Morgunblaðið - 05.08.2014, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. ÁGÚST 2014
Lífið er til þess að njóta gæða
– veldu steik eins og steik á að bragðast
Barónsstíg 11
101 Reykjavík
argentina.is
Borðapantanir
551 9555
Michael Jarner, yfirmaður er-lendra frétta hjá Politiken,
fjallar um stefnu Baracks Obama
Bandaríkjaforseta og afleiðingar
hennar í fréttaskýringu um helgina.
Jarner tekur framað umrótið í ver-
öldinni nú sé ekki
Obama að kenna, en
að hann hafi gegnt
embætti í næstum
sex ár og að margt
sé í meira uppnámi
en þegar friðar-
verðlaunahafinn tók við með þeim
áformum að draga úr hlutverki
Bandaríkjanna á alþjóðavettvangi.
Fréttaskýrandinn danski telurupp vandamálin og listinn er
ekki glæsilegur:
Ætlunin hafi verið að draga
Bandaríkin út úr Írak og Afganist-
an, sem hafi að mestu tekist, en þrátt
fyrir að hafa sett meira fé í Afganist-
an en fór í Marshall-aðstoðina ríki
enn kaos í landinu. Í Írak sé einnig
upplausnarástand.
Obama hafi ákveðið að senda ekki
stuðning til hófsamari aflanna í Sýr-
landi og afleiðingarnar séu að Assad
sitji enn, hófsamir eigi undir högg
að sækja og blóðbaðið og flótta-
mannastraumurinn hafi fyrir löngu
náð sögulegum hæðum.
Í Líbíu hafi Obama verið tvístíg-
andi, bæði fyrir og eftir fall Gaddafi,
og í Egyptalandi hafi hann heitið því
að standa með lýðræðinu en sé nú
búinn að taka aftur upp hernaðar-
aðstoð.
Jarlner telur einnig að Pútín hafi
leikið á Obama og náð forystunni í
samskiptunum. Þá hafi Bandaríkja-
forseti ekki náð árangri í deilunni
fyrir botni Miðjarðarhafs.
Eins og fréttaskýring Politikenber með sér hafa efasemdirnar
um utanríkisstefnu Obama farið
vaxandi, enda er alltaf hætt við um-
róti og erfiðleikum þegar forystu-
maðurinn sest í farþegasætið.
Barack Obama
Áhorfandi að
alþjóðlegu umróti
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 4.8., kl. 18.00
Reykjavík 13 skýjað
Bolungarvík 12 skýjað
Akureyri 14 skýjað
Nuuk 7 alskýjað
Þórshöfn 12 skúrir
Ósló 20 þrumuveður
Kaupmannahöfn 22 skýjað
Stokkhólmur 27 heiðskírt
Helsinki 26 heiðskírt
Lúxemborg 16 skúrir
Brussel 22 heiðskírt
Dublin 21 léttskýjað
Glasgow 17 léttskýjað
London 22 heiðskírt
París 22 heiðskírt
Amsterdam 22 léttskýjað
Hamborg 22 heiðskírt
Berlín 21 skýjað
Vín 25 léttskýjað
Moskva 27 heiðskírt
Algarve 25 heiðskírt
Madríd 32 heiðskírt
Barcelona 27 léttskýjað
Mallorca 28 léttskýjað
Róm 27 léttskýjað
Aþena 32 léttskýjað
Winnipeg 21 léttskýjað
Montreal 23 léttskýjað
New York 27 léttskýjað
Chicago 28 skýjað
Orlando 31 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
5. ágúst Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4:48 22:20
ÍSAFJÖRÐUR 4:34 22:44
SIGLUFJÖRÐUR 4:16 22:28
DJÚPIVOGUR 4:13 21:54
Skemmtiferðaskip voru áberandi í
Reykjavík um verslunarmanna-
helgina. Alls komu fimm slík til hafn-
ar um helgina, þar af þrjú á sunnu-
dag.
Stærst þessara skipa var Brilliance
of the Seas, rúmlega 90 þúsund
brúttótonn. Í dag klukkan 7 er skipið
AIDAsol, sem er rúmlega 71 þúsund
brúttótonn, væntanlegt að Skarfa-
bakka í Sundahöfn. Skemmti-
ferðaskipin munu svo koma til hafnar
eitt af öðru og það síðasta er vænt-
anlegt hingað 29. september. Alls er
búist við 89 skemmtiferðaskipum til
Reykjavíkur á þessu ári.
Sunnudaginn 14. september er von
á stærsta skipi sem hingað hefur
komið. Það heitir Royal Princess og
er 142.714 brúttótonn, að því er fram
kemur á heimasíðu Faxaflóahafna.
sisi@mbl.is
Skemmtiferðaskip áberandi í höfninni
Fimm skip komu til Reykjavíkur um
helgina Risaskip er væntanlegt
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Skarfabakki Tvö stór skemmtiferðaskip voru samtímis í Sundahöfn.
Innanríkisráðneytið hyggst ráða
fjóra ráðgjafa til að annast ráðgjöf
við nauðungarvistaða einstaklinga á
sjúkrahúsum á höfuðborgarsvæðinu.
Í frétt á heimasíðu ráðuneytisins
kemur fram að það hyggist gera
samning við teymi ráðgjafa. Í ráð-
gjöfinni felst m.a. upplýsingagjöf,
hagsmunagæsla, ráðgjöf og stuðn-
ingur við viðkomandi um hvaðeina er
varðar nauðungarvistunina allt til
loka hennar.
Ráðgert er að í teyminu verði fjór-
ir ráðgjafar, tveir af hvoru kyni, sem
ekki starfa á sjúkrahúsi. Ráðuneytið
tilgreinir einn teymisstjóra sem ber
ábyrgð á skipulagi teymisins, skipt-
ingu á vöktum og samskiptum við
ráðuneytið. Ráðuneytið velur í teym-
ið úr hópi umsækjenda með það að
markmiði að mynda sérhæft teymi
fagaðila með þverfaglega menntun
og reynslu, segir í fréttinni.
Greiður aðgangur þurfi að vera að
ráðgjafa þannig að tryggt sé að hægt
sé að ná í hann alla daga ársins. Með
símavakt ráðgjafateymis skal
tryggja að viðtal við skjólstæðing
hefjist innan 12 klukkustunda eftir
að vakthafandi læknir hefur haft
samband við ráðgjafann.
Aðstoð við
nauðungar-
vistaða
Ráðuneytið hyggst
ráða fjóra ráðgjafa