Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.03.2014, Blaðsíða 50
F
immtudaginn síðastliðin voru 50
ár liðin frá því að sextíu þjóð-
kunnir Íslendingar sendu Alþingi
áskorun um að takmarka sendi-
styrk sjónvarpsstöðvarinnar á
Keflavíkurflugvelli. Á þeim tíma voru það
íbúar við herstöðina sjálfa sem og á höf-
uðborgarsvæðinu sem náðu útsendingum en
þó var það síður en svo að allir ættu sjón-
varpstæki svo ekki voru það allir sem sáu
bandarískt barnaefni og kúrekamyndir. En
það var vinsælt að skreppa í heimsókn til
nágranna og ættingja sem áttu eitt slíkt
tæki.
Fjórum árum eftir mótmælabréfið, í nóv-
ember 1968, áttu landsmenn 27.039 tæki.
Íslendingar voru þá um 200.000 Var í um-
fjöllun sérstaklega tekið fram að fimmti
hver Vestmannaeyingur ætti sjónvarp.
Kanasjónvarpinu var lokað árið 1974,
það er að segja, útsendingar voru tak-
markaðar við Keflavík og voru Íslendingar
þá búnir að eignast eigin stöð. Amerískt
sjónvarpsefni hefur þó engu að síður allt
frá þessum tíma verið ráðandi og þarlend-
ar kvikmyndir ráðandi í íslenskum bíó-
húsum.
Ósjaldan er talað um Ísland sem litla
Ameríku og að bandaríska þjóðin og vera
varnarliðsins hafi haft mikil áhrif á land
og þjóð. Á marga vegu er ljóst að svo er
en ekki síður hefur menning vestanhafs
áhrif hér á landi í gegnum sjónvarp og
internetið.
Sunnudagsblað Morgunblaðið leitaðist við
að skoða nokkra afkima íslenskrar menn-
ingar og hvort og hvernig Ameríka hefði
haft áhrif.
Er Ameríka
hér?
TÍSKA, ARKITEKTÚR, MATUR OG NEYSLA, JAFNVEL
LÖGFRÆÐISTÖRF. AMERÍKA HEFUR STUNDUM MINNA,
STUNDUM MEIRA, HAFT ÁHRIF Á LAND OG ÞJÓÐ.
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
„Vér undirritaðir alþingiskjósendur teljum
á ýmsan hátt varhugavert, auk þess sem
það er vansæmandi fyrir Íslendinga sem
sjálfstæða menningarþjóð, að reka hér á
landi sjónvarpsstöð, er nái til meirihluta
landsmanna. Með stofnun og rekstri ís-
lenzks sjónvarps teljum vér, að ráðizt sé í
svo fjárfrekt og vandasamt fyrirtæki með
örfámennri þjóð, að nauðsynlegt sé að
það mál fái þróazt í samræmi við vilja og
getu þjóðarinnar, án þess að knúið sé fram
með óeðlilegum hætti.
Af framangreindum ástæðum viljum
vér hér með skora á háttvirt alþingi að
hlutast til um, að heimild til rekstrar er-
lendrar sjónvarpsstöðvar á Keflavík-
urflugvelli sé nú þegar bundin því skilyrði,
að sjónvarp þaðan verði takmarkað við
herstöðina eina.“
Meðal annarra skrifuðu undir:
Séra Bjarni Jónsson vígslubiskup
Guðrún P. Helgadóttir, skólastjóri Kvennaskólans
Halldór Laxness rithöfundur
Helga Magnúsdóttir, formaður Kvenfélaga-
sambands Íslands
Klemens Tryggvason hagstofustjóri
Kristján Eldjárn, þáverandi þjóðminjavörður
Lára Sigurbjörnsdóttir, formaður Kvenréttinda-
félags Íslands
Páll Ísólfsson tónskáld
Sigurbjörn Einarsson biskup
Steingrímur Hermannsson, framkvæmdastjóri
Rannsóknaráðs og formaður Félags ungra
framsóknarmanna
Sveinn Einarsson leikhússtjóri
Tómas Guðmundsson skáld
Vigdís Jónsdóttir, skólastjóri Húsmæðra-
kennaraskóla Íslands
Úttekt
50 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.3. 2014
GRÆNU