Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.03.2014, Page 40

Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.03.2014, Page 40
Hvenær kviknaði áhuginn á tísku? Ég hef alltaf haft áhuga á tísku. Eldri systir mín, Eva Valdimarsdóttir, sem heldur úti blogginu dusty-reykjavik var alltaf að ferðast þegar við vorum yngri og kom heim með flottustu hlutina. Ég elskaði fataskápinn hennar og varð svo ánægð þegar hún gaf mér eitthvað af sínum gömlu fötum. Hvernig myndir þú lýsa stílnum þínum? Ég elska strigaskó og herraföt. Ég blanda þröngum fötum við víð, og fínum munum við hversdags. Ég er vog í stjörnumerki þannig að það þarf að vera jafnvægi í öllu, haha. Áttu þér uppáhaldsflík eða fylgihlut? Biker-jakkann minn frá Acne. Ég elska leðurjakka, og sniðið hjá Acne er fullkomið. Hvaða þekkta andlit finnst þér með flottan stíl? Þau eru mörg, eins og Phoebe Philo, yfirhönnuður Céline, mér finnst Rih- anna líka geðveik og Olsen-tvíburarnir eru rosalega svalar. Ég gæti haldið áfram lengi. Hvaða sumartrend ætlar þú að tileinka þér? Ég var að kaupa mér gulllitaða sundsandala frá Stine Goya x H2O. Ég ætla að vera í þeim í allt sumar, helst med sokkum. Sundsandalar eða Birkenstock eru ennþá voða vinsælir. Áttu þér eitthvert gott stef, ráð eða mottó, þegar kemur að fatakaupum? Ég reyni að vera svolítið íslensk, og hugsa „þetta reddast allt“ en svo er mottóið mitt líka gjörsamlega að vera jákvæð þá koma jákvæðir hlutir inn í líf manns. Áttu þér einhvern uppáhaldsfatahönnuð? Það breytist með hverri árstíð. Fyrir sumarið 2014, eða SS14, finnst mér fötin frá hönnuðunum Yang Li mjög áhugaverð. Vans skór blandaðir klassískum sniðum, og gamaldags spennubelti. Elska það. Áttu einhverja dýrmæta flík sem þú tímir ekki að nota? Nei, ég nota allt og er eins og krakki, ég get ekki beðið með að fara í flíkurnar ég nota allt strax. Fólkið í kring- um mig er dýrmætt, ekki hlutirnir. Hver hafa verið bestu kaupin þín fatakyns? Ég keypti svarta rúllakragapeysu í H&M í vetur, ég þarf að þvinga sjálfa mig til að fara í eitthvað annað Hún er al- gjört æði … En þau verstu? Þegar kampavínsfyr- irtækið Moët et Chand- on flaug með mig til New York í afmæl- isveisluna sína og ég uppgötvaði þegar ég kom á hótelið að ég hafði gleymt flottu háæl- uðu skónum mínum. Ég þaut út og keypti skó, og fékk blöðrur upp á hné þetta voru lélegustu skór fyrr og síðar. Pheobe Philo, yfirhönnuður Céline, er með flottan stíl. ELSKAR STRIGASKÓ OG HERRAFÖT Þarf að vera jafnvægi í öllu ÞÓRA VALDIMARSDÓTTIR STARFAR SEM AÐSTOÐARTÍSKURITSTJÓRI DANSKA TÍSKUTÍMARITSINS COSTUME. ÞÓRA BÝR Í KAUPMANNAHÖFN ÞAR SEM HÚN LIFIR OG HRÆRIST Í HEIMI TÍSKUNNAR OG SEGIR SOKKA VIÐ SANDALA HALDA ÁFRAM AÐ VERA SJÓÐHEITT Í SUMAR. Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Biker jakkin frá Acne er virkilega flottur með góðu sniði. Yang Li er í uppáhaldi hjá Þóru þessa stundina. Þóra hefur alltaf haft mikinn áhuga á tísku. Stine Goya x H2O, 14.600 kr. Tíska *Búið er að tilkynna þá sem tilnefndir eru til tískuverð-launanna CFDA 2014 en það eru ein virtustu verðlaunsem veitt eru í tískuheiminum. Fyrir kvenfatnað ársins eruþað Marc Jacobs, Altuzarra og Alexander Wang sem erutilnefnd. Fyrir herrafatnað eru Thom Browne, Rag & Bone ogMaxwell Osborne og Dao-Yi Chow hjá Public School tilnefnd tilverðlaunanna. Fyrir aukahluti eru þau Wang, The Row og Pro- enza Schouler tilnefnd. Verðlaunin verða afhent 2. júní 2014. Tilnefnd til tískuverðlauna

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.