Morgunblaðið - 05.08.2014, Síða 21
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. ÁGÚST 2014
Ökufærni er lykilatriðið
þegar ungmenni hefja akstur.
Hvar fær ungmennið þitt kennslu?
Hluti námsins fer fram í fullkomnum ökuhermi
Áhersla lögð á færni nemenda og öryggi þeirra í umferðinni
Allt kennsluefni innifalið
Ökukennsla www.bilprof.is
Upplýsingar og innritun í síma 567 0300 • Opið 10-17 alla daga.
Hringdu
núna
og bóka
ðu
ökuskól
ann
ÖKUSKÓLINN Í MJÓDD
– yfir 40 ár í fagmennsku.
Þekking og reynsla í fyrrirúmi
Kringlunni • Sími 568 7777 • heyrnarstodin.is HEYRNARSTÖ‹IN
Snjallara heyrnartæki
Beltone First™
Nýja Beltone First™ heyrnartækið tengist þráðlaust beint í iPhone, iPad
og iPod touch. Komdu og prófaðu, það er engu líkt!
Beltone First gengur með iPhone 5s, iPhone 5c, iPhone 5, iPad Air, iPad (4. kynslóð), iPad mini með Retina, iPad mini og iPod touch (5. kynslóð) með iOS eða nýrra stýrikerfi.
Apple, iPhone, iPad og iPod touch eru vörumerki sem tilheyra Apple Inc, skráð í Bandaríkjunum og öðrum löndum.
Þýsk stjórnvöld
hafa rift samn-
ingi við rúss-
neska herinn
vegna stuðnings
Rússa við
herskáa aðskiln-
aðarsinna í
Úkraínu. Samn-
ingurinn kvað á
um uppbyggingu
og notkun á æf-
ingaraðstöðu fyrir herinn í Þýska-
landi. Voru það stjórnvöld í Rúss-
landi og þýska
hergagnafyrirtækið Rheinmetall
Defence sem stóðu að samn-
ingnum en hann hljóðaði upp á
hundrað milljónir evra.
Sigmar Gabriel, varakanslari og
viðskiptaráðherra Þýskalands, til-
kynnti um þetta í gær. Verkefninu
hafði áður verið frestað í mars
síðastliðnum vegna þeirrar miklu
spennu sem ríkt hefur á Krím-
skaga að undanförnu.
Riftu samningi við
rússneska herinn
Sigmar
Gabriel
ÞÝSKALAND
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Ferja með allt að 200 farþegum inn-
anborðs sökk skammt frá höfuð-
borginni Dhaka í Bangladess í gær-
morgun. AFP-fréttaveitan greinir
frá því að um 100 hafi verið bjargað
eftir slysið, tveir eru sagðir látnir en
óvíst var með afdrif annarra sem um
borð voru þegar Morgunblaðið fór í
prentun. Orsök slyssins eru ekki
fyllilega ljós en veður var mjög
slæmt á svæðinu og ferjan að
líkindum ofhlaðin.
„Öldurnar voru risastórar og ferj-
an vaggaði mjög mikið. Eftir að stór
alda skall á henni fylltist ferjan af
vatni. Því næst valt hún og sökk,“
segir Syed Saadi, einn farþega ferj-
unnar, í samtali við AFP. Eiginkona
hans og tveir synir eru meðal þeirra
sem nú er leitað. Slysið átti sér stað á
ánni Padma, um 30 kílómetra suður
af höfuðborginni.
Nota neðansjávarmyndavél
Við björgunarstörf á svæðinu
njóta björgunarmenn liðsinnis sjó-
hersins. Meðal þeirra tækja sem not-
ast er við er skip útbúið sérstakri
neðansjávarmyndavél. Vonast
björgunarmenn til að geta fundið
flak ferjunnar með hennar aðstoð.
Ferjuslys eru nokkuð tíð í Bangla-
dess. Í mörgum tilfellum er um að
kenna lélegu viðhaldi auk þess sem
þær eru oft yfirhlaðnar af fólki.
Farþegaferja sökk
með um 200 manns
„Öldurnar voru risastórar,“ segir einn farþegi ferjunnar
AFP
Fólk Ferjur eru oft ofhlaðnar.
Mörg þúsund manns komu saman
til þess að minnast sjö einstaklinga
sem allir týndu lífi þegar flugvél
Air Algerie brotlenti í Malí þann 24.
júlí síðastliðinn. Fólkið tilheyrði
sömu fjölskyldu en um er að ræða
hjón, fjögur börn þeirra og frænda.
Alls létust 118 manns þegar flug-
vélin, sem var á leið frá Búrkína
Fasó til Algeirsborgar, brotlenti.
Þúsundir komu saman til minningarstundar
AFP
Látinnar fjölskyldu minnst
Frönsk herþota af gerðinni Mirage 2000B brotlenti í
suðurhluta Frakklands í gær. Um borð í vélinni voru
tveir flugmenn og náðu þeir að skjóta sér út áður en þot-
an skall til jarðar. Þeir eru, samkvæmt upplýsingum frá
varnarmálaráðuneyti Frakklands, ómeiddir.
Tildrög slyssins eru óljós sem stendur en AFP-
fréttaveitan greinir frá því að flugmennirnir hafi til-
kynnt um vélabilun skömmu áður en atvikið átti sér stað.
Stutt er síðan önnur frönsk herþota sömu gerðar brot-
lenti. Gerist það í júní á þessu ári og átti atvikið sér stað
yfir Afríkuríkinu Níger. Var þotan þá á flugi frá Malí
áleiðis til herflugvallar þegar flugmenn hennar til-
kynntu um vélabilun. Höfðu þeir skömmu áður gert loftárásir á æfingabúð-
ir og birgðageymslur herskárra íslamista í norðurhluta landsins.
Franski flugherinn tók Mirage-herþotur fyrst í sína þjónustu árið 1982
og eru þeir nú með yfir 300 slíkar vélar í notkun. khj@mbl.is
FRAKKLAND
Flugmenn Mirage-herþotu skutu sér út
Frakkar eiga yfir
300 Mirage-vélar.