Morgunblaðið - 07.05.2014, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 07.05.2014, Qupperneq 17
Skaðaði ímynd Rússa » Svetlana Gannúskína, sem á sæti í mannréttindaráðinu, ræddi kosningarnar á Krím við tyrkneska vefsíðu. Sagði hún að atkvæðagreiðslan hefði skaðað mjög ímynd Rússa. » Aðskilnaðarsinnar hyggjast efna til atkvæðagreiðslu um sjálfstæði Donetsk 11. maí. Kristján Jónsson kjon@mbl.is Bretar og Frakkar segja að ráða- menn í Moskvu virðist nú stefna ótrauðir að því að koma í veg fyrir að forseta- og þingkosningar geti farið fram í Úkraínu 25. maí. Forseti Frakklands, Francois Hollande, segir að það verði skelfilegt áfall ef ekki verði hægt að kjósa vegna óeirðanna sem bráðabirgðastjórnin í Kænugarði álítur að sé að miklu leyti stýrt í Kreml. Utanríkisráð- herra Rússlands, Sergei Lavrov, vís- aði í gær á bug hugmyndum um nýj- an fund í Genf til að reyna að lægja öldurnar. Lavrov sagði eftir fund Evr- ópuráðsins í Vín í gær að frekari viðræðufundir um Úkraínu væru tilgangslausir. Hollande Frakklandsfor- seti sagði brýnt að Vesturveldin héldu áfram að þrýsta á Rússa með efnahagslegum refsiaðgerðum, senda þannig einföld, skýr skilaboð og tryggja að kosningarnar 25. maí yrðu haldnar. „Vladímír Pútín for- seti vill ekki að þessar kosningar fari fram, þeir vilja geta haldið áfram að þrýsta á stjórnvöld í Kænugarði. Okkar hlutverk er að sannfæra hann,“ sagði Hollande. Á sínum tíma fullyrtu Rússar að í þjóðaratkvæðagreiðslunni á Krím- skaga hefði kjörsókn verið 83% og 97% hefðu samþykkt sameiningu við Rússland. Engir alþjóðlegir eftirlits- menn fengu að fylgjast með. En að sögn tímaritsins Forbes birtist ný- lega á vefsíðunni http://state.kreml- in.ru/council/18/ new, sem er heima- síða Mannréttindaráðs Rússlands, er heyrir undir Pútín, skýrsla ráðs- ins og þar voru aðrar tölur nefndar. Kjörsókn var aðeins 30%, af þeim sem kusu vildu 50% sameiningu. Skýrslan var fljótlega fjarlægð. Lavrov hafnar viðræðum  Mannréttindaráð Rússlands segir tölur um kosningar á Krím falsaðar Vladímír Pútín FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. MAÍ 2014 Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími 534 9600 · heyrn@heyrn.isHEYRNARÞJÓNUSTA Pantaðu tíma í heyrnargreiningu og fáðu heyrnartæki til reynslu ReSound LiNXTM eru fyrstu heyrn- artækin sem tengjast þráðlaust beint við snjalltæki s.s. síma, spjaldtölvur og spilara. Auk þess að vera mjög fullkomin heyrnartæki eru þau heyrnartól fyrir snjalltæki. Með þeim opnast endalausir möguleikar að streyma samtölum úr síma og tónlist eða öðrum tegundum hágæðahljóða beint í heyrnartækin úr snjalltækjunum. Ný hönnun gerir þér kleift að fela ReSound LiNXTM ef þú vilt, eða monta þig af þeim ef þú vilt það frekar. Þau eru fíngerð, þunn og fást í 10 mismunandi litum og tveimur gæðaflokkum. Fyrstu snjallheyrnartækin Tímapantanir 534-9600 Heimasíða www.heyrn.is Á morgun 8. maí gefur Íslandspóstur út frímerki tileinkuð bæjarhátíðum og skrúðgörðum. Einnig koma