Morgunblaðið - 08.04.2014, Blaðsíða 1
ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2014
BÍLAR
Reynsluakstur Þrátt fyrir ein-
faldan aðbúnað og útbúnað
þá koma aksturseiginleikar
jeppans talsvert á óvart.
Ökumaður hefur
þá tilfinningu
að hann sé að
stjórna liprum
bíl en ekki
voldugum
vinnuþjarki.
Síðumúla 19 • Sími 581 1118 • nesradio.is
NÝ
TT
Tryllitæki
G
efin hefur verið út í
fyrsta sinn hér á landi
Árbók bílgreina. Er það
Rannsóknasetur versl-
unarinnar sem sá um útgáfuna
fyrir Bílgreinasambandið. Árbókin
var gefin út síðastliðinn föstudag í
tengslum við aðalfund Bílgreina-
sambandsins.
Árbókin er safn tölfræðilegra
upplýsinga um þróun bílgreina
hér á landi og fjölmarga þætti
sem varða rekstur bíla, kostn-
aðarliði tengda bílum og umferð-
armál, að því er fram kemur í til-
kynningu. Bókina má nálgast á vef
Rannsóknaseturs verslunarinnar.
Ágjöf undanfarin ár
Í árbókinni má glöggva sig á
hvers konar kennitölum um af-
komu innan bílgreinarinnar á Ís-
landi, ásamt tölum um afkomu og
umfang greinarinnar hér á landi
og leynir sér ekki við lesturinn að
greinin hefur fengið vænt og við-
varandi högg allt frá hruni. Burt-
séð frá því hvort fréttirnar eru af
jákvæðum toga eður ei er ljóst að
hér er komið fróðlegt uppflettirit
sem gagnast mun þeim sem láta
sig starfsumhverfi bílgreinafyr-
irtækja á Íslandi einhverju varða.
Meðal þess sem fram kemur í
bókinni er að velta í bílgreinum
dróst saman langt umfram aðra
atvinnuvegi og hefur lítið jafnað
sig frá hruni. Árið 2013 var velta
bílgreinafyrirtækja 70 milljarðar
kr. en árið áður 81 milljarður á
föstu verðlagi. Enda er það svo að
áætlað er að fjöldi starfandi í bíl-
greinum hér á landi árið 2013 hafi
verið um 3.400. Árið 2008 störf-
uðu aftur á móti um 4.300 manns
í greininni. Árferðið sýnir sig enn-
fremur í því hve fáir nýir bílar hafa
verið fluttir inn frá 2008. Bílaflot-
inn eldist fyrir bragðið hratt og
hefur aldrei verið eldri á þeim tíma
sem gögn ná yfir. Árið 2013 voru
46% skráðra bíla 15 ára eða eldri.
Meðalaldur bíla á Íslandi var á síð-
asta ári 12,4 ár en meðalaldur bíla
í Evrópusambandslöndunum var
um 8 ár árið 2010. Nýrri tölur
vantar frá ESB. Þó kemur fram í
bókinni að á meðan 6% heildar-
samdráttur var í nýskráningum
bifreiða árið 2013 samanborið við
árið áður fjölgaði nýskráningum
atvinnubifreiða á milli ára. Aftur á
móti er önnur birtingarmynd
kreppunnar sú að raunsamdráttur
varð í tekjum ríkissjóðs af vöru-
gjöldum af bensíni og olíugjaldi
milli áranna 2011 til 2012 sem nam
3%. Þó má leiða líkum að því að
þarna spili aukin rafvæðing bíla-
flotans inn í, að ógleymdum met-
anbílum.
Gagn bæði og gaman
Hafsjó er sem sagt að finna í ár-
bókinni af gagnlegum upplýs-
ingum en einnig má hafa gaman af
þeim fróðleik sem í árbókinni er.
Samkvæmt því sem fram kemur í
Árbók bílgreina 2014 er að árlega
senda stjórnvöld um 36.000 sekt-
arboð vegna vanrækslu á skoðun
bifreiða. Upphæð hverrar sektar
er 15.000 kr. Skyldi maður ætla að
á samdráttartímum væri hægt að
fara betur með peningana. Bif-
reiðagjöld námu þá að meðaltali
um 30 þúsund krónum á hvern
skráðan bíl árið 2013.
Ánægjulegt er að lesa að hin
síðari ár hefur umferðarslysum og
umferðaróhöppum fækkað veru-
lega. Banaslys síðustu ár eru um
helmingi færri en að meðaltali síð-
ustu áratugi.
Fram kemur í árbókinni að
skráningargjöld bíla námu um 245
milljónum króna árið 2013 og voru
samtals um 11 milljónum króna
hærri en árið áður. Aukninguna
milli ára má fyrst og fremst rekja
til fjölgunar eigendaskipta á með-
an lækkun varð í tekjum vegna ný-
skráninga. Af nýskráðum fólks-
bifreiðum árið 2013 voru
hlutfallslega flestar skráðar á
Norðurlandi eystra eða 40 bifreið-
ar á hverja 1.000 íbúa. Hlutfalls-
lega voru fæstir bílar skráðir á
Vestfjörðum á sama tíma, eða um
6 bílar á hverja 1.000 íbúa. Næst-
um helmingur nýskráðra bíla er
bílaleigubílar, sem gæti skýrt
þennan mismun.
Góðu heilli er það svo að gjald-
þrotum í bílgreinum fer fækkandi.
Árið 2013 urðu 28 bílgreinafyr-
irtæki gjaldþrota en árið 2011 urðu
40 bílgreinafyrirtæki gjaldþrota.
Loks er það áhugaverð stað-
reynd að grái liturinn er í miklu
uppáhaldi meðal íslenskra bílaeig-
enda og hefur verið um langt
skeið. Af liðlega 7.000 nýskráðum
fólksbílum 2013 var á fjórða þús-
und grár. Næstvinsælasti liturinn
er hvítur, að því er segir í Árbók
bílgreina 2014.
jonagnar@mbl.is
Rannsóknasetur verslunarinnar gefur út Árbók bílgreina 2014
Allt á einum stað um bíla á Íslandi
AFP
Grár litur er í mestum metum hjá Íslendingum þegar kemur að bílum landsmanna. Þá staðreynd og hafsjó annarra er að finna í Árbók bílgreina 2014.