Morgunblaðið - 08.04.2014, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2014
4 BÍLAR
S
aga Toyota Hilux er orðin
býsna myndarleg og
nær allt aftur til ársins
1968 þegar módelið var
fyrst kynnt fyrir umheiminum.
Bíllinn skóp sér snemma nafn
fyrir að vera harðgerður vinnu-
þjarkur og varð að stöðutákni
með eftirminnilegum hætti þegar
hann kom fyrir í metaðsókna-
myndinni Aftur til framtíðar
(Back To The Future) árið 1985,
kolsvartur og upphækkaður.
Verðugur draumabíll Marty
McFly. Bíllinn sem hér er kynntur
er af áttundu kynslóðinni og
verður að segjast eins og er að
Hilux eldist bráðvel.
Hilux er samur við sig
Þegar vinsæl módel eru upp-
færð - og það á ekki síst við um
bíla sem hafa verið framleiddir
undir sama nafninu í rúmlega 45
ár - skiptir öllu að betrumbæta
án þess að tefla erfðaefninu í tví-
sýnu. Það verður að segjast að
hér er kominn þvottekta Hilux, og
það sem meira er, andlitslyftingin
er virkilega vel heppnuð. Fram-
endinn er hinn myndarlegasti að
sjá og staðfestist það þegar 11
ára sonur undirritaðs leit próf-
unarbílinn fyrst augum. Strák-
urinn virti bílinn fyrir sér um
stund, leit svo á pabba sinn og
kinkaði kolli til marks um sam-
þykki.
"Næs," var allt sem segja
þurfti. Frekari vitna þarf vart við.
Loftinntakið á húddinu hefur þar
klárlega sitt að segja.Hilux er bíll
sem þarf að komast yfir vegleys-
ur og vota jörð og það gerir hann
með glans. Bíllinn var mátaður á
holóttum malarvegi og stóð sig
með mikilli prýði. Þeir sem festa
kaup á pallbíl af þessu tagi ætla
sér líkast til að nota hann víðar
en á straujuðu malbiki og það
þarf ekki að hafa áhyggjur af
honum þessum; veghæðin er
slíkt að töluverðar fyrirstöður
þarf að varna honum því að kom-
ast leiðar sinnar. Áhyggjuleysi við
slíkar aðstæður er eitt af því sem
verðmiði bíls af þessu tagi á að
fela í sér og það gerir hann
skammlaust.
Einfaldur að allir gerð
Bíllinn sem prófaður var er af
grunngerðinni Hilux DLX D/C
4WD Túrbó Dísel og það þýðir út
af fyrir sig lítið að kvarta yfir því
að eitt og annað vanti sem fólk
tekur sem sjálfsögðum stað-
albúnaði í dag.
Hann er einfaldlega seldur á
berstrípuðum forsendum fyrir þá
sem kjósa "no-frills" pallbíl með
brýnustu nauðsynjum og öku-
maður skynjar hann líka sem slík-
an. Í honum er að finna loftpúða
fyrir framsætin tvö, fjarstýrða
samlæsingu, rafdrifnar rúður og
læsingu á afturdrifi, en þá er það
upptalið. Vitaskuld kæmi bakk-
myndavél sér afskaplega vel, en
efri kantur afturhlerans á pall-
inum sést úr baksýnisspeglinum
svo það má bjarga sér upp á
gamla mátann þegar bakkað er.
Þá má hrósa fyrir USB-tengi sem
Jón Agnar Ólason reynsluekur Toyota Hilux
Snar og snöggur vinnuþja
Toyota Hilux DLXD/C 4WD túrbó dísil Árgerð 2014
• 16”álfelgur
• Eiginþyngd: 1.895kg.
•Heildarþyngd: 2.690kg.
• 0-100km/sek: 13.3
•Hámark: 170km/klst
• Fjórhjóladrif
•Verð: 5.860.000kr.
• 7.3L/ 100km íbl.akstri
• Umboð:Toyotaá Íslandi
•Mengunargildi:
194 gCO2/km
•2.5 lítradíselvél
• 144DINhö./144Nm
•5gírabeinskiptur
Hátt er undir Hilux og engin hætta á að vera á því að reka hann uppundir. Bíllinn fer örugglega yfir.
Kostir Viðbragð, vinnsla, útsýni
Gallar Vantar eyðslumæli fyrir eldsneyti