Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.03.2014, Síða 52
Amerísk áhrif í byggingarlist hérlendis náí raun aftur á 19. öld. Það eru einstakadæmi um það, til dæmis Hofskirkja í
Vopnafirði en hún var hönnuð með ákveðna
kirkju í Vesturheimi sem fyrirmynd,“ segir Pét-
ur H. Ármannsson arkitekt sem sjálfur lærði
arkitektúr vestanhafs. Fyrstu menningartengsl
Íslands við Ameríku voru í gegnum vesturfar-
ana. Áhrif þaðan mátti sjá hérlendis á hinum
ýmsu sviðum og þar á meðal jafnvel í húsagerð.
„Á þessum tíma var það auðvitað ekki í miklum
mæli en það eru skjalfest dæmi um það og það
er mjög merkilegt.“
Síðar fer áhrifa frá Bandaríkjunum að gæta í
nokkrum skrefum. Fyrstu íslensku arkitekt-
arnir, Rögnvaldur Ólafsson og Guðjón Sam-
úelsson, fylgdust vel með straumum og stefnum
beggja vegna Atlantshafs. „Þeir keyptu og lásu
bækur og fagtímarit um arkitektúr í Bandaríkj-
unum og til dæmis má greina áhrif frá Art deco-
listastefnunni sem var áberandi í Bandaríkjun-
um á 3. áratug 20. aldar í verkum Guðjóns. Má
þar sem dæmi nefna Þjóðleikhúsið.“
Fyrsti íslenski arkitektinn sem lærði í Banda-
ríkjunum var Þórir Baldvinsson en hann kom til
starfa hérlendis um 1930 eftir að hafa stundað
nám í Kaliforníu. „Ein þeirra nýjunga sem hann
innleiddi í húsagerð var svokölluð forskalning;
múrhúð utan á timburklædda veggi sem fest er
á vírnet. Þessi byggingaraðferð er mjög algeng
víða í Ameríku og þá sérstaklega í Kaliforníu.
Hún reyndist ekki mjög vel í íslenskri veðráttu
en engu að síður var þetta merkileg nýjung og
klárlega komin frá Ameríku.“
Er seinni heimsstyrjöldin skall á lokaðist fyr-
ir flest viðskiptasambönd við Evrópu sem þýddi
að mikið af byggingavörum var eftirleiðis keypt
frá Bandaríkjunum. Þetta hafði viss áhrif á þró-
unina hérlendis. „Á 4. áratug 20. aldar höfðu
margir af helstu frumkvöðlum nútímaarkitekt-
úrs flúið undan nasistum frá Þýskalandi og Evr-
ópu til Ameríku. Meðal þeirra sem voru tveir af
leiðtogum Bauhaus-skólans, Walter Gropius og
Mies van der Rohe. Báðir urðu virtir arkitektar
og kennarar þar í landi og höfðu mikil áhrif á
þróun arkitektúrs eftir stríð. Vaxtarbroddur
nýsköpunar í arkitektúr færðist þannig frá Evr-
ópu til Ameríku og á Norðurlöndunum fylgdust
ungir arkitektar með því sem var að gerast í
arkitektúr á þessum tíma í Ameríku.“
Í Kaliforníu þróaðist ákveðinn skóli í nútíma-
arkitektúr sem hafði mikil áhrif á hönnun íbúð-
arhúsa bæði hér og á Norðurlöndunum. Þessi
áhrif urðu grunnurinn að þeim nýtískulega
byggingarstíl sem varð einkennandi milli 1960
og 1970. Áhrifin komu beint og óbeint frá
Bandaríkjunum en einnig Japan. Íslendingar
fóru jafnframt að sækja nám í arkitektúr í
Bandaríkjunum í auknum mæli á 7. og 8. ára-
tugnum.
Í Garðabæ er eitt hreinræktað amerískt hús
frá þessum tíma, Hraun við Álftanesveg, sem
teiknað var af kunnum arkitekt í Portland, Ore-
gon um 1950. Efnið var flutt tilsniðið hingað til
lands frá vesturströnd Bandaríkjanna með skipi
um Panamaskurðinn og húsið reist í hrauninu
við Álftanes. Þá stóð til að byggja mikla út-
varpshöll á þeim stað þar sem Þjóðarbókhlaðan
er í dag. Árið 1946 birtist grein um það í Út-
varpstíðindum með ljósmyndum af módeli.
Frægur amerískur arkitekt, William Lescaze,
gerði uppdrættina að húsinu en hann teiknaði
m.a. einn þekktasta skýjaklúf Philadelphiu,
PSFS-bygginguna svokölluðu, og einnig bygg-
ingar fyrir CBS-sjónvarpsfyrirtækið. Útvarps-
höllin á Melunum átti að vera mjög veglegt og
nýtískulegt hús en ekki varð af byggingu þess.
