Morgunblaðið - 10.05.2014, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 10.05.2014, Blaðsíða 35
MINNINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. MAÍ 2014 ✝ Jóhannes Jó-hannesson fæddist á Slit- vindastöðum í Staðarsveit 24. apríl 1924. Hann lést á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Jaðri, Ólafsvík, 30. apríl 2014. Foreldrar hans voru Vilborg Matt- hildur Kjart- ansdóttir, f. 5. desember 1885, d. 28. mars 1972, og Jóhannes Guðmundsson, f. 17. nóvember 1878, d. 14. apríl 1924. Jó- hannes var yngstur tólf systk- ina. Systkini hans voru: Una, f. 12. september 1908, d. 21. jan- úar 1996, Jónfríður, f. 10. des- ember 1909, d. 22. maí 1967, Anna Guðmunda, f. 28. janúar 1911, d. 21. febrúar 1932, Ól- ína, f. 1. september 1912, d. 8. mars 1935, Kjartan, f. 27. nóv- ember 1913, d. 29. janúar 1993, Maríus, f. 23. febrúar 1915, d. 14. júní 1938, Ársæll, f. 14. maí 1916, d. 6. mars 2003, Vilhjálmur, f. 28. maí 1917, d. 8. júní 1925, Ingunn, f. 18. apríl 1980, þau eiga fjögur börn, b) Gunnar Valdimar, f. 6. júní 1979, hann á einn son. 3) Kristmann Viðar, f. 14. jan- úar 1962, maki Svanborg Tryggvadóttir, f. 26. nóv- ember 1963, börn: a) Val- gerður Hlín, f. 16. ágúst 1988, maki Þiðrik Örn Viðarsson, f. 1. ágúst 1988, b) Alma Rún, f. 26. nóvember 1993, c) Andri Viðar, f. 17. október 1996. Jóhannes ólst upp frá unga aldri á Efra-Hóli í Staðarsveit, hjá Unu móðursystur sinni og Jóni bónda hennar, síðar flutti hann að Glaumbæ í Stað- arsveit með Vilborgu móður sinni og Kjartani bróður sín- um. Þar kynntist hann Þuríði sem þá bjó á Hoftúnum hjá Narfa bróður sínum, 1958 fluttu þau til Ólafsvíkur, að Sandholti 19, sem þau byggðu og undu sér vel alla tíð. Jó- hannes vann við múrverk í áraraðir og síðar við fisk- vinnslu. Hann hafði búið sér sælureit fyrir hesta sína og kindur inni í Dal við Ólafsvík þar sem þau hjónin nutu sín við bústörf. Síðasta árið dvaldi Jóhannes á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Jaðri, Ólafs- vík, við góða umönnun. Útför Jóhannesar fer fram frá Ólafsvíkurkirkju í dag, 10. maí 2014, og hefst athöfnin kl. 14. 16. desember 1919, d. 19. júlí 1945, Ingvar, f. 14. mars 1922, d. 26. febrúar 1986, Jón Júlíus, f. 12. apríl 1923, d. 19. maí 1941. Jóhannes giftist 17. apríl 1954 eft- irlifandi eiginkonu sinni, Þuríði Krist- jánsdóttur, f. 19. maí 1929. Börn þeirra eru: 1) Inga Ólína Anna, f. 3. október 1951, maki Ágúst Ingimar Sig- urðsson, f. 28. ágúst 1945, börn: a) Sigurður, f. 26. apríl 1974, maki Rakel Óladóttir, f. 2. janúar 1973, þau eiga þrjár dætur, b) Kristín Björk, f. 19. apríl 1977, maki Börkur Hrafn Árnason, f. 4. nóvember 1975, þau eiga þrjá syni, c) Guðbjörg Þuríður, f. 9. des 1980, hún á tvær dætur og fósturdóttur úr fyrra hjónabandi. 