Morgunblaðið - 24.04.2014, Blaðsíða 6
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 2014
6 VIÐSKIPTI
BAKSVIÐ
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
K
PMG telur að fjárfest sé
of mikið í uppbyggingu
hótela miðað við spár
um fjölgun ferða-
manna. „Fjárfestar
sem hafa áhuga á greininni ættu því
líklega frekar að horfa á fjárfest-
ingatækifæri í afþreyingu. Vinsælir
viðkomustaðir eins og Bláa lónið,
Gullfoss og Geysir eru komnir að þol-
mörkum og anna varla fleiri ferða-
mönnum,“ segir í úttekt fyrirtæk-
isins um arðsemi í hótelrekstri.
Framboð hótelherbergja hafi
aukist umtalsvert á undanförnum
fimm árum en þó ekki í takt við fjölg-
un ferðamanna. Þrátt fyrir að fram-
boð hafi aukist mikið hafi nýting-
arhlutfall hækkað í öllum
landshlutum. Í úttektinni segir að
spár um komur erlendra ferðamanna
geri ráð fyrir 6% árlegum jafn-
aðarvexti á milli áranna 2014 og
2017. Á sama tíma geri áætlanir ráð
fyrir að framboðsaukning verði held-
ur meiri á landinu öllu eða 12% árleg
aukning meðal bæði núverandi og
nýrra rekstraraðila. „Að öðru
óbreyttu mun nýtingarhlutfall þ.a.l.
lækka á ný. Ef tekið er mið af nýt-
ingu herbergja yfir háönn ferðaþjón-
ustunnar og vexti síðustu ára í kom-
um erlendra ferðamanna er ljóst að
fjárfestingarþörfin er fyrir hendi.
Hins vegar er einnig þörf fyrir að
nýta fjárfestingar í hótelherbergjum
betur á heilsársgrundvelli og auka
frekar á markaðssetningu vetr-
aráfangastaða sem hefur verið að
skila sér í vexti utan háannar,“ segir
í skýrslunni.
Vanda þarf til verks
Í úttektinni er mælt með því að
vanda til verks við uppbyggingu
ferðaþjónustu. Ef ekki verði byggt
hótelrými af meiri gæðum en raunin
sé og betri þjónusta veitt, gæti ís-
lensk ferðaþjónusta orðið að lág-
launagrein sem geri út á magn frem-
ur en gæði. „Miðað við þann vöxt
sem átt hefur sér stað er ekki langt
þangað til að við Íslendingar verðum
ósáttir við alla þessa ferðamenn í
lausagöngu,“ segir KPMG í úttekt-
inni.
Hættumerki
„Ákveðin hættumerki leynast í þess-
ari aukningu þar sem tölfræði um
menntun starfsfólks í námi sem nýt-
ist í hótelstarfsemi gefur til kynna að
lítil fjölgun virðist hafa átt sér stað.
Sú þróun getur komið til með að
bitna á þjónustu hótela og ánægju
þeirra gesta sem sækja Ísland heim,“
segir í úttektinni. Rekstraraðilar
virðast meðvitaðir um að auka þurfi
hæfni starfsmanna, að því fram kem-
ur í könnun á vegum KPMG.
Frá árinu 2009 hefur fjöldi
þeirra sem sækja námskeið tengd
hótel- og veitingarekstri hjá
Fræðslusetri Iðunnar dregist saman.
Þá hefur fjöldi útskrifaðra nemenda
á námsbrautum Menntaskólans í
Kópavogi tengdum hótel- og veit-
ingarekstri staðið í stað. Verði raunin
sú, segir í úttektinni, að framboð hót-
elherbergja vaxi hraðar en fjöldi
þeirra sem sækja sér viðeigandi
menntun er hættan sú að gæði þjón-
ustunnar líði fyrir vikið. „Þetta kann
að spila saman við gæði þeirra hótela
sem á að byggja upp. Fæst þeirra
munu vera í hærri gæðaflokkum en
þau sem fyrir eru og því er frekar
verið að skapa umhverfi láglauna-
starfa,“ segir í úttekt KPMG.
Minni árstíðasveiflur
Minni árstíðasveiflur eru grundvöllur
að stöðugri rekstri í ferðaþjónustu.
„Eins og gefur að skilja er aukin eft-
irspurn eftir hótelherbergjum afleið-
ing af þeim fjölda ferðamanna sem
sækja Ísland heim. Það eru jákvæð
merki að á samanburðarárunum 2009
og 2013 er greinilegur vísir að sam-
drætti í árstíðasveiflum komu er-
lendra ferðamanna sem eru mjög já-
kvæð tíðindi fyrir hótelrekstraraðila.
Hinsvegar greiða ferðamenn allt að
þrisvar sinnum lægra verð utan há-
annar (janúar til maí og september
til desember) og því er reksturinn
enn í járnum, ef ekki tapi, á þessum
mánuðum. Jafnara flæði erlendra
ferðamanna yfir árið skapar grund-
völl fyrir stöðugri heilsárs rekstri.
Fyrirtækin geta þannig ráðið og
haldið hæfara starfsfólki, sem grund-
vallast á því að starfsfólk býr við
öruggari starfsskilyrði, helst lengur í
starfi og ætti þ.a.l. að geta veitt betri
þjónustu,“ segir í skýrslunni.
KPMG segir of mikið f
KPMG mælir með því að fjárfestar sem eru áhugasamir um ferðaþjónustu fjárfesti frekar í afþreyingu Ef ekki er vandað til verka við uppbyggingu
við ferðamannastrauminn og það getur komið niður á upplifun ferðamanna „Miðað við þann vöxt sem átt hefur sér stað er ekki langt þangað til að
EBIT* hótela á hvert herbergi
Meðaltal
*Earnings before interest and taxes eða hagnaður fyrir vexti og skatta
Höfuðborgarsvæðið Landsbyggðin Suðurland
2009 2010 2011 2012
1.000
800
600
400
200
0
-200
Fjöldi nema í fullu nám
Útskrifaðir úr hóteltengdum greinumMK
Umsóknir um lán vegna hótelstjórnunar og
100
80
60
40
20
0
2009 2010
76
24
70
18
60
Brottfarir ferðamanna frá Leifsstöð
Fjöldi ferðamanna 2009 (v.ás) Fjöldi ferðamanna 2012 (v.ás)
Aukning 2009-2013 (h.ás)
140.000
120.000
100.000
80.000
60.000
40.000
20.000
0
140%
120%
100%
80%
60%
40%
20%
0%
Jan Feb Júní oktApr Ág DesMars Júlí NóvMaí Sept
Hagfræðideild Landsbankans
spáir því að á næsta ári megi bú-
ast við meira en milljón erlend-
um ferðamönnum til landsins og
þá eru komur erlendra ferða-
manna með skemmtiferðaskip-
um ekki meðtaldar. Til sam-
anburðar komu hingað rétt um
300 þúsund erlendir ferðamenn
um aldamótin. „Ef til vill væri
nær að tala um byltingu en breyt-
ingu á svo skömmum tíma,“ seg-
ir í spánni.
Bylting í ferða-
mannafjölda
MILLJÓN FERÐAMENN
VÆNTANLEGIR
Minningar Ferðamenn taka
myndir við Gullfoss um páska.