Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.03.2014, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.03.2014, Blaðsíða 54
54 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.3. 2014 Viðtal Edda, hver myndirðu halda að væri uppáhaldssjónvarpsþátt- urinn hans? „Úff, ef það er ekki eitthvað um kóngafjölskylduna þá hlýt- ur það að vera Erfingjarnir. Hann er dramadrottning og hann hlýtur að hafa gaman af svona fjölskyldudrama.“ „Þetta er alveg rétt. Ég hefði reyndar nefnt House of Cards, þó með eiginlega alveg sama rökstuðningi og hún kom með.“ Guðfinnur, hvaða þáttur heldurðu að sé í mestu uppá- haldi hjá henni? „Mér finnst þetta rosalega erfið spurning. Jú, ætli hún horfi ekki bara á House of Cards líka. Hún er nefnilega svolítið lík henni Claire Und- erwood. Hún hefur gaman af svona ótuktarfólki og kvik- indisskap, þótt hún sé sjálf ekki þannig.“ „Já þetta er alveg hárrétt. Ég elska Claire og illmennin líka,“ segir Edda. Þá er það komið á hreint, Spilaborgin er í uppáhaldi hjá báðum en þau hafa þó ólíkan stíl við áhorfið. „Ég tæti þetta, horfi á marga þætti í einu gegnum Netflix,“ segir Edda. „Ég er svolítið gamaldags, finnst gott að eiga mína stund á mánudagskvöldum til að horfa,“ segir Guðfinnur. En hvernig myndi hann lýsa Eddu í þremur orðum? „Bráðgreind, stór- skemmtileg og röggsöm.“ En hún honum? „Vandvirkur og eldklár húmoristi.“ SPILABORGIN Í UPPÁHALDI HJÁ BÁÐUM É g hélt að hann væri svakalega formfastur. Það kom mér skemmtilega á óvart að hann er miklu fyndn- ari í eigin persónu heldur en ég hélt,“ segir Edda Hermannsdóttir um samstarfsfélaga sinn Guðfinn Sigurvinsson en saman munu þau stýra þættinum Góður dagur á nýrri sjónvarpsstöð, Miklagarði, sem fer í loft- ið laugardaginn 15. mars. Þátturinn verður á dagskrá kl. 11 á laugardagsmorgnum. „Ég var búinn að heyra af Eddu gegnum sameiginlega vini og það er eiginlega alveg furðulegt að við skyldum aldrei hafa hist fyrr en núna þegar við erum að fara saman af stað með þennan nýja þátt. Ég hélt að hún væri mjög alvörugefin týpa. Hún er reyndar A manneskja, en ég hélt að hún væri leið- inleg A manneskja,“ segir Guðfinnur og hlær. Upphaflegar hugmyndir þeirra um hvort annað hafa þó í engu staðist, enda segjast þau ná saman gegnum húmor og gleði sem þau vonast til að geta látið að einhverju leyti skína í gegn í þáttunum. Manneskjulegt sjónvarp „Okkur langar til að skapa vettvang í sjónvarpi þar sem fólk getur komið, verið afslappað, talað um allt mögulegt og verið svolítið manneskjulegt. Það vantar meiri gleði í íslenskt sjón- varp, finnst okkur. Maður heyrir mjög mikið um illdeildur á Alþingi, sjúkdóma og einhvers konar ógæfu fólks. Slíkar um- fjallanir eiga vissulega rétt á sér en það er annars konar líf í landinu. Það er til fullt af fólki sem hefur skemmtilegar skoð- anir og er að gera spennandi og áhugaverða hluti,“ segir Guð- finnur. Fyrst um sinn verður þáttur þeirra Eddu og Guðfinns eini eiginlegi þátturinn á sjónvarpsstöðinni en styttri innslög, bæði úr þættinum og annars staðar að, verða einkennandi fyrir dagskrána frá degi til dags. Sjónvarsstöðin sérhæfir sig í dægurmálum og umfjöllunum um vörur og þjónustu og er í loftinu allan sólarhringinn og efni hennar má sömuleiðis nálg- ast á vefsíðunni www.mikli.is og á Facebook. „Fólk á ekki bara að koma í viðtöl þar sem markmiðið er að þjarma að viðmælandanum og fletta ofan af einhverjum misgjörðum. Fólk á líka að koma í sjónvarpið til að ræða hugðarefni sín og hlæja. Þess vegna heitir þátturinn okkar „Góður dagur.