Morgunblaðið - 07.05.2014, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 07.05.2014, Blaðsíða 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ 2014 Elsku Freyja mín, mér finnst eins og þú hafir alltaf verið í lífi mínu en þó mætti segja að frá því að þú fluttir fyrst á Svalbó hafi myndast ákveðin tengsl á milli okkar sem rofnuðu aldrei. Fyrstu minningarnar eru úr Jakobshúsi en flestar eru úr Gömlubúð sem oft var kölluð félagsmiðstöðin. Lífið í Gömlubúð var yndislegt, þar var alltaf eitthvað að gerast og vorum við krakkarnir úr hverfinu duglegir að koma niður- eftir til ykkar. Þó held ég að ég hafi verið sú allra duglegasta enda var ykkar heimili eins og mitt annað heimili. Til þín var alltaf gott að koma og hefur þú alltaf reynst mér ótrúlega vel. Við eigum saman minningar úr lífinu, bæði af erf- iðum tímum en flestar minning- arnar eru þó af þeim hlátri sem umlukti nærveru þína. Ég hef stundum talað um Gömlubúðar- heilkennið, en það er þegar mað- ur hlær, getur ekki hætt en veit ekki af hverju maður er að hlæja. Gleði, sköpun og vitleysis- gangur er það sem mér dettur í hug þegar ég hugsa um Freyju mína. Ég hef hér komið nokkuð inn á gleðina en sköpun af ýmsum toga einkenndi hana. Það er varla til sú sköpun sem hún lagði ekki fyrir sig en ef svo er tel ég að mótpartur hennar hafi tekið það að sér. Freyja var listfeng, sem Freygerður Anna Baldursdóttir ✝ FreygerðurAnna Baldurs- dóttir fæddist á Vestara-Landi í Öx- arfirði hinn 21. september 1955. Hún lést 15. apríl 2014. Freygerður Anna var jarð- sungin í Akureyr- arkirkju 28. apríl 2014. litaði heimili hennar sem alltaf var snyrtilegt og fínt, enda var henni í nöp við óhreinindi. Líkt og hún orðaði við mig þegar ég vann hjá henni í Allanum: „Við förum ekki eina umferð með moppurnar, það kallast ekki að skúra, það er að blautmoppa.“ Hvað varðar vitleysisgang þá má segja að gleðin og sköpunin hafi átt rætur að rekja í léttleika Freyju. Það er eitt af því sem ég tel mig hafa tileinkað mér frá henni; að taka hlutina ekki of al- varlega, hætta að velta sér upp úr því hvað öðrum finnst og hafa gaman af. Þegar við komum sam- an og vorum í þeim gírnum áttum við það til að mana hvor aðra upp í einhverja vitleysu og vildu margir meina að við værum að gera okkur að fíflum. Hins vegar sagði Freyja alltaf: „Við erum að hafa gaman af lífinu.“ Margar eru þær til minning- arnar um hana Freyju mína og finnst mér erfitt að taka einhverj- ar og segja frá því allar eru þær mér svo kærar. Ég elska þig Freyja, „hin mamma mín“ sem stóðst alltaf við bakið á mér, varst alltaf til staðar ef ég þurfti á þér að halda, gat alltaf leitað til þín ef mig vantaði eitthvað (því þú áttir næstum allt) og sýndir mér hvernig maður lifir lífinu (eða með öðrum orðum, þú sýndir mér hvað skiptir mestu máli í líf- inu, það er að njóta þess). Far nú í friði mín kæra, það munu ófá tár renna niður vanga mína en get samt glaðst í hjarta mínu fyrir þau forréttindi að hafa fengið að hafa þig í lífi mínu öll þessi