Morgunblaðið - 07.05.2014, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 07.05.2014, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ 2014 ÞINN STUÐNINGUR GERIR KRAFTAVERK Aðgangur að hreinu vatni er ekki sjálfgefinn. Hjálparstarf kirkjunnar gerir fólki kleift að byggja brunna í Afríku – og þitt framlag skiptir sköpum. Þú getur hjálpað núna með því að greiða valgreiðslu í heimabanka. EINNIG: • Frjálst framlag á framlag.is • Gjafabréf á g jofsemgefur.is • Styrktarsími: 907 2003 (2.500 kr.) • Söfnunarreikningur: 0334-26-886, kt. 450670-0499 Gefðu gjöf sem skiptir máli HREINT VATN BJARGAR MANNSLÍFUM Medical doctors Work available for 1-2 full time GPs in community health care centre, Vanylven, Norway. For more information please meet us at European job days at Harpa, Saturday 10.05.14 or at Hotel Arnarhvoll Thursday 08.05.14, 19.00 o’clock. Ask for Arnhild Nordaune. You can also get in touch with us through the following links: Arnhild.nordaune@vanylven.kommune.no www.vanylven.kommune.no. SVIÐSLJÓS Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Yfir hundrað þúsund Íslendingar mega eiga von á umslagi í pósti á næstu dögum frá Íslenskri erfða- greiningu (ÍE). Í umslaginu er boð um þátttöku í samanburðarhópi fyrir rannsóknir fyrirtækisins og munn- spaði ef fólk vill gefa fyrirtækinu líf- sýni sitt. ÍE fékk Slysavarnafélagið Lands- björg í lið með sér og mega þeir sem fá umslög í pósti eiga von á að björg- unarsveitarmenn banki upp á til að safna saman umslögum með lífsýnum. Átakið nefnist Útkall – í þágu vísinda. ÍE styrkir Landsbjörg um 2.000 krónum fyrir hvert sýni sem er skilað. Hörður Már Harðarson, formaður Landsbjargar, sagði á blaðamanna- fundi í gær að á milli fimm og tíu þús- und björgunarsveitarmenn tækju þátt í verkefninu sem væri eitt það stærsta sem Landsbjörg hefði tekið að sér. „Okkar þátttaka snýr ein- göngu að því að sækja þessi sýni. Við munum fara á hvert einasta heimili til þeirra einstaklinga sem hafa óskað eftir að taka þátt í verkefninu og sækja sýnin,“ sagði Hörður en björg- unarsveitarmenn byrja að ganga í hús á morgun og verða að fram á sunnu- dag. „Hugmyndin var sú að gera þetta í stað þess að fá verktaka til þess að vinna fyrir okkur, með þessu móti get- um við styrkt Landsbjörg í staðinn fyrir að borga verktökum,“ sagði Kári Stefánsson, forstjóri ÍE. Kári sagðist vera bjartsýnn á að þetta átak tækist vel en reiknaði þó ekki með 100% þátttöku, vonir stæðu þó til að ná töl- verðum hópi. Best og breiðust mynd ÍE hefur þegar safnað sýnum frá yfir 120.000 landsmönnum. Með þessu átaki hyggst fyrirtækið efla rann- sóknir sínar en það hefur þegar fundið breytileika í erfðaefni mannsins sem tengjast áhættu á fjölda algengra sjúkdóma. Tengsl erfðabreytileika við sjúkdóma finnast með því að bera erfðaefni sjúklinga saman við erfða- efni heilbrigðra. „Að flestu leyti er íslensk þjóð vel til þess fallin að nota hana sem viðfangs- efni í rannsóknum á eðli sjúkdóma, sérstaklega þar sem er notuð erfða- fræði. Við höfum þó einn veikleika sem er sá að við erum tiltölulega fá og tilfellin af sjúkdómum þá líka. Ein að- ferð til að takast á við það er að nota stóran samanburðarhóp og það er ein af ástæðunum fyrir því að við erum núna að ráðast í að reyna að fá til liðs við okkur mjög stóran hóp af fólki til þess að vera í þessum samanburð- arhópi,“ sagði Kári. Þeim mun stærri sem hóparnir eru því nákvæmari verða niðurstöð- urnar. Auk samanburðar við sjúk- lingahópa verða sýnin notuð til að kanna tíðni tiltekinna erfðabreyti- leika almennt meðal Íslendinga og gera samanburð við aðrar þjóðir. Þeir sem boðið er í samanburð- arhópinn eru eldri en 18 ára, hafa ekki tekið þátt í rannsóknum ÍE áð- ur og eru valdir með það fyrir aug- um að hópurinn gefi sem besta og breiðasta mynd af þjóðinni. Afsala ekki rétti Kári segir gefanda lífsýnis ekki af- sala sér alls réttar til þess við gjöf- ina. „Þú getur hringt daginn eftir og sagt að þú viljir ekki taka þátt í þessu lengur og viljir eyða sýninu, það verður þá gert á svipstundu. Þú átt líka rétt á því að fá upplýsingar um niðurstöðurnar, ef við höfum nýtt sýnið sem þú gafst, en það verð- ur hinsvegar að gerast í