“ Við viljum á laugardagsmorgnum leggja grunn að góðum degi og fólk fái hjá okkur allt í senn fjöl- breytta afþreyingu, skemmtun og fróðleik,“ segir Edda um nýja þáttinn. Hafa farið sömu leið gegnum lífið Guðfinnur starfaði á RÚV frá árinu 2005 og þar til í lok síð- asta árs, bæði á fréttastofu og sem stjórnandi Síðdegisútvarps Rásar tvö. Edda þreytti frumraun sína í sjónvarpi sem stjórn- andi Gettu betur en þeim þætti stýrði hún þrjá síðustu vetur samhliða störfum fyrir Viðskiptablaðið. Þótt leiðir þeirra hafi aldrei legið saman fyrr en nú hafa þau fetað svipaða braut á margan hátt allt frá unglingsaldri. „Við vorum bæði í Menntaskólanum á Akureyri og gegndum bæði embætti inspector scholae. Svo fórum við bæði í Há- skóla Íslands og vorum þar í háskólapólitíkinni. Ég var að vísu í Vöku en hún í Röskvu. Ég þarf að fara yfir það með henni hvað fór úrskeiðis þarna hjá henni,“ segir Guðfinnur og Edda skýtur inn í að þau þurfi að ræða það betur við tæki- færi. „Það er mjög fyndið hvað margt í okkar bakgrunni er ótrú- lega líkt. Við förum eiginlega sömu leið í gegnum lífið,“ segir Edda en hún er reyndar átta árum yngri en Guðfinnur svo það skýrir að hluta hvers vegna leiðir þeirra hafa ekki legið saman fyrr. „Núna finnst mér eins og við höfum þekkst lengi. Við erum orðin eins og fínustu hjón í dag,“ segir hún í gríni. Af elsta ljósvakamiðlinum yfir á yngsta Þau muna ekki til þess að hafa nokkurn tímann hist í höfuð- stöðvum RÚV í Efstaleiti þrátt fyrir að hafa starfað þar á sama tíma í þrjú ár. Sennilega er skýringin sú að Guðfinnur var mest að vinna á daginn en Edda kom hins vegar í tökur á Gettu betur að kvöldlagi. Þau eru þó sammála um að það sé einkennilegt að þau hafi getað unnið fyrir sömu stofnun allan þennan tíma án þess að rekast hvort á annað. Með því að taka við starfi á Miklagarði, nýrri sjónvarps- stöð, eru þau bæði að taka þónokkurt stökk frá þeim störfum sem þau hafa áður sinnt á fjölmiðlum. „Við erum bæði að koma af elsta ljósvakamiðlinum yfir á þann allra yngsta,“ segir Guðfinnur. Hann segir umskiptin spennandi enda sé ákveðinn sóknarandi einkennandi fyrir stemninguna hjá svona nýstofnaðri og tiltölulega ómótaðri sjónvarpsstöð. „Það sem mér finnst skemmtilegt við þetta er þessi hugsun að spila sem mest úr því sem við höfum. Hér eru ekki digrir sjóðir en reynt að gera það besta úr því sem við höfum. Ekki drepa niður hugmyndir en sníða þó stakk eftir vexti.“ Edda nefnir einnig að þótt sjónvarpsstöðin sé rétt að feta sín fyrstu skref sé starfsfólk hokið af reynslu í framleiðslu sjónvarpsefnis. „Hér vinnur alveg ótrúlega fært fagfólk með mikla reynslu og metnaðurinn er mikill. Við erum spennt að fá að sýna áhorfendum hvað við gerum. Hér eru allir tilbúnir að ganga í ólíkustu verkefni og leggja á sig mikla vinnu til að gera þetta sem vandaðast. Við gerum okkur besta til að skila því til áhorfenda,“ segir Edda að lokum. MIKLIGARÐUR FER Í LOFTIÐ MEÐ SPJALLÞÁTT Á LAUGARDAGSMORGNUM Guðfinnur og Edda. Morgunblaðið/RAX Orðin eins og fínustu hjón EDDA HERMANNSDÓTTIR OG GUÐFINNUR SIGURVINSSON UNNU Á SAMA VINNUSTAÐ Í ÞRJÚ ÁR ÁN ÞESS AÐ REKAST HVORT Á ANN- AÐ. Á SKÖMMUM TÍMA HAFA ÞAU TENGST STERKUM BÖNDUM GEGNUM SAMEIGINLEGAN ÁHUGA Á ALMENNUM FÍFLAGANGI. ÞAU ERU SAMMÁLA UM AÐ MEIRI GLEÐI VANTI Í SJÓNVARPIÐ OG ÆTLA SÉR AÐ BÆTA ÚR ÞVÍ. Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is Edda og Guðfinnur segja mikinn sóknaranda ríkja á Miklagarði og þau eru orðin spennt fyrir fyrstu útsendingu þáttarins Góður dagur á laugardag kl.11.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.