Morgunblaðið - 05.08.2014, Qupperneq 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. ÁGÚST 2014
ÁLÞAKRENNUR
Viðhaldslitlar
Þegar hús eru klædd með „viðhaldsfrírri“ klæðningu
er nauðsynlegt að nota „viðhaldsfríar“ þakrennur
Rennurnar frá Grövík Verk í Noregi eru gerðar úr 0.9 mm áli og tærast ekki,
ryðga né brotna. Fyrsta rennan var framleidd árið 1956 og er enn í notkun.
Litir til á lager: Svartar, hvítar, gráar, rauðbrúnar og ólitaðar.
Seljum einnig varmaskiptasamstæður, loftræstistokka og tengistykki.
Smiðjuvegi 4C
Box 281 202 Kópavogur
Sími 587 2202
Fax 587 2203
hagblikk@hagblikk.is
www.hagblikk.is
HAGBLIKK ehf.
SVIÐSLJÓS
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
,,Við erum komin með 15 listamenn
til okkar sem munu sinna sköpun
sinni hér næsta árið,“ segir Björt
Sigfinnsdóttir, sem keypti og gerði
upp sögufrægt hús á Seyðisfirði
ásamt þremur skólafélögum frá
Danmörku. Húsið er vettvangur
fyrir listamenn og frumkvöðla
hvaðanæva að úr heiminum til að
sinna sköpun sinni. Greiða þeir með-
limagjald fyrir aðgang að húsinu í
eitt ár í senn.
Rúmlega 130 ára gamalt hús
Húsið er nátengt sögu Seyðis-
fjarðar. Elsti hluti þess er frá árinu
1880 og í því var verslunin EJ
Waage, sem rekin var af Waage-
fjölskyldunni í 100 ár.
Farið var heldur óvenjuleg leið til
þess að gera húsið upp. Tíu sjálf-
boðaliðum var boðið að koma til Ís-
lands gegn því að greitt var fyrir þá
flugfar og matur meðan á dvöl
þeirra stóð. Þessir tíu sjálfboðaliðar
unnu undir handleiðslu smiða, raf-
virkja og pípara að uppbyggingunni,
sem lauk síðastliðinn vetur.
Að sögn Bjartar dvelja nú sjö
listamenn í húsinu. Eru þar á meðal
myndlistarmenn, ljósmyndari og
myndbandsgerðarmaður og
skúlptúrgerðarmaður svo að dæmi
séu nefnd. ,,Fólk kaupir aðild til eins
árs í senn og hefur þá aðgang að
húsinu í þann tíma. Flestir dvelja í
þrjá til sex mánuði í húsinu á ári,“
segir Björt.
Meðlimagjaldið er 250 þúsund
krónur og að sögn Bjartar er full-
mannað í húsinu á þessu ári. Að sögn
hennar kemur fólk hvaðanæva að úr
heiminum til að dvelja í húsinu og nú
er þar t.a.m. fólk frá Frakklandi og
Ástralíu. „Við fengum miklu fleiri
umsóknir en við höfum pláss fyrir.
Við þurftum að afþakka rúman
helming umsóknanna,“ segir Björt.
Auk þess að hafa aðgang að húsinu
segir Björt að þeir sem dvelji í hús-
inu skapi bæði viðskipta- og tilfinn-
ingatengsl sem þeir taki með sér.
„Þetta hefur farið miklu betur af
stað en við þorðum að vona. Hlut-
irnir gerðust mjög hratt, í rauninni
bara á einum mánuði. Við höfðum í
fyrstu áhyggjur af því að það yrði
erfitt að fá meðlimi. En svo flæddu
umsóknirnar skyndilega inn og allt
fylltist á einum mánuði,“ segir Björt.
Starfsemin hófst í maí og hafa með-
limir því dvalið í húsinu undanfarna
þrjá mánuði. ,,Fólk hefur ýmist ver-
ið hér í einn eða þrjá mánuði í senn.
Svo þegar fólk fer er slegið upp
stórri veislu og grátið,“ segir Björt í
gamansömum tón. „ Það helgast af
þeim djúpa vinskap sem myndast á
þessum tíma. Það er ótrúlega fallegt
að sjá þau samstarfsverkefni og þá
vináttu sem hefur skapast á þessum
tíma,“ segir Björt.
Húsið var talið ónýtt
Björt á húsið ásamt Dönunum
Andreas Lemche, Lars Hogenhof og
Jonatan Jensen. Hún kynntist þeim
í lýðháskóla í Danmörku og bauð
þeim á listahátíðina LungA fyrir
fjórum árum og þeir hrifust af firð-
inum. Húsið hafði staðið autt í nokk-
ur ár og var að niðurlotum komið.
„Áður en við keyptum það fengum
við að heyra það hjá Íbúðalánasjóðið
að það væri flokkað sem ónýtt hús.
Við fengum að kaupa það og höfum
lagt gríðarlega peninga og tíma í að
gera það upp,“ segir Björt.
Þurftu að vísa mörgum frá
Ný vinnustofa fyrir frumkvöðla og listamenn á Seyðisfirði Allt fylltist á einum mánuði Flugu
inn tíu sjálfboðaliðum sem gerðu upp húsið Gengið betur en þau þorðu að vona Húsið talið ónýtt
Ljósmynd/Björt Sigfinnsdóttir
Sögufrægt hús Í húsi sem nú hýsir listamenn og frumkvöðla var áður rekinn verslunin EJ Waage og var rekin af Waage fjölskyldunni í 100 ár.
Morgunblaðið/Golli
Eiga húsið Björt, Jonatan og Lasse þegar Morgunblaðið heimsótti þau síð-
astliðið haust. Þá voru framkvæmdir í fullum gangi, en þeim er nú lokið.
Rými Í húsinu er gott rými þar sem
listamenn getur athafnað sig.
Bráðlega hefst
fyrsta fulla önnin
í LungA háskóla,
sem er fyrsti
lýðháskólinn á
Íslandi. Opið er
fyrir umsóknir
til 15. ágúst og
skólinn hefst í
september. Er
hver önn 12 vik-
ur og kostar hún
520 þúsund krónur. Í skólanum er
rík áhersla lögð á mannrækt og að
efla sjálfið með list og sköpun. „Við
prófuðum þetta í mars og apríl á
þessu ári og það gekk mjög vel. Þá
fengum við 17 nemendur frá átta
löndum,“ segir Björt, sem er ein af
stofnendum skólans. Meðal kenn-
ara er Saga Sigurðardóttir dansari,
danski leikarinn Christian Gade
Bjerrum, og fleiri. Björt segir að
skólinn hafi fengið um 20 umsóknir
en einungis er pláss fyrir 17-20 á
hverri önn.
Efla sjálfið
með sköpun
Björt
Sigfinnsdóttir