Morgunblaðið - 05.08.2014, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. ÁGÚST 2014
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Spölur áformar að ráðast í end-
urbætur á slitlaginu í Hvalfjarð-
argöngum í haust, en slitlagið hef-
ur enst frá upphafi, eða í rúm 16
ár.
Gísli Gíslason, stjórnarformaður
Spalar, segir að verkið verði unnið
í tveimur eða þremur áföngum. Í
fyrsta áfanga verði tekinn kafli frá
norðurenda ganganna til suðurs.
„Við gerum ráð fyrir að fara í
þetta þegar hægist á umferðinni í
október. Það er ekki endanlega
ákveðið hve langur kafli verður
tekinn. Við erum að vinna í útboðs-
gögnum og fleiru,“ segir Gísli en
göngin eru nærri sex kílómetrar að
lengd.
Þessar framkvæmdir munu
trufla umferðina um göngin en
Gísli segir að reynt verði að halda
því í lágmarki. Ljóst sé að þetta
geti orðið einhverjir dagar og verið
sé að skoða að vinna verkið um
helgar eða að nóttu til.
„Það þarf að byrja á því að fræsa
upp malbikið. Því fylgir mikið ryk
og drulla og afar ólíklegt að við
getum haft umferð í gangi á með-
an,“ segir Gísli og telur ljóst að um
einhvern tíma verði að beina um-
ferðinni um Hvalfjörðinn. Það geti
verið gott að rifja upp gömul kynni
við þá ágætu leið, þó að hún sé
vissulega lengri en að fara göngin.
Vonandi verði þetta skammur tími í
einu. Gísli segir að komi upp neyð-
artilvik þá muni t.d. sjúkrabílum að
sjálfsögðu verða hleypt í gegn þó
að framkvæmdir standi yfir.
Átti að endast í fjögur ár
„Slitlagið hefur enst vonum
framar. Í upphafi var reiknað með
að fara þyrfti í endurbætur eftir
fjögurra ára notkun en það hefur
greinilega margborgað sig að nota
harðara steinefni í slitlagið, eða
kvars. Það hefur einnig hjálpað
okkur að veðrið nær ekki að bíta á
yfirborðinu. Allt hefur þetta aukið
endinguna.“
Endurbætur á slitlaginu kosta
sitt. Gísli segir endanlega
áætlun ekki liggja fyrir en
kostnaðurinn við fyrsta
áfanga geti hlaupið á 50-60
milljónum króna.
„Við vonumst til að geta
fengið samskonar efni í
nýtt slitlag, þann-
ig að það dugi í
önnur sextán
ár,“ segir
Gísli.
Morgunblaðið/Sverrir
Hvalfjarðargöng Allt að 5 þúsund bílar fara að jafnaði um Hvalfjarðargöng á degi hverjum. Umferðin eykst á ný.
Spölur skiptir um slit-
lag eftir 16 ára notkun
Umferð um Hvalfjarðargöng mun raskast nokkuð í haust
Hvalfjarðargöng voru tekin í
notkun 11. júlí árið 1998, eða
fyrir 16 árum. Síðan þá hefur
umferðin verið gríðarleg, eða
um 26 milljón bílar. Að sögn
Gísla Gíslasonar var í upphafi
talið að sólarhringsumferð
yrði á bilinu 1.800 til 2.000
bílar en í dag fara að jafnaði
5.000 bílar um göngin á degi
hverjum. Ársumferðin er því
um 1,8 milljónir bíla. Gísli
segir hana hafa verið að
aukast á ný, eftir lítilsháttar
minnkun fyrst eftir hrunið.
Þegar göngin voru í und-
irbúnings- og fram-
kvæmdaferli voru þau mjög
umdeild og lýstu sumir því
yfir að þeir myndu aldrei
fara undir Hvalfjörð-
inn til að stytta
leið sína.
Miklu meiri
en spáð var
UMFERÐ UM GÖNGIN
Gísli Gíslason
Ingvar Smári Birgisson
isb@mbl.is
Páll Bergþórsson, 90 ára veður-
fræðingur og rithöfundur, ætlar í
fornleifaleiðangur í Nova Scotia
á austurströnd Kanada og mun
hann síðan flytja fyrirlestur í
New York um Vínlandsferðirnar.
