Morgunblaðið - 02.08.2014, Side 10
Malín Brand
malin@mbl.is
S
teinn sem verið hefur of-
an í á skiptir sannarlega
um áferð og útlit þegar
hann þornar. Ef rýnt er
í steininn má stundum
sjá alls kyns mynstur í honum og
ef vel er að gáð gætu sömuleiðis
verið á honum ýmsar myndir. Síð-
an árið 1997 hefur Gréta Berg gef-
ið steinunum gaum, skoðað mynd-
irnar á þeim og málað þessar sömu
myndir á striga. Stundum áttar
Gréta sig ekki á eðli myndanna
fyrr en eftir að málverkin eru
tilbúin og meðal annars þannig
komast boðin frá náttúrunni til
skila. Þessi verk koma fyrir sjónir
almennings á sýningu sem verður
opnuð í Perlunni á morgun, sunnu-
daginn 3. ágúst. Þar geta gestir
líka skoðað steinana sem þar verða
til sýnis.
Heimspekin í listinni
Það má í rauninni segja að
Gréta sé heimspekingur líka og að
baki mörgum verkanna eru gríð-
armiklar vangaveltur. „Vinnan mín
er svo mikið inni í heimspekinni og
hugsjónunum sem ég kem með inn
í myndirnar,“ segir Gréta og út-
skýrir hvernig heimspekin, hjúkr-
unarfræðin og myndlistin eiga sam-
leið. „Þessi umhyggja, kærleikurinn
til alls og síðast en ekki síst náttúr-
an skiptir okkur Íslendinga mjög
miklu máli. Við þurfum að líta inn í
náttúruna til að vera heilbrigð.
Þangað sækjum við kyrrðina og í
grænum skógi getur maður orðið
endurnærður.“
Mannfólkið slípast
eins og steinarnir
Hjúkrunarfræðingurinn og listakonan Gréta Berg hefur öðlast djúpan skilning á
mannlegu eðli í gegnum starf sitt og listina. Samhliða því sem hún kennir dval-
argestum Heilsustofnunar NLFÍ í Hveragerði slökun hlustar hún á náttúruna og
þau skilaboð sem hún færir okkur. Boðunum kemur hún til skila í gegnum mál-
verk sín sem eru djúp og áhrifarík. Myndefnið kemur meðal annars af steinum.
Morgunblaðið/Þórður
Myndin Fyrir miðju má sjá Græna
manninn og margt til viðbótar.
Morgunblaðið/Þórður
Birtingamyndir Mynd sem máluð er
eftir áferð steinanna.
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 2014
Kort má sannarlega senda við ýmis
tækifæri og sem betur fer eru
ánægjulegu tilefnin oftast algengari
en þau sorglegu. Hægt er að senda
skeyti eða skrifa á Facebook-vegginn
hjá þeim sem maður vill senda kveðju
en svo er líka hægt að senda rafkort.
Grafíski hönnuðurinn og listakonan
Hulda Ólafsdóttir býr til ýmiss konar
vörur undir merkinu Hjartalag. Eitt af
því sem hún hannar eru kort. Bæði
áþreifanleg og rafræn.
Einfalt er að senda rafrænu kortin
og skrifa inn á þau þann texta sem
við á. Farið er inn á síðuna
www.hjartalag.is og þar er valið að
senda kort. Hægt er að velja á milli 19
mismunandi flokka, allt frá boðs-
kortum og hlýjum kveðjum til sam-
úðarkorta og saknaðarkveðja. Í hverj-
um flokki er gott úrval og fjöldi
fagurra mynda eftir listakonuna
Huldu að baki Hjartalagi.
Vefsíðan www.hjartalag.is
Afmæli Kort Huldu eru fjölbreytt og þau má senda ókeypis við ýmis tækifæri.
Rafræn kort beint frá hjartanu
Hjá forlaginu Sæmundi á Selfossi er
komin út endurútgáfa skáldsögunnar
Afdalabarn eftir Guðrúnu frá Lundi.
„Afdalabarn fjallar um æsku og
einangrun, fóstur og föðurást, ást og
ástleysi, fortíð og nútíma, sveita-
samfélag á síðustu metrunum sem
hnusar treglega af nýjum tíma. Hér
kemur einnig stéttamunur til tals,
sem og hinn mikli menningarmunur á
möl og dal,“ segir í eftirmála Hall-
gríms Helgasonar.
Fyrsta bók Guðrúnar kom út árið
1946. Hún sendi frá sér alls 26 bækur
sem eru enn í hávegum hafðar meðal
leikra sem lærðra.
Guðrún frá Lundi endurútgefin
Afdalabarnið
hjá Sæmundi
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Skáld Guðrún frá Lundi í Stíflu.
Hjónin Walter og Ruth Hubner frá
Sviss ljósmyndir sínar í safninu Saga
Fotografica á Siglufirði í dag, laug-
ardag, milli kl. 13 og 16. Þau hafa
ferðast um landið á hverju ári um
langt skeið og nú munu þau bregða
upp skyggnum, það er myndum úr
þessum ferðalögum sínum. Einnig
eru í safninu uppi myndir sem Vigfús
Sigurgeirsson tók forðum daga á
Siglufirði. Vænta má að báðar þessar
sýningar muni vekja athygli margra,
en margir verða á Siglufirði um
helgina þar sem Síldarævintýrið er
venju samkvæmt um verslunar-
mannahelgina. Þá er staðurinn vin-
sæll sakir þess að hann er með Héð-
insfjarðargöngum nú kominn í
þjóðbraut.
Safnið Saga Fotografica er við
Vetrarbraut á Siglufirði. Þar eru uppi
bæði ljósmyndir og gamlar mynda-
vélar og annar slíkur búnaður. Bald-
vin Einarsson stendur að safninu.
Hann á og rekur Beco sem er sér-
verslun með myndavélar við Lang-
holtsveg í Reykjavík.
Hafa ferðast um landið á hverju ári um langt skeið
Svissnesk hjón sýna Íslandsmynd-
ir í Saga Fotografica á Siglufirði
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Sigló Margt áhugavert er á dagskrá þar í bæ nú um verslunarmannahelgina.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Morgunblaðið/Eggert
Sá græni Þetta er steinninn sem Græni karlinn leyndist á. Hann ber mann-
fólkinu boð um að vernda náttúruna þegar það hefur gengið of langt.