ár. Saknaðarkveðja, Ingibjörg. ✝ IngibjörgKristjánsdóttir (Inger) fæddist í Reykjavík 17. júlí 1952. Hún lést á krabbameinsdeild Landspítalans við Hringbraut 18. apríl 2014. Foreldrar henn- ar voru Kristján Edilon Hjálm- arsson, f. 14. júní 1931, d. 9. nóvember 1996, og Hulda Margrét Hermóðsdóttir, f. 24. desember 1930, d. 5. jan- úar 2012. Ingibjörg átti börnin Hans Guðmund, f. 4. nóvember 1969, Huldu Margréti, f. 13. apríl 1973, og Kristján Edilon, urjónsdóttur, f. 2. febrúar 1982, og börn þeirra eru Rebekka Rut, f. 12. október 2006, og Edi- lon Edward, f. 10. nóvember 2008. Árið 1989 kynntist Ingi- björg eftirlifandi eiginmanni sínum, Guðjóni Hólm Guð- bjartssyni, f. 6. maí 1948. Þau áttu saman börnin Hólmar Hólm, f. 20. nóvember 1990, og Ólafíu Þyrí Hólm, f. 20. febrúar 1992. Hólmar er í sambúð með Daníel Hauki Arnarssyni, f. 28. febrúar 1990. Ólafía er í sam- bandi með Hafþóri Erni Þór- issyni, f. 22. nóvember 1990. Ingibjörg gekk í Lækjarskóla í Hafnarfirði og var einnig við nám í Reykholti í Borgarfirði. Þaðan fór hún í Húsmæðraskól- ann á Staðarfelli. Ingibjörg starfaði lengst af sem dagmóðir í Reykjavík . Að ósk Ingibjargar fór útför hennar fram í kyrrþey frá Brautarholtskirkju hinn 29. apríl 2014. f. 23. júní 1974, úr fyrra hjónabandi með Magnúsi Mó- berg Hanssyni, f. 21. desember 1949, en árið 1989 slitu þau Magnús sam- vistir. Hans er í sambúð með Önnu Katarzynu Woz- niczka, f. 5. janúar 1983. Hulda er gift Valtý Bergmann Benediktssyni, f. 28. ágúst 1975, og börn þeirra eru Orri Bergmann, f. 18. janúar 1996, Aron Atli Bergmann, f. 29 ágúst 1999, og Sara Bergmann, f. 26. júlí 2000. Kristján er kvæntur Bergrúnu Lilju Sig- Ingibjörg Kristjánsdóttir, mág- kona okkar, er látin, 61 árs að aldri. Leiðir okkar lágu saman fyrir meira en tveimur áratugum þegar hún og Gaui bróðir urðu par. Fíngerð og brothætt við fyrstu sýn en það var bara yfir- borðið. Undir fíngerðu útlitinu var sterkur og hispurslaus karakter sem líkaði illa við allt miðjumoð og fór óhrædd sínar eigin leiðir. Vin- ur í raun og mesta og besta bak- land sem börnin hennar gátu átt. Fyrir þau hefði hún vaðið eld og brennistein. Inger hafði lag á að gera fallegt í kringum sig og sína og var með endalaust hugmyndaflug í að betr- umbæta og skapa fallega hluti. Enda bera heimilið og garðurinn þess vitni. Við kveðjum kæra mágkonu með virðingu og söknuði og vitum að sorg fjölskyldunnar er yfir- þyrmandi og dagarnir endalausir. Enginn stóð hjarta hennar nær en fjölskyldan. Börnin fengu gott veganesti út í lífið. Með fordæmi sínu kenndi hún þeim hvað það er að vera ærleg og góð manneskja. Hún vissi líka að það skiptir máli að nota tímann vel. Stundum finnst manni að lífið sé handan við hornið en andartakið í dag er lífið sjálft. Hugur okkar er hjá fjöl- skyldunni sem er í sárum eftir sviplegt fráfall elskulegrar konu. Bráðum kemur vorið og þá vaknar náttúran til lífsins og dagarnir verða bjartari. Inger er ekki farin. Hún lifir áfram í hjörtum þeirra sem þótti vænt um hana. Anna Margrét, Hólmfríður