Páll hyggst skoða mögulegar
fornleifar sem hann telur að séu
eftir Þorvald Eiríksson, bróður
Leifs Eiríkssonar og son Eiríks
rauða, sem var uppi fyrir 1.000
árum.
Leitar að víkingafornleifum
Páll telur að mögulega sé um
að ræða leifar af leiðarmerki sem
Þorvaldur Eiríksson bjó til í Nýja
heiminum. „Ég ætla að skoða fyr-
irbæri sem ég
hef haft spurnir
af í norðurhluta
Nova Scotia.
Staðsetning
fornleifanna
passar alveg við
þann stað þar
sem Þorvaldur
Eiríksson, bróð-
ir Leifs Eiríks-
sonar, braut
kjölinn undan skipi sínu,“ segir
Páll, en grjóthrúgan er í Hvíta-
nesi (e. White Point).
„Þorvaldur var lengi að gera
við skipið um sumarið, en hann
reisti brotna kjölinn upp á nesinu
þar sem hann hafði strandað. Og
hvernig má ætla að hann hafi
reist kjölinn upp? Ég giska á að
hann hafi hlaðið grjót utan um
hann til að halda honum uppi. Ég
hafði spurnir um að á þessu nesi
hefði fundist grjóthrúga sem lítur
út fyrir að vera ekki gerð af nátt-
úrunnar höndum, heldur er hún
trúlega mannaverk. Þetta langar
mig að skoða nánar, þar sem
þetta gæti verið bending um að
þetta sé einmitt leiðarmerkið sem
Þorvaldur gerði fyrir þá sem
sigldu framhjá nesinu. Skömmu
seinna sigldu framhjá Guðríður
Þorbjarnardóttir og Þorfinnur
karlsefni og fundu þau þá þennan
kjöl. Eflaust hefur hann blasað
við þeim frá sjónum og fóru þau í
land og skoðuðu svæðið nánar.
Þetta er svolítið dularfullt.
Kannski er þetta allt tóm vitleysa
en maður verður alltaf að taka
einhverja áhættu,“ segir Páll.
Hann telur bandaríska fræði-
menn ekki taka Vínlandssögu al-
varlega.
Vínlandssaga traust heimild
„Ég held fyrirlestur í New
York um Vínlandsferðirnar. Það
hefur verið þannig í Ameríku og
víða annars staðar að menn hafa
ekki tekið neitt mark á Vínlands-
sögu og ekki fundist nein ástæða
til að nota bækurnar sem heimild
við leit á fornleifum. Ég tel að
þessar sögur séu áreiðanlegar
heimildir og að við verðum að
bera þær saman og rekja, Vín-
landsferðirnar og landslagið á
svæðinu. Ég ætla að tala um
hvernig þetta kemur allt heim og
saman, ferða- og landslagslýsing-
arnar, og af hverju ástæða sé til
að velja staði til að leita að forn-
leifum eftir lýsingum bókanna.“
Verður 91 árs í ferðinni
Bjarni F. Einarsson fornleifa-
fræðingur og Bragi Bergþórsson
fara með Páli í ferðina, sem hefst
hinn 7. ágúst. Dagana 8. og 9.
ágúst munu þeir skoða fornleif-
arnar í Nova Scotia. 12. ágúst
halda þeir Páll og Bragi til New
York, þar sem Páll flytur fyr-
irlestur.
Og hinn 13. ágúst munu þeir
verða viðstaddir frumsýningu á
söngleik dóttursonar Páls, Ívars
Páls Jónssonar, á Broadway, Re-
volution in the Elbow of Ragnar
Agnarsson. En sama dag verður
Páll 91 árs gamall.
