Morgunblaðið - 02.08.2014, Page 29
MINNINGAR 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 2014
✝ Ágúst ÍsfeldSigurðsson
fæddist í Keflavík
2.ágúst 1924. Hann
lést á Hjúkr-
unarheimilinu
Hrafnistu, Reykja-
vík 10. júlí 2013.
Foreldrar hans
voru Sigurður
Ingjaldsson Pét-
ursson, f. 16.10.
1895, d. 8.8. 1972
og Jósefína Jósefsdóttir, f. 21.9.
1890, d. 28.3. 1975. Bræður
Ágústs samfeðra voru Guðjón
Sverrir, f. 17.10. 1925, d. 22.3.
2008 og Pétur Sigurður, f. 2.7.
1928, d. 15.12. 1996. Systkini
Ágústs sammæðra voru Ósk
Sigurrós Sigurðardóttir, f. 2.2.
1920, d. 7.8. 1978, Finnur Eyj-
ólfsson, f. 6.9. 1930, Jón Eyjólfs-
son, f. 12.2. 1932, Svanhildur, f.
4.1. 1934 og Lilja f. 4.1. 1934, d.
6.5. 2013, Sigurgísli, f. 9.7.
1935. Ágúst giftist 4.1. 1948,
Ingibjörgu Kristjönu Guð-
mundsdóttur, f. 22.7. 1921, d.
14.11. 2010; þau skildu. For-
eldrar hennar voru Guðmundur
Árnason, f. 29.5. 1889, d. 2.4.
1972 og Steinunn Guðmunds-
dóttir, f. 29.9. 1896, d. 19. 2.
móður sinni og systur til 5 ára
aldurs. Fjölskyldan fluttist til
Reykjavíkur þegar móðir hans
giftist Eyjólfi Finnssyni. Frá 9
til 16 ára aldurs dvaldi hann á
Fremri-Breiðdal í Önundarfirði.
Hann stundaði síðar nám í Iðn-
skólanum í Reykjavík; fór í
Fiskvinnsluskólann og fékk
réttindi sem fiskmatsmaður.
Ágúst fékkst við ýmis störf;
stundaði sjómennsku á Ísafirði
og fékkst við akstur í Reykja-
víkur. Í stríðslok fór hann aftur
til sjós og var á togurum sem
sigldu með aflann til Evr-
ópuhafna en kom einnig við á
fragtskipum um tíma. Hann fór
síðan að vinna í landi, fyrst sem
fiskmatsmaður og síðar sem
verkstjóri í frystihúsum víðs-
vegar um land. Í kringum 1970
sneri hann sér að öðru og fór að
vinna sem verkstjóri hjá
Reykjavíkurborg. Þá vann hann
hjá ýmsum einkafyrirtækjum
eins og hjá Garðari Gíslasyni en
síðast hjá Innkaupum.
Félagsstörf voru Ágústi hug-
leikin. Hann var fyrsti formað-
ur sóknarnefndar Grafarvogs-
kirkju. Þá sat hann í fyrstu
stjórn félags sjálfstæðismanna í
Grafarvogi. Frá 2006 og fram á
síðustu ár tók Ágúst virkan þátt
í félagsstarfi eldri borgara og
kirkjustarfi Fella- og Hóla-
kirkju.
Útför Ágústs fór fram í kyrr-
þey frá Fella- og Hólakirkju 17.
júlí 2013.
1986. Dætur
þeirra: 1) Soffía
Guðrún, f. 15.3.
1947, maki: Friðrik
H. Ólafsson, f. 25.9.
1946, d. 23.2. 2012;
þau skildu, Þau
eiga 2 börn og þrjú
barnabörn. Maki:
Einar Jónsson, f.
5.10. 1945, þau
eiga eitt barn. 2)
Ósk Sigurrós, f.
12.7. 1949, maki: Þorsteinn
Tryggvason, f. 11.5. 1946, þau
eiga 2 börn og þrjú barnabörn.
Ágúst giftist 30.12. 1965 Sal-
björgu Steinunni Jeremíasdótt-
ur, f. 9.8. 1943, d. 7.9. 2001.
