Morgunblaðið - 02.08.2014, Síða 44
LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 214. DAGUR ÁRSINS 2014
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 745 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Krefst þess að konan fái lyfið
2. „Það er bara engin umferð“
3. Á Jóhann Karl óskilgetinn son?
4. Lögreglan leitar Guidos
Nýlega birtist
grein í hinu virta
vikutímariti New
York-borgar,
Village Voice, um
söngleik Ívars Páls
Jónssonar, Revolu-
tion in the Elbow of
Ragnar Agnarsson
Furniture Painter.
Forsýningar á söngleiknum hófust í
gær og halda þær áfram til frumsýn-
ingarinnar sem verður 15. ágúst
næstkomandi. Í greininni kemur með-
al annars fram að andi Radiohead,
Davids Bowie, Grizzly Bear, the Flam-
ing Lips og Sufjan Stevens svífi yfir
vötnum. Reynsluboltinn Lee Proud
kveður sýninguna tilfinningaþrungna
og kraftmikla jafnframt því að vera
raunsæ og að hinu mannlega eðli séu
gerð góð skil.
Íslenskum söngleik
hrósað í hástert
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Áfram hægur vindur og skúrir, einkum á S- og V-landi. Hiti 8 til 15
stig, hlýjast V-til.
Á sunnudag Austan 8-13 m/s og lítilsháttar væta með S-ströndinni, en annars 3-8 og
bjart með köflum, en líkur á síðdegisskúrum. Hiti 10 til 15 stig.
Á mánudag (frídegi verslunarmanna) Austlæg átt, 8-13 m/s og dálítil væta með S-
ströndinni, en annars skýjað og þurrt að mestu. Norðlægari og fer að rigna A-lands.
Handknattleiksþjálfarinn Geir
Sveinsson segist finna fyrir því að
miklar væntingar séu gerðar til hans
sem þjálfara Magdeburg, sérstaklega
þar sem íslenskir þjálfarar hafa átt
góðu gengi að fagna í Þýskalandi. „Ég
finn það, enda höfum við allir sam-
eiginlegan bakgrunn. En ég er bara
ég og kem með mínar áherslur,“ segir
Geir við Morgunblaðið. »4
Aukin pressa eftir góð-
an árangur Íslendinga
Alfreð Finnbogason er
ánægður með hvernig hann
hefur aðlagast hlutunum
hjá Real Sociedad á Spáni.
Hann spilaði sinn fyrsta
mótsleik á fimmtudags-
kvöld og segist hafa verið
fenginn til þess að skora
mörkin. „Stærðin á öllu hef-
ur komið einna helst á
óvart,“ segir Alfreð meðal
annars í viðtali við Morgun-
blaðið í dag. »1
Fenginn til að
skora mörkin
Toppliðin á Englandi hafa notað sum-
arið til að styrkja sig fyrir komandi
átök, en enska úrvalsdeildin hefst
eftir tvær vikur. Í Morgunblaðinu í
dag eru kaup sumarsins skoðuð og
velt vöngum yfir því
hverjir munu
verða í lykilhlut-
verkum í barátt-
unni um sjálfan
titilinn. »3
Hverjir munu hafa mest
áhrif á komandi vetri?
Morgunblaðið kemur næst út
þriðjudaginn 5. ágúst. Frétta-
þjónusta verður um verslunar-
mannahelgina á fréttavef
Morgunblaðsins, mbl.is. Hægt
er að koma ábendingum um
fréttir á netfangið netfrett-
@mbl.is.
Þjónustuver áskrifta er opið
í dag, laugardag, frá kl. 8-12
en lokað á sunnudag og mánu-
dag. Það verður opnað á ný
þriðjudaginn 5. ágúst kl. 7.
Símanúmer þjónustuvers er
569-1122 og netfangið er
askrift@mbl.is.
Blaðberaþjónusta verður op-
in í dag, laugardag, frá kl. 6-12
og opnuð á ný þriðjudaginn 5.
