Morgunblaðið - 05.08.2014, Page 14

Morgunblaðið - 05.08.2014, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. ÁGÚST 2014 Nethyl 2 110 Reykjavík Sími 568 1245 Sérfræðingar í líkamstjónarétti Veitum fría ráðgjöf fyrir tjónþola Pantaðu tíma: fyrirspurnir@skadi.is www.skadi.is Þ. Skorri Steingrímsson, Héraðsdóms- lögmaður Steingrímur Þormóðsson, Hæstaréttar- lögmaður Gunnar Björnsson Tromsö Þremur umferðum er nú lokið á Ól- ympíuskákmótinu sem fram fer í Tromsö í Norður-Noregi. Eftir þrjár umferðir hafa báðar íslensku sveit- irnar hlotið 4 stig af 6 mögulegum. Veitt eru tvö stig fyrir sigur í við- ureign, eitt fyrir jafntefli en ekkert fyrir tap. Fimm eru í hverju liði og tefla fjórir í einu. Í fyrstu umferð unnu báðar sveit- irnar 4-0 stórsigra á töluvert lakari sveitum, Eþíópíu og Namibíu. Í ann- arri umferð unnu karlarnir 3-1 sigur á Írum á meðan kvennaliðið tapaði stórt ½-3½ fyrir sterkri sveit Kúbu. Í þriðju umferð, sem fram fór í gær vann kvennaliðið stórsigur, 4-0, á IPCA, sem er fjölþjóðleg sveit hreyfihamlaðra. Á ólympíu- skákmótum tefla fjölþjóðlegar sveit- ir fatlaðra, blindra og sjónskerta og heyrnarskerta. Rímar vel við ein- kunnarorð skákarinnar, Gens Una Sumus – við erum ein fjölskylda. Sigur stelpnanna var mjög öruggur og unnu Tinna Kristín og Elsa María sínar skákir mjög hratt og örugglega. Hallgerður Helga og Lenka þurftu að hafa meira fyrir hlutunum. Liðið í opnum flokki tapaði 1½-2½ fyrir Serbum. Svekkjandi úrslit því útlitið var afar gott um tíma og jafn- vel stefndi í sigur. Hannes Hlífar Stefánsson og Helgi Ólafsson, sem báðir gerðu jafntefli, höfðu báðir unnið tafl á vissum tímapunktum. Hjörvar Steinn Grétarsson var seig- ur að halda jafntefli en Þröstur Þór- hallsson tapaði sinni skák. Garry Kasparov kom á skákstað og horfði á lokaátökin. Hann heilsaði þar sérstaklega upp á Jón L. Árna- son, liðsstjóra liðsins. Jón varð heimsmeistari sautján ára og yngri árið 1977 en þá varð Kasparov að sætta sig við þriðja sætið. Ellefu sveitir með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir Í fjórðu umferð í dag teflir liðið í opnum flokki við sveit Svía en stelp- urnar mæta sveit Venesúela. Meðal viðureigna dagsins á morgun má nefna Frakkland-Aserbaídsjan og Rússland-Kína. Ellefu sveitir hafa enn fullt hús stiga í opnum flokki. Þar á meðal eru Frakkar, sem unnu Ólympíumeistara Armena, Serbar og Rússar sem unnu Makedónía 4-0. Norðmenn, sem unnu Svartfell- inga, eru efstir Norðurlandanna með 5 stig. Magnus Carlsen vann stór- meistarann Nikola Djukic. Í kvennaflokknum eru Íranir efst- ir – eitthvað sem kemur verulega á óvart. Góðar aðstæður í Tromsö Afar góðar aðstæður eru í Tromsö. Teflt er í gamalli brugg- verksmiðju rétt við sjávarmálið. Vel fer um Íslendingana sem láta bjart- ar sumarnætur, ferskt sjávarloft, skipsflautur og mávagarg engin áhrif hafa á sig. Báðar sveitirnar með 4 stig af 6  Íslensku sveitirnar hafa unnið 2 viðureignir af 3 á Ólympíuskákmótinu sem fram fer í Tromsö  Sveitin sem teflir í opnum flokki mætir Svíum í dag  Kvennasveitin mætir Venesúela Ljósmynd/Gunnar Björnsson Taflið að hefjast Hannes