Morgunblaðið - 08.04.2014, Síða 2

Morgunblaðið - 08.04.2014, Síða 2
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2014 2 BÍLAR P ink Floyd er meðal helstu sveita rokksög- unnar og liggur eftir hana mýgrútur magn- aðra hljómskífa sem enn í dag veita áheyrendum ánægju og innblástur þótt sveitarmeðlimir séu af léttasta skeiði. Enda er það svo að á sínum 45 ára ferli hafa fjórmenningarnir í hljóm- sveitinni selt ókjör af plötum og selja enn. Ekki liggur endilega fyrir í hvað þeir Roger Waters, Rick Wright og Dave Gilmour hafa varið sínum hluta þeirra fjármuna sem hafa orðið til í kjölfarið, en það blasir við hvað Nick Mason, trymbillinn geð- þekki, gerði við sinn hluta eða alltént fyrir vænan skerf af hon- um. Hann keypti sér bíla fyrir hann. Rúmlega fjörutíu stykki. Ítölsk ökutæki í eftirlæti Þótt bílarnir í safni Masons telji alls á fimmta tug er safnið skipulega samansett og enginn bíll er þar fyrir hendingu. Allir fela þeir í sér einhvers konar hönnunarlegan áfanga eða tímamót hvað einhvern þátt bílsins varðar; í safninu má sumsé sjá eins konar sögu GT- bíla nærfellt alla 20. öldina út í gegn. Til marks um það er að meðal elstu eintaka í safninu er Panhard frá árinu 1901. Annar sameiginlegur þáttur er milli bílanna í safninu, og hann er sá að langflestir þeirra eru ítalskir eðalvagnar, smíð- aðir til að fara hraðar en geng- ur og gerist. Meðal dýrinda þar á meðal eru Ferrari 512s (sem notaður var í hinni sígildu kapp- akstursmynd Steves McQueens, Le Mans), Porsche 962, Bugatti T35 frá 1927, Maserati Birdcage frá 1962, Ferrari Daytona GT4, Carrera Panamericana Ferrari MM, Aston Martin Le Mans frá 1930 og Maserati 250F, sem sjálfur Juan Manuel Fangio ók á sínum tíma. Perlan er fágætur Ferrari Af nýrri bílum hans má nefna Ferrari F40, Ferrari 599 GTO, McLaren F1 og Ferrari FF. Reyndar er slíkur fjöldi af Ferr- ari-fákum í safni Masons að hann var í hópi þeirra heppnu sem var boðið að kaupa eintak af þeim 400 Ferrari Enzo-bílum sem smíðaðir voru á árunum 2002 til 2004. Perlan í safninu, sá allra verð- mætasti og eftirlæti eigandans, er 1962-árgerð af Ferrari 250 GTO. Aðeins 36 slíkir voru framleiddir – réttara sagt handsmíðaðir – frá 1962 til 1964. Dýrgripir af þessari gerð eru nánast aldrei falir en til að gefa lesendum hugmynd um hvað slíkur gripur kostar ef hann fæst keyptur á annað borð má nefna að síðast þegar slíkur bíll skipti um eigendur var verðmiðinn 46 milljónir Bandríkjadala. Það jafngildir ríf- lega 5,5 milljörðum íslenskra króna. Bugatti Veyron hvað?! Þess má líka geta að Mason er ekki eingöngu eigandi glæsi- legra bíla heldur hefur hann margoft keppt sömuleiðis og hefur alla tíð verið liðtækur í hraðakstri. Hann á að baki þátttöku í Le Mans-þolakstr- inum og tekur dálætið, áð- urnefndan Ferrari 250 GTO, til kostanna að minnsta kosti einu sinni á ári. jonagnar@mbl.is Ökuþórinn Nick Mason Trymbill sem elskar tryllitæki Þar sem Mason átti allmarga Ferrari-bíla, og hafði þegar fest kaup á Ferrari F40, fékk hann boð um að kaupa þennan, Ferrari Enzo. Nick Mason er flestum sjálfsagt kunnuglegri sitjandi við trommusettið, en óneitanlega tekur hann sig vel út við stýrið á sígildum kappakstursbíl. Ofursportbíllinn McLaren F1 yrði víðast hvar framúrskarandi eintak, en í safni Masons er hann einn margra magnaðra bíla. Bílasafn Nicks Mason, trymbils í rokksveitinni Pink Floyd er slíkt að fá hljóta að jafnast á við það. Hér sést hluti þess í geymslu. Mason bregður sér á rúntinn á kappakstursbíl af gerðinni Maserati 250F. Hann reynir að liðka gæðingana í safninu við sem flest tækifæri.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.