Morgunblaðið - 08.04.2014, Síða 6
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2014
6 BÍLAR
Hinn annálaði ítalski bílaframleið-
andi Alfa Romeo berst fyrir lífi sínu.
Á tímabilinu 2004 til 2012 dróst
sala hans saman um 56% og í
fyrra nam rekstrartapið 520 millj-
ónum evra, tæplega 80 milljörðum
króna.
Eigi að bjarga fyrirtækinu verður
eitthvað alveg nýtt að gerast í ranni
þess. Og eigi væntingar Alfa Ro-
meo um fimmfalda söluaukningu
til ársins 2018, miðað við bílasölu
þess árið 2012, að ganga eftir verð-
ur mikið að ske. Jafnvel að varpað
verði fyrir róða smíði módela á
borð við hina framdrifnu MiTo og
Giulietta, sem eru uppistaðan í
bílasölu Alfa Romeo í dag.
Alfa Romeo er í eigu Fiat-
fyrirtækisins og þar á bæ er verið
að skoða leiðir til að bjarga hinu
nafntogaða fyrirtæki frá glötun.
Meðal annars að Ferrari leggi því til
vélar í nýtt og breytt framboð bíla-
módela.
Drif á afturhjólum og drif á öllum
fjórum og vélar frá Ferrari er uppi-
staðan í forskrift að nýjum bílum
sem ætlað er að bjarga Alfa Ro-
meo. Það þykja góðar fréttir fyrir
harðkjarnaunnendur Alfa Romeo
sem dýrka beitta aksturseiginleika,
fágaðar vélar og fagra hönnun.
Hinum nýju módelum Alfa Ro-
meo er ætlað að skora þýsk bíl-
merki, svo sem BMW, á hólm svo
hátt er reitt til höggs. Maðurinn
sem ætlar að reisa Alfa Romeo við
og hefja bílsmiðinn til fyrri reisnar
er stjórnarformaður Fiat-sam-
steypunnar um áratugar skeið,
Sergio Marchionne.
„Það er annaðhvort nú eða aldrei
fyrir Alfa Romeo,“ segir Giuseppe
Berta, prófessor við Bocconi-
háskólann í Mílanó, um stöðu bíl-
smiðsins við Bloomberg-frétta-
stofuna. „Áform Marchionnes eru
spennandi en áhættusöm. Til að
keppa við bestu þýsku bílmerkin
verður hann að skapa Alfa mikla
sérstöðu og bestu meðölin til þess
eru vélar frá Ferrari og ítölsk hönn-
un.“
Segja má að endurreisn Alfa
Romeo sé þegar hafin með sport-
bílnum 4C, sem kynntur var til sög-
unnar í fyrra, og hinum opna 4C
Spider. Bíl sem hefur alla burði til
að öðlast svipaðan sess í huga
manna og Alfa Romeo 1600 Spider
Duetto frá sjöunda áratugnum,
sem var m.a. áberandi í kvikmynd-
inni The Graduate með Dustin
Hoffman undir stýri.
Marchionne boðar sjö ný módel í
bílalínu Alfa Romeo fram til 2018.
Þar á meðal fernra dyra bíl í milli-
flokki sem gengið gæti nafnið
Giulia; annað bílheiti úr ranni bíl-
smiðsins frá sjöunda áratugnum.
Hann verður smíðaður í bílsmiðju
Fiat í Cassino við Róm. Vélarnar
verða V6-gerðar og úr smiðju Ferr-
ari. „Alfa Romeo verður fram-
leiddur á Ítalíu og með ítalskar vél-
ar. Sumir hlutir eru bundnir við
ákveðinn stað og Alfa Romeo heyr-
ir Ítalíu til,“ sagði Marchionne er
hann stjórnaði frumsýningu á 4C-
Spiderbílnum í Genf í byrjun síð-
asta mánaðar.
agas@mbl.is
Alfa Romeo berst
fyrir tilveru sinni
Alfa Romeo Spider 4C hugmyndabíllinn fer senn í framleiðslu og binda framleiðendur miklar vonir við hann.
Alfa Romeo 4C er liður í endurreisn ítalska bílsmiðsins.
Þótt ennþá farist um 70 manns á
degi hverjum í umferðarslysum á
vegum í aðildarríkjum Evrópu-
sambandsins (ESB) fer dauða-
slysunum fækkandi.
Þannig fækkaði dauðsföllum
um 8% í fyrra frá árinu 2012. Og
frá 2010 hefur þeim fækkað um
17%, samkvæmt skýrslu um um-
ferðaröryggi sem samgöngu-
stjóri ESB hefur birt.
Fækkunin er að hluta til þökk-
uð aukinni og betri samvinnu
lögreglusveita við að hafa uppi á
ökuníðingum. Ný lög gera lög-
reglu eins lands að elta uppi öku-
fanta inn í annað ríki. Þá hafa
umferðar- og lögregluyfirvöld
tekið höndum saman og inn-
heimta sektir sem ökumenn hafa
stofnað til í öðru landi.