„Síðan má segja að lífsstíllinn sem varð vin-
sæll á eftirstríðsárunum, þegar einkabílaeign
varð almennari og það fór að verða vinsælt að
byggja einbýlishús á einni hæð í úthverfum með
garði og tvöföldum bílskúr, sé hugmynd sem
kom beint frá Ameríku.
Þessi lífsstíll mótaði
ákveðnar út-
hverf-
abyggðir á höfuðborgarsvæðinu eins og Kópa-
vog, Garðabæ og Mosfellssveit. Þetta er öfugt
við það sem er nú efst á baugi þar sem allir vilja
búa í 101 Reykjavík. Hverfi eins og Arnarnesið í
Garðabæ er til dæmis mjög „amerískt“ að flestu
leyti. Þar er algjört skilyrði að vera á einkabíl
því enga þjónustu er hægt að sækja innan
hverfisins. Húsin eru stórar villur sem margar
hverjar voru teiknaðar undir miklum áhrifum
frá amerískum nútímaarkitektúr.“
Víða í einbýlishúsum, til dæmis á Arnarnes-
inu er að finna hugmyndir sem eiga rætur í am-
erískum arkitektúr eftirstríðsáranna; t.d. að
klæða arinveggi með náttúrugrjóti. Hér heima
voru t.d. hellur úr Drápuhlíðarfjalli notaðar í
þannig klæðningar.
Síðast en ekki síst má nefna að fyrsta íslenska
konan sem lærir innanhúshönnun, Kristín Guð-
mundsdóttir híbýlafræðingur, lærði í Banda-
ríkjunum, nánar tiltekið í Chicago. Hún var
brautryðjandi í merkum nýjungum varðandi
fyrirkomulag heimila á 6. og 7. áratugnum og
lagði grunninn í sínu fagi hérlendis. Meðal
nýjunga sem rekja má til Banda-
ríkjanna má til dæmis nefna
það að hafa mörg baðherbergi í
hverri íbúð, sérstakt fata-
herbergi og bað í tengslum við
svefnherbergi, stór og rúmgóð eldhús
með vel skipulagðri vinnuaðstöðu og vönd-
uðum heimilistækjum.
Hverfi eins og Arnarnesið í Garðabæ er til dæmis mjög „amerískt“ að flestu leyti. Þar er algjört
skilyrði að vera á einkabíl,“ segir Pétur H. Ármannsson arkitekt.
Morgunblaðið/Ómar
Arnarnesið
nokkuð amerískt
ARKITEKTÚR HEIMILA
Úttekt
52 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.3. 2014
Í dag myndi ég segja að við séum aðnýta okkur það besta frá Evrópu ogAmeríku hvað útlit og stíl varðar,“
segir Elsa Haraldsdóttir hárgreiðslu-
meistari sem í áratugi hefur fylgst með
tískustraumum og -stefnum hérlendis og
erlendis.
„Ef ég ætti að nefna eitthvað sérstakt
sem hægt er að áætla að sé undir amer-
ískum áhrifum þá tengist það lífsstíl öðru
fremur. Ég nefni sem dæmi íslenskar
önnum kafnar konur sem þurfa flestar að
sinna fjölbreyttum verkefnum yfir daginn.
Þær hafa tileinkað sér það sem amer-
ískar konur þekkja og kunna vel en það
er að vera við öllu búinn. Að vera bæði
með flatbotna og háhælaða skó í bílnum
til að grípa í eftir því hverju er verið að
sinna hverju sinni. Við kunnum orðið að
klæðast þægilegum fatnaði en vera samt
fínar og þannig er vinnu og sporti bland-
að saman. Sjálf var ég fljót að læra það
þegar ég fór að ferðast og fara á sýningar
og annað í tengslum við starfið að ég
varð að velja mér fatnað að morgni sem
dugði mér langt fram á kvöld því maður
komst ekki í það að skipta um föt.“
Elsa segir Íslendinga fljóta að tileinka
sér nýjungar í tísku og þeir séu ekki að
spá í hvaðan þær koma. Hennar tilfinning
er sú að Íslendingar grípi fremur það
sem er að gerast í tísku poppheimsins
vestanhafs en það sem er að gerast í Evr-
ópu.
En hártískan, er hún amerísk?
„Bandarískar konur voru lengi taldar
vera með fallegasta hárið af öllum kon-
um í heiminum. Í hári þeirra var mikill
hreyfanleiki og þær notuðu góða hárliti
og -vörur. Oft var talað um að þessi
dama og hin væru með „milljón dollara
hár“,“ segir Elsa og var þá verið að vísa
til bandarískra kvenna.
