Morgunblaðið - 05.08.2014, Qupperneq 12
SVIÐSLJÓS
Andri Steinn Hilmarsson
ash@mbl.is
Skipuleggjendur Þjóðhátíðar í
Vestmannaeyjum og Ein með öllu
á Akureyri, sem fram fóru um
verslunarmannahelgina, telja að
fjöldamet hafi verið slegið á hátíð-
unum.
„Þó það hafi komið rok í restina
þá gekk alveg frábærlega um
helgina,“ segir Birgir Guðjónsson,
formaður þjóðhátíðarnefndar.
Ekki er búið að telja saman fjölda
þjóðhátíðargesta í ár en Birgir
segist aldrei hafa séð jafn marga
gesti á Þjóðhátíð og í ár og segir
að menn hafi verið að giska á að
gestafjöldinn hafi verið á bilinu
15-16 þúsund manns.
„Það var strax á föstudeginum
sem maður sá að það var eitthvað
stórt í gangi,“ segir Birgir. Hann
segir brekkuna á laugardeginum
hafa verið álíka setna og á sunnu-
deginum fyrir fjórum til fimm ár-
um síðan eða um 12-13 þúsund
manns.
Það sama var uppi á teningnum
hjá Akureyringum en Davíð Rún-
ar Gunnarsson, viðburðastjóri hjá
Viðburðastofu Norðurlands, segir
aldrei hafa verið jafn fjölmennt á
lokatónleikum Ein með öllu og á
sunnudag. „Það er ekki yfir neinu
að kvarta. Fullt af fólki og spari-
tónleikarnir á sunnudag voru æð-
islegir,“ segir Davíð. Hann giskar
á að á bilinu 12-14 þúsund manns
hafi sótt hátíðina í ár en segir að
erfitt sé að spá fyrir um það þar
sem frítt var á hátíðina.
„Þetta var besta mæting sem
sést hefur. Flugeldasýningin end-
aði á því að flestir bátar voru
komnir út á Pollinn til að fylgjast
með og kveiktu þeir í rauðum
blysum þannig að allur Pollurinn
logaði af rauðum ljósum.“
Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglu var umferðin í grennd við
höfuðborgina með besta móti og
þurfti lögregla litlar áhyggjur að
hafa af gangi mála.
Hafa aldrei séð jafn marga gesti
Aldrei hafa fleiri gestir sótt hátíðirnar Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum og Eina með öllu á Akureyri
segja skipuleggjendur hátíðanna Giska á að 15-16 þúsund gestir hafi verið á Þjóðhátíð í ár
Ljósmynd/Linda Ólafsdóttir
Margmenni Að sögn Davíðs Rúnars Gunnarssonar viðburðastjóra hafa
aldrei verið jafn margir á sparitónleikunum, lokatónleikum Einnar með
öllu. Telur hann gestafjölda hátíðarinnar vera á bilinu 12-14 þúsund.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Bílastæði Þjóðhátíðargestir fylltu í öll bílastæði í Landeyjahöfn. Eftir að bílastæðið fylltist fór fólk að leggja bílum
sínum utan í vegarkant og var bílalengjan svo löng að farþegar Herjólfs voru beðnir um að vera snemma á ferð.
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. ÁGÚST 2014
Vagnhöfða 11, 110 Reykjavík | S. 577-5177 | linuborun@linuborun.is | www.linuborun.is
Af hverju grafa þegar hægt er að bora?
Reynsla - þekking - við komum og metum
Við notum stýranlegan jarðbor
sem borar undir götur, hús, ár
og vötn.
Umhverfisvænt - ekkert jarðrask•
Meira öryggi á svæðinu•
Sparar bæði tíma og peninga.•
Borum fyrir nýjum síma-, vatns-, rafmagns-
og ljósleiðaralögnum.
Á Ísafirði var mýrarbolti spilaður
um helgina og að sögn Jóns Páls
Hreinssonar, eins skipuleggjenda
Mýrarboltans, voru um 2.000
manns á svæðinu um helgina.
„Mótið gekk mjög vel fyrir sig og
gestirnir voru sér og öðrum til
sóma. Það voru í kringum 1.000
manns sem borguðu sig inn á há-
tíðina en við áætlum að það hafi
verið um 2.000 manns í það heila á
svæðinu,“ segir Jón Páll og bætir
við að veðrið hafi verið frábært,
logn og sól alla helgina.
Á annað hundrað kærur
„Menn voru kærðir alveg vinstri
hægri um helgina. Ýmist fyrir það
að vera of lélegir eða of góðir,“
segir Jón og hlær. Hann segir sér-
staka dómnefnd taka fyrir allar
kærur sem telji á annað hundrað á
hverju ári.
„Í tíu ára sögu Mýrarboltans
hefur öllum kærum verið hafnað,
engin kæra hefur verið tekin til
greina. Það kemur hins vegar ekki
í veg fyrir það að á annað hundrað
kærur berist á hverju móti,“ segir
Jón. Hann segir margar kærurnar
vera mjög skemmtilegar og kepp-
endur oft vera í miklum orða-
leikjum.
Fimmtíu lið tóku þátt í ár og var
það liðið Ísak City sem sigraði í
flokki karla og FC ofurkonur sem
stóðu uppi sem sigurvegarar í
flokki kvenna.
Morgunblaðið/Sigurjón J. Sigurðsson
„Drullu-gaman“ Fimmtíu lið tóku þátt í Mýrarboltanum í ár og að sögn
mótshaldara voru lagðar fram á annað hundrað kærur á mótinu í ár.
Kærðir fyrir að vera
lélegir í Mýrarbolta
Um það bil klukkutíma áður en
brekkusöngurinn hófst í Herj-
ólfsdal á sunnudaginn, undir
stjórn Ingólfs Þórarinssonar,
tók að hvessa í Herjólfsdal og
tjöld fóru að fjúka. Að sögn
Birgis Guðjónssonar var brugð-
ist strax við því með því að opna
íþróttahúsið.
„Fólkið svaf þar um nóttina.
Það voru nokkur hundruð
manns sem nýttu sér það,“ seg-
ir Birgir en í íþróttahúsinu í
Vestmannaeyjum eru tveir stór-
ir salir. „Annar salurinn fylltist
upp undir morgun og þá var
hinn opnaður,“ segir Birgir.
„Fólk var orðið þreytt, búið að
skemmta sér í þrjá sólahringa
og var mjög fegið því að koma
úr rokinu í svefnpokann sinn.“
Vindasamur
sunnudagur
ÞJÓÐHÁTÍÐARGESTIR
GISTU Í ÍÞRÓTTAHÚSINU