Morgunblaðið - 05.08.2014, Side 25

Morgunblaðið - 05.08.2014, Side 25
UMRÆÐAN 25 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. ÁGÚST 2014 Smiðjuvegi 68-72, Rvk Hjallahrauni 4, Hfj Fitjabraut 12, Njarðvík Eyrarvegi 33, Selfossi Barðinn, Skútuvogi 2 Við tökum að okkur: Peruskipti, rafgeymaþjónustu, bremsuviðgerðir, stýrisenda, spindilkúlur, kerti, kertaþræði, hjólalegur, fjöðrunarbúnað, viftureimar, hjólastillingar og margt fleira. LAGFÆRUM BÍLINN VIÐ www.solning.is Gnoðarvogi 44, 104 Rekjavík | sími: 588 8686 | hafberg@internet.is | hafberg.is GLÆNÝ RAUÐSPRETTA LAXASTEIKUR Í HVÍTLAUK OG SÍTRÓNUPIPAR KEILUSTEIKUR OG LANGA Á GRILLIÐ LÉTTSALTAÐAR GELLUR AÐEINS 990 KR/KG VIRKA DAGA 10.00 - 18.15 LAUGARDAGA 11.00 - 15.00 OPIÐ Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein- ar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam- skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla. Að senda grein Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er valinn. Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólar- hringinn. Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18. Sunnudaginn 6. júlí sl. gaf Mahmoud Ab- bas, forseti Palestínu, út stutta yfirlýsingu til fjölmiðla sem við- staddir voru í Ramal- lah: „Þeir sem óttast dómstóla ættu að stilla sig um að fremja glæpi.“ (e. Those who fear co- urts should refrain from committing cri- mes). Skilaboð forsetans voru skýr; Palestína hefur í hyggju að kalla eftir inngripi Alþjóðlega sakamáladómstólsins (e. Int- ernational Criminal Court – ICC) vegna hersóknar Ísraelsmanna á Gaza. Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn En hvar kemur Alþjóðlegi saka- máladómstóllinn í Haag inn í þetta stríð? Hvernig hyggst Palestína kalla eftir inngripi dómstólsins? Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn hefur vald og hlutverk til þess að viðhafa lögsögu sína yfir ein- staklingum fyrir alvarlegustu glæpi í alþjóðlegu tilliti. Dómstóll- inn ákærir fyrir glæpi gegn mann- kyninu, stríðsglæpi og glæpi gegn friði. Dómstólnum var komið á fót með Rómarsáttmálanum sem sam- þykktur var hinn 17. júlí 1998 á ráðstefnu stjórnarerindreka sem var haldin á vegum Sameinuðu þjóðanna. Dómstóllinn er sjálfstæð stofnun og telst ekki vera hluti af Sameinuðu þjóðunum, þó að dóm- stóllinn sé rekinn aðallega á fjár- framlögum frá aðildarríkjum SÞ. Í dag eru 122 ríki aðilar að Rómar- sáttmálanum en hvorki Palestína né Ísrael eru þar á meðal. Hótun eða loforð um frið í Palestínu? Hugmyndin um inngrip Al- þjóðlega sakamáladómstólsins vegna deilu Palestínu og Ísr- aelsmanna er ekki ný af nálinni. Í janúar 2009 vísaði ríkisstjórn Pal- estínu málefnum þess til dómstóls- ins. Meira en þremur árum síðar ákvað þáverandi saksóknari dóm- stólsins, Luis Moreno-Ocampo, að dómstóllinn ætti ekki að rannsaka meint afbrot vegna þess að óljóst væri hvort Palestína væri ríki og hvort hún gæti þar með vísað mál- efnum Gaza-svæðisins til dóm- stólsins. Viðbrögð Palestínu við ákvörðun saksóknara dómstólsins um að hefja ekki rannsókn á mál- efnum Palestínu og Ísraels leyndu sér ekki, en þau voru þau að leita viðurkenningar á því að Palestína væri sjálfstætt ríki hjá hinum ýmsum stofnunum Sameinuðu þjóðanna. Allsherjarþing SÞ sam- þykkti með miklum meirihluta að viðurkenna Palestínu sem ríki og veitti því