Morgunblaðið - 10.05.2014, Blaðsíða 52
LAUGARDAGUR 10. MAÍ 130. DAGUR ÁRSINS 2014
Leiklestur á nýju verki eftir Jay O.
Sanders, Unexplored Interior, fer
fram á morgun kl. 16 í Bíó Paradís í
Reykjavík, Kigali í Rúanda og Gyð-
ingasafninu í New York. „Verkið verð-
ur flutt samtímis á þessum þremur
stöðum í tilefni af því að 20 ár eru nú
liðin frá því að þjóðarmorðin í Rú-
anda hófust,“ segir um viðburðinn í
tilkynningu. Verkið fylgir eftir sögu-
manni, gömlum tútsa, sem býður
áheyrendum að ganga með sér um
einn fegursta stað heims, Rúanda, og
leiðir þá í sannleikann um sögu lands
síns og þjóðar. Fimmtán leikarar taka
þátt í leiklestrinum og verður honum
miðlað með nýjustu samskiptatækni
með hjálp Google, segir í tilkynningu.
Eftir leiklesturinn svara aðstand-
endur sýningarinnar spurningum
gesta og boðið verður upp á kaffi frá
Kigali.
Leikið í Reykjavík,
Kigali og New York
Enska framúrstefnu-kabarett-
listakonan Zoë Martlew kemur fram í
tónleikaröðinni Jaðarber í Listasafni
Reykjavíkur, Hafnarhúsi, 14. maí nk.
kl. 20 og flytur einleikinn Revue Z
sem hún hefur flutt um allt Bretland
og á tónlistarhátíðum víða um heim. Í
verkinu tvinnar hún saman eigin tón-
list og þekkta slagara sem hún velur
út frá hverjum tónleikastað. Inn í það
fléttast spuni, kynferði, húmor og
alls kyns útúrdúrar, skv. tilkynningu.
21. maí kl. 20 í Hafnarhúsi mun Mart-
lew svo frumflytja verk
sem Gunnar Karel
Másson hljóð-
skáld og María
Dalberg víd-
eóskáld hafa
verið að vinna
að síðan í jan-
úar á þessu ári
og sömdu fyr-
ir hana.
Einnar konu kabarett
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 745 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Nauðgunin tekin á myndband
2. Hver vinnur Eurovision?
3. Grunaðir um hópnauðgun
4. Bílstjóra bíður langt fangelsi …
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
Haraldur Freyr Guðmundsson, mið-
vörðurinn sterki í liði Keflvíkinga og
fyrirliði liðsins, er leikmaður 2. um-
ferðar í Pepsi-deildinni í knattspyrnu
að mati Morgunblaðsins en Haraldur
átti mjög góðan leik í hjarta varn-
arinnar þegar Keflvíkingar unnu sæt-
an 1:0 sigur á Valsmönnum í fyrra-
kvöld. Keflvíkingar hafa fullt hús stiga
í deildinni eftir tvær umferðir. »2-3
Haraldur Freyr leik-
maður 2. umferðar
Val tókst að jafna metin í 1:1
í úrslitaeinvíginu gegn
Stjörnunni um Íslands-
meistaratitil kvenna í hand-
knattleik þegar hann hafði
betur í öðrum úrslitaleik lið-
anna í gærkvöld, 25:23.
Leikurinn var æsispennandi
og langur, því tvíframlengja
þurfti hann áður en úrslitin
fengust. Hitinn og spennan
á Hlíðarenda var því í há-
marki í gær. »2-3
Jafnt eftir tví-
framlengdan leik
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Dóra Haraldsdóttir útskrifast sem
stúdent frá félagsfræðibraut Fjöl-
brautaskóla Snæfellinga í Grund-
arfirði eftir hálfan mánuð, en í gær
kvöddu stúdentsefnin 23 í Grund-
arfirði kennara og þökkuðu þeim
fyrir samstarfið.
Það eru ekki margir sem útskrif-
ast úr framhaldsskóla á áttræðis-
aldri, en nú bætist Dóra í þann hóp.
Hún segir að frekara nám hafi lengi
blundað í sér og tækifæri hafi gefist
þegar hún fór á eftirlaun fyrir
nokkrum árum eftir að hafa unnið
hjá Pósti og síma í nær 40 ár.
„Ég tók gagnfræðapróf á sínum
tíma í Reykjavík en kom svo hingað
vestur með kærastanum, Móses
Geirmundssyni, við stofnuðum
heimili og eignuðumst fjórar dæt-
ur,“ segir hún. „Á þessum árum, upp
úr sextíu, tíðkaðist það að konurnar
eignuðust börn og sáu um uppeldið
en bóndinn var jafnvel á sjó eins og í
mínu tilfelli. Það má því eiginlega
segja að ég hafi beðið í 40 ár eftir því
að fá tækifæri til þess að fara í
frekara nám.“
Ljúfur og yndislegur tími
Í Fjölbrautaskóla Snæfellinga er
lögð áhersla á sjálfstæð vinnubrögð.