2) Berg- sveinn, f. 21. júní 1953, maki Ragnheiður Gunnarsdóttir, f. 29. júní 1956, börn: a) Jóhann- es, f. 24. desember 1977, maki Lea Hrund Sigurðardóttir, f. Elsku afi, Nú ertu farinn og við kveðjum þig með söknuði í hjarta og miklu þakklæti. Þegar við vorum ungir gerð- um við okkur ekki grein fyrir þeim forréttindum sem þið og amma gáfuð okkur. Ótal minningar frá Sandholt- inu þar sem hver heimsókn hófst á stoppi uppi hjá ömmu með til- heyrandi kræsingum, svo niðri í bílskúr þar sem við gátum alltaf gengið að því vísu að þú værir eitthvað að bardúsa. Minning- arnar af Afatúni eru óteljandi. Heyskapur upp á gamla mátann með traktorsferðum, heysátum og ævintýrum í hlöðunni. Sauð- burður að vori, smölun og réttir að hausti. Lífsins gangur. Út- reiðartúrar inn í bug. Virðing og umhyggja fyrir dýrunum. Það er óhætt að segja að mað- ur hefur aldrei verið jafn lifandi og í kringum þig. Eftir að við fluttum frá Ólafsvík skildum við betur hvað þú varst gefandi. Þú varst og amma er best í heimi. Lífsstíllinn þinn og gildi, húm- orinn þinn, jafnaðargeð þitt og dugnaður þinn mun veita okkur innblástur það sem eftir er. Elsku amma, megi góður Guð styrkja þig í sorg þinni, þú ert umlukin börnum, barnabörnum og barnabarnabörnum sem elska þig. Takk fyrir allt, elsku afi Jói, og Guð geymi þig. Gunnar og Jóhannes. Elsku afi Jói. Það eru margar minningar sem koma upp í huga okkar systkinanna þegar við hugsum til áranna sem við áttum með þér. Við áttum margar yndisleg- ar stundir með þér sem gaman er að rifja upp. Það var alltaf svo gott að koma til ykkar ömmu á Sand- holtið enda vorum við systkinin tíðir gestir hjá ykkur. Þið áttuð alltaf eitthvað gott í gogginn og varstu iðinn við það að bjóða okkur kaffisopa með gotteríinu, það fannst þér fyndið. Þú áttir þín hlutverk í eldhúsinu. Þú sást um að steikja kleinurnar og ást- arpungana og sömuleiðis bakaðir þú vöffludeigið sem amma hrærði. Mjög oft vaskaðir þú upp eða þurrkaðir leirtauið í ró- legheitunum eftir matinn og horfðir út á Breiðafjörðinn í gegnum eldhúsgluggann. Þessi verk voru kjörin fyrir þig þar sem þú varst þolinmóðasti og yf- irvegaðasti maður sem við þekktum og naust þín við að dunda þér við þetta. Eftir heim- ilisverkin settistu yfirleitt í sætið þitt við eldhúsborðið sem var heilagt í okkar augum. Þetta var „sætið hans afa“ og settumst við yfirleitt ekki í það þótt þú byðir okkur það. Þetta er og verður alltaf sætið þitt. Það var sama í hversu ærsla- fullum leik við systkinin vorum, þú æstir þig aldrei yfir því enda munum við ekki eftir því að þú hafir hafið upp raust þína eða hvað þá skammað okkur. Yfir- leitt fengum við bara glott frá þér eftir að þú hafðir skotið á okkur einhverju gríni. Þú hafðir gaman að því að grínast og varst alltaf svo fljótur í tilsvörum sem kom okkur til þess að hlæja. Þú sást alltaf spaugilegu hliðina á hlutunum og það var sama í hvernig ástandi þú varst, alltaf varstu til í grín. Þegar þú varst eitthvað slappur þá varstu vanur að glotta og segja „Þetta er bara bölvuð leti“. Andrúmsloftið var alltaf svo létt og gott í kringum þig. Þú verður alltaf mikil fyrir- mynd okkar því þú varst svo ið- inn og duglegur, elsku afi. Ef þú varst ekki niðri í bílskúr að dunda þér við skemmtileg verk- efni eða að huga að garðinum þá varstu inni í dal að sinna bú- skapnum. Þar var alltaf eitthvað hægt að laga og bæta og það leystir þú ávallt vel af