gegnum Persónuvernd. Við eigum engan möguleika á því að finna þig í okkar grunni, þar eru allar kennitölur dul- kóðaðar en hins vegar getur Per- sónuvernd látið afkóða upplýsing- arnar og upplýst þig um hvað kom fram og þú átt rétt á því,“ sagði Kári. Hann býst við því að fyrsta notk- unin á þeim sýnum sem safnast í átakinu nú eigi sér stað síðari hluta þessa árs. Morgunblaðið/Eggert Lífsýnasöfnun Magnús Karl Magnússon, forseti læknadeildar HÍ, Kári Stefánsson, forstjóri ÍE, og Hörður Már Harð- arson, formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar, á blaðamannafundi í Hörpu í gær þar sem átakið var kynnt. Safna lífsýnum með aðstoð björgunarsveita  Íslensk erfðagreining póstsendir Íslendingum munnspaða Tvær ábendingar hafa þegar borist Persónuvernd vegna lífsýnasöfn- unar Íslenskrar erfðagreiningar og eru þær báðar til skoðunar. Þá barst Persónuvernd í gær upplýsinga- pakki um söfnunarátak ÍE sem fór þá af stað. „Vinnsla almennra eða viðkvæmra persónuupplýsinga í þágu vísinda- rannsóknar, sem byggir á upplýstu samþykki þátttakenda, er ekki leyf- isskyld hjá Persónuvernd,“ segir Alma Tryggvadóttir, lögfræðingur hjá Persónuvernd. „Almennt þegar vinnsla persónu- upplýsinga byggir á upplýstu sam- þykki þarf hins vegar að senda Per- sónuvernd tilkynningu um hana samkvæmt 2. mgr. 4. gr. reglna nr. 712/2008, um tilkynningarskylda og leyfisskylda vinnslu persónuupplýs- inga. Þetta gildir þó ekki þegar um er að ræða aðgang að sjúkraskrá einstaklings en þá þarf alltaf leyfi Persónuvendar fyrir slíkum að- gangi.“ Aðspurð segist Alma ekki muna til þess að sambærileg félagssamtök hafi verið fenginn til að afla lífsýna fyrir hönd rannsakenda. En ábyrgð- araðila vinnslu ber að tryggja öryggi persónuupplýsinga, s.s. lífsýna, að þær glatist ekki eða breytist fyrir slysni eða berist óviðkomandi. Í þágu margra rannsókna Í upplýsingapakka sem fylgir líf- sýnasöfnun ÍE kemur fram að lög- um um persónuvernd nr. 77/2000 sé fylgt og skilmálum Persónuverndar vegna rannsóknarinnar. Engin per- sónuauðkenni verði sett á sýni eða upplýsingar sem send eru ÍE heldur verða kennitölur dulkóðaðar. Dul- kóðunarlykillinn er í umsjá fulltrúa Persónuverndar. „Íslensk erfðagreining hefur feng- ið mörg leyfi frá Persónuvernd fyrir vinnslu persónuupplýsinga í þágu tiltekinna rannsókna en þarna virð- ist vera um söfnun lífsýna í þágu margra rannsókna að ræða sem hafa áður fengið leyfi Persónuverndar, ekki í þágu einnar rannsóknar, það er víðtækara,“ segir Alma. Persónuvernd hafa borist tvær ábendingar Stundum er raunveruleikinn ótrú- legri en nokkur lygasaga. Það á við um sjöfalda lottópottinn sem gekk út síðasta laugardag. Aðalvinning- urinn skiptist á tvo miða en í ljós kom að einstæð þriggja barna móð- ir og öryrki átti báða vinningsmið- ana og fær hún yfir 84 milljónir. Konan sagðist hafa keypt lottó- miða fyrir tveimur vikum hjá Olís við Norðlingabraut en týnt honum. Auk þess hefði hún ekki verið viss hvort hann væri enn í gildi. Fyrir helgi fór hún því í Ísgrillið á Bú- staðavegi og keypti aukamiða með fjórum röðum og sömu tölum og hún hefur haft í 13 ár. Fyrri miðinn fannst síðan í bíl konunnar með hjálp að handan, en hún spurði afa sinn heitinn hvar miðinn væri. Átti báða miðana og fær 84 milljónir Fulltrúar frá Landssambandi hesta- mannafélaga (LH), félaginu Gull- hyl, Sveitarfélaginu Skagafirði og Akrahreppi funduðu í Ráðhúsinu á Sauðárkróki í fyrradag og rituðu þar undir viljayfirlýsingu um að halda Landsmót hestamanna dag- ana 27. júní til 3. júlí árið 2016 á Vindheimamelum í Skagafirði. Haraldur Þórarinsson, formaður LH, segir stjórn sambandsins hafa ákveðið að ganga til samninga við Skagfirðinga, en Eyfirðingar höfðu einnig lýst yfir vilja til að halda landsmótið 2016. Að sögn Haraldar er eftir að ganga frá endanlegum samningum en viljayfirlýsingin hafi verið gerð til að negla niður dagsetningu þannig að Skagfirðingar og að- standendur mótsins geti nú þegar hafið markaðssetningu þess. Ákveðið hafi verið að fá sveitar- félögin meira að undirbúningi Landsmóts hestamanna en verið hafi. bjb@mbl.is Landsmótið haldið í Skagafirði árið 2016

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.