Foreldrar hennar voru: Jeremí-
as Kjartansson, f. 28.6. 1913, d.
3.7. 2003 og Cecelía Kristjáns-
dóttir, f. 10.5. 1919, d. 15.10.
2006. Börn þeirra eru: 1) Anna
Björk, f. 26.7. 1962, 2) Hafrún
Lára, f. 9.10. 1963, hún á 4 börn
og 2 barnabörn. 3) Ágúst Ísfeld,
f. 20.11. 1964, hann á eitt barn,
4) Cecelía Heiða, f. 13.4. 1966,
maki: Símon Elí Teitsson, f. 8.5.
1962; þau eiga 3 börn og 2
barnabörn. 5) Erla Hildur, f.
12.11. 1969, hún á tvö börn.
Ágúst ólst upp í Keflavík hjá
Rétt ár er liðið síðan tengdafað-
ir minn, Ágúst Ísfeld Sigurðsson
lést, þá tæplega 89 ára gamall. Ég
kynntist honum tiltölulega seint,
þ.e. hann var kominn á sjötugs-
aldur þegar leiðir okkar lágu sam-
an en það er eins og verða vill; ég
seinni maki dóttur hans af fyrra
hjónabandi. Ekki hafði aldurinn
þó markað þennan mann mikið
þegar ég sá hann fyrst og gerði
ekki lengst af. Hann hafði hreyf-
ingar og fas sextugs manns vel
fram yfir hálf nírætt. Bæði fyrri
kona hans (tengdamóðir mín) og
síðari kona hans, eru látnar; sú
síðarnefnda reyndar langt fyrir
aldur fram en það var eins og ellin
færi fram hjá Ágústi, hún beit
ekkert á hann þar til undir það
allra síðasta. Aðeins tíu dögum áð-
ur en hann var allur hringdi hann í
okkur og stakk upp á því að koma í
sunnudagsbíltúr um borgina því
sólin skein svo glatt, aldrei þessu
vant í allt sumar; rétt eins og til að
gleðja þennan langferðamann
sem vissi vel að hann var brátt á
förum fyrir fullt og allt. Sú ferð
var farin og maður fékk eins og oft
áður fræðslu um gömul stórhýsi,
eigendur þeirra og þá starfsemi er
þar fór eitt sinn fram. Svo var
stoppað í ísbúð að hans eigin ósk;
ekkert var eðlilegra. Svona var líf-
ið, svona hafði hann lifað því og
það var engin ástæða til að hætta
að lifa „eðlilegu lífi“ þótt ef til vill
væru fáir dagar til stefnu. Hann
hafði að mestu búið einn síðustu
árin og þegar hann flutti inn á elli-
heimili nú í mars sl. var hann mjög
ánægður að komast í gott skjól,
því hann hafði fengið þann skapa-
dóm frá læknum sínum að heils-
unni færi óhjákvæmilega mjög
hrakandi, þó ekki væri víst hversu
hratt. En þó hann kynni að meta
skjólið bryddaði þó á sárindum yf-
ir því að vera skyndilega staddur á
meðal fólks sem honum fannst
hann geta haft of lítil félagsleg
samskipti við því Ágúst var fé-
lagsvera út í fingurgóma af guðs-
náð; vildi hafa fólk í kringum sig
og jafnvel stjórna því aðeins líka,
eins og rómaður safnaðarfor-
mannsferill hans í Grafarvogs-
kirkju ber vitni um. Mér kom
hann fyrir sjónir sem mikill fjöl-
skyldumaður sem vildi hafa góð
tengsl við þann stóra hóp sem
voru börn hans og barnabörn.
Börnin urðu aldrei útundan þótt
aldursmunurinn spannaði
kannski 80 ár. Úr sumarbústaðn-
um okkar fyrir vestan á ég minn-
ingu um mann sem hálfníræður
settist niður á stofugólfið með
fimm ára gömlum tvíburunum,
barnabörnum sínum, til þess að
leika við þau. Við náðum vel sam-
an þegar kom að því að tala um
sjóinn og sjómennsku. Sem ungur
maður var hann á bátum og tog-
urum og sigldi m.a. á England og
Þýskaland skömmu eftir stríð og
sótti einnig Grænlandsmið. Mér
finnst stundum hálf óskemmtilegt
að berjast á skipi í náttmyrkri og
ólgusjó íslenskra vetrarveðra.