hendi. Þú varst einstaklega laghentur. Við eyddum mörgum stundum sam- an inni í dal og munum við syst- urnar eftir öllum skemmtilegu útreiðartúrunum sem við fórum í með ykkur pabba. Þú hafðir un- un af því að fara hratt yfir og þótti okkur það ekki leiðinlegt. Fyrir utan alla reiðtúrana nutum við systkinin þess að vera í kringum ykkur ömmu við bú- störfin þar sem þú kenndir okk- ur svo margt gagnlegt og skemmtilegt. Að þeirri reynslu munum við alltaf búa og á þeirri minningu munum við um alla tíð lifa. Við eigum eftir að sakna þín svo mikið, elsku afi, en þú verður ávallt hjá okkur. Nú ertu kominn á góðan stað og án efa farinn að rölta um túnin með beisli í hönd- unum fyrir aftan bak, með bláu derhúfuna á höfðinu að gera þig tilbúinn til þess að leggja á einn af viljugu og fallegu klárunum þínum. Síðan þeysist þú af stað með bros á vör. Elsku afi okkar, takk fyrir allt. Þín barnabörn, Valgerður Hlín, Alma Rún og Andri Viðar. Elsku afi, takk fyrir allar góðu minningarnar. Þær eru svo margar að við vitum vart hvar við eigum að byrja. Það sem stendur helst upp úr hjá okkur systkinunum eru þær yndislegu stundir sem við áttum með þér í dalnum, „litlu sveitinni þinni“. Þar var svo yndislegt að vera með þér í heyskap, í kringum hestana þína og kindurnar. Þar geislaðir þú af ánægju og gleði. Það sem einkenndi þig var þinn einstaki húmor, stríðni og jafnaðargeð sem barnabarna- börnin fengu líka að upplifa, því þú nýttir hvert tækifæri til að gantast og gleðja okkur öll. Það gaf okkur svo mikið að fá að eiga góðan dag með þér á 90 ára afmælinu þínu 24. apríl síð- astliðinn. Við munum ávallt minnast þín með gleði og ást í hjarta. Blessuð sé minning þín. Þín barnabörn, Sigurður Ágústsson, Kristín Björk Ágústsdóttir, Guð- björg Þuríður Ágústsdóttir og fjölskyldur. Jóhannes Jóhannesson ✝ Pálmi Héð-insson skip- stjóri fæddist 18. júlí 1930. Hann lést á Skógarbrekku, heilsustofnun Þing- eyinga, 3. maí 2014. Pálmi ólst upp á Túngötu 12, Héð- inshúsi, á Húsavík, sonur hjónanna Helgu Jónsdóttur, húsmóður frá Fossi, Húsavík, f. 16.2. 1897, d. 1.6. 1989, og Héð- ins Maríussonar, útvegsbónda frá Hlöðum (Marahúsi), Húsa- vík, f. 18.12. 1899, d. 22.3. 1989. Pálmi var sjötta barnið í hópi níu systkina: Elst var Krist- björg, f. 2.9. 1922, d. 5.9. 2012, Maríus, f. 21.10. 1923, d. 22.5. 2004, Guðrún, f. 20.1. 1925, d. 14.4. 2002, Jón Ármann, f. 21.6. 1927, Helgi, f. 31.12. 1928, Þór- unn, f. 8.11. 1933, Benedikt, f. 4.12. 1934, og Sigurður f. 5.4. 1937. Pálmi kvæntist árið 1953 Ólöfu Emmu Kristjánsdóttur frá Ísafirði, f. 13.4. 1928, og ól upp með honum son hennar, Ingvar Grétar Ingvarsson, f. 15.10. 1948. Þau eignuðust tvö börn; Helga, f. 24.2. 1954, og Margréti Jóhönnu, söngkonu og kór- stjóra, f. 28.4. 1956. Þau slitu samvistir árið 1958. Börn Helga eru Agnes Helga, f. 1978, Ásdís Inga, f 1985, Pálmey, f. 1991, og Guðrún Fanney, f. 1994. Börn Margrétar eru Maríus Her- mann, f. 1973, Hjalti Þór, f. 1978, Sigríður Soffía, f. 1989, Matthildur Guðrún, f. 1994, og Kristján Helgi, f. 1997. Eigin- maður Margrétar Jóhönnu er Hafliði Arngrímsson, leik- húsfræðingur og leikstjóri. Eft- irlifandi eiginkona Pálma er Ingveldur Árnadóttir frá Höfða í Presthólahreppi N-Þing, f. 22.12. 