og Steinunn. Ingibjörg Kristjánsdóttir Bergþóra Guð- mundsdóttir skóla- systir okkar er horfin til nýrra heimkynna. Hún eins og við spratt upp og dafnaði í faðmi fjalla blárra. Að vera fædd 1961 og eiga sameiginlegar minningar úr leik og starfi æskuáranna sameinar okkur líka ævinlega. Við skólasystkin hennar frá Ísafirði hugsum með hlýhug til hennar og reiðum okkur á friðinn sem við erum sannfærð um að hún hafi öðlast. Við hugsum öll sem eitt að blessuð sé minning þeirrar Bergþóru sem við munum frá æskuárunum á Ísafirði og steig sín fyrstu skref með okkur. Æskuárin á Ísafirði voru uppfull af ævintýrum, hvort sem við vorum í teygjutvist, parís, brennó, kýló, barbí eða röktum píluna. Frelsið var mikið og auðvitað þótti okkur gaman að hlaupa upp í hlíð, leika okkur í fjörunni, róa á Pollinum, fara í sund, selja blöð og tína ber. Þegar við í ’61-áragangnum vorum að alast upp var Ísafjörður eins konar paradís fyrir börn og ung- linga, með góða skóla, tónlistar- skóla, öflugt félags- og trúarstarf. Félagsmiðstöðvarnar okkar gátu verið kirkjan hjá séra Sigurði, sam- komur á Hernum eða í Salem, bíó- ferðir í Alþýðuhúsið, samveru- stundir í sjoppunni hjá Úlfari og Ínu eða andaglas í Aðalstrætinu. Það kom snemma í ljós að Bergþóra var listræn, næm á ís- lenskt mál og með ríka sköpunar- gáfu. Í huga okkar var hún sú hug- rakka, óhrædd við að prófa eitthvað nýtt, og fátt virtist henni óviðkomandi. Hún var kraftmikil í Bergþóra Guðmundsdóttir ✝ Bergþóra Guð-mundsdóttir fæddist á Ísafirði 16. nóvember 1961. Hún varð bráð- kvödd á Akranesi 22. mars sl. Útför Bergþóru fór fram í kyrrþey 4. apríl 2014. leik og starfi og góð- ur skólafélagi. Ákaf- ur dýravinur og naut þess að annast þau. Bergþóra var sterk og hraust stelpa og kunni því vel að vinna líkam- lega vinnu. Hún fór ung til sjós og vann líka við að beita. Hún reyndi og upplifði margt í lífinu, sumu vissum við af, öðru kynntumst við aldrei nema af afspurn og jafnvel ekki. Lífið á Ísafirði var skemmtilegt og fagurt á þessum árum en það hafði jafnframt sínar hörku- og skuggahliðar; hafið og náttúran tóku sinn toll. Það getur líka verið flókið að vaxa úr grasi og verða fullorðin manneskja. Margir um- hverfis- og erfðaþættir þurfa að samstillast til að okkur farnist vel í lífinu. Við lifum flest í samræmi við eitthvert gildismat og reynum að fara eftir reglum sem samfélag- ið setur. Margir eiga erfitt með þá sem fara út fyrir þann ramma og dæma þá hart. Víst er hver sinnar gæfu smiður en þó skiptir miklu máli hvernig gefið er í upphafi. Við skólasystkin Bergþóru munum hana glaða og galsafengna, stelpu sem mætti okkur með bros á vör og hlýju. Stelpu sem mátti ekkert aumt sjá og var tilbúin að rétta fram hjálparhönd þegar á reyndi. Við kveðjum Bergþóru með þökk fyrir samfylgdina og okkur verður hugsað hvað við erum ráða- laus gagnvart ýmsu í lífinu. Í lífinu, sem er kröftugt og viðkvæmt í senn, eins og blómstrið eina sem upp vex á þessum árstíma, þegar sumarið er handan við hornið og ló- an syngur okkur