Morgunblaðið - 05.08.2014, Blaðsíða 19
FRÉTTIR 19Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. ÁGÚST 2014
SCREEN- OG
RÚLLUGARDÍNUR
Henta vel þar sem sól er mikil
en þú vilt samt geta séð út
Sendum frítt hvert á land sem er gegn staðgreiðslu
Hringdu og bókaðu tíma í máltöku
Meira úrval
Meiri gæði
Íslensk
framleiðsla
eftir máli
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík. Sími: 588 5900 ▪ Tjarnargötu 17, Keflavík. Sími: 421 2061
Glerárgötu 32, Akureyri. Sími: 462 5900 ▪ alnabaer.is ▪ Opnunartími: mán.-fös. 11-18
VIÐTAL
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Verk ungrar auglýsingastofu hafa
vakið nokkra athygli að und-
anförnu. Stofan ber nafn með
rentu, Hype, og er mönnuð fjórum
ungum mönnum
utan af landi.
Sævar Már
Björnsson fram-
kvæmdastjóri
hlær þegar
blaðamaður
bendir honum á
að það stangist á
við flestar staðal-
ímyndir um íbúa
dreifbýlisins að
vera brautryðjendur á sviði hönn-
unar og tækni. Þrír ungu mann-
anna koma frá Höfn í Hornafirði
og sá fjórði frá Sauðárkróki og
hafa þeir menntun á sviði við-
skipta- og markaðsfræði auk graf-
ískrar hönnunar og verkfræði.
„Einhverjar mannabreytingar
hafa orðið innan hópsins síðan
Hype varð til árið 2012, en frá upp-
hafi hefur hönnuðurinn Daniel Ims-
land verið kjarninn í starfinu,“ út-
skýrir Sævar. „Upphaflega vað
Hype til í kringum vefsíðugerð þar
sem vefumsjónarkerfið WordPress
er grunnurinn en út frá því höfum
við vaxið í aðrar áttir s.s. gerð aug-
lýsinga, hönnun prentefnis, um-
búða, vörumerkja og veitingu
markaðsráðgjafar. Má segja að við
tökum að okkur að leysa hvers
kyns verkefni á sviði grafískrar
hönnunar.“
Landsbyggðartengingin
sem styrkleiki
Að sögn Sævars hefur það, ef
eitthvað er, verið Hype til fram-
dráttar að starfsmennirnir eiga all-
ir rætur sínar að rekja til lands-
byggðarinnar. Á þeirra borð hafi
ratað ófá verkefni fyrir mat-
vælaframleiðendur í héraði og líka
að vefsíðugerð fyrir ferðaþjón-
ustuna sem hefur skipt miklu fyrir
reksturinn. „Hype væri ekki statt
þar sem það er í dag ef ekki hefði
verið fyrir mikla eftirspurn frá
sveitahótelum, veitingastöðum víða
um land og öðrum seljendum vöru
og þjónustu fyrir ferðamenn. Vel-
gengni Hype er, þegar grannt er
skoðað, gott dæmi um þá keðju-
verkun sem orðið getur í hagkerf-
inu, þegar uppgangur í ferðaþjón-
ustu smitast yfir í tækni- og
hönnunarfyrirtæki eins og okkar.“
Það vekur athygli blaðamanns að
Hype skuli nota WordPress sem
undirstöðuna í vefsíðuhönnun sinni.
WordPress er vinsælt og opið for-
rit til að halda utan um texta- og
myndefni á vefsíðum og þykir not-
endavænt tæki fyrir leikmenn sem
vilja hanna eigin síður. Mætti jafn-
vel greina það viðhorf að það sé
ögn „ófínt“ að halda úti vef byggð-
um á WordPress, og meira við hæfi
bloggsíða en sem andlit fyrirtækja
út á við.