ágúst kl. 5. Símanúmer blað-
beraþjónustu er 569-1440 og
netfangið er bladberi@mbl.is.
Hægt er að bóka dánar-
tilkynningar á mbl.is. Síma-
númer Morgunblaðsins er 569-
1100.
Fréttaþjónusta
um helgina
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Síldarævintýrið á Siglufirði hefur
skapað sér sess sem menningarleg
fjölskylduhátíð um hverja verslunar-
mannahelgi. Heiður himinn og sól
mætti gestum hátíðarinnar í gærdag
og er útlit fyrir áframhaldandi blíðu
alla helgina ef marka má veðurspá.
Lýsti einn gestanna í samtali við
Morgunblaðið stemningunni á þá
leið að fólk nyti þess mjög að slaka á
í góða veðrinu og voru gestir þá
farnir að safnast saman við ráðhús-
torg bæjarins þar sem fjölbreytt
dagskrá skemmti viðstöddum fram
yfir miðnætti.
Skrúðgöngur og Raggi Bjarna
Unglingalandsmót Ungmenna-
félags Íslands fer fram á Sauðár-
króki um helgina. Var mótið, sem
hófst síðastliðinn fimmtudag, form-
lega sett í gærkvöld og segir Ómar
Bragi Stefánsson, framkvæmda-
stjóri landsmótsins, gesti mega bú-
ast við fjörugri og skemmtilegri
helgi. „Það gengur hér allt rosalega
vel. Það er að vísu pínu norðanátt en
það er hins vegar sólskin.“
Fjölskyldu- og útihátíðin Neista-
flug er haldin í 21. skiptið þessa
verslunarmannahelgi og er markmið
hátíðarinnar að bjóða ferska og fjöl-
breytta dagskrá tónlistar, skemmti-
krafta og listamanna. Þegar
Morgunblaðið náði tali af Þórfríði
Soffíu Þórarinsdóttur, fram-
kvæmdastjóra Neistaflugs, var hún
stödd í skrúðgöngu sem hélt úr
hverfum bæjarins og niður í miðbæ.
„Hér er mjög fínt veður og allt
gengur eins og í sögu. Setningar-
athöfnin fer svo fram í kvöld [föstu-
dag] klukkan hálfníu en eftir hana
byrjar dansleikur fyrir fjórtán ára
og eldri og tónleikar með Ragga
Bjarna,“ segir hún og bætir við að
allmikill fjöldi fólks hafi ákveðið að
sækja hátíðina heim í ár. Tjaldgestir
hátíðarinnar þurfa vart að hafa
áhyggjur því útlit er fyrir ágætis
veður í Neskaupstað alla helgina.
„Aldrei uppselt á Þjóðhátíð“
Hörður Orri Grettisson, sem sæti
á í þjóðhátíðarnefnd, segir fólk farið
að fjölmenna mjög í Vestmanna-
eyjum. Spurður hvort hann hafi tölu
yfir þjóðhátíðargesti kveður hann
nei við. „Þetta er orðið mjög fjöl-
mennt hérna en ég hef samt ekki
fengið neinar tölur yfir gesti,“ segir
hann og bætir við að enn séu til laus-
ir miðar á hátíðina og verða þeir í
boði alla helgina. „Það geta allir sem
vilja keypt sér miða við hliðið. Þann-
ig að ef fólk kemst til Eyja þá kemst
það líka í Dalinn því það er aldrei
uppselt á Þjóðhátíð.“
Fjölbreytt og spennandi helgi
Miðar á Þjóð-
hátíð í Eyjum
í boði alla helgina
Síldarævintýri Ekki var annað að sjá en að bæjarbúar og gestir Siglufjarðar hafi notið veðurblíðunnar í gær en
menningarleg og fjölbreytt fjölskylduhátíð fer fram í bænum. Sat fólk m.a. utandyra og sleikti sólina.
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Gleði Unglingalandsmót UMFÍ fer þessa helgi fram á Sauðárkróki.
Morgunblaðið/Björn Björnsson