„Ég er stoltur af því að Evrópa
er komin á réttu brautina í við-
leitninni við að ná því markmiði
sínu að fækka um helming
dauðsföllum á vegum fram til
ársins 2020. En fögnum í hófi
því ennþá bíða 70 manns bana
dag hvern á vegum Evrópu,“ segir
Siim Kallas, samgöngustjóri ESB,
en undir hans embætti heyra um-
ferðaröryggismál. „Þetta er verk-
efni sem heldur áfram og það er
ánægjulegt, að fólk gerir sér betri
grein fyrir því að ekki er um neitt
annað að ræða til að ná árangri
en fara eftir umferðarreglunum.“
Í skýrslunni kemur fram, að
talsverður munur er á umferð-
aröryggi einstakra landa þegar lit-
ið er til þess hversu margir látast
í umferðinni miðað við milljón
íbúa. Í Belgíu eru þeir 65, eða tvö-
falt fleiri en í Bretlandi en þar er
hlutfallið 29 manns á milljón íbúa.
Enn verra er ástandið í Rúmeníu,
þar sem 92 láta lífið á hverja millj-
ón á ári, í Póllandi 87, í Króatíu
86, í Búlgaríu 82 og í Grikklandi
81. Best er ástandið í Svíþjóð
(28), Bretlandi (29) og Spáni
(37).
Í Frakklandi farast 50 manns á
vegunum ár hvert á milljón íbúa
og í Þýskalandi 41. Meðaltalið fyr-
ir ESB-löndin öll er 58 dauðsföll á
milljón. Þetta hlutfall hefur verið
að lækka í öllum aðildarríkjunum
nema á Möltu og í Lúxemborg.
Sakir stærðar þessara smáríkja
tveggja er heildarfjöldi látinna
hverfandi miðað við önnur lönd.
agas@mbl.is
Dauðaslysum hefur fækkað um 17% frá 2010
Færri dauðaslys á vegum innan ESB
AFP
Dauðaslysum hefur farið fækkandi á vegum í aðildarríkjum ESB, en þeim hefur fækkað um 17% frá árinu 2010 .
Fyrir skömmu frumsýndu
BL Renault Megane í
sinni nýjustu útgáfu en á
sama tíma var afar
áhugaverður bíll sýndur,
nýr Renault Clio RS, en
um er að ræða 200 hest-
afla græju með rað-
skiptum gírkassa og
háþróaðri fjöðrun.
Clio RS byggist á langri
hefð svokallaðra heitra
hlaðbaka – eða hot hatch
– en á því sviði hafa Frakkar ætíð
verið framarlega og hin síðari ár
hefur Renault stolið athyglinni með
bílum sem jafnan eru taldir á með-
al öflugustu framdrifsbíla sem fást.
Clio RS er engin undantekning þar
á. Bíllinn þykir sérlega lipur og lag-
legur. Ýmsu hefur þó verið breytt
frá fyrri kynslóð bílsins. Hann fæst
fimm dyra en afturhurðirnar eru
fimlega faldar af hönnuðum bíls-
ins. Þá er stærsti munurinn sá að
bíllinn fæst ekki lengur beinskiptur
heldur er hann eingöngu fáanlegur
með raðskiptum gírkassa með áls-
pöðum við stýrið til að skipta um
gír. Gírkassinn notast við tvær kúp-
lingar og getur bæði verið mjúkur
til innanbæjarnotkunar eða full-
komlega harður í skiptingum þegar
mikið liggur við.
Einstakir aksturseiginleikar
1,6 lítra vélin skilar 200 hest-
öflum eins og áður segir og notar
túrbínu til að skila þessu mikla
afli. Tog vélarinnar er 240 Nm og
er hægt að nota svokallað
„launch control“ til að hleypa
bílnum af stað úr kyrrstöðu með
hámarks hagkvæmni. Bíllinn skil-
ar sér í 100 km/klst á aðeins 6,7
sekúndum og hjálpar lítil þyngd
bílsins þar töluvert enda er hann
aðeins 1.204 kg óhlaðinn.
Á Íslandi hafa öflugir Renault-
bílar á borð við Megane RS selst í
einhverju magni og má ætla að
kaupendur sem hafa verið heitir
fyrir VW Golf Gti muni einnig líta
til Renault Clio RS til sam-
anburðar en þá má ætla að
mörgum komi aksturseiginleik-
arnir mjög á óvart enda nýtur Clio
RS reynslu Renault í kappakstri
sem skilar sér í hnífskörpum
aksturseiginleikum í bland við
nauðsynlega mýkt til innanbæj-
arbrúks.
njall@mbl.is
200 hestafla Renault
Clio RS hjá BL
Renault Clio RS, 200 hestafla heitur hlað-
bakur, var frumsýndur hjá BL fyrir skömmu.
Japanski bílsmiðurinn Mitsubishi
hefur ákveðið að hætta smíði á
Lancer Evolution X undir lok árs-
ins. Að sögn talsmanna fyrirtæk-
isins verður ekkert módel þróað í
hans stað.
Allt frá því hann kom fyrst á
götuna árið 1992 hefur Mitsub-
ishi Lancer Evolution verið keppi-
nautur Subaru WRX ST. Hermt er
að arftaki sé ekki ráðgerður þar
sem japanski bílsmiðurinn ætli
að stokka starfsemi sína upp og
leggja áherslu á smíða vistvænna
bíla. Undir þá skilgreiningu fellur
Lancer Evolution X engan veginn.
Ein öflugasta útgáfan af bíln-
um er Evolution X FQ-440 MR
sem búinn er tveggja lítra og
fjögurra strokka forþjappaðri vél
sem skilar 440 hestöflum.
agas@mbl.is
Smíði Lancer
Evolution X
hætt
Smíði Lancer Evolution X verður
hætt og enginn arftaki er í bígerð.