Sævar bendir hins vegar á að
WordPress þjóni mjög vel þörfum
flestra fyrirtækja og bjóði upp á
vefsíður sem eru bæði snotrar og
auðvelt að viðhalda. „Gamla nálg-
unin hjá íslenskum vefsíðusmiðjum
var að vefurinn var nánast smíð-
aður frá grunni ofan á heimasmíð-
að vefumsjónarkerfi. Þetta kallaði
á flóknari vinnubrögð og meiri
tæknilega vinnu. Oft voru vefsíð-
urnar seldar með mánaðarlegu
áskriftargjaldi fyrir vefumsjón-
arkerfið. Ofan á það vildu síðan
tínast ýmis þjónustugjöld ef eitt-
hvað fór úrskeiðis og vefurinn virk-
aði ekki sem skyldi,“ útskýrir
hann.
„Með WordPress er viðskiptavin-
urinn hins vegar að fá opinn, áreið-
anlegan og ókeypis hugbúnað, og
þar sem minna reynir á flókna
tæknilega vinnu við vefsíðugerðina
er hægt að leggja aukinn kraft í
hönnun og hugmyndavinnu.“
Reiknar Sævar með að þróunin í
vefsíðugerðarheiminum muni halda
áfram í þessa átt. „Þegar um er að
ræða einfaldar heimasíður sem
gegna því hlutverki að koma til
skila upplýsingum og auðkenni fyr-
irtækisins mun tæknilega hliðin og
forritunin sjálf fá æ minna vægi á
móti útlitshönnuninni, textaskrif-
unum, þarfagreiningu og bestun
síðunnar m.t.t. sýnileika á leit-
arvélum.“
Gamlar síður í sjávarútvegi
Talið berst yfir í frammistöðu ís-
lenskra fyrirtækja, bæði á vefsv-
iðinu en líka á sviði umbúðahönn-
unar. Sævar er á því að víða megi
gera betur, og svo virðist að í þeim
geirum atvinnulífsins þar sem
reksturinn er í föstum skorðum
hætti mönnum til að vera væru-
kærir. „Áhugavert er að bera t.d.
saman ferðaþjónustu og sjávar-
útveg. Þeir sem reka ferðaþjón-
ustufyrirtæki vita að óvönduð vef-
síða kostar þá gesti. Í sjávarútvegi
eru heimasíður fyrirtækja hins
vegar oft í eldri kantinum og hefur
ekki verið lögð mikil áhersla á
hönnun umbúða utan um afurðir.
Þetta stefnir kannski ekki rekstr-
inum í hættu, eins og væri raunin í
ferðaþjónustu, en eflaust mætti
auka verðmæti afurða í sjávar-
útvegi með því að leggja meiri
áherslu á hönnun og markaðs-
setningu.“
Nýta ekki góða hönnun sem skyldi
Segir hönnun umbúða og vefsíða sumstaðar áfátt Ferðaþjónustan er almennt vel með á nót-
unum enda er vönduð vefsíða þar lífsspursmál, en tækifæri eru til að gera betur, t.d. í sjávarútvegi
Morgunblaðið/Golli
Sýnileiki Sævar ber saman ferðaþjónustu og sjávarútveg, og hvernig atvinnugreinarnar eru eins og andstæður þegar kemur að því að nota umbúða- og
vefhönnun í markaðsstarfi. Annar geirinn er mjög framarlega og með á nótunum en hinn gæti gert mun betur. Ferðamenn mynda sig á Skólavörðustíg.
Sævar Már
Björnsson
Alþjóðlegi
risabankinn
HSBC til-
kynnti á
mánudag
að hagn-
aður af
rekstri
hefði dreg-
ist saman á fyrsta helmingi ársins.
Tekjur drógust saman um 4%, frá
32,7 milljörðum dala á fyrsta helm-
ingi síðasta árs niður í 31,36 millj-
arða dala nú. Hagnaður var 10
milljarðar á sama tímabili í fyrra en
var 9,46 milljarðar dala fyrstu sex
mánuði þessa árs.
Tölurnar komu markaðs-
greinendum ekki á óvart, að sögn
WSJ, en fjárfestingabanka-armur
HSBC átti brösugan fyrsta árs-
fjórðung. Einnig hefur illa gengið
hjá þeim deildum bankans sem
þjónusta verslunargeirann og ann-
ast fjárfestingaráðgjöf ein-
staklinga. ai@mbl.is
Hægir á
hjá HSBC