Morgunblaðið - 08.04.2014, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 08.04.2014, Qupperneq 5
er að finna í útvarpseiningunni og það er fínasta viðbót enda alltaf þakklátt að geta stungið eigin músík í samband. Það eina sem tilfinnanlega vantar er eyðslu- mælir í mælaborðið. Hann ætti eiginlega að vera skyldubúnaður núorðið. Eyðslan fyrir bílinn er gefin upp sem 7.3 L / 100 km í blönduðum akstri og sýndist undirrituðum það ríma nokkurn veginn við sigið á bensínmælinum miðað við ekna kílómetra. Þá fer vel um farþega enda sætis- og fótarými salla- gott, um leið og hátt er til lofts. Útsýni er líka prýðilegt enda sitja farþegar hátt. Í aftursæti er fínt sætispláss yfir þrjá fullorðna og fótarými vel þokkalegt. Snar í snúningum Hvað sem einföldum aðbúnaði og útbúnaði líður má þó segja Hi- lux til hróss að aksturseiginleikar jeppans koma talsvert á óvart. 2.5 lítra túrbó-dísilvélin skilar hreint skínandi vinnslu og togið gerir ökumanni kleift að hleypa Hiluxinum á skeið. Fyrsti gírinn er reyndar frekar máttlaus en um leið og komið er í annan gír er að sönnu stokkið af stað. Þaðan í frá kveður við svip- aðan tón þegar bíllinn er gíraður upp, það virðist alltaf vera hægt að stíga hann aðeins meira. Í miðri Ártúnsbrekkunni, á uppleið- inni í fimmta gír, var hægt að slá í án þess að skipta niður. Fáum dettur í hug að fara í spyrnu á Hi- lux en það má leyfa honum að eiga það að svifaseinn er hann ekki. Þá gefur stýrið kost á að beygja töluvert skarpar en ætla mætti, sem er afskaplega þakk- látt í jafn voldugum bíl. Allt veitir þetta ökumanni þá tilfinningu að hann sé að stjórna léttum og liprum bíl en ekki stirð- busalegum þjarki. Þá verður að geta þess að hurðaskellurinn er til fyrirmyndar í Hilux, hann er hnausþykkur og sannfærandi, lík- ast til fenginn að láni frá frænda sínum, LandCruiser 150. Toyota Hilux kostar í hinni spartönsku DLX-útgáfu 5.860.000 krónur og telst þetta vel ásættanlegt verð fyrir jeppa á borð við Hilux. Hæglega er hægt að bæta við ýmis konar auka- hlutum með tilheyrandi tilkostn- aði en eins og hann kemur af bandinu er Hilux einfaldlega góð- ur kostur fyrir þá sem vilja áreið- anlegan pallbíl sem skilar þeim vel og örugglega yfir vonda vegi um leið og akstur innanbæjar er hinn fínasti. jonagnar@mbl.is Morgunblaðið/Þórður Framendinn er bráðvel heppnaður á Hilux-bílnum og svipurinn hinn reffilegasti. Plássgóður pallurinn á að leysa flest þau flutningsverkefni sem fyrir bílinn eru lögð. arkur Þó innanstokks sé fátt um lúxus og aukahluti fer vel um ökumann og far- þega og allt smekklega af hendi leyst, þó einfaldleikinn sé í öndvegi. Þeir sem fara ferða sinna í Hilux hafa prýðisgott útsýni og hátt er til loftsins. Aðgengið er líka gott og auðvelt að snara sér inn og út. Toyota Hilux árgerð 2014 er verklegur og laglegur að sjá, snarpur í akstri og skemmtilegur að meðhöndla á allan máta. Hilux hefðin er sterk og nýja kynslóðin er henni til sóma. MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2014 BÍLAR 5 Bíldshöfði 12 · 110 Rvk · 5771515 · skorri.is Veldu öruggt start með TUDOR.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.