Þetta hlýtur þó að vera leikur einn
í dag miðað við aðstæður og skip
fyrir 60-70 árum; togurum með
opið dekk þar sem hver skvetta
sem inn fyrir kom, buldi á mönn-
unum við vinnu sína. Aldrei var
tengdafaðir minn að velta sér upp
úr slíku í samtölum okkar. Æðru-
leysi einkenndi hann. Lífið er til
þess að taka því eins og það er
hljóta að hafa verið hans einkunn-
arorð.
Einar Jónsson.
Ágúst Ísfeld
Sigurðsson
Við andlát ungs
fólks verður spurningin um lífið
og tilgang þess áleitin. Það á við
um fráfall Ástu Stefánsdóttur
sem lést langt um aldur fram
aðeins 35 ára gömul. Ásta hafði
mikið til að bera, var gáfuð, vel
menntuð og glæsileg. Hún hafði
mikinn áhuga á refsirétti og
hafði kennt í þeirri grein við
lagadeild Háskóla Íslands. Hún
var frumleg og sjálfstæð og í
henni sáum við fyrir okkur einn
af fræðimönnum framtíðarinnar,
verðugan fulltrúa sinnar kyn-
slóðar.
Ásta varð skrifstofustjóri
Norræna sakfræðiráðsins árið
2011 og gegndi því starfi út það
tímabil sem Ísland gegndi for-
mennsku í ráðinu eða til loka
Ásta Stefánsdóttir
✝ Ásta Stef-ánsdóttir fædd-
ist 20. nóvember
1978. Hún fannst
látin í Bleiks-
árgljúfri í Fljóts-
hlíð 15. júlí 2014, en
var saknað frá 10.
júní 2014. Útför
hennar fór fram 25.
júlí 2014.
árs 2012. Bak-
grunnur Ástu í lög-
fræðinni kom þar
að góðum notum
auk þess sem hún
skildi og talaði
sænsku reiprenn-
andi. Starfið felst í
því að halda utan
um fjölbreytta
starfsemi ráðsins
eins og ráðstefnur,
vinnuhópa, styrk-
veitingar og útgáfustarfsemi í
náinni samvinnu við formann
ráðsins og stjórn. Ásta náði
góðu sambandi við kollega okk-
ar á Norðurlöndum með fag-
mannlegum vinnubrögðum en
ekki síður hlýlegri nærveru
sinni og oft glettni í tilsvörum.
Við fulltrúar Íslands í ráðinu og
starfsmenn þess minnumst Ástu
með söknuði og sendum fjöl-
skyldu hennar okkar dýpstu
samúðarkveðjur. Blessuð sé
minning hennar.
Ragnheiður Bragadóttir,
Helgi Gunnlaugsson, Krist-
rún Kristinsdóttir, Margrét
Sæmundsdóttir, Íris Björg
Kristjánsdóttir, Halldóra
Jóhanna Þorláksdóttir. ✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og vinarhug við andlát og
útför föður okkar, stjúpföður, tengdaföður,
afa og langafa,
JÓNS GUÐMUNDSSONAR,
áður Torfufelli 25,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki hjúkrunardeildar
H1 á Hrafnistu í Reykjavík fyrir einstaka umönnun og hlýju.
Sverrir Jónsson, Rannveig Sigurgeirsdóttir,
Ásdís Jónsdóttir, Þorleifur Gíslason,
Garðar Arason, Ingibjörg Jónsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar okkar
ástkæru
ÞURÍÐAR SIGURÐARDÓTTUR,
Kistuholti 11,
Biskupstungum.
Guðni Lýðsson,
Sigríður B. Sigurjónsdóttir, Páll Hjaltason,
Kristrún Sigurjónsdóttir,
María Sigurjónsdóttir, Paul Johansen,
Friðrik Sigurjónsson, Agla Snorradóttir
og fjölskyldur.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
elskulegs föður okkar, tengdaföður, afa og
langafa,
PÁLS JÓNSSONAR,
Gránufélagsgötu 37,
Akureyri.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Heimahlynningar
og öldrunarheimila Akureyrar fyrir góða umönnun.