Leitar fornleifa í Kanada á tíræðisaldri
Telur grjóthrúgu í Nova Scotia mögulega vera leiðarmerki eftir Þorvald Eiríksson
Páll
Bergþórsson
Umferð gekk stórslysalaust fyrir sig
um verslunarmannahelgina. Hvar-
vetna gekk umferð vel samkvæmt
upplýsingum frá lögreglu á Selfossi,
Akureyri, Ísafirði og höfuðborgar-
svæðinu. Samkvæmt upplýsingum
frá lögreglunni á Selfossi varð um-
ferð aldrei sérstaklega þung og helg-
ast það að sögn vaktmanns lögregl-
unnar á Selfossi af því hve margir
lögðu heim á leið strax í fyrranótt.
Því dreifðist umferð betur yfir dag-
inn en búist hafði verið við.
Samkvæmt upplýsingum á vef
Vegagerðarinnar var umferð mest
undir Ingólfsfjalli, á Sandskeiði og
Kjalarnesi í gær en þar höfðu klukk-
an tíu í gærkvöldi farið um rúmlega
tíu þúsund bifreiðar sólarhringinn á
undan.
Erlendur hjólreiðamaður slasaðist
þegar ekið var á hann við Mývatn.
Hann var fluttur með sjúkrabifreið,
annaðhvort til Húsavíkur eða Akur-
eyrar til aðhlynningar samkvæmt
upplýsingum lögreglunnar á Húsa-
vík. Ekki fengust nánari upplýsingar
um líðan hans. vidar@mbl.is
Umferð dreifðist
vel yfir daginn
Stórslysalaus verslunarmannahelgi
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Suðurlandsvegur Umferð til Reykjavíkur gekk vel og dreifðist hún betur
en lögreglan á Selfossi hafði búist við. Ekið var á hjólreiðamann við Mývatn.
Andri Steinn Hilmarsson
ash@mbl.is
Mikið var um ölvunarakstur um
helgina í umdæmi lögreglunnar á
Hvolsvelli. Samkvæmt upplýsingum
Magnúsar Ragnarssonar, lögreglu-
manns á Hvolsvelli, voru 18 bílstjór-
ar kærðir fyrir akstur undir áhrifum
áfengis. Þá stöðvaði lögreglan 20 bíla
til viðbótar þar sem bílstjórinn
mældist undir áhrifum áfengis en
áfengismagn var undir refsimörk-
um. Var þeim bílstjórum því gert að
stöðva bifreið sína þar til af þeim
rynni og þeir ökuhæfir að nýju.
Fjöldi þjóðhátíðargesta kom sigl-
andi til Landeyjahafnar í gær og
bauð lögreglan á Hvolsvelli fólki að
blása í áfengismæli áður en það
keyrði af stað.
„Örugglega á annað þúsund bíl-
stjórar komu að blása hjá okkur. Þó
við séum með bíl niður frá þá halda
margir af stað án þess að blása. Það
eru þeir sem við erum að taka,“ segir
Magnús. Hann segir að lögreglan
hafi verið með meiri viðbúnað í ár og
fleiri bílstjórar hafi verið stoppaðir í
ár en í fyrra. Það virðist hafa skilað
árangri þar sem einungis fjórir ein-
staklingar voru teknir fyrir ölvunar-
akstur um verslunarmannahelgina í
fyrra. Voru það því rúmlega fjórum
sinnum fleiri sem voru kærðir fyrir
ölvunarakstur í ár en í fyrra.
Slysalaus umferð
Að sögn Magnúsar gekk umferðin
slysalaust fyrir sig um helgina.
„Það hefst með því að koma í veg
fyrir að fólk fari akandi í slæmu
ástandi upp á þjóðveginn,“ segir
Magnús og bætir við að lögreglan
hafi lítið orðið vör við hraðaakstur á
svæðinu.
Lögreglan mun halda áfram að
fylgjast með umferð á svæðinu í dag
að sögn Magnúsar og áfram verður
sérstaklega fylgst með ölvunarakstri
þar sem enn var fjöldi fólks í Vest-
mannaeyjum í gærkvöldi.
18 kærðir fyrir
ölvunarakstur
Lögreglan á Hvolsvelli fylgdist með
umferð frá Landeyjahöfn um helgina