„Hins vegar má segja að í dag sé hár-
tískan hér alþjóðleg og á íslenskum hár-
greiðslustofunum eru frönsku fagtímarit-
in vinsælli en þau amerísku. Í dag er
bandarísk hárgreiðsla oft mjög settleg,
hvort sem það er sítt eða stutt hár, en ís-
lenskar konur velja frjálslegri greiðslu og
eru fljótar að breyta til. Íslenskar konur
myndu aldrei stæla bandaríska hár-
greiðslu nema ef um er að ræða kvik-
myndarstjörnur eða tískufyrirmyndir.“
Mjög stutt hár hjá karlmönnum er afar
áberandi núna sem er ekki síður af prakt-
ískum ástæðum en tískutengt. „Mörgum
þykir það þægilegt þegar mikið er um
íþróttaæfingar og sturtuferðir sem þeim
fylgja. En það er þetta sportlega útlit
sem má kannski tengja við Bandaríkin.“
Elsa segir Íslendinga heppna og klára
að því leyti að þeir pikki það besta upp
úr öllum áttum og í seinni tíð séu áhrif
frá Asíulöndum einnig orðin áberandi.
Annar sérfræðingur í útliti kvenna, eða
öllu heldur klæðnaði kvenna og hefðum
og venjum þar, er Linda Björg Árnadóttir
fatahönnuður. Hún er á sama máli og
Elsa með að áhrif tónlistararfsins banda-
ríska hafi áhrif á tískuna hérna megin.
Áður var það Elvis Presley og djassinn en
í dag er það sérstaklega menningin í
kringum rappið og hipphopp-tónlist.
„Í rappklæðnaði eru sterkar tilvísanir í
fatnað sem hægt er að tengja við fanga
og þræla. Þeir þurftu ósjaldan að
notast við föt í yfirstærð þar
sem yfirleitt var einungis fram-
leitt í einni stærð fyrir þá og þá
stór svo allir kæmust í fötin.
Strákar í dag eru í mjög stórum
fötum, buxurnar hanga niður
og mittið er allt of stórt.
Þetta hefur haft gríð-
arleg áhrif á tískuna um
alla heim,“ segir
Linda.
Yfir það heila er sú
tíska sem við þekkjum
hérlendis þó evrópsk
varðandi sniðagerð en
fatatískan er þó þannig
að hún tekur til sín alls
konar úr ýmsum áttum
og blandar saman nýj-
ungum og klassík og jafn-
vel fatnaði fortíðar, svo
sem stíl miðalda.
„Amerísk áhrif eru alls
ekki dvínandi þótt ennþá
séum við meira evrópsk. Og
við erum talsvert þróaðri í
okkar stíl en Ameríkanar.
ELSA HARALDSDÓTTIR OG LINDA BJÖRG ÁRNADÓTTIR
Milljón dollara hár
Ekki eru margir sem gera sér
grein fyrir því en íslenskir piltar
eru undir áhrifum bandarísks
þræla- og fangaklæðnaðar.
Bandaríska kvikmyndastjarnan Rita Hay-
worth var öfunduð um víða veröld af
milljón dollara hári sínu.
Fyrsti íslenski arkitektinn sem lærði vest-
anhafs innleiddi nýjungar hérlendis sem
þekktust í Bandaríkjunum. Ein af þeim var
svokölluð forskalning.
Í Kaliforníu þróaðist ákveðinn skóli í nú-
tímaarkitektúr sem hafði mikil áhrif á hönn-
un íbúðarhúsa bæði hér og annars staðar á
Norðurlöndunum.
Íslendingar fóru að sækja nám í arkitektúr
í Bandaríkjunum á 7. og 8. áratugnum.
Víða í íslenskum einbýlishúsum er að
finna hugmyndir sem eiga rætur í
amerískum arkitektúr eftirstríðsáranna.
Íslenskar önnum kafnar konur hafa
tileinkað sér tísku amerískra kvenna
sem eru bæði með háhælaða skó og
flatbotna í bílnum til að grípa í.
Frönsk fagtímarit eru vinsælli en þau
amerísku á íslenskum hárgreiðslustofum
en íslenskum konum þykir mörgum banda-
rískar greiðslur of settlegar.
Mjög stutt hár er áberandi hjá karl-
mönnum og sportlegt útlit þeirra má kannski
tengja við Bandaríkin.
Bandarískur rappklæðnaður hefur haft
mikil áhrif á karlmenn hérlendis. Í þeim
klæðnaði eru sterkar tilvísanir í fatnað fanga
og þræla; mjög stór föt sem áttu að passa á
alla.
Íslenska tísku má yfir það heila fremur
rekja til Evrópu.