sín dirrindí. Við vottum Diddu, móður Berg- þóru, börnum, barnabörnum, syst- kinum og öðrum sem þótti vænt um hana okkar dýpstu samúð. F.h. árgangs 1961 frá Ísafirði, Dagný Annasdóttir og Guðrún Guðmundsdóttir. ✝ Ástkær faðir okkar, MAGNÚS GUÐMUNDSSON, Kvisthaga 3, Reykjavík, lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund laugardaginn 19. apríl. Útförin fer fram frá Neskirkju fimmtudaginn 8. maí kl. 13.00. Guðrún, Gylfi og Gauti Magnúsarbörn. ✝ Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, LÁRUS ÁGÚSTSSON, Indriðakoti, sem lést þriðjudaginn 29. apríl verður jarð- sunginn frá Ásólfsskálakirkju laugardaginn 10. maí kl. 14.00. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Dvalarheimilið Kirkjuhvol, Hvolsvelli. Ingibjörg Hildur Jónsdóttir Margrét Kristín Lárusdóttir, Nathanael Björgvin Ágústsson, Jón Smári Lárusson, Sólveig Eyfjörð Ottósdóttir, Ágúst Ármann Lárusson, Kristín Sigtryggsdóttir, Pálína Auður Lárusdóttir, Kristján Erling Kjartansson, Svavar Þór Lárusson, Anna Lilja Hvanndal Magnúsdóttir, Eyrún Ósk Lárusdóttir, Rahim Kamali, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elsku konan mín, GUÐRÚN H. GUÐBRANDSDÓTTIR frá Ólafsvík, Eikjuvogi 5, Reykjavík, verður jarðsungin frá Langholtskirkju föstudaginn 9. maí 2014 kl. 15.00. Guttormur Þormar. ✝ Útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, HJARTAR KRISTJÁNSSONAR, Goðatúni 24, Garðabæ, sem lést laugardaginn 26. apríl, fer fram frá Vídalínskirkju föstudaginn 9. maí kl. 13.00. Anna Margrét Einarsdóttir, Birta Hjartardóttir, Hulda Hjartardóttir, Klara Hjartardóttir, Bóel Hjartardóttir, Hjálmar Þorsteinsson, Guðmundur Hjörtur Þorgerðarson, Ian Wayne Collington og barnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, DAGRÚN ERLA JÚLÍUSDÓTTIR, Skipalóni 16, Hafnarfirði, lést á Landspítala, Fossvogi, föstudaginn 25. apríl. Útför hennar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn 8. maí kl. 13.00. Harry Jóhannes Harrysson, Valdís Erla Harrysdóttir, Sigurður Pálmason, Geir Júlíus Harrysson, Harry Erik Jóhannesson og barnabörn. ✝ Okkar ástkæri stjúpfaðir, tengdafaðir, afi og langafi, BJARNI JÓHANNSSON skipstjóri og útgerðarmaður frá Eyrarbakka, andaðist á Landspítalanum að kvöldi föstudagsins 2. maí. Hann verður jarðsunginn frá Eyrarbakkakirkju laugardaginn 10. maí kl. 13.00. Sigurborg Garðarsdóttir, Ásgeir Ingi Eyjólfsson, Sigríður Garðarsdóttir, Tyrfingur Halldórsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐRÚN HALLDÓRA SIGVALDADÓTTIR frá Stafni, Kópavogsbraut 1b, Kópavogi, lést miðvikudaginn 30. apríl á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju föstudaginn 9. maí kl. 13.00. Haukur Björgvinsson, Sigvaldi Hauksson, Guðleif Jónsdóttir, Björgvin Hauksson, Birna G. Björnsdóttir og barnabörn. ✝ Ástkær faðir okkar, GESTUR GUNNARSSON, lést á heimili sínu mánudaginn 28. apríl. Útförin fer fram frá Hallgrímskirkju föstudaginn 9. maí kl. 15.00. Eyrún Gestsdóttir, Ragna Gestsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.