Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.03.2014, Side 47
að koma fjölda öflugra eldflauga á Gasasvæðið. Þær
flaugar gátu dregið til hvers einasta staðar innan Ísr-
aels. Það er eitt dæmið um ástandið í heiminum að þeg-
ar forsætisráðherra Ísraels sýndi upptækt vopnabúrið
náði sú sýning ekki neinni umræðu.
Tyrkland, sem lengi hefur verið fyrirmyndarríkið í
þessum heimshluta, er í miklu uppnámi og stjórn Er-
dogans hangir á bláþræði. Herinn bíður enn átekta, en
óttast er að þar sé þolinmæðin á þrotum. Erdogan lét
lausan nýdæmdan hershöfðingja til að reyna að blíðka
herinn, en líklegt er að það verði aðeins skilið sem ótví-
rætt merki um veika stöðu forsætisráðherrans.
Þetta allt minnir á land sunnar á svæðinu. Egypta-
land gerir ekkert lengur með umvandanir Bandaríkja-
manna. Sisi hershöfðingi býr sig undir „forsetakosn-
ingar“ en annar herforingi, Mubarak, fór áratugum
saman létt með slíkar kosningar. Þar er allur leyndar-
dómurinn falinn í talningunni. Lýðræðistilburðir eru
því að fjara út í Egyptalandi, og herinn telur að auki að
Obama hafi ekki aðeins svikið Mubarak á síðustu metr-
um hans, en að hann hafi beinlínis ýtt undir ofstækis-
manninn Morsi og grafið undan viðleitni hersins til að
tryggja stöðugleika í landinu. Sisí hefur því hallað sér
að Rússlandi Pútíns að undanförnu.
… ver því ætíð var um þig
Og þegar hann er nefndur opnast upp margar gáttir
fyrir þá sem hafa áhyggjur. Rússland er annað mesta
kjarnorkuveldi í heimi. Á tímum Sovétríkjanna sálugu
óttaðist umheimurinn að alræðismenn kommúnismans
kynnu að grípa til slíkra vopna með ógnvænlegum af-
leiðingum. Eftir hrun hans þar eystra kom í ljós að ótt-
inn við gjöreyðingarstríð hafði verið jafnþrúgandi fyrir
leiðtoga í Kreml og aðra. En Rússland er eftir sem áð-
ur eina landið í heiminum sem (fræðilega) getur eytt
Bandaríkjunum.
Lítið er enn gert úr efnahagslegri stöðu Rússlands,
þótt blaðamenn séu hættir að bera hana helst við stöðu
Hollands og Belgíu. En þótt efnahagslegar brotalamir
Rússlands séu miklar eru Vesturlönd ekki í neinni
stöðu núna til að taka þetta landmesta ríki heimsins
efnahagslega í nefið. Því sú staðreynd er að renna upp
fyrir sífellt fleiri að Evrópa og evrulöndin sérstaklega
standa sjálf á brauðfótum. Rússland getur svo sann-
arlega gert þessum ríkjum efnahagslegan miska af
margvíslegu tagi ef þau reyna að fylgja hótunum sín-
um eftir. Efnahagsvandinn í Evrópu er verulegur án
hugsanlegra vandamála tengdum Úkraínu og yfir-
gangi Rússlands þar. Evrópa er komin á beinan nið-
ursnúning núna, eins og sumir spáðu fyrir um, þegar
árið 2012. Seðlabanki ESB vísaði slíkum spám á bug
þá. En afneitun af því tagi dugar ekki lengur.
Bullandi ágreiningur er í Seðlabanka Evrópusam-
bandsins um það hvernig við eigi að bregðast. Þess
vegna mun lítið gerast og það litla mun gerast of seint.
Ástandið hefur enn ekkert lagast í löndum eins og
Grikkland þar sem atvinnuleysi náði enn nýjum hæð-
um í síðasta mánuði. Samdrátturinn er svo mikill á
Ítalíu núna að jafnvel tiltölulega ábyrg stjórn á fjár-
lagahalla hefur ekki dugað til að vega upp á móti.
Stjórnmálalegur og efnahagslegur órói fer því hratt
vaxandi í landinu.
Evrópuríkin horfa með miklum ugg til Kína. Þar hef-
ur þörf ríkisins á að veikja gjaldmiðil sinn farið vaxandi
upp á síðkastið og hefur hann þegar veikst verulega á
fyrstu mánuðum ársins gagnvart evru og dollar. Með-
an sú lækkun er þó ekki meiri en orðið er, ætti breyt-
ingin að jafnaði ekki að valda áhyggjum. En evrusvæð-
ið má ekki við neinu. Það hefur komið sér í þá stöðu að
þola ekki andbyr úr austri. Vafalítið er, að taki Kína þá
dýfu núna, sem forsætisráðherra landsins sagði í vik-
unni að kynni að vera óhjákvæmileg, þá mun ástandið í
efnahagsmálum Evrópu verða illviðráðanlegt.
Í Suður-Ameríku er Argentína í efnahagslegu upp-
námi. Venesúela er nánast í pólitísku og efnahagslegu
borgarastríði og staðan í stórríkinu Brasilíu er orðin
mjög alvarlegt. Ástandið í nokkrum ríkjum Mið-Afríku
er vægast sagt hrikalegt, en umheimurinn hefur ekki
burði til að bregðast við. Hann hefur í augnablikinu
nóg með sig.
Einhverjir geta sjálfsagt fundið út að Nostradamus
hafi séð þetta allt fyrir eða lesa hafi mátt þróunina í
tæka tíð út úr stjörnumerkjunum. Ekki skal gert lítið
úr slíkri speki eða annarri frammi fyrir hinni yfirgrips-
miklu fáfræði sem mannkyn, sem aldrei hefur verið
upplýstara en núna, stendur óneitanlega frammi fyrir.
Það er auðvitað ekkert samhengi í því, en engu að
síður setur óhug að mörgum, þegar að risavaxin þota
getur horfið „sporlaust“ með á þriðja hundrað manns
innanborðs og það í tilveru sem menn töldu einkennast
af því að spíónar með ólíkindalegan tæknibúnað og
gervitungl fylgdust með hverjum einasta jarðarbúa frá
mínútu til mínútu eða þar um bil.
En í öllu þessu fári er það þó huggun hættum gegn
að Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingar, stóð
upp á Alþingi Íslendinga og lýsti því þungbúinn yfir að
Birgir Ármannsson, formaður íslensku utanríkis-
nefndarinnar, hefði brugðist „degi of seint“ við ástand-
inu í Úkraínu.
Morgunblaðið/Ómar
Það verður mikill skjálfti
ef 20 prósenta umframeyðslu
mannkyns verður eytt með sveiflu
16.3. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 47