1929. Pálmi gekk í barnaskóla Húsavíkur en hóf sjómennsku snemma með föður sínum hvað reyndist honum dýrmætur skóli. Hann útskrifaðist frá Stýrimannaskólanum árið 1954 og stundaði sjómennsku alla tíð og oftast á sínum eigin bátum. Útför Pálma verður frá Húsavíkurkirkju í dag, 10. maí 2014, klukkan 14. Elsku afi okkar, Pálmi, hefur kvatt okkur fyrir fullt og allt. Við systkinin þökkum honum fyrir dásamlegar minningar. Æska okkar var umvafin náttúru og fegurð sem umlukti hann á Húsavík. Hann afi þekkti svo vel fuglana og fiskana og náttúrlega veðrið sem honum var aldrei óviðkomandi. Hann skipti sér mjög mikið af veðrinu. Sjóferðir á Skjálfandaflóa með hoppandi hnísum og fjörugum fiskum sem bitu á öngulinn, stundum nokkrir í einu. Það var engu líkara en þeir vildu spjalla við afa. Hann vissi nákvæmlega hvar fiskarnir héldu sig og ef þeir voru ekki á staðnum, þá grunaði hann alltaf hvert þeir hefðu skroppið, – og þar voru þeir. Við komum aldrei tómhent úr veiðiferð. Þvert á móti. Fallegi garðurinn hjá þeim Ingu ömmu með fossi og ævin- týraniði. Harðfiskssteinninn. Stóri rabarbarinn og sultan, ról- an, – og báturinn. Allt á sínum stað. Nesti með afadjús og þvottabalar sem sundlaugar á góðviðrisdögum á grasflötinni við lækjarbakkann innan um bónda- rósir og himinhá grenitrén. Gönguferðir um skrúðgarð Húsavíkur sem líður beint út frá húsgaflinum þeirra afa og ömmu. Heilsað upp á endurnar fyrir of- an fossinn. Berjamór upp með Búðaránni og margt, margt fleira er veganesti sem aðeins af- ar og ömmur geta gefið eftir langa og stranga starfsdaga. Kvöldkaffi og Smjörbitasögur fyrir háttinn. Ekki síst einlæg hlustun eða pössun á tónleika- ferðum fjölskyldumeðlima til Húsavíkur í fylgd Kórs Flens- borgarskóla, Vox feminae, Fjög- urra klassískra og Stúlknakórs Reykjavíkur undanfarin næstum 30 ár. Kórarnir hennar mömmu sem þú varst svo stoltur af. Hvað er dýrmætara en að þroskast með fjölskyldumeðlimum þar sem hver og einn lærir smátt og smátt að meta hina. Takk fyrir allt og allt elsku afi, við gætum Ingu ömmu og fallega garðsins sem minnir á Paradís. Þín barnabörn, Maríus Hermann, Hjalti Þór, Sigríður Soffía, Matt- hildur Guðrún og Kristján Helgi. Mig langar að minnast Pálma Héðinssonar. Liðin eru 24 ár síð- an ég kynntist honum og Ingu konu hans á Húsavík. Pálmi var föðurbróðir eiginkonu minnar, fæddur og uppalinn á Húsavík, sjötti í röð níu systkina. Hann stóð teinréttur, handtakið þétt og traust, viðmótið hlýlegt. Pálmi stundaði sjó alla sína tíð og sam- ræðurnar snérust fljótt um fisk- veiðar og aflabrögð. Hann hafði frá mörgu áhugaverðu að segja. Pálmi mundi tímanna tvenna og vissulega skynjaði maður vissa eftirsjá að þeim tíma sem hann stundaði sjóinn ásamt Benedikt bróður sínum á Þráni ÞH 2. Sjóminjasafnið á Húsavík fékk síðar bátinn til eignar. En auðvitað gat Pálmi ekki verið bátlaus með öllu og átti áfram lít- inn bát sem skilaði vel sínu hlut- verki. Hann bauð mér