimmtudagsskammturinn er
stór, þá kemur auglýsingapóstur,
héraðsblöðin og fleira. Svo kemur
kúfur gluggabréfa um mánaða-
mótin,“ segir Emil sem hefur séð um
póstdreifingu á þessu svæði frá
1981. Raunar verið viðloðandi starf-
ið, sem hann tók nánast í arf að
tengdaföður sínum látnum, frá 1978.
Hefur alltaf séð um sama dreifing-
arsvæðið og er því aðstæðum vel
kunnugur.
„Færðin í vetur hefur verið góð.
Reyndar lagðist hálka á vegi strax í
haust og hefur hún haldist yfir síðan.
Síðan koma illviðraskot inn á milli og
auðvitað er skafrenningurinn þreyt-
andi, að ég tali nú ekki um blindhríð
þegar himinn og jörð renna saman í
eitt í birtunni. Þá er ekkert að gera
nema fara hægt og lesa sig áfram
milli stika,“ segir Emil.
Starfsins vegna ekur hann um 75
þúsund kílómetra á ári. Er á fólksbíl
þegar færðin er góð, en yfir veturinn
er Hyundai Galloper traustur ferða-
félagi. „Ég hlusta mikið á Rás 1 í
bílnum, næ morgunleikfimi og mið-
degissögu,“ segir Emil sem tekur
sér smápásu í hádeginu. Nær þá í
bitaboxið, þar sem hann er með
smurt brauð með osti að heiman, og
djús á brúsa. sbs@mbl.is
SUÐURLAND
Landpóstur með
smurt að heiman
Pósturinn Emil og ferðafélaginn Hyundai Galloper sem reynist vel í vetrarfærð.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi Margir vita að lambakóte-letta er herramanns-matur, helst steikt upp
úr miklu smjöri og hjúpuð raspi.
Haraldur Bóasson, vert á veitinga-
staðnum Dalakofanum á Laugum,
Halli Bó, greip tækifærið þegar
það gafst og blés til kótelettuveislu
sem haldin er vor og haust og orð-
in vinsæl.
Dalakofann reka Halli og eig-
inkona hans, Þóra Fríður Björns-
dóttir, í gamla húsi Kaupfélags
Þingeyinga í „þéttbýlinu á Laug-
um“ eins og hann kýs að taka til
orða og hefur gaman af.
„Það voru starfsmenn hjá
Laugafiski sem áttu í raun hug-
myndina. Þeir spurðu hvort ég
vildi ekki bjóða upp á kótelettur
eitthvert kvöldið og eftir að hafa
hugsað málið smástund hafði ég
samband við kunningja minn úr
Kótelettufélagi Íslands, sem er
með höfuðstöðvar í Reykjadal. Það
varð úr að við sammæltumst um að
félagsmenn kæmu og sæju um
eldamennskuna.“
Fyrsta veislan var haustið 2012,
endurtekin að vori og hausti 2013
og sú fjórða var haldin á dögunum.
„Kótelettufélagið sá um matseldina
í tvö fyrstu skiptin en ég ákvað svo
að prófa þetta sjálfur þótt vissu-
lega væri gaman að hafa þá með.“
Haraldur er ekki menntaður
kokkur. „Ég er náttúrubarn!“ segir
hann. „Hef alltaf haft gaman af því
að elda og þetta er ekki mjög flók-
ið. Ég hef látið Norðlenska á
Húsavík velja handa mér hryggi og
saga þá sérstaklega; þeir þurfa að
vera af stórum lömbum, dálítið
feitir og hver kóteletta um það til
tomma á þykkt. Annars er smjör-
ið lykilatriðið við matseldina; það
má alls ekki spara smjörið þegar
kjötið er steikt því annars verður
það of þurrt.“
Gestir komu víða að á síðasta
kótelettukvöld, sumir alla leið
norðan úr Kelduhverfi. „Ég stefni
á að þetta verði fastur liður vor og
haust,“ segir Halli. Meðlæti er
sulta, rauðkál og grænar baunir,
auk kartaflna, og til að leggja enn
frekar áherslu á gamla tímann var
eftirrétturinn ís og blandaðir
ávextir úr niðursuðudós.
LAUGAR Í REYKJADAL
Kótelettan hafin til vegs
og virðingar á ný
HALLI BÓ VERT Í DALAKOF-
ANUM Á LAUGUM HELDUR
KÓTELETTUVEISLU TVISVAR
Á ÁRI OG HEFUR SAM-
KOMAN SLEGIÐ Í GEGN.
Ábót á kræsingarnar borin fram. Auður Katrín Víðisdóttir, Eydís Helga Pét-
ursdóttir, Haraldur Bóasson vert og dóttir hans Ásdís Inga Sigfúsdóttir.
Ljósmynd/Þóra Fríður Björnsdóttir
Kótelettur Halla Bó með tilheyrandi.
Fjórir af fimm í nýrri stjórn Íslandspósts eru Akureyringar; Eiríkur
Haukur Hauksson, Preben Jón Pétursson og Jón Ingi Cæsarsson
búa nyrðra og Svanhildur Hólm Valsdóttir, aðstoðarmaður fjár-
málaráðherra, er einnig í stjórninni. Vikudagur bendir á þetta.
Akureyrarpósturinn
Grindavíkurbær fagnar 40 ára kaupstaðarafmæli í ár og
óskar eftir tilnefningum bæjarbúa um heiðursviðurkenn-
ingar. Þær getur fólk hlotið fyrir mikilvægt framlag til sam-
félagsins, verulega umfram venjubundin störf.
Hvern skal heiðra?
SEX FLUGLEGGIR MILLI ÁFANGASTAÐA INNANLANDS
Flugfélag Íslands mælir með Flugfrelsi ef þú átt oft erindi út á land eða til
borgarinnar. Nýttu þér frelsið til að fljúga innanlands á hagstæðari kjörum.
FLUGFELAG.IS
SEX FYRIR 68.100
Ekkert breytingarg jald
Ekkert afbókunarg jald
Takmarkað sætaframboð
Hvert Flugfrelsi gildir fyrir
einn farþega
Bókanlegt í síma 570 3030
is
le
ns
ka
/si
a.
is
FL
U
68
17
9
03
’1
4