Hlífar Stefánsson, Hjörvar Steinn Grétarsson, Þröstur Þórhallsson og Helgi Ólafsson töpuðu naumlega á móti Serbum. Ljósmynd/Gunnar Björnsson Kvennasveit Lenka, Hallgerður, Tinna Kristín og Jóhanna tefldu á móti fjölþjóðlegri sveit hreyfihamlaðra í gær. Fyrstu sjö mánuðir ársins 2014 hafa verið óvenjuhlýir og hafa að- eins þrisvar verið hlýrri í Reykjavík frá upphafi samfelldra mælinga ár- ið 1871. Það var árin 1964, 1929 og 2003. Á Akureyri hafa fyrstu sjö mánuðir ársins aldrei mælst hlýrri en nú, en jafnhlýir 1964. Þetta kemur fram í yfirliti sem Trausti Jónsson veðurfræðingur hefur tekið saman og birt er á vef Veðurstofunnar. Á Akureyri hefur úrkoma aðeins einu sinni áður mælst meiri fyrstu sjö mánuði ársins heldur en nú. Það var 1989. Úrkoman hingað til er nú um 60 prósent umfram meðallag og hefur nú þegar náð 85 prósentum meðalársúrkomu. Rigning langt yfir meðallagi Í Reykjavík var sérlega þurrt í janúar og febrúar og úrkoma var nærri meðallagi í apríl og maí. Aft- ur á móti var úrkoma langt yfir meðallagi í mars, júní og júlí. Summa fyrstu sjö mánaðanna er um 15 prósent umfram meðallag áranna 1961 til 1990. Meðalloftþrýstingur í Reykjavík fyrstu sjö mánuði ársins er enn langt undir meðallagi og hefur að- eins átta sinnum verið lægri frá því að samfelldar mælingar hófust árið 1823. Sólskinsstundir það sem af er ári eru um 90 færri á Akureyri en að meðaltali 1961 til 1990. Í Reykjavík eru sólskinsstundirnar rúmlega 100 stundum færri en að meðaltali sama tímabil. Þær eru 267 stundum færri heldur en að meðaltali fyrstu sjö mánuði ársins síðustu 10 árin (2004 til 2013) og það minnsta í sömu mánuðum ársins frá 1992. Ljósmynd/Skapti Hallgrímsson Votvirði Mikið rigndi á ungu dreng- ina sem öttu kappi nyrðra í júlí. Óvenjumikil hlýindi á Akureyri á árinu  Úrkoman þar 60% umfram meðallag Forsetakosningar alþjóðlega skákmótsins, FIDE, fara fram 11. ágúst nk. Þar berjast um forsetastólinn Kirsan Ilyumzhinov, forseti FIDE til síðustu 19 ára, og áskorand- inn Garry Kasparov. Stóryrðin falla á báða bóga. Kasparov hefur tekið til þess ráðs að hengja upp auglýsingar út um allan bæ sem hann er kynntur sem framtíðin en Ilyumzhinov notar aðrar að- ferðir. Kasparov hefur sakað um hann óheiðarleg vinnu- brögð varðandi kjörbréf og umboð sumra þjóða. Sakar þar hann skrifstofu FIDE um óeðlileg afskipti. Í gær héldu Kasparov og stuðningsmenn hans blaða- mannafund þar sem fram- boðið var kynnt. Eðli málsins var töluvert rætt um stjórn- mál. Kom þar fram að mörg skáksambönd hafa fengið símtöl og tölvupósta frá sendiráðum Rússum. Má þar nefna flest ef ekki öll Norð- urlöndin. Forseti Skáksambands Ís- lands, Gunnar Björnsson, fékk meðal annars slíkt sam- tal þegar hann var á flugvell- inum í Ósló á leið til Tromsö sl. föstudag. Var hann spurð- ur um afstöðu Íslendinga í forsetakosningum FIDE. Gunnar tjáði sendiráðsstarfs- manninum að Ísland myndi styðja Kasparov. Var honum þá þakkað fyrir upplýsing- arnar og Íslandi óskað góðs gengis á Ólympíuskákmótinu. Rússar nota sendiráðin TÆPLEGA VIKA TIL FORSETAKOSNINGA FIDE

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.