Morgunblaðið - 12.04.2014, Qupperneq 17
Áður en þriðja gólfið var gert voru
reknir staurar langt niður í mýrina
og settar undirstöður þar ofan á.
Flugkennslunni útrýmt
Stefnt er að því að leggja æfinga-,
kennslu- og einkaflug af í Reykjavík
þegar á næsta ári. Jara sagði að
Keflavíkurflugvöllur væri lokaður
fyrir snertilendingum frá kl. 7-9 á
morgnana og kl. 15-17 síðdegis.
„Hér á að leggja niður flugnám.
Þessu á bara að loka eftir næstu ára-
mót,“ sagði Hallgrímur Jónsson.
„Það er engin vísbending um hvað
tekur við. Hvað yrði sagt ef loka ætti
Listaháskólanum eða Tækniskól-
anum snemma á næsta ári og ekkert
sem tæki við? Ég er hræddur um að
þá heyrðist eitthvað.“ Hann benti á
að árið 2012 hefðu verið 55.937 flug-
hreyfingar á Reykjavíkurflugvelli.
Þar af voru snertilendingar 31.546
eða 42%. Hallgrímur sagði að nú
þegar væri Reykjavíkurflugvöllur
lokaður fyrir snertilendingum eftir
klukkan 17 á daginn og lokaður á
laugardögum og sunnudögum.
„Flugnemar eru meira eða minna
gerðir brottrækir. Það að gera lítið
úr námi flugmanna og fluginu í heild
byggir á algjörri vanþekkingu,“
sagði Hallgrímur. Hann sagði suma
líta á flug og flugnám sem einhvern
leikaraskap. „Þetta er grafalvarlegt
atvinnunám sem á í fullu tré við
hverja aðra námsgrein.“
Aukin eftirspurn er eftir flug-
mönnum og má rifja upp að Ice-
landair réð í vetur 30 nýja flugmenn
og hafði þá ráðið 58 nýja flugmenn á
þremur árum. Vaxandi ferðaþjón-
usta mun væntanlega kalla á enn
fleiri flugmenn. Íslenskir flugmenn
starfa um allan heim. Flugnámið er
vinsælt og allir bekkir í bóklegu
námi fullsetnir, að sögn Hallgríms.
Hingað sækja sífellt fleiri erlendir
flugnemar í nám.
Reidar sagði hvergi betri skilyrði
en hér fyrir flugnema að kynnast
fjölbreyttu veðri. Þar fyrir utan er
hagkvæmt fyrir flugnema að koma
frá útlöndum og læra hér.
Reidar sagði fæsta gera sér grein
fyrir þeirri miklu starfsemi sem fer
fram á Reykjavíkurflugvelli og
vegna hans. Hjá Flugfélaginu Erni
starfa um 60 manns og telst það þó
vera lítið fyrirtæki. Á Reykjavíkur-
flugvelli vinna um 600 manns og með
afleiddum störfum eru þau yfir eitt
þúsund talsins sem tengjast flugvell-
inum.
Sölvi Axelsson benti á að yrði
Reykjavíkurflugvelli lokað myndu
einnig tapast störf við flugið á áfanga-
stöðum flugfélaganna úti á landi.
Margir flugvellir í þéttbýli
„Ég flýg út um allan heim,“ sagði
Sölvi. „Það eru yfir 300 flugvellir
inni í stórborgum í heiminum. Það
kemst enginn upp með að loka þess-
um völlum að ástæðulausu vegna
þess hvað þeir eru mikilvægir fyrir
samgöngur og flugöryggi. Stærsta
ógnin við flugöryggi á Íslandi er sú
að Reykjavíkurflugvöllur fari.“
Hörður nefndi að þegar Ernir
flygi með sjúklinga til Stokkhólms
væru þeir beðnir um að lenda á
Bromma flugvelli sem er inni í borg-
inni því hann er næstur sjúkrahús-
inu. Sé flogið sjúkraflug til Kaup-
mannahafnar er lent í Hróarskeldu
sem er næsti flugvöllur við sjúkra-
húsið þar. Í Gautaborg er lent á
gamla flugvellinum í Säve (Göteborg
City Airport) sem er nálægt sjúkra-
húsinu.
„Reykjavíkurborg þarf að gefa út
yfirlýsingu, eins og gert var í
Bromma, um að flugvöllurinn verði
hér til næstu 30 ára,“ sagði Hörður.