og mínum á sjó í góðu veðri í fyrstu fríunum okkar á Húsavík. Svo heillandi var sú upplifun að ákveðið var að fjárfesta í bát. Þegar kom að því að finna bátnum geymslustað yf- ir veturinn leitaði ég ráða hjá Pálma. Eitt og annað kom til greina. Þá kemur Pálmi með til- lögu sem lýsir gjafmildi hans og vinarþeli vel. Hann taldi bátinn best geymdan á sinni lóð, nóg væri plássið, eftirlitið auðvelt og Inga sín hefði örugglega ekkert á móti því. Boðið var höfðinglegt en mér var engan veginn stætt á að þiggja það og lét málið niður falla. Morguninn eftir bankaði Pálmi á dyr í Héðinshúsi, léttur í bragði og sagði brosandi að allt væri tilbúið, það væri bara að koma með bátinn. Hann hafði sem sagt ekki setið við orðin tóm heldur sagað niður tvö stór grenitré í garðinum á Ásgarðs- vegi og búið svo um hnútana að ekki var stætt á öðru en hlýða skipstjóranum. Síðan eru liðin mörg ár og þakklæti er mér efst í huga. Pálmi kenndi mér og mínum ýmislegt varðandi handfæraveið- ar og var alltaf boðinn og búinn að rétta fram hjálparhönd. Allar upplýsingar um góð fiskimið voru vitanlega vel þegnar og þeim fróðleik miðlaði Pálmi fús- lega. Undirritaður var ekki vel kunnugur staðháttum í byrjun og gátu því sum kennileitin hljómað framandleg í fyrstu en með þol- inmæði endurtók hinn gamal- reyndi sjómaður miðin fyrir ný- græðingnum og hægt og bítandi síuðust þau inn. Hann stakk allt- af brjóstsykri og eplasafa í brúsa að börnunum fyrir sjóferð „til að hafa eldsneyti og bægja sjóveik- inni frá“. Það hreif. Jafnan fylgd- ist hann með frá landi og það var öryggi að vita af honum nálægt ef eitthvað færi nú úrskeiðis. Margar góðar spjallstundir hef ég átt með þeim hjónum í eld- húsinu þeirra og börnin mín lögðu leið sína þangað svo til daglega þegar þau voru yngri. Alltaf var öllum tekið opnum örmum. Hjónin hjálpuðust að, Inga sá um kaffið og bakkelsið, Pálmi um eplasafann og ísinn. Áður en haldið var heim á leið suður í lok hvers sumarfrís á Húsavík buðu þau sex manna fjölskyldunni í mat, ef gestir voru með í för var fleiri diskum bætt við. Við minnumst öll þeirra miklu gestrisni og frábæru mat- arboða. Að leiðarlokum þakka ég þess- um öðlingsmanni góð kynni. Við fjölskyldan sendum Ingu, börn- um og þeirra fjölskyldum okkar innilegustu samúðarkveðjur. Stefán Bj. Gunnlaugsson. Pálmi Héðinsson                               ! " # $% & & '(' )*++  '(' )**+! ,   -. /     0     ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ANNA SIGMARSDÓTTIR, Anna á Löndum, lést á Landspítalanum, Fossvogi, sunnu- daginn 4. maí. Útförin fer fram frá Landakirkju í Vest- mannaeyjum laugardaginn 17. maí kl. 14.00. Erna Ragnarsdóttir, P-O Malmgren, Elva Ragnarsdóttir, Gísli Þór Garðarsson, Bylgja Ragnarsdóttir, Egill Haraldsson, Eðvald Eyjólfsson, Eydís Eyjólfsdóttir, Halldór Kristinn Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn og fósturfaðir okkar, HERMANN ÞORSTEINSSON, Espigerði 2, lést mánudaginn 5. maí á Vífilsstöðum. Helga Rakel Stefnisdóttir, Steinunn Sara Helgudóttir, María Helgudóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.