Morgunblaðið - 05.08.2014, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. ÁGÚST 2014
Gott útsýni af
svölum – pottinum – pallinum
SÍ A 196
9
GLER OG SPEGLARSmiðjuvegi 7 Kópavogi • Sími 54 54 300 • ispan .is
SKJÓLVEGGIR MEÐ GLERI
Stjórnvöld í Nígeríu tilkynntu í gær
að læknir í borginni Lagos, sem sinnt
hafði sjúklingi með ebólu í Líberíu,
væri nú sjálfur smitaður af veikinni.
Er þetta annað staðfesta tilfelli ebólu
í þessari borg.
„Sá sem um ræðir er einn þeirra
lækna sem sinntu sjúklingnum sem
lést af völdum ebólu í Líberíu,“ segir
Onyebuchi Chukwu, heilbrigðisráð-
herra Nígeríu, í samtali við frétta-
veitu AFP. Að sögn ráðherrans er
nú fylgst grannt með sjötíu einstak-
lingum til viðbótar en þeir höfðu all-
ir umgengist áðurnefndan sjúkling.
Átta þeirra hafa þegar verið settir í
einangrun í borginni Lagos.
Hitt ebólu-tilfellið í Lagos var þeg-
ar starfsmaður fjármálaráðuneytis
Líberíu hélt þangað til fundar. Telja
menn fullvíst að hann hafi smitast af
sjúkdómnum í gegnum systur sína
skömmu áður en hann sótti Nígeríu
heim. Á ferð sinni þangað millilenti
maðurinn í Tógó og var hann orðinn
sýnilega veikur við komuna til Lagos
þann 20. júlí síðastliðinn. Var hann í
kjölfarið fluttur á sjúkrahús þar sem
hann lést fimm dögum síðar. Sjúkra-
húsinu hefur nú ótímabundið verið
lokað. Alls hafa 887 manns látist í far-
aldrinum.
Læknir í Nígeríu
smitaður af ebólu
AFP
Ebóla Læknar klæða sig í nauðsynlegan hlífðarbúnað áður en þeir hitta
sjúklinga sína. Talið er að hátt í 1.500 manns séu nú smitaðir af ebólu.
Svo gæti farið að
breskar her-
sveitir verði
sendar inn í Afg-
anistan á nýjan
leik verði landið
athvarf hryðju-
verkamanna.
Þetta segir Peter
Wall, hershöfð-
ingi og æðsti yf-
irmaður breska
hersins, í viðtali við breska dag-
blaðið Daily Telegraph.
Segist hann þó fullviss um að afg-
anskar öryggissveitir byggju yfir
getu til að tryggja öryggi í landinu
þegar hersveitir Atlantshafs-
bandalagsins yfirgefa það í lok
þessa árs. Bendir Wall hins vegar á
að ef aðstæður breytast til hins
verra og staða vígasveita talibana
styrkist enn frekar í landinu gæti
verið þörf á bresku herliði þar
áfram.
Frá árinu 2001 hafa 453 breskir
hermenn fallið í átökum við sveitir
talibana í Afganistan. khj@mbl.is
Sterk staða talibana
gæti kallað á fleiri
breska hermenn
Hermenn NATO í
Afganistan.
AFGANISTAN
Mikil leit stendur enn yfir að eftirlifendum jarð-
skjálftans sem reið yfir suðvesturhluta Kína síð-
astliðinn sunnudag. Mældist skjálftinn 6,1 stig og
voru upptök hans á um tíu kílómetra dýpi.
Fréttaveita AFP greinir frá því að hátt í 400
manns eru látnir auk þess sem mörg þúsund eru
sagðir slasaðir. Hafa yfir 12.000 hús þegar hrun-
ið til grunna auk þess sem um 30.000 byggingar
liggja undir skemmdum á skjálftasvæðinu í
Yunnan-héraði. Á myndinni má sjá björg-
unarmann flytja slasað stúlkubarn á leið til
læknis nóttina eftir að skjálftinn reið yfir.
Hátt í 400 eru látnir og mörg þúsund særðir
AFP
Leita enn eftirlifenda jarðskjálftans í Kína
Sjötíu ár voru í
gær liðin frá
handtöku dag-
bókarritarans
Anne Frank.
Fjölskylda henn-
ar flúði Þýska-
land og uppgang
nasismans á tím-
um síðari heims-
styrjaldar og
flutti til Hollands. Faldist hún
ásamt fjölskyldu sinni á geymslu-
lofti í húsi í Amsterdam í tvö ár.
Meðan á þeim tíma stóð hélt stúlkan
dagbók þar sem hún lýsti lífi sínu.
Þann 4. ágúst 1944 var fjöl-
skyldan handtekin ásamt fjórum
öðrum eftir að nafnlaus ábending
barst liðsmönnum SS-sveitanna.
Voru þau í kjölfarið flutt í Bergen-
Belsen-fangabúðirnar þar sem hún
lést 15 ára gömul árið 1945.
SÍÐARI HEIMSSTYRJÖLD
Sjötíu ár frá hand-
töku Anne Frank
Anne FrankKristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Samkomulag náðist í gærkvöld milli
Ísraelsmanna og Palestínumanna
um 72 klukkustunda vopnahlé.
Átti það að taka gildi klukkan
fimm í nótt, eða klukkan átta að stað-
artíma, en stutt er liðið frá því að ut-
anríkisráðherra Bandaríkjanna
greindi frá samskonar samkomulagi
milli stríðandi fylkinga. Liðu þá ein-
ungis um tvær klukkustundir þar til
átök á Gaza hófust á nýjan leik.
Fréttaveita AFP greinir frá því að
samkomulagið hafi m.a. náðst fyrir
tilstuðlan samningamanna frá
Egyptalandi og að deiluaðilar hafi
þegar fallist á frekari viðræður.
Endurskoða vopnaútflutning
Bresk stjórnvöld hafa, í ljósi
ástandsins á Gaza, ákveðið að endur-
skoða vopnasölusamninga við Ísrael.
Þetta staðfestir talsmaður forsætis-
ráðuneytisins í Bretlandi við AFP.
Hergögnin sem um ræðir eru mest-
megnis íhlutir í skotfæri, ómannaðar
flugvélar og brynvarða bíla svo fátt
eitt sé nefnt. Viðskipti þessi nema
alls um 42.000.000 breskra punda.
Benjamín Netanyahu, forsætis-
ráðherra Ísraels, sagði í gær að árás-
um Ísraelshers myndi ekki linna á
Gaza fyrr en „öryggi íbúa Ísraels
hefði verið tryggt“.
Yfir 1.800 Palestínumenn og 67
Ísraelsmenn, þar af 64 hermenn,
hafa nú fallið í átökunum.
Annað samkomulag um vopnahlé
Bretar vinna nú að því að endurskoða vopnasölusamninga sína við Ísrael
AFP
Vígatól Bryndrekar Ísraelshers.