Morgunblaðið - 05.08.2014, Side 1

Morgunblaðið - 05.08.2014, Side 1
Þ R I Ð J U D A G U R 5. Á G Ú S T 2 0 1 4 Stofnað 1913  180. tölublað  102. árgangur  NÝ VINNUSTOFA FYRIR LISTAMENN OG FRUMKVÖÐLA ÚTTEKT Á SPORTBÍLUM OG ÁNÆGJA RANNSAKAR LÍFIÐ TIL AÐ SEMJA TÓNLIST BÍLAR STAÐARSKÁLD 34SEYÐISFJÖRÐUR 17 Morgunblaðið/Malín Brand Breytingar Hringvegurinn hefur tekið breytingum sl. 40 ár og bílarnir líka.  Þegar hringvegurinn um Ísland var opnaður fyrir fjörutíu árum hefði eflaust þótt ótrúlegt að einn daginn yrði hægt að aka hann létti- lega án þess að bæta á eldsneytis- tankinn. Bílablað Morgunblaðsins gerði athugun á því hversu auðvelt þetta reyndist og var fenginn að láni Renault Megane Sport Tourer með 1500 dísilvél. Með skynsam- legu aksturslagi voru um 1.600 kílómetrar eknir á einum tanki. Þó að hringvegurinn sé örlítið styttri en hann var árið 1974 er nokkuð ljóst að bílaflotinn er orð- inn mun sparneytnari og ökumenn meðvitaðri um gildi þess að aka skynsamlega. Í dag er sportið að fara hringinn á sem fæstum lítrum en ekki á sem mestum hraða. Hringurinn og nokk- uð meira til á einum tanki af eldsneyti Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Tvö fiskeldisfyrirtæki á Aust- fjörðum eru að undirbúa mat á umhverfisáhrifum fyrir stækkun sjókvíaeldis. Fiskeldi Austurlands, sem er með laxeldi í Berufirði, stefnir að stækk- un þar og í Fáskrúðsfirði þannig að framleiðslugeta stöðvanna verði í heildina 24 þúsund tonn á ári. Er það stækkun um 13 þúsund tonn. Laxar fiskeldi hefur leyfi fyrir 6 þúsund tonna eldi í Reyðarfirði og stefnir að því að setja út seiði næsta vor. Fyrirtækið hefur hafið undir- búning að stækkun um 10 þúsund tonn. Horft hefur verið til Austfjarða sem annars helsta svæðis landsins fyrir sjókvíaeldi. Hingað til hefur mesta uppbyggingin verið á Vest- fjörðum og haft gríðarlega mikil áhrif á efnahag íbúa sunnanverðra Vestfjarða. Guðmundur Gíslason, aðaleigandi og stjórnarformaður Fiskeldis Austurlands, segir að mikil stærðarhagkvæmni sé í fiskeldi og rætt um að stöðvarnar þurfi að vera að minnsta kosti 15-20 þúsund tonn til að fjárfesting í búnaði og tækjum sé hagkvæm. Sveitarstjórnarmenn á Austur- landi binda vonir við jákvæð áhrif vaxandi fiskeldis á samfélagið. MFiskeldið færir út kvíarnar »15 Sjókvíaeldi verður aukið  Tvö fiskeldisfyrirtæki á Austfjörðum áforma stækkun  Auka á framleiðslu- getu fyrirtækjanna um tugi þúsunda tonna  Binda vonir við jákvæð áhrif Morgunblaðið/RAX Hvalfjörður Alls hafa 26 milljónir bíla farið um göngin á 16 árum. Spölur áformar að ráðast í endur- bætur á slitlaginu í Hvalfjarðar- göngum í haust, en slitlagið hefur enst frá upphafi, í rúm 16 ár. Hvalfjarðargöng voru tekin í notkun 11. júlí árið 1998. Síðan þá hefur umferðin verið gríðarleg, alls um 26 milljónir bíla. Gísli Gíslason, stjórnarformaður Spalar, segir að verkið verði unnið í tveimur eða þremur áföngum. Í fyrsta áfanga verði tekinn kafli frá norðurenda ganganna til suðurs. Þessar framkvæmdir munu trufla umferðina um göngin en Gísli segir að reynt verði að halda því í lágmarki. Ljóst sé að þetta geti orðið einhverjir dagar og verið sé að skoða að vinna verkið um helgar eða að nóttu til. „Það þarf að byrja á því að fræsa upp malbikið. Því fylgir mikið ryk og drulla og afar ólíklegt er að við getum haft umferð í gangi á með- an,“ segir Gísli og telur ljóst að um einhvern tíma verði að beina um- ferðinni um Hvalfjörðinn. Það geti verið gott að rifja upp gömul kynni við þá ágætu leið, þó að hún sé vissulega lengri. »4 Nýtt slitlag í göngin í haust  Alls hafa 26 milljónir bíla farið um Hvalfjarðargöng Neyðarástandi hefur verið lýst við Sólheima- jökul vegna aðstæðna við sporð jökulsins. Hann gengur nú fram í jökullón og jakar brotna framan úr jökulsporðinum og falla í lónið. Við það hefur fremsti hluti sporðsins lyfst um 1,5 metra. Björgunarsveitin Víkverji var kölluð á svæðið til þess að halda vegfar- endum frá. Orri Örvarsson, formaður sveitarinnar, seg- ir að fjölmargir ferðamenn hafi komið að svæðinu til þess að skoða aðstæður. „Fólk er mjög skilningsríkt og fer frá þegar það sér að svæðið er lokað. Það er eitthvað mikið að gerast og það eru svakalegar breytingar á jöklinum dag frá degi,“ segir Orri. Víkverji vaktar Sólheimajökul Morgunblaðið/Jónas Erlendsson  Mataræði í íslenskum klaustrum á öldum áður hefur verið til rann- sóknar undanfarið á vegum Matís og Þjóðminjasafnsins, en vísbend- ingar um það leynast í brotum leir- kera frá Skriðuklaustri og Kirkju- bæjarklaustri. Fyrstu niðurstöður benda til þess að mataræðið hafi verið býsna fjöl- breytt hjá nunnum og munkum. Vísbendingar fundust um neyslu á fiski, kjöti af spendýrum og einn- ig um hnetur, fræ eða ber. »6 Fjölbreyttur matur í klaustrum fyrri alda  Grænmetis- uppskeran hefur ekki verið eins góð og búist var við í upphafi sumars. „Vorið fór mjög vel af stað og maí gekk vel upp hvað hitann varðar, en svo hefur það haft neikvæð áhrif að það sást varla til sólar í einn og hálfan mánuð,“ segir Gunnlaugur Karls- son, framkvæmdastjóri Sölufélags garðyrkjumanna. Hann segist sjá fram á það að þetta verði meðalár. Allar grænmetistegundir eru komnar á markað, nú síðast gul- ræturnar. »13 Grænmetisupp- skera í meðallagi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.