Morgunblaðið - 08.04.2014, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2014
BÍLAR 7
Þau tíðindi bárust fyrir helgi að
eitt eintak af VW Golf R væri kom-
ið til landsins og notuðu Heklu-
menn tækifærið og frumsýndu
gripinn á laugardaginn.
R-bíllinn var frumsýndur á bíla-
sýningunni í Frankfurt í fyrra og er
30 hestöflum kraftmeiri en fyrir-
rennarinn. Vélin er tveggja lítra
bensínvél með forþjöppu og skilar
hún 300 hestöflum. Það dugar til
að skjóta þessum spræka hlaðbak
úr núlli í hundraðið á aðeins 4,9
sekúndum. Líklega mun þó aldrei
reyna á hámarkshraðann hér á
landi því að hann er takmarkaður
við 250 km á klst. Þrátt fyrir að
vera jafnöflugur og hann er sagð-
ur er uppgefin eyðsla aðeins 6,9
lítrar á hundraðið með DSG-
sjálfskiptingunni. Bíllinn sem hing-
að kom er með 4Motion-
fjórhjóladrifinu svo að hann ætti
að haldast við götuna þrátt fyrir
öll hestöflin. Í útliti er Golf R ekk-
ert ólíkur hefðbundnum Golf úr
fjarlægð en þegar nær kemur má
sjá stærri loftinntök og stuðara og
það sem kemur upp um hann er
fjögurra stúta pústið að aftan-
verðu auk vindskeiðarinnar undir
bílnum.
njall@mbl.is
Heitur Golf R
sýndur í Heklu
síðustu helgi Morgunblaðið/Árni SæbergTveggja lítra bensínvél með forþjöppu skilar 300 hestöflum og kemst bíllinn úr núlli í hundrað á 4,9 sekúndum.
Úlfur í sauðargæru? Golf R minnir á venjulegan Golf úr fjarlægð en þegar
betur er að gáð má m.a. sjá stærri loftinntök og fjögurra stúta púst.
Pústið sýnir að þarna er villidýr á
ferðinni.
Bíleigendur finna alveg fyrir því að
það kostar sitt að kaupa og reka
bíl. Koma þar meðal annars til
tryggingar, eldsneyti og almennt
viðhald. En hverjir skyldu vera 10
ódýrustu bílarnir í rekstri?
Þessari spurningu verður ekki
svarað fyrir Ísland nema að und-
angenginni sérstakri rannsókn,
sem verðug væri. Til að komast að
niðurstöðu þarf að draga fram alls
konar tölur til útreiknings, svo sem
kaupverð, eldsneytiskostnað, af-
skriftir, bílagjöld og viðgerðar- og
varahlutakostnað.
Í Englandi hefur bílaritið Auto-
Express gert úttekt af þessu tagi
og birt lista yfir 10 hagkvæmustu
bílana. Í útreikningum sínum
sleppti blaðið tryggingakostnaði
þar sem hann er breytilegur og
ræðst fyrst og fremst af eiganda
bílsins en ekki bílmódelinu.
Niðurstaða ritsins er að Volks-
wagen Up 1.0 Take Up sé ódýrastur
að eiga. Litlir svonefndir borgar-
bílar drottna á listanum sem lítur
annars út sem hér segir:
1. Volkswagen Up 1.0 Take Up
2. Skoda Citigo 1.0 S
3. SEAT Mii 1.0 S
4. Kia Picanto 1.0 1
5. Dacia Sandero 1.5 dCi
Ambiance
6. Suzuki Alto 1.0 SZ
7. Peugeot 107 1.0 Access
8. Citroen C1 1.0i VT
9. Dacia Logan MCV 1.5 dCi
Ambiance
10. Mitsubishi Mirage 1.0
Í sætum 11-20 voru bílar sem
voru ekki fjarri því að komast í hóp
hinna 10 rekstraródýrustu, en sá
listi er annars fróðlegur og lítur út
sem hér segir:
11. Hyunda i10 1.2 Classic
12. Fiat 500 1.2 Pop
13. Ford Ka 1.2 Studio
14. Peugeot 208 1.0 VTi
15. Ford Fiesta 1.25 Studio
16. Skoda Roomster 1.2 TSi
limited Edition
17. Kia Rio 1.25 1
18. Hyundai i20 1.2 Classic
19. Smart ForTwo Edition21
Auto
20. Vauxhall Agila 1.0 ecoFLEX
Expression
Sé kíkt í einstaka geira bílmark-
aðarins þá eru ódýrustu bílarnir
að reka í hverjum flokki sem hér
segir:
Borgarbílar:
Volkswagen Up 1.0 Take Up
Ofursmábílar:
Dacia Sandero 1.5 dCi
Ambiance
Forstjórabílar:
BMW 518d SE
Minni fjölskyldubílar:
SEAT Toledo 1.2 E
Stórir fjölskyldubílar
Skoda Octavia 1.2 TSI S
Fjölnotabílar (MPV)
Skoda Roomster 1.2 TSI
Limited Edition
Jeppar
Dacia Duster 1.6 Access+
agas@mbl.is
10 ódýrustu bílarnir í rekstri
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Samkvæmt út-
tekt AutoExpress
er ódýrast að
reka Volkswagen
Up 1.0.
Bílar
Íslenskir trúlofunar- og giftingahringar
3.5mm 14k gullpar, 70.900,- með áletrun.
Smíðum hringa úr öllu mögulegu!.
Sérsmíði, framleiðsla og
viðgerðarþjónusta. ERNA, Skipholti 3, s.
5520775, www.erna.is
Nýr Chrysler Town & Country Diesel.
Eftirársbíll 2012 modelár á 2,1 milljón
lægra verði en 2013. Leðurinnrétting.
Álfelgur. Sæti fellanleg niður í gólf. ofl.
Eyðsla 7,9L í blönduðum akstri.
Verð: 8.790.000,-
www.sparibill.is
Fiskislóð 16 - sími 577 3344.
Opið kl. 12-18 virka daga.
Pólskt hjólhýsi
Gamalt pólskt (Predan) hjólhýsi til sölu. Í
toppstandi, eitt af þessum gömlu gullmo-
lum, nýlega endurnýjað.
Verð kr. 450.000.
Uppl. í síma 896 8073.
Smáauglýsingar
mbl.is
alltaf - allstaðar
Nú geta allir fengið
iPad-áskrift
Skráðu þig í iPad-áskrift á
www.mbl.is/mogginn/ipad/