„Við sem rekum þjónustu við byggð-
ir landsins þurfum að vita til næstu
30 ára hvað er í gangi. Bæði við og
Flugfélag Íslands erum með áætl-
unarflug um allt land. Það er erfitt
að byggja upp ef við vitum ekki hvað
verður á morgun.“
Varaflugtaksvöllur Keflavíkur
Sölvi sagði það vera eitt mikilvæg-
asta hlutverk Reykjavíkurflugvallar
að vera flugtaksvaraflugvöllur (Take
Off Alternate) við flugtök í slæmu
skyggni frá Keflavík. Eitthvað getur
farið úrskeiðis í flugtaki og þá verð-
ur að vera hægt að lenda flugvélinni
fljótlega aftur. Sé um tveggja
hreyfla flugvél að ræða er almenna
reglan sú að það taki minna en
klukkustund að fljúga á flugtaks-
varaflugvöllinn á öðrum hreyflinum.
Sölvi sagði að aðflugshorn að Ak-
ureyrarflugvelli væri yfir þeim
mörkum sem yfirleitt er miðað við
um flugtaksvaravelli.
Sölvi sagði að til að mega nota
sjálfan flugtaksvöllinn sem flugtaks-
varavöll séu almennt gerðar
ákveðnar kröfur um lágmarks
skyggni upp á 1.600 metra. Ef
Reykjavíkurflugvöllur verður ekki
lengur til vara mun þetta geta valdið
því að seinka þurfi brottförum frá
Keflavík, sé skyggnið ekki nógu
gott, þar til skyggnið batnar. Því er
viðbúið að falli Reykjavíkurflug-
völlur út verði seinkanir á brott-
förum flugvéla frá Keflavík algeng-
ari en nú er með tilheyrandi
kostnaði og óþægindum fyrir far-
þega. Sölvi sagði svona aðstæður
skapast nokkrum sinnum á ári í
Keflavík. Hann taldi liggja ljóst fyrir
að lokun Reykjavíkurflugvallar
myndi hafa í för með sér hækkun á
flugfargjöldum til og frá landinu.
Þorkell benti á að gerð hefði verið
skýrsla um kostnaðaraukningu inn-
anlands, vegna ferðalaga milli lands-
byggðar og borgarinnar, ef flugvöll-
urinn færi. Hún myndi nema 6,7
milljörðum á ári. Kostnaður flug-
félaganna muni einnig aukast fari
flugvöllurinn. Þá hafi ekki verið
slegið tölu á hvað það muni kosta að
skipta um jarðveg og byggja undir
fyrirhugaða byggð í Vatnsmýrinni.
Ljóst sé að það yrði óhemju dýrt.
„Flugvöllurinn vinnur auðveldlega
rökræðuna á þjóðhagslegum og
kostnaðarlegum forsendum. Þá erum
við ekki farin að taka með í reikning-
inn heilsu og líf fólks sem á sitt undir
sjúkrafluginu,“ sagði Þorkell.
Sölvi bætti því við að byggja þyrfti
nýja viðhaldsaðstöðu fyrir Land-
helgisgæsluna og hús fyrir flugskóla
og flugstjórn ætti að flytja starfsem-
ina til Keflavíkur. Þessa aðstöðu
verði að byggja áður en starfsemin
flytji því ekki sé hægt að gera hlé á
henni vegna flutninga.
Morgunblaðið/Ernir
Millilandaflug Reykjavíkurflugvöllur er mikilvægur varaflugvöllur vegna lendingar og flugtaka í Keflavík.
SJÁ NÆSTU SÍÐU ??
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. APRÍL 2014
Kynntu þér ítarlegar upplýsingar um starfsemi og afkomu
Landsvirkjunar á landsvirkjun.is/arsskyrsla2013.
Árið 2013 er
komið á netið
Raforkusala Landsvirkjunar árið 2013
var sú mesta í sögu fyrirtækisins eða
13.186 GWst
sem er aukning um 416 GWst frá fyrra ári.
Rafræn ársskýrsla Landsvirkjunar 2013 er komin út. Þetta er
í fyrsta sinn sem ársskýrsla fyrirtækisins er eingöngu gefin út
á rafrænu formi. Með þessu viljum við tryggja betra aðgengi
að árlegu uppgjöri Landsvirkjunar.