stöðu áheyranda hjá Allsherjarþingi SÞ (e. Non- Member Observer State). Athafnir Allsherjarþingsins voru augljósar, því með slíka viðurkenn- ingu í farteskinu gæti Palestína nú orðið að- ili að Rómarsáttmál- anum og vísað mál- efnum Palestínu að nýju til dómstólsins. En möguleg íhlutun Alþjóðlega saka- máladómstólsins skil- ur einnig eftir sig raunverulega ógn gagnvart ákveðnum hópum Palest- ínumanna. Það er algengur mis- skilningur að palestínsk yfirvöld geti „ákært“ eða vísað málefnum Ísraels til dómstólsins fyrir meinta glæpi sem framdir hafa verið í langvinnu, áratugalöngu stríði þeirra á milli. Í raun og veru get- ur Palestína aðeins vísað sínum eigin málefnum til dómstólsins og væru rannsakendur á vegum dóm- stólsins þá bundnir við það eitt að rannsaka meinta glæpi framda á svæðum í Palestínu en ekki í Ísr- ael. Meintum glæpum frömdum í Ísrael væri þeim óheimilt að rann- saka – m.a. uppbyggingu ólöglegra landtökusvæða af hálfu Ísraels. Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn er því engin lausn á vandanum á Gaza-svæðinu og Vesturbakk- anum. Dómstóllinn myndi ekki tryggja frið á þessu svæði. En ef dómstóllinn gæti komið einhverri ábyrgð á þá aðila sem hlut eiga í þessu stríði, myndi það ef til vill vera þess virði. Getur Palestína vísað málefnum Gaza og Vest- urbakkans til ICC? En þrátt fyrir að vera ekki aðili að Rómarsáttmála Alþjóðlega sakamáladómstólsins er uppi við- varandi misskilningur um hvað myndi gerast ef Palestína fullgilti Rómarsáttmálann. Einnig er óljóst hvort dómstóllinn hefði lögsögu yf- ir þeim glæpum sem framdir hafa verið fyrir fullgildingu Palestínu. Hins vegar er enginn vafi um að Palestína getur, á grundvelli Róm- arsáttmálans, samþykkt lögsögu dómstólsins afturvirkt til 1. júlí 2002, sem er sá dagur sem sátt- málinn tók gildi. Ákvæði 11. og 12. gr. sáttmálans kveða á um það með skýrum hætti að dómstóllinn mun einungis hafa lögsögu yfir glæpum sem framdir hafa verið eftir að ríki hefur staðfest Róm- arsáttmálann, en viðkomandi ríki er hins vegar heimilt að leggja fram tilkynningu hjá ritara dóm- stólsins um að lögsaga dómstólsins verði samþykkt afturvirkt og nái þá til þeirra glæpa sem framdir voru fyrir aðild viðkomandi ríkis. Hér er hins vegar einnig vert að benda á að Palestína þarf ekki að staðfesta Rómarsáttmálann til þess að geta vísað málefnum Gaza til Alþjóðlega sakamáladómstóls- ins. Það gæti samþykkt lögsögu dómstólsins á tilfallandi grunni (e. ad hoc basis), með vísan til 3. mgr. 12. gr. sáttmálans, og hún gæti jafnvel gert það afturvirkt, líkt og Fílabeinsströndin gerði hér áður fyrr. Hins vegar skal það athugast að ef svo færi að Palestína vísaði málefnum á Gaza og Vesturbakk- anum til dómstólsins mun rann- sóknin einnig beinast að Hamas- samtökunum og meintum glæpum þeirra gagnvart ísraelskum rík- isborgurum – og jafnvel mun frek- ar heldur en að þeim meintu glæp- um sem Palestínubúar hafa verið beittir af Ísraelsríki. Getur Palestína leitað til Alþjóðlega sakamáladómstólsins í Haag? Eftir Vigdísi Ósk Sveinsdóttur » Forseti Palestínu hefur lýst því yfir að Palestína muni kalla eft- ir inngripi Alþjóðlega sakamáladómstólsins vegna hersóknar Ísraels á Gaza. Vigdís Ósk Sveinsdóttir Höfundur er héraðsdómslögmaður, LL.M í alþjóðlegum refsirétti.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.