út tvö frímerkjahefti með togurum og fjölveiðiskipum. Fyrstadagsumslög fást stimpluð á pósthúsum um land allt. Einnig er hægt að panta þau hjá Frímerkjasölunni. Sími: 580 1050. Netfang: stamps@stamps.is Heimasíða: www.stamps.is facebook.com/icelandicstamps Safnaðu litlum listaverkum Liðsmenn frönsku strandgæslunnar bjarga 23 ára gömlum Afgana sem á mánudag reyndi að komast yfir Ermarsundið til Bretlands á fleka. Farkosturinn var ekki burðugur, smíðaður úr nokkrum spýtum og seglið var gert úr rúmfötum. Maðurinn var illa hald- inn af kulda. Í fyrstu var hann vonsvikinn yfir að ná ekki takmarkinu en síðan ánægður með að vera bjargað. AFP Vildi komast til Bretlands Kínversk stjórnvöld búa sig nú undir að stjórn Kims Jong-uns, leiðtoga Norður-Kóreu, geti skyndilega fallið á næstunni, að sögn Telegraph í Bretlandi. Kínverski herinn lak ný- lega gögnum um viðbragðaáætlun í japanska fjölmiðla. Kínverjar sjá fyrir sér að erlendir hermenn verði sendir til N-Kóreu ef hrun blasi við. Mikill fólksflótti mun hefjast og flestir reyna að komast yfir landamærin til Kína. Stjórn- endur kínverska heraflans leggja til að æðstu ráðamenn í N-Kóreu verði þá settir í fangabúðir til að hindra þá í að gefa skipun um hernað eða ann- að sem skaðað gæti hagsmuni Kína. „Ég er viss um að bæði Bandarík- in og Suður-Kórea hafa gert svip- aðar áætlanir. Það sem er nýtt er að áætlun Kínverja hefur verið lekið,“ segir japanski fræðimaðurinn Jun Okumura og álítur það hafa verið gert af ásettu ráði. kjon@mbl.is Búa sig undir fall Kims  Kínastjórn hefur gert viðbragðaáætlun Átta stúlkum var rænt í afskekktu héraði í norðausturhluta Nígeríu í gær, að sögn íbúa á staðnum. Talið er líklegt að um liðsmenn ofstæk- ishreyfingarinnar Boko Haram sé að ræða. Hún rændi vel á þriðja hundrað stúlkum fyrir þrem vikum og ætlar að selja þær í ánauð. „Þeir gengu hús úr húsi og leit- uðu að stúlkum,“ sagði Abdullahi Sani, íbúi í bænum Warabe í Borno- ríki. „Þeir rændu stúlkum á aldr- inum 12 til 15 ára.“ Mennirnir hefðu verið vopnaðir og kvatt með því að kveikja í nokkrum húsum en ekki drepið neinn, að sögn Sani. kjon@mbl.is Fleiri stúlkum rænt í afskekktum bæ NÍGERÍA Stjórnlagadóm- stóll Taílands kom saman í gær til að fjalla um málefni Yingluck Shinawatra for- sætisráðherra en hún er sökuð um valdníðslu. Ákvörðun verður tekin í dag um það hvort hún verði að víkja úr embætti. Gæti það aukið enn pólitísk átök í landinu. kjon@mbl.is Yingluck Shinawatra TAÍLAND Verður Yingluck rekin úr embætti? Varnarbúnaður gegn tölvuveirum virkar aðeins gegn um 45% af slík- um árásum, að sögn Brians Dyes, yf- irmanns hjá tölvufyrirtækinu Sym- antec. Fyrirtækið framleiðir nú forritið Norton Antivirus en Dyer segir að notendur séu eftir sem áður berskjaldaðir þótt þeir noti hugbún- aðinn. Hakkarar noti nú mjög ný- stárlegar og geysilega flóknar að- ferðir í árásunum. kjon@mbl.is Veiruvarnir duga í um 45% tilvika TÖLVUÁRÁSIR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.