Sigurgeir Pálsson, Jórunn Agnarsdóttir,
Rósa Pálsdóttir, Pálmi Vilhjálmsson,
Anna Kristín Pálsdóttir, Jón Frímann Ólafsson,
afa- og langafabörn.
✝
Hugheilar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför ástkærrar móður,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
KRISTÍNAR MARGRÉTAR PÁLSDÓTTUR.
Ásta Ragnarsdóttir,
Sjöfn Ragnarsdóttir, Sigurður Hinrik Hjörleifsson,
Jóhanna Ragnarsdóttir, Sigurjón Jónasson,
Gylfi Ragnarsson,
Ragnhildur Ragnarsdóttir, Guðmar Stefánsson,
Sveinbjörg Þ. Ragnarsdóttir, Birgir Bragason,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra sem
auðsýndu okkur samúð og vináttu við andlát
og útför
SNORRA ÞORSTEINSSONAR,
fyrrverandi fræðslustjóra,
Hrafnakletti 2,
Borgarnesi.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Sjúkrahúss Akraness
fyrir góða umönnun og hlýju.
Einnig til Svövu Víglundsdóttur fyrir tryggð og vináttu.
Aðstandendur.
✝
Innilegar þakkir færum við öllum ættingjum,
vinum og vandamönnum fyrir auðsýnda
samúð og hlýju við andlát okkar ástkæru
SIGRÍÐAR GUÐMUNDSDÓTTUR,
Langholtsvegi 78.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á líknardeild
Landspítalans fyrir einstaka og kærleiksríka
hjúkrun hennar.
Gunnar Bernhard,
Ragna G. Gould, Richard Gould,
Guðmundur Geir Gunnarsson, Ingibjörg Snorradóttir,
Gylfi Gunnarsson, Dóra Bjarnadóttir,
Edda Gunnarsdóttir, Sveinn Ásgeir Baldursson,
Gunnar Gunnarsson, Bergljót Ylfa Pétursdóttir
og fjölskyldur.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
ARNBJÖRG SIGTRYGGSDÓTTIR,
Skólabraut 3,
Seltjarnarnesi,
lést á hjúkrunarheimilinu Ísafold
sunnudaginn 27. júlí.
Útför hennar fer fram frá Seltjarnarneskirkju
þriðjudaginn 5. ágúst kl. 13.00.
Geir Lúðvíksson, Guðrún Bjarnadóttir,
Sigurveig Lúðvíksdóttir, Magnús G. Friðgeirsson,
Örn Lúðvíksson
og fjölskyldur.
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur og
fjölskyldu okkar vináttu og hlýju við andlát
föður okkar og tengdaföður,
VILHJÁLMS HJÁLMARSSONAR
frá Brekku í Mjóafirði.
Sérstakar þakkir fá allar góðu konurnar í
heimahjúkrun og Hlymsölum fyrir góða
umönnun og vinarþel.
Kolbrún Sigurðardóttir,
Páll Vilhjálmsson, Kristín Gissurardóttir,
Sigfús Mar Vilhjámsson, Jóhanna Lárusdóttir,
Stefán Vilhjálmsson, Helga Frímannsdóttir,
Anna Vilhjálmsdóttir, Garðar Eiríksson
og fjölskyldur.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og bróðir,
SKÚLI SKÚLASON
stýrimaður og strætóbílstjóri,
Njálsgötu 81,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum við Hringbraut
þriðjudaginn 29. júlí.
Hann verður jarðsunginn frá Háteigskirkju
fimmtudaginn 7. ágúst kl. 13.00.
Helga Skúladóttir,
Dagný Skúladóttir, Sif Hrafnsdóttir,
Guðný Skúladóttir, Valgeir Arnar Knútsson,
Líney Skúladóttir
og barnabörn.
Davíð
útfararstjóri
Jóhanna Erla
guðfræðingur
útfararþjónusta
Óli Pétur
útfararstjóri 551 3485 • udo.is