Hugmyndafræði leiðsagnarmats er
höfð til grundvallar öllu námsmati.
Nemendur eru metnir reglulega og í
einstaka áföngum eru lokapróf.
Áður en Dóra settist á skólabekk
á ný 2010, ári eftir að hún hætti að
vinna, fór hún í fjarnám og kynnti
sér meðal annars svæðisbundna leið-
sögn um Vesturland, tölvunám og
tungumál. „Það var yndislegt að
byrja aftur,“ segir hún. „Ég var með
fordóma, taldi að krakkarnir myndu
gretta sig og fussa yfir þessum
gamlingja. Ekki bætti úr skák að ég
lærbrotnaði og hökti á hækju um
tíma. En þeir voru ekkert nema
elskulegheitin og ég fann aldrei fyrir
neinum aldursmun. Þetta hefur ver-
ið mjög ljúfur og yndislegur tími.“
Vill ferðast
Ferðalög hafa lengi heillað Dóru
og hún er staðráðin í að sinna þeim
þætti, nú þegar þessum áfanga er
náð. „Það kemur í ljós hvað fram-
tíðin ber í skauti sér,“ segir hún.
„Námið hefur haldið mér við efnið
og það verða viðbrigði að hafa ekki
eitthvað fast til að stefna að. Það
væri gaman að halda áfram í há-
skóla, en ég vil skoða heiminn á með-
an ég hef heilsu til, því það er ekki
nóg að hafa nógan tíma og peninga
hafi maður ekki heilsuna. Við höfum
reyndar farið víða um heiminn en
það vantar heilmikið upp á og alltaf
má á sig blómum bæta.“
Alltaf má á sig blómum bæta
Dóra Haralds-
dóttir stúdent á
áttræðisaldri
Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson
Dimisjón Nemendur kvöddu kennara í gær. Dóra Haraldsdóttir í miðjunni með samnemendum.
Fjölbrautaskóli Snæfellinga var
stofnaður 2004. Framhaldsskólinn
er með sveigjanlegt námsfyrir-
komulag þar sem námsrýmin eru
opin og allt nám er skipulagt með
aðstoð kennslukerfisins „Moodle“.
Frá stofnun skólans árið 2004 hef-
ur hann nýtt sér upplýsingatækni í
skólastarfi.
Dóra Haraldsdóttir segir að
námið hafi verið skemmtilegt. Hún
hafi kynnst mörgu nýju og rifjað
upp annað sem hún hafi verið búin
að gleyma. „Það er aldrei of seint
að fara í svona nám, þó kannski sé
betra að byrja aðeins fyrr, því á
mínum aldri er maður seinni í
hugsun og efnið, sem er verið að
reyna að troða inn í mann, lekur
fljótt út aftur. En þetta er af-
skaplega skemmtilegt og lífs-
reynslan skilar sér, ekki síst í rit-
gerðum. Ég vona bara að ég hafi
ekki íþyngt samnemendum mínum
með of miklum umræðum í
tímum.“
Aldrei of seint að byrja
FJÖLBRAUTASKÓLI SNÆFELLINGA Í 10 ÁR
Ólympíufarinn Brynjar Jökull Guð-
mundsson hefur ákveðið að hætta
keppni á skíðum, aðeins 25 ára gam-
all. Hann segir að kostnaðurinn sé of
mikill og ekki hægt að leggja hann á
fjölskylduna til lengdar. Brynjar vill
þó miðla yngra skíðafólki af reynslu
sinni en hann stefnir líka á að spila
handbolta og fara í nám í flugumferð-
arstjórn. »1
Ólympíufarinn leggur
skíðin til hliðar
Á sunnudag og mánudag Austlæg átt, víða á bilinu 5-10 m/s. Skúrir sunnantil á land-
inu, annars skýjað að mestu og þurrt að kalla. Hiti 1 til 10 stig. Á þriðjudag Gengur í suð-
austan og austan 8-13 m/s, en 13-18 m/s með suðvesturströndinni og rigningu sunnan-
og vestanlands, annars bjartviðri. Hiti 2 til 9 stig, svalast norðaustanlands.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðaustanátt, víða 8-15 m/s fyrir norðan. Dálítil rigning eða súld á
Norður- og Norðausturlandi, jafnvel slydda eða snjókoma inn til landsins. Hiti 2 til 12 stig.